Feykir - 26.11.2015, Blaðsíða 43
4 32 01 5
Ýmsir viðburðir á Norðurlandi vestra
Allt að gerast á aðventunni
SAMANTEKT
Kristín S. Einarsdóttir
Það færist alltaf í vöxt að haldnir
séu tónleikar, markaðir og aðrir
viðburðir í aðdraganda jólanna.
Kórar, tónlistarskólar og aðrir sönghópar standa
margir hverjir fyrir árlegum jólatónleikum. Hér eru
nánari upplýsingar um fáeina af þeim viðburðum sem
verða á aðventunni.
394
Jólin í vinnunni :
Sigurlaug Maronsdóttir, sjúkraliði, Sauðárkróki
„Bölvað bull er þetta!“
Sigurlaug Maronsdóttir
er búsett á Sauðárkróki
og starfar sem sjúkraliði
á Heilbrigðisstofnuninni
Sauðárkróki. Hún hefur
starfað þar í rúm 20 ár og
oft tekið vaktir um jólin.
Ég hef bæði unnið á aðfanga-
dagskvöld og aðra daga yfir
jólin. Ég er ein í heimili og
mér finnst ágætt að vinna
um jól, sérstaklega eftir að
ég varð ein. Ég vann lengi
dvalarheimilinu og þær voru
ákaflega tillitssamar við mig
þar. Ég vann held ekki nema
ein jól á þessum tíu árum sem
ég var þar einstæð með þrjú
börn. Þessi jól var ég lengi að
átta mig á hvað börnin höfðu
UMSJÓN
Kristín S. Einarsdóttir
fengið í jólagjöf af því ég var
ekki viðstödd þegar þau tóku
upp gjafirnar.
Það er ekki eins að
vinna á öldrunardeild og á
sjúkradeild. Á dvalardeildum
er fólkið heimilisfast og fæstir
eiga þess kost að fara út á
aðfangadagskvöld, kannski
í besta falli skreppa í mat
út í bæ, og koma aftur fyrir
nóttina. Þar er líka fólk, sem á
þess ekki kost að fá ættingja
til sín í heimsókn. Við þurfum
þá að aðstoða við að opna
jólagjafir og lesa á kortin.
Þetta er bara gaman og
gefandi. Á sjúkradeild er þetta
öðruvísi. Kannski er staðan
þar sú að deildin er nærri,
eða alveg tóm. Samt þarf að
vera vakt, ekki bara hægt að
loka búllunni. Ástandið getur
verið á öllum stigum þar. Fyrir
nokkrum árum fæddist barn
á Þorláksmessu og dvaldi sín
fyrstu jól hjá okkur.
Deildarnar eru skreyttar
og sett upp jólatré og reynt að
gera allt sem notalegast. Við
fáum alltaf hamborgarhrygg
með öllu og möndlubúðing
í mat. Fyrir sjúklinga og
heimilisfólk á dvalardeildum
er mandla í búðingnum og
möndlugjöf. Á dvalardeildum
borðar heimilisfólk fyrst og
síðan fær starfsfólk mat
sendan á deildir og borðar
saman á sinni deild. Á
sjúkradeild borða stundum
allir saman, sjúklingar, hjúkr-
unarfræðingur, sjúkraliði og
læknir, sem oftast er afleys-
ingalæknir, ef næði er til þess.
Það er alltaf messað
á sjúkrahúsinu á jólum
og við förum með fólkið í
messuna. Ég fór einu sinni
með gamlan mann niður
og settist með hann fram
við dyr, þar sem ég vissi nú
ekki hvernig þolinmæðin
yrði. En við sungum okkur
í gegnum alla messuna,
sálmana og messusvörin,
fram að ræðunni. Svo kemur
ræðan og allt í einu snýr
maðurinn sér glottandi að
mér og segir: „Bölvað bull
er þetta!“ Ég sagði svo
prestinum þetta seinna,
þeir voru góðir kunningjar
og þessi maður hafði verið
organisti í kirkju í mörg ár.
Þetta var skemmtilegasta
jólamessa sem ég hef farið í
á sjúkrahúsinu.
Herdís Klausen hjúkrunar-
forstjóri kemur alltaf í
heimsókn á allar deildir á
aðfangadagskvöld og þeir
sem vinna aðfangadagskvöld
og jólanótt fá litla gjöf.
Vinnuplan liggur fyrir nokkrum
vikum fyrir jól og þá er hægt
að fara að skipuleggja með
heimafólki og hefja andlegan
undirbúning ef þarf. Nú
erum við flestar orðnar svo
fullorðnar að ungar eru flognir
að heiman eða sjálfbjarga.
Stundum skipta konur vakt-
inni, ein til kl. 8 og önnur
eftir það. Þá fá báðar smá jól
heima. Þetta bjargast alltaf
og það koma önnur jól.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA:
Jólafönn með
Swingkompaníinu
14. desember
Swing Kompaníið, sem skipað
er þeim Gretu Salóme fiðlu-
leikara og söngkonu, Unni
Birnu Björnsdóttur fiðlu-
leikari og söngkonu, Lilju
Björk Runólfsdóttur söng-
konu, Gunnari Hilmarssyni
gítarleikara, Leifi Gunnarssyni
bassaleikara og Óskari Þormars-
syni trommuleikara fer í jóla-
tónleikaför um landið í desember.
Ásamt þeim koma fram barnakór
og kirkjukór Sauðárkrókskirkju.
Tónleikaförin ber yfirskriftina
Jólafönn og er óhætt að fullyrða að
þar sé eitthvað á boðstólnum fyrir
alla. Einstaklega skemmtilegar og
hressandi útsetningar á jólalögum
í bland við hátíðleika skapa
einstakan atburð sem enginn má
láta fram hjá sér fara.
FÉLAGSHEIMILIÐ Á BLÖNDUÓSI:
Tónleikar með Demo
26. desember og 27. desember
Frá vinstri: Skarphéðinn, Helga Dögg, Haukur,
Guðbjartur og Benedikt á æfingu.
Tónleikar verða í Félagsheimilinu
á Blönduósi 26. og 27. desember.
Efnisskráin er fjölbreytt en með
tónleikunum er hugmyndin að
lífga aðeins upp á skammdegið.
Fyrir hlé verður lágstemmd
músík en seinni hlutinn verður
kraftmeiri. Sjö manna hljómsveit
og fimm söngvarar koma fram.
Hljómsveitina skipa: Benedikt
Blöndal, Fannar Viggósson,
Guðbjartur S. Vilhjálmsson, Guð-
mundur K. Ellertsson, Haukur
Ásgeirsson, Stefán Ólafsson
og Skarphéðinn H. Einarsson.
Gestasöngvarar eru Helga Dögg
Jónsdóttir, Nína Hallgrímsdóttir
og Sara Rut Fannarsdóttir.
ÁSBYRGI Í HÚNAÞINGI VESTRA:
Jólatónleikar
3. desember
Hópur Vestur-Húnvetninga sem
staðið hafa að tónleikahaldi fyrir
jólin verður með jólatónleika
í Ásbyrgi í Húnaþingi vestra
fimmtudaginn 3. desember.
Hljómsveitina skipa: Skúli Einars-
son, Elinborg Sigurgeirsdóttir,
Guðmundur Hólmar Jónsson
og Sigurvald Helgason. Með
þeim syngja Hulda Signý og
Aldís Jóhannesdætur, Valdimar
Gunnlaugsson, Hrafnhildur Ýr
Víglundsdóttir, Kristinn Þór
Víglundsson, Guðrún Stein-
björnsdóttir og Hrafnhildur
Jóhannsdóttir. Efnisskráin er afar
fjölbreytt og byggð upp á vali
söngvaranna sjálfra.
HÓLAR Í HJALTADAL:
Aðventuævintýri
13. desember
Kvenfélag Hólahrepps og Skóg-
ræktarfélag Skagafjarðar á Hólum
standa fyrir Aðventuævintýri á
Hólum sunnudaginn 13. desember
kl. 13-17. Fólki gefst kostur á að
sækja jólatré í skóginn, kaupa
sér heitt súkkulaði og bakkelsi
og njóta hins einstaka umhverfis
á Hólum. Auk þess verður opið
í Bjórsetrinu, í kirkjunni og
í Sögusetri íslenska hestsins
þar sem hægt verður að kaupa
piparkökur og skreyta. Undir
Byrðunni verður hægt að skera út
laufabrauð. Óvæntir gestir koma í
heimsókn og á markaði í Nýjabæ
má kaupa ýmislegt góðgæti og
gjafir.
NORÐURLAND VESTRA:
Nokkrir
jólamarkaðir
• Hólabak
28. og 29. nóvember kl. 12 - 17
• Húnaver
28. nóvember kl. 14 - 18
• Opið hús í Iðju á Sauðárkróki
3. desember
• Kaffihús 9. bekkinga í GAV
og markaður í Höfðaborg,
Hofsósi
3. desember
• Hús frítímans á Sauðárkróki
5. og 6. desember
• Hvammstangi
6. desember kl. 11 - 17.
- - - - -
Við bendum lesendum á að
senda upplýsingar um viðburði
á feykir@feykir.is, til birtingar á
viðburðadagatali á feykir.is. Einnig er
upplýsingar um viðburði á svæðinu
gjarnan að finna á vefsíðunum
skagafjordur.is, nordanatt.is
og huni.is.
Frá jólamarkaði í Húnaveri 2014.
Sigurlaug Maronsdóttir. MYND: KSE