Morgunblaðið - 02.10.2017, Page 32
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 275. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Alvarlegt reiðhjólaslys í Kópavogi
2. Eftirlýstur hjá Interpol fyrir …
3. Farþegaþota varð vélarvana …
4. Ekki sá Vilhjálmur Bjarnason
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sunna Gunnlaugsdóttir heldur
ferna tónleika með hinum hollenska
Maarten Ornstein, en þeir fyrstu
verða í Vinaminni á Akranesi kl. 20 í
kvöld. Sunna og Ornstein kynntust á
Twitter árið 2013 og spiluðu fyrst
saman á Jazzhátíð Reykjavíkur 2014.
Á morgun, þriðjudag, verða þau á
Freyjujazz kl. 12.15 og á Kex kl. 20.30.
Hinn 4. október spila þau á Bryggj-
unni í Grindavík kl. 21.
Sunna og Ornstein á
fernum tónleikum
Huglekur Dagsson mun hefja mán-
aðarlegar sýningar á best/verstu
kvikmyndum sögunnar í Bíó Paradís
12. október. Sýningaröðin ber heitið
Prump í paradís er tileinkuð kvik-
myndum sem eru svo slæmar að
þær eru eiginlega frábærar, eins og
segir í tilkynningu. Eftir hverja sýn-
ingu spjallar Hugleikur, ásamt sér-
stökum gestum, við áhorfendur um
myndina.
Fyrsta sýningin verður 12. október
kl. 20, en þá verður á dagskrá rapp-
dramakvikmyndin Cool as Ice með
Vanilla Ice í aðalhlutverki, en sér-
stakur gestur Hugleiks á sýningunni
verður rapparinn Emmsjé Gauti.
Meðal kvikmynda sem verða á
dagskrá Prumps í paradís næstu
mánuði eru
Double
Agent
72,
White
Chicks,
Battlefield
Earth og
Hard
Ticket to
Hawaii.
Hugleikur býður upp
á prump í Bíó Paradís
Á þriðjudag Vestlæg eða breytileg átt 5-13 og rigning með
köflum, en þurrt A-lands. Hiti 5 til 10 stig.
Á miðvikudag Norðvestan 10-18 og rigning eða slydda, en þurrt
að kalla S-til á landinu. Hiti 1 til 10 stig, svalast nyrst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 5-15, hvassast austantil.
Bjartviðri SA-lands og úrkomulítið á Suðurlandi. Hiti 7 til 12 stig.
VEÐUR
Karlalandsliðið í knatt-
spyrnu kemur saman í
Tyrklandi í dag en á föstu-
dagskvöldið mætast Tyrk-
land og Ísland í afar mik-
ilvægum leik í næst-
síðustu umferð í undan-
keppni HM. Flestir af
landsliðsmönnunum voru
á ferðinni með félags-
liðum sínum um nýliðna
helgi en miðjumenn liðs-
ins spiluðu þó áberandi
minnst. »1
Miðjumennirnir
spiluðu minnst
Íslandsmeistarar UMFK Esju stimpl-
uðu sig út úr fyrstu Evrópukeppni ís-
lensks félagsliðs í íshokkíi með
hörkugóðri frammistöðu gegn Tyrk-
landsmeisturum Zeytinburnu í Bel-
grad í gær. Fáliðaðir, þreyttir og lurk-
um lamdir eftir stífa
dagskrá í þessari
frumraun áttu Esju-
menn sinn besta
leik í gær en urðu
að sætta sig við
tap í vítakeppni
eftir að staðan
var 2:2 að lokn-
um venjulegum
leiktíma og
framleng-
ingu. »2
Esjumenn enduðu á
besta leiknum í Belgrad
Danska kvennalandsliðið í handknatt-
leik var of stór biti fyrir íslenska liðið
er þau mættust í Laugardalshöll í gær.
Sjálfsagt eðlilegt og viðbúið þar sem
Danir eru með eitt allra sterkasta
landslið í heimi. Leikurinn var í undan-
keppni EM og lauk með yfirburðasigri
Dana 29:14 en samt var margt í leik ís-
lenska liðsins sem var jákvætt og lof-
aði góðu fyrir framhaldið. »6
Margt jákvætt í stóru
tapi gegn Dönum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í heimsókn okkar á vökudeild
Barnaspítalans sáum við vel hvað
tækin sem við höfum gefið þangað
á síðustu árum koma í góðar þarfir.
Þetta er okkur Hringskonum
hvatning til að bretta upp ermar og
gera enn betur, svo tryggja megi
skjólstæðingum deildarinnar sem
eru fyrirburar og aðrir veikir ný-
burar allra bestu meðferð,“ segir
Sonja Egilsdóttir, formaður Kven-
félagsins Hringsins.
Ómtæki og gjörgæslukerfi
Á þessu ári hafa Hringskonur
gefið Landspítalanum þrjú ómtæki
sem samtals kosta um 28 milljónir
króna. Fósturgreiningardeild
kvennadeildar spítalans fékk tvö ný
tæki. Þar eru gerðar 11 þúsund
ómskoðanir á ári, en allar þungaðar
konur koma í tvígang á meðgöngu-
tíma í slíka skoðun. Þriðja tækið
fór svo á bráðamóttökuna í Foss-
vogi, en það getur skipt sköpum
fyrir börn með innvortis lífsógn-
andi áverka að réttur tækjabún-
aður sé til staðar svo ógnina megi
greina.
Til viðbótar ómtækjunum hafa
Hringskonur gefið öndunarvélar og
gjörgæslukerfi á vökudeildina,
lyftubaðkar á Rjóðrið sem er hvíld-
ardvalarheimili fyrir langveik börn,
tæki á skurðstofu og endurnýjað
leikherbergi fyrir börn á slysa-
deildinni í Fossvogi, fyrir um það
bil 1,3 milljónir króna. Listinn er
raunar enn lengri en mikið er leitað
til Hringskvenna frá hinum ýmsu
deildum Landspítalans vegna
tækjakaupa.
Í sumar, þegar haldið var upp á
60 ára afmæli Barnaspítala Hrings-
ins, var tekið saman hvert væri
samanlagt og framreiknað virði
gjafa Hringskvenna til Landspítal-
ans á síðastliðnum fimmtán árum.
Summan reyndist vera einn millj-
arður króna og í ár verður hún um
100 milljónir króna.
Hringurinn er eitt af eldri félög-
um landsins, stofnað 1904. Allt frá
fyrstu tíð hafa líknar- og mann-
úðarverkefni verið áherslumál í
starfi félagsins og þá sérstaklega
Barnaspítalinn. Til hans – og ann-
arra velferðarmála í þágu veikra
barna – er safnað fé, til dæmis með
víðfrægum jólabasar félagsins,
jólakaffi, jólahappdrætti, jólakort-
um og baukar fyrir smámynt eru í
Leifsstöð, apótekum og víðar. Þá er
gjafahorn með ungbarnafatnaði í
anddyri Barnaspítalans svo og veit-
ingastofa sem félagið rekur.
Hvetjandi að fylgjast með
Barnaspítali Hringsins er til
vitnis um það hverju samtaka-
máttur getur áorkað. Hringskonur
eru stoltar af framlagi sínu, þakk-
látar starfsfólki spítalans fyrir
starf þess og hlakka til þeirra verk-
efna sem bíða, segir formaðurinn.
„Starf Hringsins er öflugt, en
alls eru 350 konur í félaginu og
margar búnar að vera lengi. En
sem betur fer er endurnýjun, 23
ungar konur ganga til liðs við okk-
ur í haust – bæði til að vera með í
góðum félagsskap, en einnig til
þess að láta gott af sér leiða. Í
starfi okkar Hringskvenna er líka
ómetanleg hvatning að fá að fylgj-
ast með starfinu á Barnaspítal-
anum og halda tengslum við það
frábæra fólk sem þar starfar.
Gjafir fyrir einn milljarð
Hringurinn
safnar með sam-
takamættinum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hringskona Sáum hvað tækin sem við höfum gefið Barnaspítalanum koma í góðar þarfir, segir Sonja Egilsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
Vökudeild Þar er veikum börnum og þeim sem fæðast fyrir tímann sinnt.