Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 41
myndir frá bæjarlífinu og þá sér-
staklega myndir teknar um borð í
fiskiskipum við mismunandi að-
stæður.
Hvað kvikmyndir varðar má
segja að hann hafi verið með putt-
ana í kvikmyndum alla tíð og var í
hópi frumkvöðla í kvikmyndagerð á
Íslandi. Var frægasta kvikmynd
hans, Gilitrutt (1957), meðal annars
í hópi þeirra fyrstu í íslenskri kvik-
myndasögu. Aðrar kvikmyndir sem
Ásgeir hefur gert eru Tunglið,
tunglið taktu mig (1955), Íslenskt
skart (1968), Lax í Laxá (1969),
Virkjun (1972) og Saga um lág-
mynd (1990) auk fjölda heimilda-
mynda og auglýsinga en hann
dvaldi meðal annars á Spáni við
upptökur fyrir ferðaskrifstofu.
Stuttu eftir Vestmannaeyjagosið
stofnaði Ásgeir kvikmyndagerðina
Kvik sf. ásamt Páli Steingrímssyni
og Ernst Kettler í upphafi árs 1973
og fyrsta kvikmyndin sem fyrir-
tækið framleiddi var Eldeyjan en
hún hlaut verðlaun á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Atlanta í
Bandaríkjunum.
Segja má að Ásgeir hafi verið
þúsundþjalasmiður en auk þess að
stofna ýmis fyrirtæki og starfa við
kvikmyndagerð tók hann fjöldann
allan af ljósmyndum, setti upp sýn-
ingar, hann smíðaði líkan af gufu-
vél líkt og var í togaranum sem
hann vann á sem ungur maður, lík-
an sem stendur uppi á Sjóminja-
safninu. Hann afrekaði að keyra
upp á Esjuna árið 1963 ásamt vin-
um sínum á jeppa sem hann smíð-
aði sjálfur. Auk þess flutti hann inn
og setti upp kirkjuklukkur og
hringingabúnað í kirkjur á Íslandi.
Ásgeir hafði líka unun af ferða-
lögum og ferðaðist mikið um landið
með fjölskyldu sinni á jeppanum
sem hann smíðaði sjálfur. Þá
keyrðu þau um landið og hann
sýndi kvikmyndir sínar í hverju
bæjarfélagi.
Fjölskylda
Eiginkona Ásgeirs var Guðbjörg
Gunnarsdóttir, f. 18.6. 1927, d. 13.7.
2004, húsmóðir. Foreldrar hennar
voru hjónin Gunnar Ingibergur
Hjörleifsson, f. 7.8. 1892, d. 2.12.
1941, sjómaður á Sviða, og Björg
Björgúlfsdóttir, f. 12.5. 1899, d. 9.3.
1964, húsfreyja í Hafnarfirði.
Börn Ásgeirs og Guðbjargar eru:
1) Valdimar Long, f. 10.12. 1958,
bátasmiður, búsettur í Hafnarfirði.
2) Björg Long, f. 12.12. 1960, ræsti-
tæknir, bús. í Reykjavík. Maki:
Karl Þorvaldsson, smiður.
Barnabörn Ásgeirs og Guð-
bjargar eru Ásdís Björg Jóhann-
esdóttir, f. 1980, Ásgeir Ingi Jó-
hannesson Long, f. 1984, og
Rögnvaldur Ágúst Ragnarsson, f.
1995, og barnabarnabarn þeirra er
Hrönn Bergþórsdóttir Smári, f.
2009.
Systkini Ásgeirs: Einar Foss
Long, f. 1.4. 1914, d. 5.1. 1983,
kaupmaður í Hafnarfirði, og Ásdís
Valdimarsdóttir Long, f. 11.2. 1921,
d. 26.10. 1927.
Foreldrar Ásgeirs voru hjónin
Valdimar Sigmundsson Long, f. 9.1.
1884, d. 21.8. 1964, skólastjóri og
síðar kaupmaður í Hafnarfirði, var
með Verzlun Valdimars Sigmunds-
sonar, og Arnfríður Sigurrós Ein-
arsdóttir, f. 1.11. 1886, d. 18.3.
1960, kennari og húsfreyja í Hafn-
arfirði.
Ásgeir
Valdimarsson
Long
Snjófríður Sigurðardóttir
húsfreyja á Merki
Árni Árnason
bóndi á Merki í Fáskrúðsfirði
Vilhelmína Árnadóttir
húsfreyja í Fögruhlíð
Einar Sigurðsson
bókbindari í Fögruhlíð í Fáskrúðsfirði
Arnfríður S. Einarsdóttir
kennari og húsfreyja í Hafnarfirði
Guðfinna Einarsdóttir
vinnuk. á Gullberastöðum
í Lundarreykjadal, Borg.
Sigurður Andrésson Anderson
trésmiður á Ísafirði, fór síðar til Manitoba
Lárus Garðar
Long málara-
meistari og
verkstjóri í
Eyjum
Jóhann Matthíasson Long
verkamaður á Seyðisfirði
Hrefna
Péturs-
dóttir
hjúkrunar-
fr. á Ísafirði
og í Rvík
Jóhannes H.
Jóhannsson
Long verkstjóri
í Vestmanna-
eyjum
Margrét Einarsdóttir
yfirhjúkrunarkona
á Ísaf., Kristneshæli
og Laugarnesspítala
Jóhannes
Long ljós-
myndari í
Hafnarfirði
Ásgeir
Bolla-
son ljós-
myndari
í Los
Angeles
Ásdís Ólafsdóttir
yfirsetukona og húsfreyja á Litlulaugum
Jóhannes Magnússon
bóndi á Litlulaugum í Reykjadal
Ingibjörg Jóhannesdóttir
húsfreyja í Winnipeg
Sigmundur Matthíasson Long
athafnamaður í Winnipeg
Jófríður Jónsdóttir
húskona og vinnukona í Múlasýslu
Matthías Richardsson Long
vinnumaður á Austfjörðum
Úr frændgarði Ásgeirs Long
Valdimar Sigmundsson Long
skólastjóri og síðar
kaupmaður í Hafnarfirði
Afmælisbarnið Ásgeir Long.
ÍSLENDINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
Jón Eysteinn Egilsson fæddist16. september 1917 á Stokk-hólma í Skagafirði. Foreldrar
hans voru hjónin Sigríður Helga
Jónsdóttir húsfreyja, ættuð úr Skaga-
firði og Svarfaðardal, og Egill Tóm-
asson, bóndi í Bakkaseli, síðar verka-
maður á Akureyri, ættaður úr
Skagafirði og Eyjafirði.
Jón kvæntist 1944 Margrjeti Gísla-
dóttur frá Bjargi í Norðfirði, dóttur
Fannyjar Kristínar Ingvarsdóttur,
húsfreyju frá Ekru í Norðfirði, og
Gísla Kristjánssonar, útgerðarmanns
frá Sandhúsi í Mjóafirði. Margrjet og
Jón eignuðust fjögur börn: Gísla for-
stjóra á Akureyri, Fannýju háskóla-
kennara í Svíþjóð, Egil tannlækni á
Akureyri og Sigríði hjúkrunarfræð-
ing í Svíþjóð.
Jón lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Akureyrar 1935 og réðst
þá til verslunarstarfa hjá KEA en
stofnaði eigin verslun 1942 sem hann
rak í þrjá áratugi. Hann var umboðs-
maður Ferðaskrifstofu Íslands á Ak-
ureyri 1947 til 1951, er hann stofnaði
Ferðaskrifstofu Akureyrar sem hann
rak til 1976 er sonur hans, Gísli, tók
við rekstrinum. Árið 1980 voru Sér-
leyfisbílar Akureyrar stofnaðir upp
úr hópbifreiðadeild Ferðaskrifstof-
unnar.
Jón var umboðsmaður Loftleiða á
Akureyri, umboðsmaður Norðurleiða
á Akureyri um áratuga skeið og lengi
umboðsmaður breskra togara þar í
bæ. Ferðaskrifstofa Akureyrar tók á
móti fyrstu skemmtiferðaskipum er
komu til Akureyrar og skipulagði
fyrstu ferðir frá Akureyri til útlanda.
Jón Egilsson stofnaði 1957 Stræt-
isvagna Akureyrar, en hafði frá 1955
annast rekstur strætisvagna fyrir Ak-
ureyrarbæ. Jón var árið 1986 sæmdur
riddarakrossi Hinnar íslensku fálka-
orðu fyrir störf sín að ferðamálum.
Jón Egilsson var frumkvöðull að
stofnun Golfklúbbs Akureyrar og
einn aðalhvatamaður að gerð golf-
vallar á Gleráreyrum og síðar við Þór-
unnarstræti og varð þrívegis Ak-
ureyrarmeistari í golfi og
Íslandsmeistari í golfi árið 1949.
Jón Egilsson andaðist 24.9. 1996.
Merkir Íslendingar
Jón
Egilsson
90 ára
Ásgeir Long
Birna A. Björnsdóttir
Guðrún S. Guðmundsdóttir
Hulda Pálmadóttir
85 ára
Sigrún Björnsdóttir
80 ára
Bára Guðmundsdóttir
Björn Kristjánsson
Bragi Ingólfsson
Edda Vilhelmsdóttir
Helga Árnadóttir
Reynir Guðmundsson
Sergia Doro On Sales
Þröstur Marsellíusson
75 ára
Axel Ragnar Ström
Ágústa Ingibjörg
Andrésdóttir
Dagbjartur Dagbjartsson
Eva Oddgeirsdóttir
Ingibjörg Skarphéðinsdóttir
Margrét Einarsdóttir
70 ára
Kristbjörg Jónasdóttir
Ómar F. Þórisson
Sigrún Pálsdóttir
Sigurður Pálsson
60 ára
Auður Fríða Gunnarsdóttir
Ásta Stefánsdóttir
Finnbogi Hvammdal
Lárusson
Guðrún Einarsdóttir
Gunnar Ingólfur Arnarsson
Haraldur Kristófer
Haraldsson
Helga Klara Alfreðsdóttir
Kristinn Hallgrímsson
Magnús Axel Hansen
Oddgeir Þórðarson
Óskar Björnsson
Ragna Rún Þorgeirsdóttir
Sigurður Friðriksson
Steingrímur Jónsson
Valur Rúnar Ármannsson
Vilhjálmur Karl Jóhannsson
50 ára
Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Andrés Helgi Hallgrímsson
Halldór M. Christensen
Haukur Karlsson
Jóhann Ómarsson
Katrín Bich Vu
Piotr Ciesielski
Ronald Petrus F. Janssen
Sigurður Guðmundsson
Sigurgeir H. Sigurgeirsson
Sólveig Björk Einarsdóttir
40 ára
Guðmundur Snorrason
Josef Malknecht
Karl Sigfússon
Kjartan Ásþórsson
Kristinn Jónsson
Krzysztof Skupien
Lillian Jacobsen
Nina Anna Dau
Sturla Símon Viktorsson
30 ára
Anna Linnea Charlotte Ahle
Bryndís Eva Sigurðardóttir
Freyr Sigurðsson
Guðmundur M. Þorsteinss.
Gunnsteinn Þórisson
Hrannar Páll Róbertsson
Ivan Lissnik
Joanna Sawicka
Karen Ýr Kjartansdóttir
Kjartan Þór Þórisson
Sahar Safarianbana
Ségolene Nicole E. Jacob
Sigríður Lilja Skúladóttir
Sigrún Agatha Árnadóttir
Sindri Tryggvason
Sólrún Svava Skúladóttir
Sunnudagur
90 ára
Páll Sveinsson
85 ára
Árni Falur Ólafsson
Guðjón Guðmundsson
Sigurður Þorsteinsson
Sólborg Ingunn Matthíasd.
80 ára
Anna Kristín Elísdóttir
Birgir Björnsson
Ferdinand Alfreðsson
Georg Jón Karlsson
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir
Jóhannes Sverrisson
Ragnhildur Jóhannsdóttir
Sigríður Þ. Bjarnadóttir
Svavar Þór Sigurðsson
75 ára
Bára Benediktsdóttir
Erna Steinsdóttir
Guðríður Elíasdóttir
Jón Bjarni Jóhannesson
70 ára
Bryndís Jóhannsdóttir
Erna María Eyland
Guðríður Jónsdóttir
Hrafnhildur E. Ármannsd.
Höskuldur Þorsteinsson
Jóhann B. Jónsson
Kristín Sigurðardóttir
Ólafur Eiríksson
Þráinn Rósmundsson
60 ára
Elín Theódóra Jóhannesd.
Guðrún Valborg Kristinsd.
Hallfríður Kristjánsdóttir
Helgi Hallgrímur Jónsson
Karólína M. Vilhjálmsdóttir
Ragnheiður Eggertsdóttir
Thu Thi Nguyen
50 ára
Berglind Rós Elliðadóttir
Einar Björnsson
Elena Titova
Elvar Þór Þorleifsson
Guðrún Bjarnadóttir
Halla Björk Reynisdóttir
Ingólfur Guðjónsson
Jón Geir Pétursson
Sigríður K. Kristjónsdóttir
Sigrún Nikulásdóttir
Sigurður Örn Kristjánsson
Þorbjörg Erla Sigurðard.
Þórey Sigríður Þórðardóttir
40 ára
Arnljótur Bjarki Bergsson
Bryndís Elfa Gunnarsdóttir
Claudia Kerns
Davíð Örn Guðmundsson
Eva Arnet Sigurðardóttir
Justyna Ondycz
Júlíus Örn Ásbjörnsson
Karólína Markúsdóttir
Magnús Geir Jónsson
María Ólöf Sigurðardóttir
Piotr Królak
30 ára
Angelina Gerald Mande
Anna Iwona Sitkowska
Henna Johanna Sirén
Hildur Sif Sigurjónsdóttir
Hjalti Rúnar Oddsson
Ívar Orri Aronsson
Jevgenij Stormur Guls
Jóakim Þór Gunnarsson
Nanna Kaaber Árnadóttir
Rúnar Þór Sigurbjörnsson
Snædís Ylfa Ólafsdóttir
Valdís Magnúsdóttir
Þröstur Freyr Hauksson
Til hamingju með daginn
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
TAKTU ÍSINNMEÐ TRUKKI