Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Page 2
Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Um áramót er til siðs aðgera upp atburði ársins.Við gerum það bæði í fjölmiðlum og hver og einn fyrir sig. Hvað lærði ég á árinu? er spurning sem lögð er fyrir ýmsa í Sunnudagsblaðinu um áramót. Það er fínt að velta því fyr- ir sér hvaða lær- dóm árið 2017 bar með sér og hvernig við getum nýtt hann inn í framtíð- ina. Uppgjör við það sem liðið er ætti alltaf að fela í sér leiðbein- ingar fyrir framtíðina. Annars er það gagnslaust. En uppgjör, einkum þau sem birtast í fjölmiðlum, snúast gjarn- an um hvað var mest og best og stærst á árinu. Hverjir sköruðu fram úr, hvaða manneskja var „best“ og hver náði „mestum“ árangri? Hver voru „stærstu“ við- skipti ársins og hvaða fyrirtæki náðu lengst? Hverjir gengu á hæstu tindana á árinu? Stundum gengur þessi mest- best-hæst-stærst-tilhneiging heldur langt. Það er gaman og gagnlegt að horfa yfir en við þurf- um ekki endilega að mæla okkur í öðum til að sjá hvort við höfum náð einhverjum árangri á árinu. Ef við þurfum að nota einhverja mælikvarða yfirhöfuð þá er sá besti líklega einmitt sá sem spurt er um í blaði dagsins; að spyrja okkur sjálf hvers við urðum vísari á árinu. Það er það sem mestu skiptir, alveg burtséð frá því hvort við klifum ein- hver fjöll eða náðum stórkost- legum árangri út á við á ein- hverjum sviðum þjóðlífsins. Í persónulegu yfirferðinni okkar yfir árið sem er að líða skulum við renna yfir í huganum hvaða fólk hreyfði við okkur á árinu, hvaða augnaráð okkur þótti vænt um, hvernig við komum fram við aðra á árinu og hvernig við getum bætt okkur á nýju ári. Á síðum Sunnudags- blaðsins á árinu 2017 hafa birst ótal viðtöl við fólk sem hefur frá einhverju að segja sem við getum lært af. Vonandi ber nýtt ár með sér nýja visku, aðrar lexíur og meira af örlátu fólki sem deilir reynslu, raunum og gleði með les- endum. Njótið áramótanna og megi nýtt ár færa ykkur gæfu. Morgunblaðið/RAX Horft til framtíðar ’Uppgjör við þaðsem liðið er ættialltaf að fela í sérleiðbeiningar fyrir framtíðina. Grampa Dave ræddi um ástríðu sína fyrir lífinu í sum- ar, en lést skömmu síðar. Höfundar eins vinsælasta lags ársins, B.O.B.A., rötuðu á forsíðuna í október. Ásthildur Sturludóttir deildi sögunni af því hvernig hún varð loks móðir. Tómas Guðbjartsson opnaði sig um plastbarkamálið í byrj- un desember. Konur deildu sögum sínum undir merkjum #metoo eða #églíka með lesendum. Arnmundur Ernst Backman ræddi um móðurmissinn og föðurhlutverkið. Norma Norðdahl hefur marga fjöruna sopið og hún gaf ötullega af sinni visku. Edda Björgvinsdóttir deildi með lesendum sögum af eigin seinheppni. Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.12. 2017 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Guðfinna Kristófersdóttir Já, að leika mér meira á næsta ári. SPURNING DAGSINS Strengir þú ára- mótaheit? Sveinn Jónsson Nei. Ég hef gert það en þau hafa alltaf hrunið. Morgunblaðið/Ásdís Linda Kristín Smáradóttir Já, það kemur fyrir. Núna ætla ég að vera dugleg að mæta í ræktina. Vignir Óðinsson Nei. Ég man ekki eftir að hafa gert það. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ómar Óskarsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.