Feykir


Feykir - 26.11.2015, Blaðsíða 5

Feykir - 26.11.2015, Blaðsíða 5
52 01 5 Uppáhalds tónlistartímabil? 1963-73. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Elvis og allir hinir sem gerðu garðinn frægan um '65. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Bara það sem var spilað í gömlu gufunni, nema pabbi hélt alltaf konsert á sunnudagsmorgnum meðan hann rakaði sig. Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Ætli fyrsta platan hafi ekki verið Sgt. Peppers Lonely eða hvað hún nú hét. Vínill. Ég var orðinn 24 ára þegar ég eignaðist græjur. Hvaða græjur varstu þá með? Einfaldan nálaspilara með tveimur vesælum hátölurum. Besta lagið til að hlusta á í bílnum / á göngu? Síðustu vikur var það Fred Åkerström að syngja Bellman. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Hvaða lag sem er með Gylfa Ægissyni. Hvenær má byrja að spila jólalögin? Alls ekki fyrr en eftir 1. des., helst ekki fyrr en svona viku fyrir jól. Uppáhalds jólalagið? Ég sá mömmu kyssa jólasvein af léttara taginu, en Nóttin var sú ágæt ein af sálma- greininni. Hvernig eru jólalögin best? Þau eru best þegar maður sýslar við jólaundirbúning, t.d. við baksturinn. Þú vaknar í rólegheitum á jóladags- morgni, hvað viltu helst heyra? Þá nýt ég þagnarinnar. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég tæki konuna með mér til himnaríkis að hlusta á Pavarotti. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Elvis þegar ég var yngri. Hver var fyrsta platan sem þú óskaðir þér í jólagjöf? Ég tengi Óskalög sjúklinga við æskuárin, þau voru eftir hádegi á laugardögum. Söngur villiandarinnar hljómar nokkuð sterklega. Hvaða plötu þykir þér vænst um eða hvaða plata hefur skipt þig mestu máli? Best of Hollies af því ég á sérstakar minningar um hana síðan ég var í Menntaskólanum á Akureyri. Þá fórum við í Sjallann á föstudagskvöldum og fengum okkur kannski aðeins í aðra tána áður en við fórum og þá var þessi plata spiluð. Svo um tíuleytið fórum við allir drengirnir úr sparibuxunum og sá lífsreyndasti pressaði buxurnar. Þarna sátum við allir berleggjaðir á meðan og hlustuðum á Hollies. Hvenær eru jólin komin? Þegar ilmurinn af rjúpnasósunni blandast við klukknahljóðið úr Dómkirkjunni kl. 6. Dreymdi um að vera Elvis UMSJÓN Óli Arnar Brynjarsson Tón-lystin : Sölvi Sveinsson Skólamanninn Sölva Sveinsson kannast eflaust flestir við en hann er cand. mag. í sagnfræði og hefur lengst af starfað við kennslu og skólastjórnun, ásamt ritstörfum. Hann er fæddur árið 1950, alinn upp á Króknum, aðallega í fjörunni að eigin sögn. Sölvi tekur þátt í jólabókaflóðinu að þessu sinni en Sögufélag Skagfirðinga gefur út hina stórskemmtilegu bók hans, Dagar handan við dægrin, hvar hann varpar til lesenda minningarmyndum í skuggsjá tímans. Feykir náði í kappann í Köben fyrir tilstilli nútímatækni og fékk hann til að svara nokkrum vel völdum spurningum tengdum lyst hans á tónlist, bæði hinni hefðbundnu og ekki síður jólatónlist. Sölvi er hræddur um að eina hljóðfærið sem hann hefur tileinkað sér sé röddin og helsta afrekið á tónlistarsviðinu sé að hafa sungið í Barnakirkjukórnum hjá Eyþóri Stefánssyni um 1960. G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 9200 afgreidsla@tengillehf.is Jólatilboð í Græjubúð Tengils! CANON POWERSHOT SX410 IS Einföld, skemmtileg og skapandi fjölskyldu- myndavél sem er afar notendavæn. Með öflugri 40x aðdráttarlinsu en í nettu húsi fangar SX410 IS magnaðar ljósmyndir og HD vídeó. VERÐ KR. 44.900 CANON PIXMA MG6850 Magnaður prentari. Hannaður til að prenta út hraðar og það er engin málamiðlun þegar kemur að gæðum eða prentun úr tækjum og skýþjónustum. Prentun, skönnun og ljósritun. VERÐ KR. 29.900 CANON IXUS 275 HS Taktu IXUS með þér hvert sem er. Glæsileg myndavél með 12x optískum aðdrætti og 25mm gleiðlinsu. VERÐ KR. 23.900 CANON POWERSHOT D30 Fullkomin í alla útivist. Allt að 25m dýpi. Tilvalin myndavél fyrir alla útivist með HS mynd- flögu sem skilar framúrskarandi ljósmyndum og með GPS til að staðsetja ævin- týrin. Njóttu þess að kafa á allt að 25m dýpi með hinni áreiðanlegu PowerShot D30. VERÐ KR. 54.900 PAPPÍR OG BLEK Flott úrval af pappír og bleki í Canon prentara. Ekki verða uppiskroppa við jólakortagerðina. CANON PIXMA iP7250 Afkastamikill 5 hylkja ljós- myndaprentari með Wi-Fi. Hágæða og hraðvirk prentun sem jafnast á við framköllunar- þjónustuna. Þessi er frábær í jólakortagerðina! VERÐ KR. 16.698 CANON POWERSHOT S200 HS kerfi Canon og björt f/2 linsa skila framúrskar- andi ljósmyndum við öll birtuskilyrði. PowerShot S200 kemur flottum eiginleikum í vasa ljósmyndar- ans sem vill taka hágæða ljós- myndir og deila þeim á ferðinni. VERÐ KR. 54.900 GOPRO GoPro vélar og aukahlutir í miklu úrvali! Toppurinn VINSÆLUSTU LÖGIN Áfram veginn STEFÁN ÍSLANDI Good Luck Charm ELVIS PRESLEY Yesterday BÍTLARNIR Ætti ég hörpu STEFÁN ÍSLANDI Tunglskinssónatan ÝMSIR 1812 eftir TSJÆKOFSKÝ ýmsar hljómsveitir, en þetta verk þarf að spila á fullu gasi.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.