Morgunblaðið - 02.10.2017, Page 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
vera svona eða hinsegin á litinn, og
þá skelli ég því fram. Eins og með
kuflakarlana, ég var ekkert að
hugsa um að gera arabaádeilu, en
mig vantaði þannig form, og þá er
allt í einu kominn merking í þetta.
Ég veit alveg af því, þetta er ekki
óvart, en hugmyndafræðin er öll í
óreiðu.“
- Eru verkin ný?
„Já, þetta eru allt ný verk, nema
ég var að draga upp eldri skúlptúra
bara af því að ég þurfti annan lit.
Skipti nýjum skúlptúrum út og setti
þessa eldri inn í staðinn.
Málverkin sem ég sýni eru mjög
svipuð klippimyndunum, bara
stærri. Þetta er annar miðill og það
kemur annað út úr honum. Mál-
verkin eru í sömu litapallettu og
klippimyndirnar, í sama formi og
sömu mótíf.
Í skúlptúrunum, sem eru leir-
gripir, eru litirnir líka eins. Fyrst
geri ég fót sem ég renni í rennibekk,
og hann er fallegur og reglulegur.
Svo hnoða ég saman einhverju
tröllsandliti, einhverjum agalegum
klessum og klessum ofan á það.
Þetta verða einshvers konar karla-
eða tröllsandlit, með bjúgnef sem
líkjast tittlingum. Svo renni ég lok
ofan á hausinn á þeim. Þetta er svo-
lítið leikur að andstæðum þess fína
og groddalega. Upphaflega voru
gripirnir hugsaðir sem verðlaun-
gripir fyrir þessa sömu karla. Þeir
eru með verðlaunagrip uppi á hillu
fyrir alls konar asnaleg verk sem
þeir hafa afrekað,“ segir Guð-
mundur. „Annars hugsa ég nú orðið
ég svo lítið um konseptið þegar ég
er að vinna verkin mín. Þá er ég
bara í augblikinu að hnoða. Maður
verður að fá að vera frjáls undan
konseptinu, það verður að fá að
flæða. Ég hef reynslu af því að gera
mjög ljót verk ef ég ætla að reyna að
fylla nákvæmlega upp í konseptið.“
Yfirhalning Yfirhalning/ Make-Over, verk eftir Guðmund frá þessu ári.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 6/10 kl. 20:00 17. s Fös 10/11 kl. 20:00 25. s Mið 29/11 kl. 20:00 32. s
Lau 7/10 kl. 20:00 18. s Sun 12/11 kl. 20:00 26. s Fös 1/12 kl. 20:00 33. s
Sun 8/10 kl. 20:00 auk. Þri 14/11 kl. 20:00 auk. Sun 3/12 kl. 20:00 34. s
Fös 13/10 kl. 20:00 19. s Fim 16/11 kl. 20:00 auk. Mið 6/12 kl. 20:00 35. s
Sun 15/10 kl. 20:00 20. s Lau 18/11 kl. 20:00 27. s Lau 9/12 kl. 20:00 36. s
Lau 21/10 kl. 20:00 21. s Sun 19/11 kl. 20:00 28. s Sun 10/12 kl. 20:00 37. s
Sun 22/10 kl. 20:00 22. s Mið 22/11 kl. 20:00 29. s Fim 14/12 kl. 20:00 38. sýn
Sun 29/10 kl. 20:00 23. s Fim 23/11 kl. 20:00 30. s
Lau 4/11 kl. 20:00 24. s Fös 24/11 kl. 20:00 31. s
Sýningin sem sló í gegn síðasta vor snýr aftur.
1984 (Nýja svið)
Mið 4/10 kl. 20:00 10. sýn Lau 7/10 kl. 20:00 12. sýn Fim 12/10 kl. 20:00 14. sýn
Fös 6/10 kl. 20:00 11. sýn Sun 8/10 kl. 20:00 13. sýn Fös 13/10 kl. 20:00 15. sýn
Stóri bróðir fylgist með þér
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 14/10 kl. 20:00 4. sýn Lau 28/10 kl. 20:00 5. sýn
Sprenghlægilegur farsi!
Kartöfluæturnar (Litla svið)
Fös 6/10 kl. 20:00 5. sýn Fös 13/10 kl. 20:00 7. sýn Sun 22/10 kl. 20:00 10. sýn
Sun 8/10 kl. 20:00 6. sýn Sun 15/10 kl. 20:00 8. sýn
Þri 10/10 kl. 20:00 aukas. Fös 20/10 kl. 20:00 9. sýn
Fjölskyldukeppni í meðvirkni!
Brot úr hjónabandi (Litli salur)
Fös 10/11 kl. 20:00 1. sýn Sun 19/11 kl. 20:00 6. sýn Fim 30/11 kl. 20:00 11. sýn
Lau 11/11 kl. 20:00 2. sýn Mið 22/11 kl. 20:00 7. sýn Fös 1/12 kl. 20:00 12. sýn
Sun 12/11 kl. 20:00 3. sýn Fim 23/11 kl. 20:00 8. sýn Lau 2/12 kl. 20:00 13. sýn
Mið 15/11 kl. 20:00 4. sýn Fös 24/11 kl. 20:00 9. sýn Sun 3/12 kl. 20:00 14. sýn
Lau 18/11 kl. 20:00 5. sýn Mið 29/11 kl. 20:00 10.
sýn
Fös 8/12 kl. 20:00 15. sýn
Þú í mér og ég í þér
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 29/10 kl. 13:00 48. sýn Sun 5/11 kl. 13:00 49. sýn Sun 12/11 kl. 13:00 50. sýn
Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 8/10 kl. 13:00 Sun 22/10 kl. 13:00
Sun 15/10 kl. 13:00 Sun 29/10 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Sun 8/10 kl. 19:30 Mið 18/10 kl. 19:30 Fös 20/10 kl. 19:30
Sun 15/10 kl. 19:30 Fim 19/10 kl. 19:30 Sun 22/10 kl. 19:30
Lokasýning
Fimm Grímutilnefningar!
Eniga Meniga (Stóra sviðið)
Lau 28/10 kl. 13:00 Lau 28/10 kl. 16:00
Fjölskyldutónleikar í Þjóðleikhúsinu með lögum Ólafs Hauks.
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fös 20/10 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 10/11 kl. 19:30
5.sýning
Fim 23/11 kl. 19:30 9.sýning
Fim 26/10 kl. 19:30
2.sýning
Lau 11/11 kl. 19:30
6.sýning
Fös 24/11 kl. 19:30 10.sýning
Fös 27/10 kl. 19:30
3.sýning
Fös 17/11 kl. 19:30
7.sýning
Fös 3/11 kl. 19:30 4.sýning Lau 18/11 kl. 19:30
8.sýning
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Óvinur fólksins (Stóra sviðið)
Fös 6/10 kl. 19:30 5.sýning Lau 7/10 kl. 19:30 6.sýning Fös 13/10 kl. 19:30
7.sýning
Eitt frægasta leikverk Henriks Ibsens í nýrri leikgerð
Faðirinn (Kassinn)
Fim 12/10 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 27/10 kl. 19:30
6.sýning
Fös 24/11 kl. 19:30
11.sýning
Fös 13/10 kl. 19:30
2.sýning
Sun 29/10 kl. 19:30
7.sýning
Lau 25/11 kl. 19:30 12.sýning
Lau 14/10 kl. 19:30
3.sýning
Fös 3/11 kl. 19:30 8.sýning Fim 30/11 kl. 19:30 13.sýning
Lau 21/10 kl. 19:30
5.sýning
Lau 4/11 kl. 19:30 9.sýning Fös 1/12 kl. 19:30 14.sýning
Fim 26/10 kl. 19:30
4.sýning
Fim 23/11 kl. 19:30
10.sýning
Óvenjulegt og áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Smán (Kúlan)
Fös 6/10 kl. 20:00 7.sýning Lau 7/10 kl. 19:30 8.sýning
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 4/10 kl. 20:00 Mið 25/10 kl. 20:00 Mið 15/11 kl. 20:00
Mið 11/10 kl. 20:00 Mið 1/11 kl. 20:00 Mið 22/11 kl. 20:00
Mið 18/10 kl. 20:00 Mið 8/11 kl. 20:00 Mið 29/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Landsbyggðin)
Þri 3/10 kl. 0:00 Ísafjörður Fim 12/10 kl. 0:00 Húsavík Mán 23/10 kl. 0:00
Ólafsfjörður
Fim 5/10 kl. 0:00 Hólmavík Fös 13/10 kl. 0:00 Raufarhöfn Þri 31/10 kl. 0:00 Blönduósi
Fös 6/10 kl. 0:00
Patreksfjörður
Mán 16/10 kl. 0:00
Vopnafjörður
Mið 1/11 kl. 0:00 Skagafjörður
Mán 9/10 kl. 0:00 Akureyri Þri 17/10 kl. 0:00 Eskifjörður
Mið 11/10 kl. 0:00
Mývatnssveit
Mið 18/10 kl. 0:00 Egilsstaðir
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 14/10 kl. 13:00 Lau 21/10 kl. 15:00 Lau 4/11 kl. 15:00
Lau 14/10 kl. 15:00 Sun 29/10 kl. 16:00
Lau 21/10 kl. 13:00 Lau 4/11 kl. 13:00
Brúðusýning
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
fyrir löngu síðan þar sem morð er
framið á golfvelli, að ég endaði á því
að hringja í Golfsamband Íslands til
að fá að vita hvaða orð væru notuð
yfir ákveðin hugtök á golfvellinum.
Erindinu var vel tekið, og við nánari
athugun kom í ljós að engin íslensk
orð reyndust til fyrir það sem ég var
að spyrja um. Golfsambandið afréð
því að einfaldlega smíða þessi orð, og
eru þau núna í notkun í íþróttinni.
Aðrir þýðendur hafa örugglega svip-
aðar sögur að segja.“
Það hversu erfitt er að þýða texta
getur líka farið eftir því hversu vel
þýðandinn þekkir efnið. „Ef stíll höf-
undarins er nálægt stíl þýðandans,
og umfjöllunarefnið eitthvað sem
þýðandinn er vel kunnugur, þá er
vinnan yfirleitt léttari,“ segir hún og
bætir við að það sé ekki endilega
texti með miklu málskrúði sem er
erfiðastur: „Sjálfri þykir mér ein-
faldur textur oft erfiðari en texti
með stórum og þungum orðum. Það
getur verið mjög vandasamt að láta
látleysi textans komast til skila í
þýðingu.“
Skemmtilegast að þýða
vel skrifuð verk
Eins og getið var í byrjun grein-
arinnar hefur Magnea komið víða
við. Auk kennslu- og þýðingarstarf-
anna hefur hún skrifað skáldsögur
og ljóðabækur, fengist við prófarka-
lestur fyrir Morgunblaðið og fleiri
blöð, og vann meira að segja um tíma
við heimasíðugerð. Þrátt fyrir öll
þessi hliðarspor togar starf þýðand-
ans í hana aftur og aftur, og for-
vitnilegt að vita hvað það er við
bókaþýðingar sem heillar hana
svona:
„Þýðingar virðast orðnar fasti í
mínu lífi, og mér finnst gaman að
þýða. Það er kannski ekki mjög mik-
ið upp úr þýðingunum að hafa fjár-
hagslega, en gefandi að glíma við
ólíkan texta, og sérstaklega
skemmtilegt að þýða vel skrifaðar
bækur.“
Aðspurð hvort það sé nokkur
hætta á að tölvurnar muni gera þýð-
endur atvinnulausa segist Magnea
ekki hafa af því áhyggjur að gervi-
greindin geri einn daginn út af við
stéttina. „Það er tilfinningin í text-
anum sem nær til lesandans, og ég á
eftir að sjá þá tölvu sem getur skilið
mannsandann nægilega vel til að
koma þessari tilfinningu til skila. Go-
ogle hefur t.d. gert mjög áhugaverða
þýðingu á íslenska þjóðsöngnum yfir
á ensku, sem ég myndi seint kalla
söngtæka útgáfu.“
Í doktorsrannsókn sinni skoðar
Magnea sálmabókina frá 1886.
„Um er að ræða afskaplega
merkilega bók að mörgu leyti, og
má segja að þarna séu íslensk
sálmaskáld búin að ná fullum tök-
um á sálmaforminu. Fyrstu ís-
lensku sálmabækurnar voru al-
gjörlega þýddar, en í útgáfunni
frá 1886 eru frumsamdir sálmar
komnir fram úr vönduðum þýð-
ingum,“ segir hún og lýsir sálma-
bókinni sem dásamlegu fyrirbæri.
Rannsóknin beinist öðrum
fremur að Matthíasi Jochumssyni,
Helga Hálfdánarsyni og Valdi-
mari Briem og segir Magnea að
sálmar þeirra og annarra þýð-
enda og skálda séu afskaplega
gott rannsóknarefni: „Um er að
ræða afmarkað svið innan bók-
menntanna, og sálmarnir eru
þýddir í þeim skýra tilgangi að
skerpa á trúnni með því að miðla
bæði sögum og boðskap Biblíunn-
ar, mikið til á því máli sem Biblían
notar.“
Bendir Magnea á að finna megi
tengsl á milli þýddu sálmanna og
þeirra frumsömdu, því með því að
spreyta sig á þýðingum eða lesa
þýðingar öðluðust íslensk skáld
þekkingu á þessari nýju bók-
menntagerð sem varla hafði verið
til í íslenskri menningu fyrir siða-
skipti. „Við sjáum það sama ger-
ast með íslensku glæpasöguna
sem haldið hefur verið fram að
verði til vegna þýðinga, og sama
máli gegnir um íslensku fantas-
íuna sem einnig verður til eftir að
þýðingar á erlendum verkum
ruddu brautina, þótt vissulega
eigi lestur á öðrum tungumálum –
sérstaklega ensku – sinn þátt í
því. Þegar fólk les vissar tegundir
bókmennta þýddar á íslensku
kemur alltaf að því á endanum að
einhver fær þá flugu í höfuðið að
hann geti skrifað svona verk á ís-
lensku. Ágætis dæmi um þetta er
Jón Thoroddsen sem segir bein-
línis í eftirmála að Pilti og stúlku
að hann hafi skrifað bókina til
höfuðs þýddu sögunum sem þá
voru svo vinsælar.“
Í sálmarannsóknunum segir
Magnea að standi m.a. upp úr
hvað skáldin þrjú, Matthías, Helgi
og Valdimar, eru persónulegir í
þeim sálmum sem þeir þýða, og
hvernig þeir þurftu oft að þýða
tiltölulega einfaldan texta yfir á
flóknara form sem félli að íslensk-
um bragreglum. „Persóna þýð-
endanna kemur mjög sterkt fram
í sálmunum, og þeir eru ekki endi-
lega rígbundnir við frumtextann.
Þeim er líka sniðinn þröngur
strakkur að snara yfir á íslensku
sálmi sem er kannski bara rímað-
ur, og þurfa að bæta inn stuðlum
og höfuðstöfum, auk þess sem lík-
ingamál frumtextans gengur ekki
endilega upp í íslensku sam-
hengi.“
Með þýðingunum varð
til ný tegund bókmennta
Innblástur „Þegar fólk les vissar tegundir bókmennta þýddar á ís-
lensku kemur alltaf að því á endanum að einhver fær þá flugu í höfuðið
að hann geti skrifað svona verk á íslensku,“ segir Magnea.
Morgunblaðið/Þórður