Feykir - 26.11.2015, Qupperneq 26
2 01 52 6
Lögin á disknum eru öll eftir
Geirmund og textarnir flestir
eftir skagfirska höfunda.
„Það eru þarna nokkrir textar
sem voru komnir áður, eftir
Kristján Hreinsson og Þorstein
Eggertsson, sem var „textahöf-
undur Íslands“ á tímabili,“
segir Geirmundur. Tíu laganna
eru glæný úr smiðju sveiflu-
kóngsins en fjögur þeirra voru
til í handraðanum, án þess þó
að hafa komið út áður. „Það
er meira en ár síðan þessi
hugmynd kviknaði hjá mér, að
gefa út plötu með eintómum
Skagfirðingum. Ég hélt að
hún yrði aldrei að veruleika
en mér var afskaplega vel
tekið alls staðar þar sem ég
bar niður. Ég reyndi að finna
fólk sem ég vissi að hafði verið
að syngja og upptökur hafa
gengið afskaplega vel,“ bætir
hann við, aðspurður um tilurð
plötunnar. Sjálfur segist hann
ekki skilja það sjálfur hvar
hann finni tíma til að semja
tónlistina. „Ég er eiginlega að
verða hissa á þessu sjálfur. Ég
á aldrei nein lög á lager. En
ef maður sest niður og setur
sig í stellingar þá kemur þetta
einhvern veginn. Ég hef nú
ekki gert mikið af textum, en
ég á nú tvo á þessari plötu. En
ég er fljótari að gera lagið ef
textinn er til fyrir.“
Söngvararnir sem koma
fram eru allt frá því að vera
ungir krakkar til reyndra
stórsöngvara. Yngstar eru
barnabörnin Anna Karen og
Valdís, sem einnig sungu með
afa sínum á útgáfutónleikum
jólaplötunnar Jólastjörnur
Rammskagfirsk plata komin út
VIÐTAL
Kristín S. Einarsdóttir
Geirmundur Valtýsson gefur út geisladiskinn Skagfirðingar syngja
Tónlistarmanninn Geirmund
Valtýsson þarf ekki að kynna
fyrir Skagfirðingum né öðrum
landsmönnum, enda hefur hann verið að í áratugi og
slær hvergi af. Nýjasta framlag Geirmundar er platan
Skagfirðingar syngja, þar sem hann teflir fram fjölda nýrra
laga, í flutningi hinna ýmsu Skagfirðinga á öllum aldri. Auk
þess eru textahöfundarnir flestir skagfirskir. Diskurinn
er nýkominn í verslanir og tvennir útgáfutónleikar verða
í Miðgarði sunnudaginn 6. desember, en heiðursgestur á
tónleikunum er engin önnur en söngkonan Diddú.
Geirmundar fyrir jólin 2013.
„Við erum aldursforsetar ég
og Álftagerðisbræður, svo held
ég að Ásgeir Eiríksson komi
næstur, en aldur er náttúrulega
afstæður,“ segir Geirmundur.
Hann segir samstarfið hafa
gengið sérlega vel og allir hafi
hliðrað til og látið upptökurnar,
sem fram fóru í Reykjavík og
Skagafirði, ganga upp.
Allir sem koma við sögu
á plötunni munu jafnframt
koma fram á tvennum útgáfu-
tónleikum í Menningarhúsinu
Miðgarði, ásamt sérstökum
heiðursgesti. „Það eru tónleikar
klukkan sex og aðrir klukkan
hálfníu. Þeir sem hafa áhuga
á því og eru vanir því að sofna
klukkan hálftíu geta komið
klukkan sex. Hljómsveit Villa
Guðjóns mun leika undir á
tónleikunum og útsetningin
verður sú sama og á plötunni.
Svo er rúsínan í pylsuendanum,
það er Diddú, hún er heiðurs-
gestur kvöldsins. Hún hefur
ekki sungið með mér hér
norðan heiða áður, en hún
söng að vísu í fyrra í Austurbæ,
þegar ég var með jólatónleika
þar, hún er alveg ótrúleg,“ segir
Geirmundur.
Á tónleikunum verður hægt
að tryggja sér eintak áritað af
söngvurunum sem koma við
sögu. Hefti með myndum af
þeim öllum, ásamt söngtextum,
fylgir plötunni.
Skagfirðingar syngja:
Lögin eru öll eftir Geirmund.
1. Sunna TEXTI: Árni Gunnarsson. SÖNGUR: Sveinn Rúnar Gunnarsson og Erna Rut.
2. Það varst þú TEXTI: Hilmir Jóhannesson. SÖNGUR: Róbert Óttarsson.
3. Ótrúlega blá TEXTI: Kristján Hreinsson. SÖNGUR: Hreindís Ylva Garðarsdóttir.
4. Úllala TEXTI: Kristján Hreinsson. SÖNGUR: Sigurlaug Vordís.
5. Lífið og lækurinn TEXTI: Sigurður Hansen. SÖNGUR: Bergrún Sóla Áskelsdóttir
og Sigvaldi Gunnarsson.
6. Hvar sem ég er TEXTI: Geirmundur Valtýsson. SÖNGUR: Sigvaldi Gunnarsson.
7. Ég gæti TEXTI: Geirmundur Valtýsson. SÖNGUR: Anna Karen Hjartardóttir.
8. Söknuður TEXTI: Þorleifur Konráðsson. SÖNGUR: Valdís Valbjarnardóttir.
9. Skagfirðingar syngja TEXTI: Sigurður Hansen. SÖNGUR: Álftagerðisbræður.
10. Viðvíkursveit TEXTI: Anna Þóra. SÖNGUR: Ólöf Ólafsdóttir.
11. Söngur um söng TEXTI: Kristján Örn Kristjánsson. SÖNGUR: Róbert Gunnarsson.
12. Skagafjörður TEXTI: Ingimar Bogason. SÖNGUR: Árni Geir og Jóhann Björn Sigurbjörnssynir.
13. Drangey TEXTI: Anna Þóra Jónsdóttir. SÖNGUR: Ásgeir Eiríksson.
14. Hvað ertu að hugsa um að gera í kvöld? TEXTI: Þorsteinn Eggertsson.
SÖNGUR: Geirmundur Valtýsson og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir.
Okkar bestu óskir um gleðilega hátíð
og farsæld á komandi ári
útibúið Sauðárkróki