Feykir - 26.11.2015, Blaðsíða 37
3 72 01 5
Óskar Aron Stefánsson leikur á
trompet, Björg Ingólfsdóttir spilar á
harmóniku, Lilja Diljá Ómarsdóttir
leikur á fiðlu og Davíð Einarsson
spilar á saxafón. Áður en haldið var af
stað sá Anna Lilja Guðmundsdóttir
hársnyrtimeistari til þess að ungmennin
væru fagurlega greidd. Það var síðan
Gunnhildur Gísladóttir ljósmyndari
frá Álftagerði sem stillti krökkunum upp
og fangaði hvert augnablik af mikilli list.
Ungmennin klæddust fötum frá Lindex.
Feykir þakkar öllum hluteigandi kærlega
fyrir hjálpina og ánægjulega stund í
skóginum.
Eitt lítið jólalag
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
Tónlistarkrakkar í Jólablaði Feykis
Í hugum flestra er tónlistin
ómissandi hluti af jólahaldinu
og þótti því vel við hæfi að
fá ungt tónlistarfólk til að prýða forsíðu Jólablaðs
Feykis í ár. Fjögur ungmenni voru fengin til að skella
sér í skógræktina í Varmahlíð í síðustu viku og leika
nokkur lög innan um iðagræn grenitrén.
Davíð
er 13 ára nemandi við
Varmahlíðarskóla, sonur Einars
Gunnarssonar og Írisar Olgu
Lúðvíksdóttur í Flatatungu. Davíð
hefur spilað á saxafón í fjögur ár og
segir hann hafa orðið fyrir valinu því
honum þykir saxafónn flottastur af
öllum hljóðfærum. Skemmtilegast við
hann sé hávaðinn og lætin sem hann
gefur frá sér.
Björg
verður 12 ára í desember og er
nemandi við Varmahlíðarskóla, dóttir
Unnar Erlu Sveinbjörnsdóttur og
Ingólfs Helgasonar á Dýrfinnustöðum.
Björg hefur leikið á harmóniku í þrjú
ár og valdi hana vegna þess að henni
fannst það spennandi og svo líkar
henni vel við tónlistarkennarann,
Stefán R. Gíslason.
Lilja Diljá
er 10 ára nemandi við
Varmahlíðarskóla, dóttir Ómars
Bragasonar og Guðbjargar S.
Sigfúsdóttur í Varmahlíð. Lilja Diljá
hefur leikið á fiðlu frá fjögurra ára
aldri og finnst það alltaf jafn gaman.
Hún segir kennara sinn, Kristínu Höllu
Bergsdóttur, vera frábæran kennara
og alltaf skemmtilegt í spilatímum og
á hljómsveitaræfingum.
Óskar
er 11 ára nemandi við Varmahlíðar-
skóla, sonur Birgittu Sveinsdóttur og
Stefáns G. Indriðasonar í Álfheimum.
Óskar hefur leikið á kornett frá því í
1. bekk en þetta er annar veturinn
sem hann leikur á trompet. Honum
finnst gaman að spila á trompet en
hann segir mikla tækni á bak við það
og honum finnst gaman að glíma við
hluti sem reyna á. Þá þykir honum
hljóðfærið fallegt sem og hljómurinn.