Morgunblaðið - 10.10.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.10.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2017 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Ég hef verulegar áhyggjur af því að þessari friðlýsingu fylgi lítið eða ekkert fjármagn,“ segir Björgvin Skafti Bjarnason, oddviti Skeiða- og Gnúpverja- hrepps, spurður út í ákvörðun um- hverfisráðherra þess efnis að stækka friðland Þjórsárvera. „Við höfum ekki sett okkur upp á móti frið- lýsingunni sjálfri, en hætta er á að henni fylgi aukin umferð um svæðið og við þurfum mannskap og fjármagn til að fylgjast með og gæta svæðisins,“ segir hann. Ákvörðun umhverfisráðherra um stækkun friðlands Þjórsárvera, sem kynnt var viðeigandi sveitar- stjórnum í sumar, gerir ráð fyrir að friðlandið í Þjársárverum verði alls 1.563 ferkílómetrar, en svæðið var fyrst friðlýst árið 1981 og náði til 375 ferkílómetra. Friðunin varðar alls átta sveitarfélög en Björgvin Skafti segir áhrifanna gæta hvað mest í sínu sveitarfélagi enda megi búast við aukinni umferð um svæðið. Margra ára vinna Í tilkynningu frá Umhverfisráðu- neytinu segir að unnið hafi verið að stækkuninni undanfarin ár til sam- ræmis við samþykktir Alþingis á grundvelli náttúruverndaráætlunar og verndar- og orkunýtingaráætl- unar. Fylgir friðlýsingin, sem nú hefur verið undirrituð, því sam- komulagi sem náðist með hlutaðeig- andi sveitarstjórnum vorið 2013 um afmörkun hins friðlýsta svæðis og þá friðlýsingarskilmála sem gilda eiga um það svæði. Friðlýsingin er unnin á grundvelli náttúruverndarlaga, nr. 60/2013 en alls bárust ráðuneytinu átta um- sagnir þar sem fram kom almennur velvilji gagnvart friðlýsingunni. Þjórsárver eru ein víðáttumesta gróðurvin miðhálendisins, og er líf- ríki þeirra fjölskrúðugt og einstakt. Má þar sérstaklega nefna vistkerfi veranna, votlendi, varpstöðvar heiðagæsa, víðerni og sérstaka landslagsheild. Með stækkun frið- lands í Þjórsárverum næst það markmið að tryggja víðtæka og markvissa verndun svæðisins í heild sinni, segir í tilkynningu Umhverf- isráðuneytisins. Í kjölfar friðlýsingarinnar mun Umhverfisstofnun hefja vinnu við undirbúning að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir svæðið í sam- vinnu við sveitarstjórnir á svæðinu. Jafnframt mun samráð verða haft vegna ráðstöfunar skilgreinds fjár- framlags ríkisins til svæðisins, í sam- ræmi við samkomulag sem gert var árið 2013. Friðland Þjórsárvera stækkað  Óttast að fjármagn fylgi ekki stækk- uninni til að tryggja verndun svæðisins lf au u Hn a e re A u f ðu kv í y kv m av rð r Kis a nga t n v h nö hn S Lo rð l Rauð r FriðlýsingÞjórsárvera a ní fá r Bla ut ir vöt óley otn r kr Eftir stækkun ey Fyrir stækkun HOFSJÖKULL Björgvin Skafti Bjarnason Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tvö sveitarfélög af fjórum hafa gef- ið út framkvæmdaleyfi til lagningar Lyklafellslínu ofan höfuðborgar- svæðisins. Náttúruverndarsamtök hafa kært bæði leyfin. Umsókn Landsnets um framkvæmdir í landi tveggja sveitarfélaga eru í vinnslu. Mosfellsbær og Hafnarfjarðar- bær hafa gefið út framkvæmdaleyfi til lagningar Lyklafellslínu 1 sem liggur frá Sandskeiði, ofan byggðar í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ og í Hafnarfjörð. Liggur línan einn- ig um land Kópavogs og Garða- bæjar og eru umsóknir Landsnets um framkvæmdaleyfi til vinnslu í stjórnkerfum bæjanna. Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt leyfið. Fulltrúar minnihlutans lýstu sig andsnúna afgreiðslunni vegna áhættu fyrir vatnsvernd. Málið bíð- ur afgreiðslu bæjarstjórnar. Fulltrúar Landsnets kynntu verk- efnið á fundi í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd Garðabæjar í vik- unni. Náttúruverndarsamtök Suðvest- urlands og Hraunavinir hafa kært útgáfu Mosfellsbæjar og Hafnar- fjarðar á framkvæmdaleyfum vegna línunnar til úrskurðarnefndar um- hverfis- og auðlindamála. Færa þau ýmis rök fyrir kröfu sinni um að framkvæmdaleyfin verði felld úr gildi, meðal annars er vísað til dóma og úrskurða í öðrum málum vegna ágalla á undirbúningi og út- gáfu slíkra leyfa. Þá er sérstaklega varað við því að línan muni liggja um grannsvæði vatnsverndar. Þær gömlu verða rifnar Lyklafellslína, sem í fyrstu áætl- unum var kölluð Sandskeiðslína, liggur frá Sandskeiði í Hafnarfjörð, tæplega 30 kílómetra leið. Hún á að leysa af hólmi Hamraneslínu sem er tvöföld og liggur á háum möstr- um skammt frá byggð á höfuðborg- arsvæðinu og fer yfir útivistarsvæði í Heiðmörk. Byggðin er farin að þrengja að línunum, sérstaklega í Hafnarfirði þar sem hún liggur um Vallahverfi. Einnig verða línurnar sem liggja að álverinu í Straumsvík færðar. Bygging nýju línunnar og tilheyrandi tengivirki við Lyklafell á Sandskeiði eru forsenda þess að hægt verði að rífa Hamraneslínur. Mikið hefur verið fjallað um vatnsvernd við undirbúning fram- kvæmdarinnar og umfjöllun hjá sveitarfélögunum. Landsnet lét meðal annars gera áhættumat og starfsmenn Kópavogsbæjar litu sérstaklega til þess máls í grein- argerð sem lögð var til grundvallar afgreiðslu skipulagsráðs og bæjar- ráðs. Þá hafa heilbrigðisyfirvöld gefið út starfsleyfi vegna reksturs línunnar, með tilliti til vatnsvernd- ar. Áætlað er að lagning línunnar og bygging nýs tengivirkis við Lykla- fell kosti 4-5 milljarða króna. Teng- ingar verða innanhúss í virkinu til að auka rekstraröryggi og draga úr áhrifum á umhverfið. Þórarinn Bjarnason, verkefna- stjóri hjá Landsneti, segir að þegar öll leyfi hafi borist verði lagning lín- unnar boðin út. Vonast hann til þess að framkvæmdir geti hafist á næsta ári. Framkvæmdaleyfi kærð  Unnið að undirbúningi fyrir lagningu Lyklafellslínu sem liggja mun frá Sand- skeiði að Hafnarfirði  Kemur í stað tveggja eldri Hamraneslína sem verða rifnar Lyklafellslína Grunnkort/Loftmyndir ehf. Straumsvík Reykjavík Hamraneslínur 1 og 2 Ísalínur 1 og 2 Lyklafellslína Búrfellslína 3 Morgunblaðið/Ómar Heiðmörk Nýja línan verður lengra frá byggð og útivistarsvæðum. „Þetta er ein- faldlega algert bull,“ segir Sæv- ar Helgi Braga- son, ritstjóri Stjörnufræði- vefsins, um texta sem gengur manna á milli á Facebook um einstaka stöðu himintunglanna. Umræddur texti er svohljóðandi: „ÞESSI október hefur 5 mánu- daga, 5 laugardaga og 5 sunnu- DAGA. ÞETTA gerist á 823 ára fresti. Þetta er kallað poki af pen- ingum. Afritaðu þetta svo á eigin stöðu og peningar munu ná yfir 4 daga. Á grundvelli hins kínverska Feng Shui. Sá sem ekki afritar, verður án peninga. Afritun innan 11 mínútna eftir lestur.“ „Fyrir það fyrsta eru ekki einu sinni fimm laugardagar í þessum mánuði. Það er heldur ekkert dul- arfullt við svona nokkuð, það gerist með reglulegu millibili að þrír viku- dagar séu fimm sinnum í mánuðin- um. Í maí voru fimm mánudagar, fimm þriðjudagar og fimm mið- vikudagar. Þetta er vandamálið við netið; þar grasserar ruglið. Þegar þú lest eitthvað ótrúlegt er rétt að athuga hvort það standist. Svo er gott að hafa í huga orð Abrahams Lincolns sem sagði: Ekki trúa öllu því sem þú lest á internetinu.“ Rugl sem „grasserar“ á netinu Sævar Helgi Bragason Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. 8 Vöruflokkar · 200 PLU númer · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · Rafrænn innri strimill · Mjög auðveld í notkun Verð kr. 49.900,- ORMSSON.IS LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 74.900,- 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 79.900,- XE-A217BXE-A207BXE-A147B ÖRUGGAR OG ENDINGARGÓÐAR 40 ár á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.