Morgunblaðið - 10.10.2017, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.10.2017, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2017 Laugardalsvöllur Fagnaðarlætin á fullsetnum þjóðarleikvanginum endurómuðu um allt landið þegar íslenska landsliðið sigraði lið Kósóvó og tryggði Íslandi þátttökurétt á HM í knattspyrnu. Árni Sæberg Góður nætursvefn er mikilvæg grunn- stoð heilsu, en með- almaðurinn ver um þriðjungi ævinnar í það að sofa. Þó að svefninn veiti okkur nauðsynlega hvíld er þetta mjög virkt ástand þar sem mikil vinna á sér stað bæði í líkama og sál. Segja má að líkaminn sé að endurnæra sig og byggja sig upp þegar við sofum, og skortur á svefni getur haft margvíslegar neikvæðar af- leiðingar á heilsu og líðan. Sérstaklega er mikilvægt að börn og unglingar sem eru að vaxa og þroskast fái nægan svefn. Börn á leikskólaaldri þurfa að sofa um 11-13 klukkustundir á sólarhring, börn í grunnskóla (5-12 ára) þurfa um 9-11 klukkustunda svefn að jafnaði og unglingar þurfa að sofa um 8-10 klukkustundir á nóttu. Skertur svefn getur haft marg- víslegar neikvæðar afleiðingar fyr- ir börn og unglinga og má þar til dæmis nefna einbeitingarskort, at- hyglisbrest, minnistruflanir, orku- leysi og depurð. Langvarandi svefnskortur getur svo leitt af sér lakari námsárangur, meiri líkur á ofþyngd og auknar líkur á kvíða og þunglyndi. Það er því mikið áhyggjuefni að heyra af aukningu svefnvanda meðal íslenskra barna og aukinni notkun svefnlyfja hjá þessum hópi. Nýleg íslensk rann- sókn sýndi að 15 ára börn sofa að jafnaði um sex klukkustundir á virkum dögum, sem er auðvitað allt of lítill svefn fyrir unglinga. Fyrir um áratug var það sjaldgæft að svefnlyf væru skrifuð út fyrir börn en stöðug aukning hefur verið á ávís- unum svefnlyfja fyrir börn undanfarin ár og er aukningin margföld frá árinu 2008. Sér- staklega hefur verið aukning í notkun melatóníns (lyfjaheiti Circadin). Samkvæmt lyfjaskrá er þetta lyf hugsað fyrir ein- staklinga 55 ára og eldri og ekki hefur enn verið sýnt fram á öryggi og verkun lyfsins hjá börnum á aldrinum 0-18 ára. Meðfylgjandi er mynd sem tekin var af vef landlæknisembættisins og sýnir aukningu á ávísunum svefnlyfja fyrir 0-18 ára börn á Ís- landi frá 2008-2015. Þessi mynd sýnir eingöngu lyfjaávísanir, en lyfið Circadin er lyfseðilsskylt hér á landi og því má ætla að raun- veruleg notkun melatóníns sé mun hærri, þar sem hægt er að nálgast lyfið án lyfseðils í Bandaríkjunum. Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að melatónín hefur áhrif á ýmis kerfi líkamans og til dæmis hafa komið fram áhrif á æxlunarkerfi kvendýra þar sem melatónín hefur áhrif á tíðahring og frjósemi. Það er því í besta falli skaðlaust að gefa börnum svefnlyf að staðaldri og ljóst er að mikil vöntun er á rannsóknum sem sýna fram á ör- yggi og langtímaáhrif þess að nota melatónín. Þegar börn glíma við svefnvanda er margt sem ber að skoða áður en farið er að gefa þeim svefnlyf, s.s. lífsstíll, hreyfing, mataræði, neysla orkudrykkja, skjánotkun og fleira. Gríðarleg aukning hefur orðið í notkun snjalltækja hjá börnum og eru þessi tæki jafnvel farin að hafa truflandi áhrif á skólastarf hér á landi og skólastjórnendur hafa sagt það ómögulegt að banna þessi tæki í kennslustofum. Þetta er að sjálfsögðu mjög varhugaverð þró- un og mikilvægt er að bregðast við þessu með einhverjum hætti og setja skýrar reglur um notkun snjalltækja fyrir börnin okkar, bæði innan veggja heimilisins og í skólanum. Ekkert barn þarf að vera í samskiptum við umheiminn og límt við snjalltæki öllum stund- um, en öll börn þurfa nægan svefn. Ef þau fá ekki nægan svefn mun það bitna bæði á líðan þeirra og heilsu og því er svo gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem sam- félag að vernda börnin okkar og tryggja að þau hafi tækifæri til þess að ná fullum nætursvefni. Snjalltæki eiga ekki heima inni í svefnherbergjum og getur notkun þeirra 1-2 klukkustundum fyrir svefn haft slæm áhrif á nætur- svefn. Mikil aukning hefur mælst í kvíða hjá börnum og má telja lík- legt að samfélagsmiðlar og sú óraunhæfa glansmynd sem þar birtist gjarnan eigi stóran þótt í þessari neikvæðu þróun. Íslensk rannsókn sem fjallað var um í fjöl- miðlum nýverið sýndi að um þriðj- ungur barna notar tölvu eða spjaldtölvu á fyrsta æviárinu, sem eru sláandi niðurstöður. Er þetta raunverulega sá vegur sem við viljum feta? Það er mikið áhyggju- efni hversu litlar reglur eru víða um skjánotkun barna og að brugð- ist sé í auknum mæli við svefn- vanda þeirra með því að gefa þeim lyf sem við ekki vitum hvaða áhrif hafa á þau til lengri tíma. Er ekki kominn tími til að við öxlum ábyrgð og verðum fyrirmyndir fyr- ir börnin okkar? Er það raunveru- lega svo óraunhæft að leggja frá sér snjalltækin á kvöldin, banna notkun þeirra í skólastofum og bregðast við svefnvanda barna með öðrum aðferðum en lyfjagjöf? Eftir Erlu Björnsdóttur » Snjallsímar í skólum, of lítill svefn, gríðar- leg aukning í notkun svefnlyfja og aukinn kvíði meðal barna – þetta er þróun sem við verðum að snúa við. Erla Björnsdóttir Höfundur er sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum. erlabjo@gmail.com Þróun sem verður að snúa við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.