Feykir - 26.11.2015, Page 23
2 32 01 5
Hluti af dömunum í
Kvenfélagi Svínavatnshrepps
bragða á dásemdunum
í Dalsmynni.
Guðrún H. Baldursdóttir
Stríðsterta
100 gr sykur
160 gr smjör
2 stk egg
160 gr haframjöl
135 gr hveiti
110 gr döðlur
2 tsk matarsódi
niðursoðnir ávextir með safa
Rjómi:
2½ dl rjómi
½ tsk vanilludropar
2 msk flórsykur
2 msk Nesquick
Aðferð: Ég set flórsykur og
Nesquick saman við rjómann
en það má sleppa því.
Súkkulaði:
150 gr súkkulaði
Aðferð: Vinnið saman sykur
og smjör þar til létt og ljóst.
Setjið egg út í eitt í einu, setjið
því næst hveiti og natron út
í. Hakkið döðlurnar niður
og blandið þeim út í ásamt
haframjölinu og vinnið rólega
saman. Setjið deigið í 26 sm
form og bakið við 180°C í
20-22 mínútur. Þegar botninn
er orðinn kaldur eru perurnar
lagðar ofan á. Bleytið örlítið
í botninum með safanum.
Þeytið rjóma og vanillu
saman og setjið óreglulega
yfir botninn.
Skerið niður jarðarber
og aðra álíka ávexti og raðið
yfir. Saxið niður súkkulaði og
stráið óreglulega yfir tertuna.
Látið tertuna standa minnst
3-5 tíma áður en hún er borin
fram.
Guðrún Sigurjónsdóttir
Kúlu-draumaterta
Svampbotn:
3 stk egg
105 gr sykur
45 gr hveiti
50 gr kartöflumjöl
1 tsk lyftiduft
Marengs:
3 eggjahvítur
150 gr sykur
Bakaður við 100°C í 2 klst
Krem:
3 stk eggjarauður
5 msk flórsykur
70 gr brætt súkkulaði
1 peli þeyttur rjómi
Skreyting:
½ l rjómi
konfekt
Aðferð: Rauðurnar og flórsykur
þeytt saman, bræddu súkku-
laði blandað saman við og
þeytt vel á meðan. Rjómi
þeyttur og öllu blandað
varlega saman.
Kakan sett saman: Svamp-
botn, 1 cm lag þeyttur rjómi,
annað eins af kremi, síðan
marengs, rjómi og afgangur
af kreminu efst og síðast
skreytt með þeyttum rjóma
utan með.
Ég knús mitt til kvenna sendi
í kærleik er einmana þyrstur.
Hjá þér vil að ljósið lendi
í lífinu erum við systur.
Í sannleika vil ég segja
að sálin mín er svona.
Þið allar hver einasta meyja
nú elskið að vera kona.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir
Rækjuforréttur
300 gr rækjur
1 laukur
30 gr smjör
1-2 tsk karrý
1 rautt epli (afhýtt
og skorið í litla bita)
1 græn paprika (skorin
í litla bita)
½ dl vatn
1 teningur fiskikraftur
1 msk tómatsósa
¼ l rjómi
½ tsk paprikuduft
½ tsk salt
2-3 dl soðin hrísgrjón
Aðferð: Laukur brytjaður
og látinn krauma í smjöri
með karrý. Epli og paprika
sett út í. Vatn, tómatsósa,
fiskikraftur, paprikuduft,
salt og rjómi sett í og látið
sjóða í 10-15 mínútur.
Sett í fallegar skálar:
Soðnu hrísgrjónin, rækj-
urnar og gumsið yfir.
Skreytt með ferskri stein-
selju og rækjum.
Guðrún H. Baldursdóttir
Mömmukossar
500 gr hveiti
215 gr Akra smjörlíki
115 gr sykur
1 stk egg
8 msk Tatelyle síróp
2 tsk matarsódi
1 tsk kanill
1 tsk negull
½ tsk engifer
½ tsk allrahanda
Smjörkrem:
100 gr Akra smjörlíki
150 gr flórsykur
1 stk eggjarauða
1 tsk vanilla
Aðferð: Allt hnoðað saman
kalt og flatt þunnt út. Skerið
hringlaga kökur með móti
eða glasi. Bakið við 180°C þar
til þær eru ljósbrúnar.
Kristín Rós Sigurðardóttir
Tindadraumurinn
Botn:
100 gr suðusúkkulaði
100 gr karamellufyllt súkkulaði
100 gr smjörlíki
4 msk síróp
4 bollar rice crispies
Ofan á botn:
1 ½ dl þeyttur rjómi
Karamellubráð:
25-30 töggur eða 1 poki rjómakúlur
Aðferð: Súkkulaði, smjör-
líki og síróp er brætt
saman í potti. Rice crispies
hrært saman við blönduna
í pottinum. Sett í form og
kælt í ísskáp.
Rjóminn þeyttur og
settur á botninn. Töggur/
rjómakúlur og rjómi er
brætt saman í potti við
vægan hita, síðan kælt og
látið leka yfir rjómann
ofan á kökunni.