Feykir - 26.11.2015, Qupperneq 17
1 72 01 5
„Gettu hvað ég var að gera?“ „Varstu að
gera kvikmynd?“- „Nei, ég var að gifta
mig!“
Greta kemur frá Bandaríkjunum,
litlum landbúnaðar bæ í Vermont fylki
sem heitir Brattleboro með ellefu þúsund
íbúa. Í bænum er rík hefð fyrir brúðuleik
og leikbrúðugerð en þar eru staðsett
nokkur fyrirtæki sem eru á meðal þeirra
áhrifamestu í heimi í þeim bransa.
„Bread & Puppet Theatre Company
sem setur gjarnan upp ádeiluverk og
hefur haft mikil áhrif á samfélagið í
gegnum tíðina. Sandglass Theater í
eigu Eric Bass, sem er einn áhrifamesti
brúðuleikari í heimi, og loks má nefna
David Syrotiak National Marionette
Theatre. Ég man þegar ég var að vinna
á kaffihúsi þegar ég var í framhaldsskóla
og fór alltaf í kaffipásunum mínum
yfir götuna til þess að fylgjast með
þeim skera út brúðurnar. Ég hugsaði
með mér hve gaman væri að vinna við
þetta en datt aldrei í hug að þetta væri
eitthvað sem ég gæti lagt fyrir mig, það
kom mikið síðar,“ útskýrir hún. Greta
er því alin upp með leikbrúðurnar fyrir
augum og segir það hafa haft meiri áhrif
á hana en hún hafði gert sér í hugarlund.
„Eftir útskrift úr framhaldsskóla fékk
ég inn í tónlistardeild Juilliard skóla,
sem var mikill heiður, en ég fann að
það var ekki það sem ég vildi gera. Þá
ákvað ég að taka mér mér ársleyfi frá
skóla og stofnaði ungmennaleikhús og
vann með táningum á aldrinum 13-18
ára,“ útskýrir hún. Eftir árið fór hún í
leiklistarnám í East15 Acting School í
London og segir hún þá ákvörðun hafa
breytt lífi hennar á marga vegu. Hún
hefur starfað sem leikkona á West End í
London, jaðarleikhúsum og í Bangladess
og á Indlandi. „Ég tók þátt í uppfærslu á
Júlíus Sesari í Indlandi, sem var einungis
skipuð konum. Það var afar sérstök
upplifun að leika Brútus en sem ung
leikkona átti ég alls ekki von á því að fá
það hlutverk í hendurnar,“ segir hún og
hlær og heldur áfram: „Við vorum að æfa
að kvöldi til á ströndinni því það var of
heitt á daginn. Æfingarnar fóru fram við
kyndlalýsingu með dásamlegt útsýni yfir
Bengalflóa. Það var ótrúleg upplifun.“
Börn hreinskilnari og
þakklátari áhorfendur
Greta segir að sköpun eigin verka hafi
alltaf spilað stórt hlutverk í hennar
starfsferli. Síðan hafi það þróast á þann
veg að hún fór sífellt meira að vinna í
leikuppfærslum fyrir börn. „Á Bretlandi
eru leikbrúður nánast einungis fyrir
börn, þó það sé að smá aukast fyrir
fullorðna líka. Árið 2012 langaði mig að
gera leikverk eftir ljóðinu um Tomten
sem Viktor Rydberg samdi, en aðrir
hafa fært það í nýja búninga, m.a. Astrid
Lindgren, mig hafði í raun langað til þess
í mörg ár. Við Sigurður ákváðum loks
að demba okkur í það og stofnuðum
þá Old Saw framleiðslufyrirtækið, sem
upprunalega var aðeins hugsað utan um
þessa einu uppfærslu,“ útskýrir Greta.
Tomten þekkti Greta vel allt frá bernsku
en hún átti bókina sem barn. Þau þróuðu
sýninguna áfram og fengu fjárveitingu
til þess og gerði sýningin stormandi
lukku. „Þá efndi ég til samstarfs við
barnaleikhúsið Little Angel Theater sem
er stærsta brúðuleikhúsið á Bretlandi og
við fórum með sýninguna mjög víða.
Áður en við vissum af vorum við búin
að fara með hana um allt land.“ Eftir
„Okkur var farið að langa hingað
heim,“ segir Sigurður. „Á vissum tíma-
punkti var, vegna sóragigtarinnar, orðið
verra fyrir mig að standa mikið þannig
að ég fór að leita mér að starfi þar sem ég
gæti setið á rassgatinu. Ég fór þá að vinna
hjá Expedia en langtímaplottið hjá mér
var að standa mig vel og fá starfið með
mér heim til Íslands,“ segir Sigurður
glettilega. Hann starfaði hjá fyrirtækinu
í fjögur ár sem gæða- og verkefnastjóri
en ferðaþjónustufyrirtækið er með ótal
vörumerki á sínum snærum, m.a. Hotels.
com. Eitt stærsta og flóknasta verkefnið
sem hann stýrði fólst í síðuefnisstjórnun
fyrir 240 þúsund hótel í öllum þjóð-
löndum í heiminum. „Öðru hverju
þurfti að gera átak í því að tryggja að
allar upplýsingar vefsíðanna væru réttar
og þá þurfti að tala við hóteleigendur
sem ekki uppfærðu hjá sér. Til þess að
gera þetta þarf að vera með her manns
í vinnu, hringja í hóteleigendurna, fara
í gegnum allt saman og uppfæra það
í kerfinu. Þegar mest lét var ég með 66
manns í vinnu, í fjórum heimsálfum,
vinnandi á fimmtán tungumálum.“ Þá
gátu sumir vinnudagar Sigurðar orðið
ansi langir þar sem starfsemin spannaði
yfir heiminn þveran og endilangan.
„Þegar ég hafði verið hjá þeim í fjögur
ár, og sannað mig rækilega, spurði ég
hvort ég mætti taka starfið með mér
til Íslands. Það var tekið til skoðunar
og á endanum sagt nei. Ég varð alveg
hundfúll,“ viðurkennir hann og var það
staðan sem upp var komin áður en hann
sótti um starfið hjá Selasetrinu. „Eftir að
mér var boðið starfið hér sagði ég upp en
þá var allt í einu komið allt annað hljóð
í þau. Ég mátti taka starfið með mér
og var jafnvel boðið launahækkun. En
maður stendur við það sem maður er
búinn að segjast ætla gera, ég var búinn
Jólahefðirnar tvær
Undirbúningur jóla og
jólahefðirnar eru blanda af
íslenskum og amerískum
siðum og venjum hjá þeim
Sigurði og Gretu.
Í aðdraganda jóla, er
skór settur út í glugga
að íslenskum sið, en á
aðfangadagskvöld er
sokkur fylltur af gjöfum
eins og tíðkast í Banda-
ríkjunum. Og segist
Greta ansi hrædd um að þau eigi eftir að enda uppi með afar dekraða litla
stelpu. Aðfangadagskvöld fer að öðru leyti fram á íslenskan máta. Þau
setjast spariklædd til kvöldverðar kl. 18, þá er borðað hangikjöt líkt og
tíðkast hjá fjölskyldunni að Lækjamóti. Eftir það er helmingur jólagjafanna
opnaður, þ.e. frá fjölskyldu hans og vinum. Morguninn eftir, á jóladag, er
afgangurinn af gjöfunum opnaður í náttfötunum. Eftir gjafirnar fá þau sér
veglegan morgunverð, upp á ameríska vísu, amerískar pönnukökur, brakandi
beikonsneiðar, hlynsíróp og fleira tilheyrandi. Þegar því er lokið er kominn
tími til að elda kvöldmatinn sem er tilbúinn hvenær sem er þann dag.
ótrúlegt listrænt frelsi og
gat unnið með þeim sem
mér datt í hug.“
Sem sjálfstætt starf-
andi leikstjóri er Sigurð-
ur með á sjötta tug
leikverka að baki, auk
þess sem hann aflaði
sér kennsluréttinda við
Strode's College, og vann
sem kennari við marga
virtustu leiklistarskóla
Lundúna í tólf ár.
„Maður vann þetta allt
í bland, þetta var allt
hark og frílans störf. Ég
tók verk hér og þar en
á því tímabili kynnist
ég þessari og við giftum
okkur,“ segir Sigurður
og horfir á Gretu. „Við
vorum vinir í nokkur
ár áður en við síðan
ákváðum að gifta okkur.
Það gerðist svo ansi
snöggt árið 2005,“ segir
Greta. Hún hlær þegar
hún rifjar upp þegar hún
hringdi í mömmu sína til
að færa henni tíðindin.
Hún sagði hana næstum
hafa fengið hjartaáfall.
velgengni Tomten fékk
hún stöðu við leikhúsið
sem hún segir hafa
fest hana meir í sessi í
leikbrúðusamfélaginu
í Bretlandi. Síðan hefur
hún unnið að ýmsum
verkum og verið öðrum
til ráðleggingar. Þegar
hún er spurð hvernig
það sé frábrugðið að
gera sýningar fyrir börn
og fullorðna svarar hún:
„Munurinn á því að
vinna með börnum og
fullorðnum er sá að börn
eru mun hreinskilnari.
Ef maður er að gera
eitthvað vitlaust þá fær
maður að vita það um
leið en á sama tíma
eru þau þakklátustu
áhorfendurnir.“ Greta
segist geta unnið starf sitt
hvar sem er í heiminum.
Hún var orðin þreytt
á borgarlífinu og hafði
fylgst með Hvamms-
tanga vaxa og dafna,
milli ára og heimsókna,
og alltaf heillast af
bænum.
Þessar myndir eru úr leikbrúðuverkum Gretu, úr framleiðslu Old Saw, framleiðslufyrirtæki þeirra hjóna.
Annars vegar Tomten og Duvet Day en á myndinni er Greta ásamt Elínu dóttur sinni. MYNDIR: OLDSAW.CO.UK