Morgunblaðið - 02.10.2017, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Yfirkjörstjórn Norðaustur-
kjördæmis tilkynnir:
Framboðsfrestur til alþingiskosninga
28. október 2017 rennur út föstudaginn
13. október 2017, kl. 12:00 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis tek-
ur á móti framboðslistum miðvikudaginn
11. október 2017, kl. 10:00-13:00 í Set-
bergi, sal á 2. hæð í Menningarhúsinu
Hofi á Akureyri.
Á framboðslistum skulu vera nöfn 20 fram-
bjóðenda, hvorki fleiri né færri.Tilgreina skal
skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans,
stöðu eða starfsheiti og heimili. Listanum skal
fylgja skrifleg yfirlýsing allra frambjóðenda um
að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann.
Þá skal fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning
við listann, og fyrir hvaða stjórnmálasamtök
listinn er borinn fram og við hvaða kosningar
frá kjósendum í Norðausturkjördæmi. Fjöldi
meðmælenda skal vera að lágmarki 300 en 400
að hámarki. Við nöfn meðmælenda skal greina
kennitölu og heimili. Vakin er sérstök athygli á
að afhenda skal yfirkjörstjórn frumrit meðmæl-
endalista, á tölusettum blaðsíðum í framhald-
andi röð.
Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu er mælst til
þess að meðmælendalistar verði skráðir með
rafrænum hætti á þar til gerðu vefsvæði á
www.island.is áður en þeim er skilað til yfir-
kjörstjórnar.
Loks skal fylgja framboðslista skrifleg tilkynn-
ing frá frambjóðendum listans, hverjir tveir
menn séu umboðsmenn listans í kjördæminu.
Framboðslistar verða úrskurðaðir á fundi
yfirkjörstjórnar sem haldinn verður í Set-
bergi, Menningarhúsinu Hofi á Akureyri,
laugardaginn 14. október 2017, kl. 16:00.
Meðan kosning fer fram, laugardaginn
28. október 2017, verður aðsetur yfirkjörstjórnar
Norðausturkjördæmis í Verkmenntaskólanum
á Akureyri en talning atkvæða fer fram í sal
Brekkuskóla við Skólastíg á Akureyri að loknum
kjörfundi. Símanúmer yfirkjörstjórnar Norð-
austurkjördæmis er 837-2300, sími á talningar-
stað verður 857-1479.
Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis
28. september 2017
Ólafur Rúnar Ólafsson oddviti
Gestur Jónsson
Eva Dís Pálmadóttir
Ólafur Arnar Pálsson
Valtýr Hreiðarsson
Félagsstarf eldri borgara
10.30. Qigong kl. 10.30, framhaldsþættir kl. 13.40-14.30, opið kaffihús
kl. 14.30-15.30. Minnum á haustferðina á Þingvöll á fimmtudaginn,
verð 4500 kr., ennþá laus pláss hjá okkur, nánari upplýsingar í síma
535-2760.
Furugerði 1 Morgunverður frá kl. 8.10-9.10 í borðsal, fjöliðjan í kjall-
ara opin frá kl. 10, heitt kaffi á könnunni, stólaleikfimi kl. 11 í innri
borðsal, hádegisverður kl. 11.30-12.30 í borðsal, ganga kl. 13 ef veður
leyfir, botsía í innri borðsal kl. 14, síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30 í borð-
sal. Qi gong kl. 16.30 í innri borðsal. Kvöldverður kl. 18.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, útskurður með leið-
beinanda kl. 9-16, línudans kl. 13-14, kóræfing kl. 14.30-16.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta, kl.13.30 spjallhópur.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10 handavinna
/ brids kl. 13, jóga kl. 18.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, léttar erobikæf-
ingar kl. 9 með Milan, morgunleikfimi kl. 9.45, hádegismatur frá kl.
11.30. Frjáls spilamennska kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir vel-
komnir í félagsmiðstöðina óháð aldri og búsetu.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, ganga kl. 10, línudansnámskeið kl. 10, myndlistarnámskeið hjá
Margréti Zophoníasdóttur kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félags-
vist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri, nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og jóga kl. 9 í Borgum, postulínsnámskeið Ástu
Lilju kl. 9 fullbókað, ganga frá Borgum og Grafarvogskirkju kl. 10 og
inni í Egilshöll, línudans með Eddu hefst í dag kl. 11, allir velkomnir í
hópinn. Félagsvist í Borgum kl. 12.30 og skartgripagerð með Sesselju
kl. 13 í Borgum, tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í umsjón Gylfa.
Norðurbrún 1 Kl. 9.45 morgunleikfimi, kl. 10.15 lesið upp úr dag-
blöðum, kl. 11 bókmenntahópur, kl. 13-16 tréútskurður, kl. 15.30 bíó.
Seltjarnarnes Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur
og kaffispjall í króknum kl. 10.30, jóga salnum kl. 11, handavinna saln-
um kl. 13, vatnsleikfimi sundlauginni kl. 18.30. Ath. nk. miðvikudag
verður snyrtivörukynning Avon í salnum á Skólabraut kl. 13.
Stangarhylur 4, Zumba námskeið kl. 10.30, leiðbeinandiTanya.
Skapandi skrif; námskeið kl. 14, leiðbeinandi Þórður Helgason.
Vesturgata 7 Nýtt námskeið í glerskurði hefst þriðjudaginn 3. októ-
ber, kennt er frá kl. 13-16, leiðbeinandi er Vigdís Hansen. Uppl. í síma
535-2740.
Aflagrandi 40 Hjá okkur er opin vinnustofa í dag frá kl. 9, leikfimi í
KR frá kl. 10.30, harmonikuball frá kl. 13.30 (500 krónur inn) og
útskurður og myndlist í hreyfisalnum frá kl. 13, jóga kl. 18.
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16, botsía með Þóreyju kl. 9.30.
Ganga um nágrennið kl. 11, handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-
16. Félagsvist með vinningum kl. 13, myndlist með Elsu kl. 16-20,
opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45, kaffisala kl. 15-15.45,
heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30, félagsvist kl. 13, myndlist kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16, morgunkaffi kl. 10-
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
VAÐNES-sumarbústaðalóðir
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook síðu
okkar vaðnes-lóðir til sölu.
7.9
00.
-
6.5
00.
-
9.5
00.
-
9.5
00.
-
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Sundbolir • Tankini
Bikini • Strandfatnaður
Undirföt • Náttföt
Sloppar • Undirkjólar
Inniskór • Aðhaldsföt
Mjódd s. 774-7377
www.frusigurlaug.is
Frí póstsending
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílar
Nissan Leaf útsala!
2015 bílar, eknir milli 20 og 35 þús.
Nokkrir litir. Allir með hraðhleðslu.
Verð aðeins 1.990.000 staðgreitt
eða lánað.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn,
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
september síðastliðinn, eftir
glímu við erfið veikindi. Það eru
35 ár síðan ég kynntist Óla en þá
var ég að kynnast Jórunni minni.
Hann tók mér vel frá fyrstu byrj-
un og ég fann að ég var ávallt vel-
kominn á heimili tengdaforeldr-
anna. Óli var fámáll maður en
sagði kannski bara það sem
þurfti, var rólegur í fasi og hafði
góða nærveru. Hann var með ríka
réttlætiskennd sem hann sýndi í
verki. Hann var mjög barngóður
og þótti dætrum mínum ætíð
mjög vænt um afa sinn. Þegar ég
var að kynnast Jórunni rak
tengdapabbi ásamt öðrum úr fjöl-
skyldunni útgerð og fiskvinnslu í
Garði. Á þessum tíma ráku
tengdaforeldrar mínir einnig fisk-
búð í Vesturbæ Reykjavíkur, þar
sem ég starfaði um tíma og lærði
meðhöndlun á fiski sem hefur allt-
af komið sér vel. Ég var heppinn
að Óli var KR-ingur og áttum við
þess vegna samleið í boltanum.
Eftir að starfsferli Óla lauk hafði
hann gaman af því að fylgjast með
og horfa á enska boltann sem var
mikil dægrastytting fyrir hann.
Þrátt fyrir heilsubrest síðustu ár
og erfiðleika sem fylgdu kveink-
aði hann sér aldrei og var ávallt
stutt í brosið. Síðustu daga
ævinnar var hann umlukinn fjöl-
skyldunni á heimili sínu og var
gott að geta tekið þátt í aðhlynn-
ingu ásamt fjölskyldunni með
tryggri aðstoð teymis Heima-
hlynningar Landspítalans. Hann
kvaddi svo friðsamlega. Blessuð
sé minning tengdapabba.
Ingimar Tómas Ísaksson.
Nú er hann Óli tengdapabbi
fallinn frá eftir skammvinn veik-
indi. Óli, það er með söknuði sem
ég kveð þig og þakka fyrir allt það
góða sem við áttum og gerðum
saman. Alltaf sýnduð þú og
Maddý mér og okkur tengdason-
unum öllum mikinn hlýhug og vel-
vilja. Það verður t.d. seint metið
til fjár að við skyldum öll hvert á
fætur öðru fá að hefja búskap
okkar í kjallaranum á Tjarnó og
þannig ná að koma undir okkur
fótunum. Við byrjuðum að vinna
saman þegar ég hóf störf sem
fisksali hjá ykkur í Sörlaskjólinu
og var það mér lærdómsríkur
tími. Svo kaupum við saman Víd-
eóturninn sem síðan varð Íshöllin
og rákuð þið Sigrún og Maddý
hana saman í 18 ár með mig á
hliðarlínunni á milli vakta. Dag-
arnir voru langir og reksturinn
ekki alltaf dans á rósum, en ekki
hafði það áhrif á húmorinn og
dugnaðinn. Fyrir mér var sam-
band ykkar Sigrúnar sérstakt og
náið alla tíð, samstarf ykkar með
eindæmum gott og stólaðir þú á
hana í ýmsum málum. Við vorum
þeirrar ánægju aðnjótandi að fara
með ykkur eða heimsækja í
nokkra af þeim mörgu veiðitúrum
sem þið fóruð í og aldrei stóð á því
að leyfa okkur eða strákunum
okkar, Guðjóni og Ólafi Ágústi, að
renna fyrir fisk. Margar góðar
stundirnar áttum við stórfjöl-
skyldan á Tjarnó þar sem þið vor-
uð ótrúlega ötul að fá okkur öll
t.d. á jólum og áramótum, og allt-
af sýndir þú sama æðruleysið
þrátt fyrir ærslagang og læti þar
sem barnabörnin hlupu upp og
niður stigann og hring eftir hring
milli stofanna. En þú fannst leið
út úr þessu og byggðir lítinn
sumó, þessa líka völundarsmíð í
garðinum og hafðir þar afdrep
sem við tengdasynirnir vorum svo
heppnir að fá að flýja í til þín þeg-
ar mest gekk á. Það var okkur
strákunum líka ánægjuleg hefð
sem þú komst á með að bjóða okk-
ur á áramótum út í koníaksstof-
una eins og þú kallaðir hana, upp
á öllara, eðalkoníak eða viskí.
Elsku Óli, ég trúi að þú sért á
góðum stað í dag og vakir yfir
okkur, það var okkur huggun
harmi gegn að geta verið með þér,
sinnt þér með aðstoð heimahlynn-
ingar og séð til þess að þú þjáðist
ekki á lokakafla þessa lífs. Minn-
ing þín lifir með okkur, hvíldu í
friði,
Lárus.