Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 44
Nú um mitt ár gaf Singapore Sling út níundu breiðskífu sína, Kill Kill Kill (Songs about Nothing). Pistil- höfundur rýnir aðeins í feril þessarar merku sveitar. 44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign 7.4.2017 - 31.12.2019 HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017 PABLO PICASSO - Jacqueline með gulan borða (1962) / Jacqueline au ruban jaune (1962) Langtímasýning COMPARATIVE VANDALISM 26.8. - 21.1.2018 - Heimildaljósmyndir úr verkefni Asgers Jorn Scandinavian Institute of Comparative Vandalism Dr. Selma Jónsdóttir – Aldarminning 22.8. - 22.10 2017 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 15.10.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 1.12.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sunnudagur 17. september: Fjölskylduleiðsögn kl. 14 Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld Spegill samfélagsins 1770 Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi. Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Listasafnið á Akureyri opnar í dag kl. 15 sýningu á vídeóverkum úr safneign í Verksmiðjunni á Hjalteyri. „Verksmiðjan er afar hrátt húsnæði og skapar þar af leiðandi heillandi umgjörð um þessa tegund myndlistar. Víd- eóverk hafa ekki verið áberandi í safneign Listasafnsins en á síð- ustu árum hefur orðið þónokkur breyting þar á. Sýningin er liður í því að sýna verk úr safneigninni í nýju ljósi og er unnin í samvinnu Listasafnsins og Verksmiðjunnar á Hjalteyri,“ segir í tilkynningu frá safninu. Listamenn sem eiga verk á sýn- ingunni eru Arna Valsdóttir sem vann verkið „Staðreynd 6 – Sam- lag“ sérstaklega fyrir yfirlitssýn- ingu á vídeóverkum sínum í Lista- safninu á Akureyri 2014; Ine Lamers sem er höfundur „Not She“ frá árinu 2005 og sýnt var á sýningu Listasafnsins Fólk 2015; Klængur Gunnarsson sem sýndi verkið „Hylling“ á Haustsýningu Listasafnsins 2015 og Þóra Sól- veig Bergsteinsdóttir sem sýndi verkið „Óður til náttúrunnar“ einnig á Haustsýningunni 2015. Sýningin stendur til 1. október og verður opin þriðjudaga til sunnudaga milli kl. 14 og 17. Ekki hún Úr verki Ine Lamers sem nefnist „Not She“. Þar sýnir hún áhorf- andanum hvernig raunveruleika og blekkingu er ruglað saman þegar ein- staklingar reyna að bæta brotna sjálfsmynd með því að fara í gervi annarra. Sýnt úr safneign Verk- smiðjunnar á Hjalteyri Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Sýningin Jack Latham – Mál 214 verður opnuð í dag kl. 15 í Ljós- myndasafni Reykjavíkur. Þar fjallar samnefndur velskur ljós- myndari um Guðmundar- og Geir- finnsmálið, en verkið vann hann í samvinnu við Gísla Guðjónsson, prófessor í réttarsálfræði, sem þró- að hefur hugtakið minnisvafa- heilkenni (e. memory distrust synd- rome). Áður höfðu þeir unnið saman ljósmyndabókina Sugar Pa- per Theories, sem hefur hlotið tvenn verðlaun sem besta ljós- myndabók ársins í Bretlandi og er nú uppseld. Þau fáu eintök sem Latham á eftir verða til sölu á sýn- ingunni. Gísli mun kynna ljósmynd- arann á opnuninni í dag. Á sunnudaginn kl. 14 verða síðan Gísli, Latham og Erla Bolladóttir með fyrirlestur og samræður um sýninguna og málið. Um fólkið frekar en málið „Árið 2014 var ég að klára sein- asta verk mitt og mig langaði að vinna verkefni tengt Íslandi. Ég fór að grúska og uppgötvaði þá þetta sérstæða glæpamál þar sem sex manns játuðu á sig, vegna minn- isvafaheilkennisins, glæpi sem þau höfðu ekki framið. Það er í sjálfu sér mjög áhugavert, en um leið sá ég samlíkingu við hvernig við not- um ljósmyndun; þá hugmynd að ljósmynd sé minning. Sem ljós- myndari er ég vanur að setja sam- an röð af ljósmyndum til að búa til sögu, og það sem kom fyrir sex- menningana er að þeir voru settir í aðstæður þar sem þeim var sögð saga nógu oft til þess að þeir færu að trúa henni. Verkefnið er miklu meira um sex-menningana og hvernig við skiljum sögur,“ segir Latham sem varði tíma með eftirlif- andi sakborningum, uppljóstrurum, samsæriskenningasmiðum, sérfróð- um álitsgjöfum og öðrum sem tengjast málinu. Ljósmyndir eru blekkjandi „Í árdaga ljósmyndunar var litið á ljósmyndun sem sannleikann, og sönnun fyrir vissum hlutum, en núna þegar fólk hefur rannsakað ljósmyndun skiljum við og vitum að ljósmyndir eru í raun mjög blekkj- andi. Þær eru á sama tíma sann- leikur, skáldskapur og samhengi. Og allt þetta kom fram í yfirheyrsl- unum á Íslandi, og ég fékk því áhuga á málinu í gegnum teng- inguna við ljósmyndun.“ Latham hafði samband við Gísla Guðjónsson réttarsálfræðing þar sem hann hefur þróað hugtakið minnisvafaheilkenni, og uppgötvaði að hægt er að beygja og þvinga minni fólks í yfirheyrslum. Þeir ákváðu að vinna saman og bjuggu til bókina Sugar Paper Theories sem var gefin út sameiginlega af Here Press og The Photographers’ Gallery, auk þess að hreppa Bar Tur Photobook Award í fyrra. „Alltaf þegar ég vinn að verk- efnum og sýningum fæ ég fólkið sem sýningin fjallar um til að vera hluti af verkefninu, og það er ómet- anlegt fyrir mig að Erla Bolladóttir og Guðjón Skarphéðinsson voru með og lögðu blessun sína yfir sýn- inguna. Í mínum huga er enginn vafi á því að þau eru saklaus. Leikna heimildarmyndin Out of Thin Air sem BBC gerði um málið hefur gert það að verkum að fólk utan úr heimi er að beina sjónum sínum að Íslandi, sem ætti að setja þrýsting á réttarkerfið í landinu. Ísland er leiðandi þegar kemur að því að fólk standi á rétti sínum og Íslendingar eru mjög meðvitaðir um að ríkisstjórnin er hér til þess að þjóna fólkinu en ekki öfugt. Þetta mál mun ekki hverfa, það þarf að leysa. Yfirvöld verða að við- urkenna að það var illa að rannsókn málsins staðið og reyndar efast ég um að Íslendingar muni erfa það við þau, þeir vilja bara að málið sé afgreitt réttilega.“ Dagbækur Guðjóns til sýnis Á sýningunni Mál 214 má segja að ljósmyndir Lathams ásamt efni- Sannleikur, skáld- skapur og samhengi  Ljósmyndir og upphafleg málsgögn  Leirfinnur til sýnis TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is „Sling deyr með mér,“ sagði Henrik Björnsson, forsprakki rokksveit- arinnar Singapore Sling, í einhverju viðtalinu. Fullgild krafa þar enda hefur þetta alla tíð verið hans band, hans lög, hans sýn. Tugir meðlima hafa runnið í gegnum raðir Sling í gegnum árin og sumir dvalið lengur en aðrir, sumir nærfellt frá upphafi á meðan aðrir virðast hafa stoppað í eins og einni sígó- pásu. Fyrstu lög Singapore Sling voru tekin upp af Henriki ein- um, með tilstuðlan trommuheila, og gaf hann út plötu með slíkum upp- tökum árið 2000. Fyrsta eiginlega platan, sem er að finna fremsta í plö- tulista Sling, er hins vegar The Curse of Singapore Sling (2002) og í kjölfarið hefur komið út efni nokkuð reglulega. Ég opnaði greinina með setn- ingu sem felur dauðann í sér og segja má að níhílísk töffaraára hafi umlukt Henrik og félaga frá upphafi. Laga- titlarnir á nýjustu plötunni eru dá- samleg ýfing á þessu („Fuck Every- thing“, „Surrounded by Cunts“, „Nothing and Nowhere“) og platan Svalur Henrik Björnsson er upphaf og endir Singapore Sling. er auk þess um ekkert, eins og segir í titli. Þessi lína hefur haldist óbreytt alla tíð, sjá nafnið á fyrstu plötunni t.d. og aðrar bera titla eins og Per- versity, Desperation and Death (2008) og Singapore Sling Must be Destroyed (2010). Tónlistin lúrir í mjög svo ákveðinni fagurfræði, beint framhald af eða speglun á sígildu töffararokki Velvet Underground, Stooges, Jesus & Mary Chain, Spacemen 3 og áþekku. Fésbókar- svæði sveitarinnar birtir á skemmti- legan hátt nokkuð nákvæman lista hvað þetta varðar og nöfn eins og Suicide, Pussy Galore, Cramps og Martha Reeves and The Vandellas poppa upp í viðbót við þau sem ég hef nefnt. Söngrödd Henriks er eintóna og svöl, kæruleysisbragurinn skrúf- aður upp í ellefu, sólgleraugu eru skyldubúnaður sem og svart leðrið. Plötur Singapore Sling í gegn- um tíðina eru þá allar innan þessa ramma, nema hvað. Nú er ég búinn að dvelja í köldum faðmi þeirra í nokkra daga og það er athyglisvert að rýna í þróunina. Meiri hljómsveit- arstemning á fyrstu plötunum en Henrik hefur meira og minna sýslað sjálfur með síðustu verk, en þó með góðum og gegnum samstarfsmönn- um. Sveitin er þá virk tónlistarsveit enn. Síðustu verk bera þannig með sér svefnherbergislegri brag, að ein- hverju leyti er Henrik kominn aftur „heim“, og á þeim plötum er töff- ararokkið brotið smekklega upp, a.m.k. stöku sinnum. „You Can Nev- er Change Your Heart“ á … Must Be Destroyed er í súrkálsgír, kassagítar leiðir „You Can’t Compare“ af Never Forever og „All your Sins“ á The To- wer of Foronicity er eins nálægt hugljúfri ballöðu og komist verður. Nýjasta verkið rúllar á líkan hátt og nefnd verk, það er gaddavírsrokk unnvörpum en líka súrari sprettir, sjá t.d. „Nothing’s Theme“ þar sem kvikmyndalegir dulúðarstrengir og brass spila burðarrulluna og lagið endar í nokkurs konar arabískum draumi!? Merkilegt. Ég lýk þessum hugleiðingum á tilvitnun í viðtal sem ég átti við Singapore Sling árið 2002, þegar draugalestin var tekin að bruna. Takið eftir yndislegri kaldhæðninni. „Ætli við gætum þá ekki sagt að okk- ar megináhrifavaldur sé þjóðvegur 1? Og við viljum að það komi skýrt fram að við höfum aldrei heyrt í Stooges eða Jesus and Mary Chain.“ » Söngrödd Henrikser eintóna og svöl, kæruleysisbragurinn skrúfaður upp í ellefu, sólgleraugu eru skyldu- búnaður sem og svart leðrið. Þegar lífið þvælist fyrir rokkinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.