Feykir - 26.11.2015, Side 2
2 01 52
Aðventan er í nánd, undirbúningur jólanna hefst á
aðventunni. Töfrar hennar eru ótrúlegir, ljósin eru oft
einkenni þess að aðventan er gengin í garð, enda meiri ljós á
þeim tíma heldur en nokkrum öðrum, sem er nú svo
sannarlega notalegt
í skammdeginu.
Ljósin gleðja alla,
unga sem aldna.
Í okkar samfélagi
eru hefðir miklar í
kringum
jólaundirbúninginn
og við dugleg að
halda þeim við, sem
er bara jákvætt.
Aðventa, jólafasta er
tími hefðanna þar
sem við fyllumst
fortíðarþrá. Það að
vera fastheldinn á
hefðir getur bara
verið fallegt. Hlutirnir verða oft að vera eins og mamma og
pabbi höfðu það, gamla skrautið á sínum stað, jólatréð skreytt
á vissum tíma. En svo er nú líka notalegt að búa bara til sínar
hefðir sjálfur. Þó svo að okkur finnist sumt alveg nauðsynlegt
að gera þá þurfum við samt að passa upp á að njóta tímans
og reyna að slaka á.
Aðventan er tími vonar, eftirvæntinga hjá mörgum, tími sem
er svo notalegur. Við ættum að gefa okkur góðan tíma í að
kíkja í heimsókn til vina og vandamanna, það er alltaf svo
gaman að fá óvænta heimsókn. Eins að dunda heima, hlusta
á jólakveðjur í útvarpinu og jafnvel klára að skrifa síðustu
kortin, sem við ætlum svo fara með í hús svona á síðustu
stundu. En aðventan er ekki góður tími hjá öllum, við þurfum
að vera vakandi fyrir líðan annarra, vera hvort öðru styrkur
ef á þarf að halda. Vera vakandi þá sem og alltaf.
Aðventa er tími vonar. Þegar kemur að aðventunni þá er eins
og vonin fari í nýjan búning. Guð ákvað að birtast okkur sem
barn. Börn gefa okkur einmitt vonina, með fæðingu hvers
barns fæðist ný von. Um allt land munu kirkjuklukkurnar
hringja inn jólin. Þá er gott að sitja í kirkjunni og hlusta á
jólaguðspjallið, heyra kórinn syngja og taka undir þegar
sungnir eru sálmar eins og „Heims um ból“, „Í dag glatt í
döprum hjörtum“ og allir hinir jólasálmarnir sem kalla fram
minningar og færa okkur frið í hjarta.
Megi Guð gefa ykkur góða aðventu og gleðileg jól.
Sr. Halla Rut Stefánsdóttir
Séra Halla Rut Stefánsdóttir
sóknarprestur í Hofsós- og Hólaprestakalli
Aðventan
er tími vonar
ÚTGEFANDI
Nýprent ehf. Sauðárkróki
Sími 455 7176, feykir@feykir.is
RITSTJÓRI & ÁBM.
Berglind Þorsteinsdóttir
berglind@feykir.is
BLAÐAMAÐUR
Kristin Sigurrós Einarsdóttir
kristin@feykir.is
LAUSAPENNAR
Óli Arnar Brynjarsson
Sigríður Garðarsdóttir
FORSÍÐUMYND
Gunnhildur Gísladóttir
AUGLÝSINGASÖFNUN
Sigríður Garðarsdóttir
UMBROT & PRENTUN
Nýprent ehf.
Jólablaðið er prentað
í 3600 eintökum og er
dreift frítt í öll hús í
Skagafirði og í Húna-
vatnssýslum.
20
15
Lokaþáttur Fyrirmyndar-
frumkvöðla verður í beinni
útsendingu á FeykirTV
laugardaginn 28. nóvember
og hefst útsendingin kl.
12:00. Sent verður út
frá stúdíói SkottaFilm á
Sauðárkróki og þangað mæta
fulltrúar allra fyrirtækjanna
sex sem fjallað hefur verið
um í þessari þáttaröð.
Einnig koma fram í þættinum
Laufey Kristín Skúladóttir
verkefnastjóri hjá sveitarfélag-
Lokaþátturinn í beinni útsendingu
Feykir.is : Fyrirmyndarfrumkvöðlar 28. nóvember
inu Skagafirði, Unnur Valborg
Hilmarsdóttir stjórnenda-
markþjálfi og Þórður
Erlingsson eigandi og fram-
kvæmdastjóri InExchange
í Svíþjóð. Rætt verður um
Jólin koma...
Gunnsteinn Björnsson
Sauðárkróki
Jólin koma á Þorláksmessu,
þá er soðin skata og öll
fjölskyldan kemur og borðar
saman. Síðar um daginn er
svo jólahangikjötið soðið
sem fyllir húsið jólailmi. Þá
er jólatréð skreytt og svo
líkur deginum þar sem öll
fjölskyldan kemur saman og
borðar smákökur og drekkur kakó.
Gísli Gunnarsson
glaumbæ í Skagafirði
Þegar maturinn er kominn
á borðið og jólin eru hringd
inn fyrir útvarpsmessuna á
aðfangadag.
Friðfinna L. Símonardóttir
Reykjaskóla í Hrútafirði
Jólin koma hjá mér þegar
ég set aðventuljósið í eld-
húsgluggann, það minnir
mig á ömmu Lillu og afa
Gest.
Sólveig Olga Sigurðardóttir
Sauðárkróki
Ég kemst í jólaskap þegar
jólabaksturinn byrjar, ilminn
leggur um húsið og jólalögin
hljóma með. Jólin sjálf koma
svo þegar kirkjuklukkurnar
óma í útvarpinu og sálmarnir
í kjölfarið.
Sigríður Gunnarsdóttir
Sauðárkróki
Jólin koma þegar kirkju-
klukkurnar hringja klukkan
sex á aðfangadag. Kvöldið
verður heilagt og heyra má
vængjaþyt englanna.
Ásgerður Ósk Tryggvadóttir
Sauðárkróki
Jólin mega koma þegar ég
er búin að setja gamla jóla-
skóinn minn út í glugga í
byrjun aðventunnar. Sami
skórinn síðustu 20 árin.
verkefni þátttakendanna og
frumkvöðlastarf vítt og breitt.
Fyrirmyndarfrumkvöðlar
er samstarfsverkefni Feykis
og Skottu kvikmyndafjelags.
Þáttagerðin er í höndum Árna
Gunnarssonar kvikmynda-
gerðarmanns, Berglindar Þor-
steinsdóttur, ritstjóra Feykis
og Kristínar Einarsdóttur,
blaðamanns hjá Feyki. Þáttar-
stjórnendur eru Berglind og
Kristín en um upptökur og
eftirvinnslu sér Árni Gunnars-
son. /KSE
Sérfræðikomur í desember
10. og 11. des. Orri Ingþórsson, kvensjúkdómalæknir
14. og 15. des. Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir
22. des. Haraldur Hauksson, alm./æðaskurðlæknir
Tímapantanir í síma 455 4022