Feykir - 26.11.2015, Page 4
2 01 54
Páll Þórðarson á Blönduósi var 15 ára þegar hann
greindist með krabbamein í beinvef
„Sýndi ótrúlegan
karakter allan tímann“
Í byrjun síðasta árs
greindist Páll Þórðarson,
sem þá var nemandi í
10. bekk í Blönduskóla
á Blönduósi, með
krabbamein í beinvef sem
einnig hafði dreift sér í
lungu. Palli, eins og hann
er oftast kallaður, er sonur
Ásdísar Arinbjarnardóttur
og Þórðar Pálssonar.
Hann á tvær systur,
Hrafnhildi Unu 18 ára
og Kristínu Helgu 8 ára.
Fljótlega var sett af stað
söfnun fyrir fjölskylduna,
sem samstarfsfólk
Ásdísar og Þórðar við
Heilbrigðisstofnunina
á Blönduósi stóð fyrir,
en þau þurftu að dvelja
langdvölum í Reykjavík
vegna meðferðar sem
Palli gekkst undir. Tókst
meðferðin vel og hann
er nú á góðum batavegi.
Feykir spjallaði við
fjölskylduna skömmu fyrir
aðventuna og fékk að heyra
af ferlinu frá því að Palli
greindist og líðan hans
í dag.
Fyrstu einkennin sem Palli
fann fyrir voru að hann var
orðinn haltur og með verki í
mjöðm. Farið var með hann
til heimilislæknis í byrjun
desember 2013. „Tekin var
röntgenmynd sem ekki sýndi
neitt. Niðurstaðan var að Palli
væri með mislanga fætur og
talað um að hann þyrfti að fá
innlegg,“ rifja foreldrarnir upp.
Í framhaldinu var gerð beiðni
til bæklunarlæknis sem Palli
hitti svo 17. janúar 2014. Aftur
var tekin röntgenmynd sem
sýndi ekkert frekar en sú fyrri,
en læknirinn vildi senda hann
í segulómun sem allra fyrst.
Hann hringdi því á Akureyri
og fékk tíma 20. janúar. „Í
segulómuninni sést síðan þessi
fyrirferð á lærleggshálsinum.
Í framhaldinu fórum við til
Reykjavíkur og hittum Ólaf Gísla
krabbameinslækni, sem staðfesti
þennan hræðilega grun um að
um krabbamein væri að ræða,“
segja Ásdís og Þórður.
Krabbameinið sem Palli
greindist með kallast osteosar-
coma og er krabbamein í beinvef.
Síðar kom í ljós að það hafði
dreift sér og var einnig komið í
lungu. Aðspurð um hver hefðu
verið þeirra fyrstu viðbrögð segja
þau Ásdís og Þórður: „Sjokk
og dofi, maður trúði ekki að
þetta væri að gerast. Palli sýndi
ótrúlegan karakter og greip strax
setninguna sem læknirinn sagði
- „Það er hægt að meðhöndla
þetta“ - og þannig var hann alla
meðferðina. Sýni var tekið úr
æxlinu til greiningar, sem tók
viku. Líklega var þessi bið erfiðasti
tíminn í ferlinu.“ Þegar búið
var að staðfesta hvaða tegund
krabbameins væri um að ræða
hófst meðferð eftir alþjóðlegum
leiðbeiningum. Ljóst var að þetta
væri margra mánaða ferli, að
lágmarki 30 vikur, lyfjameðferðir
og skurðaðgerðir. „Það var
ákveðinn léttir þegar meðferðin
byrjaði. Þá var verið að gera
eitthvað í málunum,“ segir Ásdís.
Fjölskyldan fékk íbúð í
Reykjavík hjá Styrktarfélagi
krabbameinsveikra barna. „Þar
gátum við verið eins og við
þurftum. Við vorum síðan meira
og minna fyrir sunnan þennan
tíma, þó við kæmumst norður af
og til milli meðferða. Stelpurnar
voru fyrir norðan; Hrafnhildur
Una í MA en Kristín Helga flutti
til afa og ömmu í Sauðanesi og
hélt áfram í Blönduskóla,“ bæta
þau við. „Það var voða lítið eftir
af daglegu lífi þennan tíma. Við
vorum lítið eða ekkert í vinnu
og mættum góðum skilningi
vinnuveitenda. Palli reyndi eftir
mætti að nýta sér kennslu á
Barnaspítala Hringsins og með
frábærri aðstoð kláraði hann
10. bekk með láði þrátt fyrir
veikindi. Til stóð að meta hann til
einkunna en það tók hann ekki í
mál. Prófin vildi hann taka þó að
á þeim tíma væri hann rúmfastur
og algjörlega þróttlaus. Hann
stóð sig frábærlega allan tímann.
Markmiðið var alltaf skýrt í
kollinum á honum, að láta sér
batna,“ segja foreldrarnir.
„Honum var náttúrulega
kippt út úr félagslífinu en var
duglegur að spjalla við vini á
Facebook og Skype. Krakkarnir
voru líka duglegir að hafa
samband ef þau voru í bænum
og heimsækja hann ef hann
var heima.“ Eins og nærri má
geta var þetta ferli líka mikið
álag á systurnar Hrafnhildi Unu
og Kristínu Helgu. Í upphafi
voru þær boðaðar í viðtal með
foreldrunum og hittu teymi
sem sá um mál fjölskyldunnar.
„Málin voru rædd opinskátt og
ýmsum spurningum svarað.
Talið var rétt að þær héldu áfram
í sínu umhverfi en þær komu
náttúrulega oft suður,“ útskýra
Ásdís og Þórður.
Fór í helgarfrí eftir
krabbameinsmeðferðina
og skellti sér svo í MA
Palli þurfti að fara í tvær stórar
skurðaðgerðir, eina á brjóstholi
til að fjarlægja meinvörpin úr
lungunum, og aðra þar sem
æxlið í lærleggnum var fjarlægt
og settur gerviliður í mjöðmina.
Auk þess fór hann í fleiri smærri
aðgerðir og 18 lyfjameðferðir.
Meðferð lauk í lok september
2014 og að loknu helgarfríi skellti
Palli sér beint í MA, þar sem hann
er á öðru ári í framhaldsskóla í
dag.
Ásdís er hjúkrunarfræðingur
við Heilbrigðisstofnunina á
Blönduósi en Þórður er naut-
griparæktarráðunautur hjá RML
og sjúkraflutningamaður. Að-
spurð segja þau að það hafi bæði
haft kosti og galla í þessu ferli
að vera heilbrigðisstarfsmenn.
„Stundum er gott að vita hlutina
og stundum ekki. Líklega hefur
það samt oftar hjálpað. Við
gátum til dæmis oftar verið
heima, því við treystum okkur
til að gera ýmsa hluti sem aðrir
foreldrar hefðu kannski ekki
gert.“
Eins og lesendur Feykis ef-
laust muna fór af stað söfnun
fyrir Palla og fjölskyldu hans,
undir slagorðinu „Áfram Palli
nagli!“ Það var samstarfsfólk
Ásdísar og Þórðar við Heil-
brigðisstofnunina sem átti
frumkvæðið að henni. „Það
er ómetanlegt að finna allan
þennan stuðning og þurfa ekki
að hafa peningaáhyggjur ofaná
allt annað, því mikill kostnaður
fylgir svona ferli. Við fundum
fyrir góðum stuðningi alls
staðar og ekki síst frá starfsfólki
Barnaspítala Hringsins. Símtöl
frá vinum og komment á fésinu
björguðu líka oft deginum.
Við viljum koma á framfæri
þökkum til allra þeirra sem
studdu okkur á einn eða annan
hátt.“
„Nú er rúmt ár frá því Palli
lauk meðferð og hann fer í eftirlit
á þriggja mánaða fresti, sem
alltaf hefur komið vel út. Hann
er enn í endurhæfingu og hefur
ekki náð fullum þrótti en það
kemur í rólegheitum. Hann er í
öðrum bekk í MA og gengur það
ágætlega. Svona lífsreynsla hefur
auðvitað áhrif, hlutirnir eru ekki
sjálfgefnir og mikilvægt að lifa
í núinu. Við vitum aldrei hvað
verður á morgun,“ sögðu þau
Ásdís og Þórður, foreldrar Palla,
að lokum.
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Palli á góðri stundu sumarið 2015.
MYNDIR: ÚR EINKASAFNI
Palli t.v. ásamt vini sínum Arnari Frey Ómarssyni. F.v.: Palli, Hrafnhildur Una, Ásdís og neðst Kristín Helga og Þórður.
Styrktarhópur Palla nagla í Reykjavikurmaraþoni 2014.