Feykir - 26.11.2015, Side 5
52 01 5
Uppáhalds tónlistartímabil? 1963-73.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun
þessa dagana? Elvis og allir hinir sem
gerðu garðinn frægan um '65.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu
heimili? Bara það sem var spilað í
gömlu gufunni, nema pabbi hélt alltaf
konsert á sunnudagsmorgnum meðan
hann rakaði sig.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér? Ætli fyrsta platan hafi ekki verið
Sgt. Peppers Lonely eða hvað hún nú
hét. Vínill. Ég var orðinn 24 ára þegar
ég eignaðist græjur.
Hvaða græjur varstu þá með? Einfaldan
nálaspilara með tveimur vesælum
hátölurum.
Besta lagið til að hlusta á í bílnum /
á göngu? Síðustu vikur var það Fred
Åkerström að syngja Bellman.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? Hvaða lag sem er með Gylfa
Ægissyni.
Hvenær má byrja að
spila jólalögin? Alls
ekki fyrr en eftir 1. des.,
helst ekki fyrr en svona
viku fyrir jól.
Uppáhalds jólalagið?
Ég sá mömmu kyssa
jólasvein af léttara
taginu, en Nóttin var
sú ágæt ein af sálma-
greininni.
Hvernig eru jólalögin
best? Þau eru best
þegar maður sýslar við
jólaundirbúning, t.d.
við baksturinn.
Þú vaknar í rólegheitum á jóladags-
morgni, hvað viltu helst heyra? Þá nýt
ég þagnarinnar.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern
tækirðu með þér? Ég tæki konuna
með mér til himnaríkis að hlusta á
Pavarotti.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt
um að vera? Elvis þegar ég var yngri.
Hver var fyrsta platan sem þú óskaðir þér
í jólagjöf? Ég tengi Óskalög sjúklinga
við æskuárin, þau voru eftir hádegi á
laugardögum. Söngur villiandarinnar
hljómar nokkuð sterklega.
Hvaða plötu þykir þér vænst um eða
hvaða plata hefur skipt þig mestu máli?
Best of Hollies af því ég á sérstakar
minningar um hana síðan ég var í
Menntaskólanum á Akureyri. Þá fórum
við í Sjallann á föstudagskvöldum og
fengum okkur kannski aðeins í aðra
tána áður en við fórum og þá var
þessi plata spiluð. Svo
um tíuleytið fórum
við allir drengirnir úr
sparibuxunum og sá
lífsreyndasti pressaði
buxurnar. Þarna sátum
við allir berleggjaðir á
meðan og hlustuðum á
Hollies.
Hvenær eru jólin komin?
Þegar ilmurinn af
rjúpnasósunni blandast
við klukknahljóðið úr
Dómkirkjunni kl. 6.
Dreymdi um að vera Elvis
UMSJÓN
Óli Arnar Brynjarsson
Tón-lystin : Sölvi Sveinsson
Skólamanninn Sölva Sveinsson kannast eflaust
flestir við en hann er cand. mag. í sagnfræði og
hefur lengst af starfað við kennslu og skólastjórnun,
ásamt ritstörfum. Hann er fæddur árið 1950, alinn upp á Króknum,
aðallega í fjörunni að eigin sögn.
Sölvi tekur þátt í jólabókaflóðinu að þessu sinni en Sögufélag Skagfirðinga
gefur út hina stórskemmtilegu bók hans, Dagar handan við dægrin, hvar hann
varpar til lesenda minningarmyndum í skuggsjá tímans. Feykir náði í kappann
í Köben fyrir tilstilli nútímatækni og fékk hann til að svara nokkrum vel
völdum spurningum tengdum lyst hans á tónlist, bæði hinni hefðbundnu og
ekki síður jólatónlist. Sölvi er hræddur um að eina hljóðfærið sem hann hefur
tileinkað sér sé röddin og helsta afrekið á tónlistarsviðinu sé að hafa sungið í
Barnakirkjukórnum hjá Eyþóri Stefánssyni um 1960.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 9200 afgreidsla@tengillehf.is
Jólatilboð
í Græjubúð Tengils!
CANON POWERSHOT SX410 IS
Einföld, skemmtileg og skapandi fjölskyldu-
myndavél sem er afar notendavæn.
Með öflugri 40x aðdráttarlinsu
en í nettu húsi fangar
SX410 IS magnaðar ljósmyndir
og HD vídeó.
VERÐ KR.
44.900
CANON PIXMA MG6850
Magnaður prentari.
Hannaður til að prenta út
hraðar og það er engin
málamiðlun þegar
kemur að gæðum eða
prentun úr tækjum
og skýþjónustum.
Prentun, skönnun og ljósritun.
VERÐ KR. 29.900
CANON IXUS 275 HS
Taktu IXUS með þér
hvert sem er.
Glæsileg myndavél með
12x optískum aðdrætti
og 25mm gleiðlinsu.
VERÐ KR.
23.900
CANON POWERSHOT D30
Fullkomin í alla útivist. Allt að 25m dýpi.
Tilvalin myndavél fyrir alla útivist með HS mynd-
flögu sem skilar framúrskarandi ljósmyndum og
með GPS til að staðsetja ævin-
týrin. Njóttu þess að kafa á
allt að 25m dýpi með hinni
áreiðanlegu PowerShot D30.
VERÐ KR.
54.900
PAPPÍR OG BLEK
Flott úrval af pappír
og bleki í Canon prentara.
Ekki verða uppiskroppa
við jólakortagerðina.
CANON
PIXMA iP7250
Afkastamikill 5 hylkja ljós-
myndaprentari með Wi-Fi.
Hágæða og hraðvirk prentun
sem jafnast á við framköllunar-
þjónustuna. Þessi er frábær í
jólakortagerðina!
VERÐ KR. 16.698
CANON
POWERSHOT S200
HS kerfi Canon og björt
f/2 linsa skila framúrskar-
andi ljósmyndum við öll birtuskilyrði.
PowerShot S200 kemur flottum
eiginleikum í vasa ljósmyndar-
ans sem vill taka hágæða ljós-
myndir og deila þeim á ferðinni.
VERÐ KR.
54.900
GOPRO
GoPro vélar og
aukahlutir í miklu úrvali!
Toppurinn
VINSÆLUSTU LÖGIN
Áfram veginn
STEFÁN ÍSLANDI
Good Luck Charm
ELVIS PRESLEY
Yesterday
BÍTLARNIR
Ætti ég hörpu
STEFÁN ÍSLANDI
Tunglskinssónatan
ÝMSIR
1812
eftir TSJÆKOFSKÝ
ýmsar hljómsveitir, en þetta
verk þarf að spila á fullu gasi.