Morgunblaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2017
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Frystitogarinn Þerney RE 1 hélt
frá Reykjavík fyrir helgina áleiðis
til nýrrar heimahafnar í Suður-
Afríku. Reyndar fékk skipið nafnið
Therney áður en lagt var af stað, en
ekki er vitað hvort það er til fram-
búðar. HB Grandi seldi skipið til
fyrirtækisins Sea Harvest
Corporation í sumar og var sölu-
verðið 13,5 milljónir dollara eða sem
nemur um 1,4 milljörðum króna og
er það að fullu greitt.
Þerney var smíðuð 1992 í Noregi
og hefur verið gerð út af HB
Granda frá því hún kom til landsins
1993. Aflinn hefur verið flakaður og
frystur um borð.
HB Grandi samdi síðasta vor við
spænsku skipasmíðastöðina
Astilleros Armon Gijon um smíði á
frystitogara og var samnings-
upphæðin nærri fimm milljörðum
króna. Togarinn er hannaður af
Rolls Royce í Noregi og er 81 metra
langur, 17 metra breiður og hefur
lestarrými fyrir um 1.000 tonn af
frystum afurðum á brettum. Af-
henda á skipið á árinu 2019.
Tekið á móti Viðey fyrir jól
Smíði og frágangi á ísfisktog-
aranum Viðey er lokið og er reiknað
með að skipið haldi heim á leið á
miðviku- eða fimmtudag og að mót-
tökuathöfn verði í Reykjavík 22.
desember. Viðey er þriðja nýsmíðin
sem HB Grandi fær frá Celiktrans-
skipasmíðastöðinni í Istanbúl í
Tyrklandi á árinu.
Á Akranesi er verið að ljúka
niðursetningu á búnaði í Akurey og
er vonast til skipið fari í 1-2 veiði-
ferðir fyrir jól. Engey kom til lands-
ins frá Tyrklandi í lok janúar og fór
til veiða í byrjun ágúst. aij@mbl.is
Therney farin til S-Afríku
Morgunblaðið/sisi
Breyting Þornið þurfti að víkja úr nafni Þerneyjar áður en lagt var af stað
til Suður-Afríku. HB Grandi hafði gert skipið út í tæpan aldarfjórðung.
Viðey frá Tyrk-
landi í vikunni
Akurey til veiða
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Ofhleðsla báta er mjög alvarlegt
mál sem virðist því miður vera allt of
algeng. RNSA hvetur fjölmiðla,
samfélagsmiðla og aðra til að hætta
því að upphefja háttsemi, sem þessa,
það er ofhleðslu báta, sem hetjudáð
og/eða afrek.“
Þetta segir Rannsóknarnefnd
samgönguslysa í skýrslu sem hún
hefur gefið út um atvik sem varð á
Breiðafirði fyrr á þessu ári. Þá mun-
aði minnstu að verulega ofhlaðinn
bátur sykki en um borð voru tveir
menn. Hleðsla umfram burðargetu
bátsins reyndist vera 4,5 tonn. Í orð-
unum hér að framan er nefndin
væntanlega að vísa til þess að alloft
birtast í fjölmiðlum myndir af drekk-
hlöðnum bátum að koma til hafnar.
Þann 15. febrúar 2017 var Hjördís
HU 16 á línuveiðum á Breiðafirði.
Veður: ANA 2 m/sek, ölduhæð 0,5
metrar. Hjördís er plastbátur, smíð-
aður á Akureyri 1987, 10,4 brúttó-
tonn. Útgerðarfyrirtæki er Klakinn
fishing ehf.
Tilkynning barst frá skipstjóra
Hjördísar til Vaktstöðvar siglinga
(VSS) klukkan 16:40 um að báturinn
væri kominn með bakborðshalla og
sjór væri farinn að flæða inn á þilfar-
ið.
Hentu út fiski og skáru á línuna
Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar
segir að björgunarskipið Björg frá
Rifi hafi verið kallað út ásamt björg-
unarsveit. Skipverjar ákváðu að
létta bátinn með því að kasta fiski
fyrir borð og þannig náðu þeir að
rétta bátinn. Þeir skáru á línuna og
héldu áleiðis til hafnar og létu VSS
vita að ekki væri þörf á frekari að-
stoð þar sem fleiri bátar væru á
svæðinu.
Eftir nokkra siglingu áleiðis til
hafnar kom björgunarskipið Björg á
staðinn og sigldi það með Hjördísi
um tíma. Skömmu síðar (20 -30 mín)
fór báturinn aftur að halla í bak-
borða og þyngjast að aftan. Björg-
unarsveitarmenn ákváðu þá að taka
áhöfnina frá borði og létta þannig
Hjördísi. Björgunarskipið Björg tók
síðan bátinn í tog til hafnar á Rifi og
voru skipin komin þangað um kl.
19:45.
Í skýrslu RNSA kom fram:
Samkvæmt tölum um löndun fyrir
bátinn hjá Fiskistofu 15. febrúar
2017 reyndust 8.704 kíló af afla vera
um borð. Samkvæmt gögnum um
bátinn er áætlað að um 5.900 kg
væru í lest og um 2.800 kg á þilfari.
Annar þungi um borð, svo sem línu-
ballar, kör, olía, áhöfn og vistir
reyndust vera 1.810 kg. „Samkvæmt
þessu er umfram þungi um borð um
4.550 kg,“ segir í skýrslunni. Inni í
þessum tölum er ekki sjór á dekki.
Nefndarálit: „RNSA telur að þó
ekki hafi farið illa í þessu tilviki hafi
verið fullt tilefni til þess að rannsaka
þennan atburð sem „sjóatvik“ eins
og þau eru skilgreind í lögum um
rannsókn samgönguslysa. Háttsem-
in stofnaði í hættu öryggi skipsins og
áhafnar. Nefndin hvetur skipstjórn-
endur eindregið til þess að kynna sér
burðargetu og stöðugleika báta
sinna, virða það og tryggja öryggi
skipa og áhafnar sinnar.“
Nefndin ítrekar að hver bátur hafi
ákveðna hámarkshleðslu sem ekki
undir neinum kringumstæðum eigi
að fara yfir. Ennfremur að miklu
skipti hvernig afla og veiðarfærum
er komið fyrir í bátnum.
Taldi burðargetu vera 10 tonn
Fram kemur í skýrslunni að skip-
stjóri taldi að burðargeta bátsins
væri 10 tonn og í lagi við þessar að-
stæður. Hann kvaðst ekki hafa
kynnt sér stöðugleika hans með
svona hleðslutilvik. Hann taldi ekki
að umframþungi hefði verið um
borð.
Þá kom fram óánægja hjá skip-
stjóra með að björgunaraðilar hefðu
sent fjölmiðlum myndir og villandi
fréttir strax af vettvangi áður en að-
standendur skipverja hefðu verið
látnir vita.
Ofhleðsla báta er ekki hetjudáð
Litlu munaði að 10 tonna bátur sykki á Breiðafirði í byrjun árs Hleðsla umfram burðargetu bátsins
reyndist vera 4,5 tonn Rannsóknarnefndin hvetur fjölmiðla til að hætta að upphefja slíka háttsemi
Ljósmyndir/Frá RNSA
Hjördís HU Báturinn hallast verulega og áhöfn hafði skömmu áður verið færð um borð í björgunarskipið Björgu.
Um borð Afli og veiðarfæri á þilfari Hjördísar. Fiskur er í körum, poka og
laus á þilfari. 8,7 tonn af fiski voru um borð en áður var búið að henda fiski.
Rannsókn-
arnefnd
samgöngu-
slysa hefur
skráð 10 at-
vik á ár-
unum
2000-2017
sem eru
beinlínis
tengd við
ofhleðslu.
„Við erum svo eins og aðrir
að sjá í miðlum ótal mörg at-
vik þar sem „ekkert“ kemur
fyrir og látið er með eins og
afrek. Við höfum enga skrá yf-
ir þau,“ segir Jón Arilíus Ing-
ólfsson rannsóknarstjóri sjó-
slysa.
Atvikin eru þessi:
» 2000. Birta Dís VE 35 sekk-
ur í róðri vestur af Rit.
» 2000. Dodda NS 9 sekkur á
siglingu til lands úr róðri.
» 2001. Fjarki ÍS 444 sekkur í
róðri út af Kópnum.
» 2003. Hælsvík GK 350 fær
inn á sig sjó í róðri og leki
kemur að flotkassa.
» 2006. Fimman BA, þang-
skurðarprammi. Hvolfir á
Breiðafirði.
» 2009. Úlla SH 269, sjódæla
stíflast og sjór kemst í lest.
» 2014. Einir SU 7, leki að bát
og ofhleðsla.
» 2015. Jón Hákon BA 60
sekkur á Vestfjarðamiðum.
Banaslys varð.
» 2016. Vinur SH 34, of-
hleðsla? Rannsókn ekki lokið.
» 2017. Hjördís SH 16, of-
hleðsla og sjósöfnun.
Rannsóknarnefndin og Sam-
göngustofa hafa staðið fyrir
átaki gegn ofhleðslu meðal
sjómanna.
Tíu atvik á
þessari öld
RANNSÓKNARNEFNDIN
Jón Arilíus
Ingólfsson
Skíðagöngufélagið Ullur kynnir
starfsemi sína annað kvöld, mið-
vikudagskvöldið 6. desember,
klukkan 20 í sal Íþróttasambands
Íslands við Engjaveg í Laugardal.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að skíðaganga sé íþrótt sem sífellt
fleiri stundi. Þar segir einnig að
Ullur sé eina virka félag skíða-
göngufólks á höfuðborgarsvæðinu,
í félaginu séu nú yfir 400 félagar og
að það sé fjölmennasta aðildarfélag
Skíðasambands Íslands.
Stór þáttur í starfseminni er
námskeiðahald, þar sem fjöldi iðk-
enda hefur stigið sín fyrstu spor og
til stendur að efla það enn frekar.
Á kynningunni annað kvöld verð-
ur einnig boðið upp á kynningu á
búnaði og eru allir velkomnir.
Skíðagöngufélagið Ullur kynnir starfsemina