Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Síða 22
MATUR Spínat er meinhollt og tilvalið að byrja daginn á grænum þeytingi seminniheldur þetta járnríka laufmeti. Spínat er hægt að kaupa ferskt og frosið. Það getur verið þægilegt að eiga poka í frystinum til að grípa í. Spínat í morgunþeytinginn 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.9. 2017 Ingibjörg Ragnheiður segist vera mikill fag-urkeri og að útlitið sé í genunum, þegarblaðamaður dáist að heimili hennar og ung- legu yfirbragði. Fallegir munir prýða heimilið og hún vel tilhöfð og smekkleg en þannig hefur hún víst alltaf verið að sögn dætra hennar. Hún er 91 árs og er enn við ágæta heilsu. Þegar blaðamaður spyr hvað geri hana svona unglega er fátt um svör, en hún segist alltaf hafa borðað mikið grænmeti, aldrei reykt og svo hafi hún erft góða húðgerð. „Ég má vera ánægð með húðina. Ég er afskaplega lítið hrukkótt en það er eins og húðin sé bara mátulega sniðin yfir höfuðið og hefur lítið slappast í gegnum árin,“ segir Ingibjörg og hlær. Eldaði fyrir lækni kóngsins Þegar Ingibjörg er spurð um matarhefðir í fjöl- skyldunni er hún fljót að telja upp ýmsa rétti sem haldist hafa í fjölskyldunni í meira en öld. Þar efstur á lista er gamall hefðbundinn réttur ættaður frá Danmörku sem kallast frikkasé og nefnir Ingibjörg hann hollusturétt. Mörg til- brigði eru til af honum en uppistaðan er nýtt lambakjöt, haustgrænmeti og hvít sósa búin til úr kjötsoðinu. Hann var fyrst eldaður af ömmu Ingibjargar, henni Ingibjörgu Benjamínsdóttur Björnsson sem dvaldi í Danmörku sem ung kona og kom svo með hefðina heim. Guðríður dóttir hennar eldaði hann svo fyrir sína fjöl- skyldu og svo Ingibjörg sjálf og nú er fjórða kynslóðin tekin við, þær Ragnheiður og Jó- hanna, dætur Ingibjargar. Það var í kringum 1890 sem Ingibjörg amma hennar sigldi til Danmerkur til þess að læra að verða klæðskeri eða skreðari eins og það var nefnt að sögn Ingibjargar. En til þess að fá að nefna sig skreðara þurfti sérstakt leyfi frá sjálfri drottningunni. „Hún var kvenmaður, þess vegna þurfti hún leyfi. Amma Ingibjörg var stressuð og kveið svo fyrir að hitta drottn- inguna að hún kastaði upp og fór svo að gráta fyrir framan hana. Kannski hefur Alex- andrína drottning vorkennt ömmu en hún stóð upp, gekk til ömmu, faðmaði hana og veitti henni leyfið. Hún var fyrst íslenskra kvenna eftir því sem ég best veit til að læra að vera klæðskeri og saumaði og sneið karlmannsföt af mikilli snilld eftir það,“ segir Ingibjörg. En það var ekki það eina sem amma hennar gerði meðan á Danmerkurdvölinni stóð því hún sá líka um að elda mat fyrir lækni kóngs- ins. Ingibjörg veit ekki hvernig á því stóð en segir að kannski hafi drottningin komist að hæfileikum hennar í matseld því hún hafi verið mikill lista- kokkur. Fékk verðlaun fyrir kálgarðinn Ingibjörg fæddist á Ásum í Skaftártungu 14. september árið 1925 og var elst fimm systkina. Foreldrar hennar voru prestshjónin Björn O. Björnsson og Guðríður Vigfúsdóttir. Þegar hún var 7 ára gömul fluttist fjölskyldan á bæinn Brjánslæk á Barðaströnd þar sem faðir hennar var prestur í 3 ár. Árið 1935 fluttist fjölskyldan á Höskuldsstaði á Skagaströnd og þar var faðir hennar með stærðar kálgarð og stundaði ýmiss konar ræktun ásamt prests- og ritstörfunum. „Pabbi var mikill garð- ræktarmaður og fékk verðlaun fyrir kálgarðinn sinn. Hann var með spínat, hvítkál, rauðkál, salat og ýmsar aðrar káltegundir í garðinum og svo ræktaði hann líka jarðarber sem ekki var nú algengt í þá daga. Mamma var dug- leg að elda úr öllu þessu káli. Hún bjó oft til sal- at sem kallað var blaðsalat. Þá var sykri, rjóma og sítrónusafa blandað saman og sett saman við salatblöðin. Þetta þótti mér óskaplega gott. Ég gerði þetta oft líka þegar ég fór að búa,“ segir Ingibjörg. Svo var það spínatmjólkin sem Ingibjörg hélt mikið upp á. Þá var mjólkin soðin niður með sykri, spínati og sítrónusafa og svo borðuð eins og súpa. „Þetta var uppáhald okkar allra systk- inanna. Þetta var gert til að fá okkur til að borða meira grænmeti,“ segir Ingibjörg. Súr- mjólk með kálblöðum ásamt sítrónusafa, rjóma og ögn af sykri var líka minnisstæður réttur úr barnæsku Ingibjargar. Mamma hennar var alin upp í Skaftártung- unni og þar var mjög mikið um silung í vötn- unum og hann því notaður óspart. Því man Ingi- björg mikið eftir soðnum silungi í sinni barnæsku en fannst hann alltaf betri bakaður í ofni eins og hún gerði hann sjálf seinna. Fólk hætt að hafa sunnudagsmat Á sunnudögum var alltaf betri matur eins og tíðkaðist að sögn Ingibjargar. Þá var yfirleitt lambakjöt í matinn, hryggur, læri, smásteik eða svokallað kinda-ragú. „Allir fóru í betri fötin sín á sunnudögum og farið var í kirkju. Þá hittist fólk líka mikið og drakk saman kaffi. Þegar ég byrjaði í mínum búskap var mikill gestagangur á sunnudögum. Ég átti alltaf til eitthvert bakk- elsi eins og sandkökur eða pönnukökur á sunnudögum. Pönnukökur hafa alltaf verið í fjölskyldunni. Aðalmálið er að hafa 4 egg í þeim og hafa þær sem þynnstar,“ segir Ingibjörg. Spurð um það hvort hún haldi að fólk í dag haldi í sunnudagshefðina svarar Ingibjörg strax neitandi. „Nú er sjónvarpið og alls konar hlutir sem ekki voru til í þá daga. Ég held líka að fólk heimsæki hvað annað minna í dag heldur en var hér áður fyrr. Ég hef alla tíð klætt mig upp á á sunnudögum og gert mig fína,“ segir Ingibjörg brosandi. Hélt hún myndi falla í „frönskum vöfflum“ Ingibjörg fór í húsmæðraskóla eins og tíðkaðist á þeim árum. Hún segist hafa lært mikið í matseld þar en einnig af móður sinni. Hún segir frá skemmtilegu atviki frá húsmæðraskólavistinni sem situr alltaf í henni. „Það vildi þannig til að ég var veik þegar kennslan í frönskum vöfflum fór fram. Komið var að prófum og við áttum að draga spjöld sem á stóð hvaða rétti við áttum að elda eða baka. Ég stóð í röðinni og hugsaði mér til skelfingar að ef Morgunblaðið/Eggert Fjórar kynslóðir eldað sama réttinn Systurnar Jóhanna Guðríður og Ragnheiður Linnet með móður sinni Ingibjörgu Ragnheiði. Ingibjörg Ragnheiður Björns- dóttir er 91 árs og mikill mat- gæðingur. Hún fór í hús- mæðraskóla, borðaði mikið grænmeti strax í barnæsku og amma hennar eldaði fyrir lækni kóngsins í Danmörku rétt fyrir aldamótin 1900. Hún og dætur hennar gefa upp- skrift að aldargömlum rétti. Bergþóra Jónsdóttir bej17@hi.is ’Amma var svo stress-uð og kveið svo fyrirað hitta drottninguna aðhún kastaði upp og fór svo að gráta,“ segir Ingibjörg. Kvenættleggur Ingibjargar samankominn til að boða danska frakkasé-réttinn. Frá vinstri: Auður Katrín Björnsdóttir Linnet, Hrafnhildur Linnet Runólfsdóttir, Herdís Ágústa Linnet, Ragnheiður Linnet, Jóhanna Guðríður Linnet, Ingibjörg Ragnheiður Linnet og Ingibjörg Ragnheiður Björnsdóttir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.