Morgunblaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2017 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir við byggingu Sjóbað- anna á Húsavíkurhöfða eru komnar á fullan skrið. Undirstöður þjón- ustuhússins eru tilbúnar því síðast- liðinn föstudag var síðasta plötu- steypan. Framkvæmdin er á áætlun og á að opna baðaðstöðuna í júní á næsta ári. Bygging baðanna er fyrsti áfangi verkefnisins. Sjóböðin hafa einnig fengið lóð undir hótel en engin ákvörðun hefur verið tekin um byggingu þess. „Við ætlum að ljúka þessum áfanga fyrst,“ segir Guð- bjartur Ellert Jónsson, fram- kvæmdastjóri Norðursiglingar og stjórnarformaður Sjóbaðanna. Útsýni yfir Skjálfandaflóa Í baðhúsinu verður þjónusturými, búningsaðstaða og veitingasala með minniháttar veitingum fyrir bað- gesti. Veitingaaðstaðan er tvískipt; annar hlutinn tengist böðunum og hinn þjónusturýminu. Kerin verða síðan úti, nokkur ker með mismunandi lögun. Sjóböðin verða á bjargbrúninni og hafa gestir útsýni yfir Skjálfandaflóa úr ker- unum og af þaki þjónustuhússins. Guðbjartur segir ágætt að geta byrjað starfsemina að vori til að ná ferðasumrinu í fyrstu atrennu en böðin verða opin allt árið. Hægt verður að taka á móti um 100 þúsund gestum á ári og segir Guðbjartur að mögulegt sé að fjölga í 150 þúsund gesti með stækkun á búningsaðstöðu sem kosti tiltölu- lega lítið. Vatnið í böðin er salt og kemur úr borholu sem Orkuveita Húsavíkur lét bora á svæðinu. Vatnið er 98 gráðu heitt og hafa áhugamenn not- að það í svokölluðu Ostakeri. Guð- bjartur segir að fólk með ýmiskonar húðkvilla sem notað hafi Ostakerið telji að böðin hafi gert sér gott. Einnig verður notað 35 gráðu heitt vatn úr borholu á hafnarsvæðinu. „Við bíðum þess spenntir að geta opnað á miðju ári,“ segir Guðbjart- ur Ellert. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Platan steypt Þjónustuhús Sjóbaðanna á Húsavíkurhöfða er komið upp úr jörðinni. Framkvæmdir ganga vel. Sjóböðin verða opnuð um mitt næsta ár  Framkvæmdir ganga vel  Mikilvægt að byrja að vori Gangur Starfsmenn verktakans nýta gott veður til að steypa. Kostnaður » Áætlaður kostnaður við Sjó- böðin er 500-600 milljónir kr. og er verkefnið fullfjármagnað. » Stærstu eigendur Sjóbaða ehf. eru Norðursigling, fjárfest- ingarsjóðurinn Tækifæri og Baðfélag Mývatnssveitar. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sauðfjárbændur virðast hafa fækk- að ásettu fé í haust og einhverjir hafa alveg hætt búskap. Forysta Landssamtaka sauðfjárbænda hef- ur óskað eftir fundi með nýskip- uðum landbúnaðarráðherra til að ræða vanda sauðfjárbænda. Skýrslur um fjölda búfjár eru að berast búnaðarstofu Matvæla- stofnunar og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og niðurstöður liggja ekki fyrir fyrr en líður á næsta ár. Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri búnaðarstofu Mast, segir þó að tölur bendi til þess að fækkun hafi orðið. Hann áætlar að hún geti verið á bilinu 1,2 til 2,8%. Ekki hægt að búa Fram kom í blaðinu á dögunum að dæmi væru um að einstaka bændur hefðu slátrað öllu sínu fé. Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, seg- ir ástæður bænda fyrir að hætta mismunandi. Segist hún þekkja dæmi um bændur sem hættu; þeir hafi hætt burtséð frá vanda at- vinnugreinarinnar eða hugsanlegri lausn á honum. „Mín tilfinning er sú að staðan sé jafn alvarleg og áður. Ekkert hefur breyst,“ segir Oddný. Hún segir að eftir að sláturleyfishafar lækkuðu verð til bænda tvö ár í röð sé verðið orðið svo lágt að útilokað sé að búa við það. Það bitni verst á þeim bændum sem nýlega hafa staðið í framkvæmdum eða verið að kaupa sig inn í búskap. Hyggjast bregðast við Forysta bænda átti lengi í við- ræðum við Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur, fyrrverandi landbún- aðarráðherra, um aðgerðir til að aðstoða sauðfjárbændur í vanda greinarinnar en ríkisstjórnin féll áð- ur en þær höfðu verið leiddar til lykta. Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkis- stjórnar er boðað að eitt af fyrstu verkefnum hennar verði að bregð- ast við vanda sauðfjárbænda til skemmri og lengri tíma. Ekki kem- ur fram hvernig það skuli gert. Oddný Steina Valsdóttir segir að óskað hafi verið eftir fundi með Kristjáni Þór Júlíussyni, nýjum landbúnaðarráðherra. Bændur fækkuðu fé um 1-3% í haust  Forysta bænda hefur óskað eftir við- ræðum við nýjan landbúnaðarráðherra Morgunblaðið/Ómar Framtíðin Yngsta kynslóðin tekur þátt í réttarstörfum í Hrunarétt. Sauðfjárbændur hafa notað tímann frá stjórnarslitum til að búa sig undir viðræður við ríkið. Aukaaðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda lagði þær línur að án tafar verði komið til móts við rekstr- artjón bænda vegna lágs afurðaverðs og að 650 millj- ónum kr. verði varið til þess. Oddný Steina Valsdóttir segir að betra hefði verið að grípa fyrr inn í til að koma í veg fyrir tjón bænda. Úr því það hafi ekki tekist sé lagt til að gripið verði til aðgerða sem ekki séu ósvip- aðar aðgerðum sem þekkist við svipaðar aðstæður í öðrum löndum. Einnig var ályktað um mikilvægi þess að koma á eðlilegri en tímabundinni sveiflujöfnun gagnvart markaði til að taka heildstætt á vandanum. Stuðningur vegna rekstrartjóns TILLÖGUR LANDSSAMTAKA SAUÐFJÁRBÆNDA Oddný Steina Valsdóttir Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Í gær lét ég taka úr mér tönn til stofnfrumuræktunar.“ Þetta ritar Tryggvi Hjalta- son, sem starfar sem „senior stra- tegist“ hjá tölvu- leikjafyrirtækinu CCP, á facebook- síðu sína hinn 30. nóvember síðast- liðinn. Tryggvi hefur lokið BSc- gráðu í Intelli- gence and Secur- ity Studies og meistaragráðu í fjármálum fyrir- tækja, grunnnámi í hagfræði auk þess sem hann hefur lokið liðsfor- ingjaþjálfun hjá Bandaríkjaher. Tryggvi segir jafnframt í face- bookfærslunni og í samtali við Morg- unblaðið að svo virðist sem þetta hafi verið tímamótaaðgerð í íslensku heil- brigðiskerfi. „Ég er búinn að hafa mjög mikinn áhuga á stofnfrumurannsóknum undanfarin tíu ár og nú þegar ég þurfti að láta fjarlægja endajaxl hafði ég samband við National Dental Pulp Laboratory (NDPL), sem er rann- sóknar- og geymslustöð í Bandaríkj- unum sem sérhæfir sig í varðveislu á stofnfrumum úr tönnum. Þeir sendu mér sérstakt sett til pökkunar, send- ingar og varðveislu á tönninni með nákvæmum leiðbeiningum sem tann- læknirinn fór eftir,“ segir Tryggvi. Besta leiðin til að ná stofnfrumum úr tönnum er úr barnatönnum sem hafa ekki losnað og endajöxlum. Jaxlinn var hraðsendur með Fed-Ex til NDPL og var kominn þangað 27 tímum síðar. Tryggvi kveðst nú þeg- ar hafa fengið svar frá þeim um að tönnin hafi varðveist vel og stofn- frumurnar sem fylgdu með tannkvik- unni séu góðar og hafi varðveist vel á leiðinni. Lækningar framtíðarinnar Tryggvi segir jafnframt á face- booksíðu sinni að stofnfrumurann- sóknir séu á gríðarlega spennandi stigi og á hverju ári vaxi getan til að nota stofnfrumur til uppbyggilegrar heilbrigðisþjónustu. Úr stofnfrumum sé hægt að rækta upp aðrar frumur sem gætu þá hjálp- að við að ná nákvæmri lækningu eða lífsgæðabreytingu í gegnum aðstoð sem er líffræðilega sérsniðin að sjúk- lingnum. Stofnfrumur séu í dag t.d. notaðar til að meðhöndla mænuskaða, sykur- sýki I, Parkinson-veiki, Alzheimer- veiki, hjarta- og æðasjúkdóma, brunasár og krabbamein svo eitt- hvað sé nefnt. „Ástæðan fyrir því að ég ákvað að ráðast í þessa aðgerð er að ég vil tryggja góðar stofnfrumur úr mér sem framtíðarlífsgæðatryggingu. Ég er í toppformi núna og var akkúrat með endajaxl með sterkar rætur og ríkulega tannkviku sem hentaði vel en upp úr henni eru stofnfrumurnar ræktaðar.“ Sendi tönn til Bandaríkjanna  Tryggvi Hjaltason lætur varðveita stofnfrumur úr sér  Vonast með því til að hægt verði að lækna hugsanlega framtíðarsjúkdóma eða auka eigin lífsgæði Tryggvi Hjaltason Tryggvi og tannlæknirinn hans, Anna Þóra Alfreðsdóttir, sem dró úr honum endajaxlinn, segj- ast ekki vita til þess að tönn hafi áður verið dregin úr ein- staklingi hér á landi með ósk um hún verði nýtt síðar til þess að varðveita stofnfrumur úr við- komandi. Anna Þóra kvaðst aldrei áður hafa fengið samskonar beiðni, og er þá einkum átt við frá- ganginn og sendinguna á enda- jaxlinum eftir að hann var fjar- lægður úr einstaklingi. „Þetta er vissulega mjög áhugavert og ég vil kynna mér þetta enn betur,“ segir Anna Þóra, enn fremur í samtali við Morgunblaðið. „Mjög áhugavert“ TANNDRÁTTUR TIL AÐ NÁ STOFNFRUMUM NÝLUNDA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.