Morgunblaðið - 02.10.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
* Til að DHA skili jákvæðum áhrifum
þarf að neyta 250 mg á dag.
OMEGA-3
FYRIR SJÓN
OG AUGU
Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi
sem er einkumætlað að viðhalda
eðlilegri sjón.
Omega-3 augu inniheldur lútein,
zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt
omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og
ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla
að viðhaldi eðlilegrar sjónar.
Fæst í öllum helstu apótekum landsins.
Það er ótrúlegt sem fólk leyfirsér á samfélagsmiðlum. Björn
Bjarnason hafði skrifað færslu um
RÚV og lýsir svo samskiptum sín-
um við einn samfélagsskríbentinn
með þessum orðum:
Skömmu eftir aðþetta birtist
gerði mér ókunnug
kona Pálína Helga
Þórarinsdóttir þessa
athugasemd: Björn þarf að læra
hobbý fyrir gamalmenni.
Björn Bjarnason: Pálína HelgaÞórarinsdóttir, þakka þér um-
hyggjuna og málefnaleg viðbrögð,
er þetta hobby ekki eins gott og
hvert annað? Er það bara fyrir
ákveðinn aldursflokk?
Pálína Helga Þórarinsdóttir:Sæll Björn, ég var alveg með-
vituð um að innlegg mitt var niðr-
andi þegar ég setti það inn.
Mín skoðun er sú að þú hafir
fengið góðan tíma og svigrúm á op-
inbera sviðinu til að tjá skoðanir
þínar og nú sé mál að færa þær inn
á einkasviðið og gefa öðrum orðið.
Björn Bjarnason: Er opinberasviðið aðeins fyrir ákveðna
aldurshópa? Ný tegund ritskoð-
unar? Eða má ég ekki fjalla um rík-
isútvarpið? Hvaða aldurshópur á að
ráða opinbera sviðinu? Í mínum
huga er skoðun þín aðeins til marks
um nauðsyn þess að herða sóknina í
anda frjálslynds lýðræðis, ég þarf
sem betur fer ekki leyfi þitt til þess.
Pálína Helga Þórarinsdóttir: Ein-mitt, þú vilt ekki skilja, ég skil
það. Hefur ekkert með lífaldur að
gera.“
Verst er svo að þessi dónahegðunsmitast óhjákvæmilega inn í
raunheima.
Björn Bjarnason
Dónaskapur og
þöggunartilburðir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.10., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 9 skýjað
Akureyri 8 skýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 9 rigning
Ósló 12 rigning
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 12 léttskýjað
Helsinki 8 skýjað
Lúxemborg 14 þoka
Brussel 15 rigning
Dublin 15 skýjað
Glasgow 14 skúrir
London 16 súld
París 15 alskýjað
Amsterdam 16 alskýjað
Hamborg 16 léttskýjað
Berlín 14 skýjað
Vín 15 heiðskírt
Moskva 4 alskýjað
Algarve 24 heiðskírt
Madríd 19 heiðskírt
Barcelona 21 skýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 19 þoka
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg 17 alskýjað
Montreal 13 léttskýjað
New York 17 heiðskírt
Chicago 16 heiðskírt
Orlando 27 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:41 18:54
ÍSAFJÖRÐUR 7:48 18:57
SIGLUFJÖRÐUR 7:31 18:39
DJÚPIVOGUR 7:11 18:23
Tónleikum rapparans Future, sem fara áttu fram í
Laugardalshöll næsta sunnudag, hefur verið af-
lýst. Þetta staðfestir Ísleifur Þórhallsson, tónleika-
haldari hjá Senu, í samtali við Morgunblaðið. Miða-
hafar hafa þegar fengið endurgreitt inn á kortið
sitt.
Ísleifur segir margt spila inn í ákvörðunina en
viðurkennir að miðasalan hefði mátt ganga betur.
„Ef miðasalan hefði verið frábær hefðum við lík-
lega haldið tónleikana.“ Þó sé um sameiginlega
ákvörðun Senu og umboðsmanna rapparans að
ræða.
Future er einn vinsælasti rappari heims um
þessar mundir en hann hefur unnið með fjölda
þekktra listamanna, svo sem Rihönnu og kanadíska
hjartaknúsaranum Drake. Í febrúar gaf hann út
tvær plötur, HNDRXX og Future, og vermdu þær
báðar efsta sæti bandaríska Billboard-listans um
stund.
Hann er nú á tónleikaferðalagi um Vesturlönd og
hugðist troða upp á Íslandi milli þess sem hann
spilar í Bandaríkjunum og Evrópu. Til stóð að ein-
valalið rappara hitaði upp fyrir kappann: Aron Can,
Emmsjé Gauti, JóiPé og Króli. alexander@mbl.is
Tónleikum Future á Íslandi aflýst
Rapparinn hugðist
troða upp í Laugardal
Ljósmynd/Sena
Víðförull Future er á ferðalagi um Vesturlönd.
Þrír umsækjendur eru um embætti
prests heyrnarlausra en embættið
var auglýst laust til umsóknar hinn
22. ágúst sl.
Umsækjendur eru: Helga Kol-
beinsdóttir guðfræðingur, séra
Kristín Pálsdóttir og María Gunn-
arsdóttir guðfræðingur.
Umsóknarfrestur um embættið
rann út 28. september sl. Biskup Ís-
lands skipar í það frá 1. nóvember
nk. til fimm ára. Umsóknir fara nú
til umfjöllunar matsnefndar um
hæfni til prestsembættis og að
fenginni niðurstöðu hennar mun
biskup Íslands taka ákvörðun um
hvern umsækjenda skuli skipa.
sisi@mbl.is
Þrjár sækja
um embætti
prests
Morgunblaðið/Eggert
Stefna Prestar ganga til presta-
stefnu í Digraneskirkju í fyrra