Feykir - 26.11.2015, Page 6
2 01 56
Erla Gígja segir að hún hafi upphaflega
ætlað að semja lög sjálfri sér til ánægju.
„Það eru ansi mörg ár síðan fyrsta lagið
kom en svo hafa þau bara verið að koma
svona smátt og smátt. Þetta átti nú bara
að fara í skúffuna en það þótti ekki nógu
gott. Börnin vildu endilega setja þetta á
einn disk og gefa þetta út. Ég var nú ekkert
voðalega hrifin af því, ég er nú eiginlega
bara að gera þetta mér til gamans,“ segir
hún.
Aðspurð segist Erla Gígja alin upp
við mikla tónlist á heimilinu. Afi hennar,
Þorvaldur Guðmundsson, kenndi söng á
Sauðárkróki og faðir hennar, Þorvaldur
Þorvaldsson, lék á trompet og orgel.
„Börnin vildu endilega
setja þetta á einn disk“
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Erla Gígja Þorvaldsdóttir gefur út geisladisk
Hin 76 ára Erla Gígja Þorvaldsdóttir á
Sauðárkróki hefur árum saman dundað við
lagasmíðar sér til ánægju. Á dögunum kom út
hennar fyrsti geisladiskur. Lögin fjórtán á disknum eru öll eftir hana, flutt
af hinum ýmsu tónlistarmönnum, við texta eftir höfunda sem flestir eru
skagfirskir. Diskurinn ber heitið Nafnið þitt, en titillagið var fyrsta lagið
sem Erla Gígja samdi og er það að finna í tveimur mismunandi
útsetningum á disknum.
Einnig lærði Erla Gígja á trompet og orgel.
Í stofunni stendur gamall plötuspilari
ásamt vínylplötum sem hún hlustar mikið
á. Aðspurð um hvað sé í mestu uppáhaldi
segist Erla Gígja vera alæta á tónlist. „Ég
hlustaði mikið á klassík hérna áður fyrr og
svo bara alla mögulega músík.“
„Ég er nú enginn snillingur á orgelið
en ég sem öll lögin á það, svo hefur
Vilhjálmur Guðjónsson útsett fyrir mig,“
segir Erla Gígja. Upptökur fóru fram
á höfuðborgarsvæðinu og komu hinir
ýmsir flytjendur að þeim, t.a.m. Hreindís
Ylva Garðarsdóttir sem er barnabarn Erlu
Gígju. Við útgáfuna naut hún styrkja frá
Menningarsjóði KS og Menningarráði
Norðurlands vestra. Hún segist afar
þakklát fyrir þann stuðning, sem og allt
það góða fólk sem hún á að og hefur
aðstoðað hana.
Þrátt fyrir að þetta sé fyrsti diskur Erlu
Gígju hafa lög eftir hana áður komið út
á geisladiskum. Meðal annars hefur hún
komið lögum áfram í dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks, dægurlaga-
keppni á Ísafirði og Húnavökulögum. Þá
átti hún lagið Vornótt, sem komst í átta
liða úrslit í undankeppni Eurovision árið
2009 og var það Hreindís Ylva sem söng
lagið. Í Sæluviku árið 2009 var haldin
tónlistarveisla til heiðurs Erlu Gígju, í
tilefni af 70 ára afmæli hennar. Hún segir
að skúffan sé ekki alveg tæmd en reiknar
þó ekki með að standa í fleiri útgáfum.
Erla Gígja semur öll sín lög á orgelið. MYND: KSE
Munið
eftir
jólatrésölu
UMF Tindastóls
í húsakynnum
Timbursölunnar
Versluninni Eyri
VELKOMIN
Allt fyrir hestamanninn
í jólapakkann !
Opið: mánudaga- föstudaga kl. 8-18
Laugardaga kl. 10-13 / S: 455 4610
Nafnið þitt
Textahöfundar eru meðal annarra Hilmir Jóhannesson,
Hólmfríður Jónasdóttir, Þórdís Jónasdóttir og Þórdís Jónsdóttir.
Tónlistarmaðurinn Vilhjálmur Guðjónsson hefur útsett flest
laganna og haft yfirumsjón með verkefninu. Einnig eiga þeir
Eiríkur Hilmisson, Þórir Úlfarsson, Stefán Örn Gunnlaugsson,
Hrólfur Vagnsson og Yngvi Rafn Garðarsson, barnabarn
Erlu Gígju, útsetningar á disknum. Flytjendur laganna eru
Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson, Hreindís Ylva Garðarsdóttir,
Ingibjörg Fríða Helgadóttir, María Ólafsdóttir, Páll Rósinkrans,
Regína Ósk, Sandra Gunnarsdóttir, Svavar Knútur og Þórunn Arna Kristjánsdóttir.
Diskurinn fæst í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki