Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.12. 2017
Kim Jong-un og Kim Yo-jong
eru alsystkini en móðir
þeirra var þriðja kona föður
þeirra, japanski dansarinn Ko
yong-hui. Hún lést árið 2004.
Kim Yo-jong er tölvunarfræð-
ingur að mennt.
Talið var að Kim Yo-jong
hefði gengið að eiga Choe
Song, son háttsetts manns í
Verkamannaflokknum, árið
2015 en þær fregnir
voru síðar bornar
til baka. Sama
ár á hún að hafa
verið þunguð en
yfirvöld í Pyong-
yang hafa ekki
staðfest fæð-
ingu barns-
ins.
Hún spratt á fætur og klapp-aði bróður sínum, hinummikla leiðtoga, lof í lófa
þegar hann hafði lokið máli sínu á
flokksþingi Verkamannaflokksins á
dögunum. Það eitt og sér sætti svo
sem ekki tíðindum, hermt er að afar
kært sé með þeim systkinum, en hitt
er merkilegra, að Kim Yo-jong sat
meðal helstu valdamanna flokksins á
þinginu. Það þykir renna stoðum
undir þær kenningar að Kim Jong-
un, leiðtogi Norður-Kóreu, sé alltaf
að þoka litlu systur sinni nær sér í
stigveldinu þar eystra. Sjónleikir af
þessu tagi eru algengir þar um slóð-
ir. Ekkert er sagt í svo mörgum orð-
um en fólki látið eftir að túlka skila-
boðin.
Kim Yo-jong er hálfgerð huldu-
kona í Norður-Kóreu og sést sára-
sjaldan opinberlega. Þess vegna eru
stjórnmálaskýrendur ekki í vafa um
að nærvera hennar á téðu þingi hafi
augljósa þýðingu. Ljósmynd af
henni á þinginu birtist í hinu ríkis-
rekna dagblaði Rodong Shinmun,
þannig að myndbirtingin var hvorki
slys né tilviljun. Af fimmtán framá-
mönnum í Verkamannaflokknum,
sem sjást fagna leiðtoga sínum á
myndinni, er Kim Yo-jong eina kon-
an. Henni á hægri hönd er Choe
Ryong-hae, varaformaður flokksins
og nánasti ráðgjafi Kim Jong-un.
Stutt er síðan Kim Jong-un inn-
limaði systur sína í miðstjórn Verka-
mannaflokksins. Það og vera hennar
á fyrsta farrými á flokksþinginu
þykir benda til þess að leiðtoginn sé
með hægðinni að leggja drög að kyn-
slóðaskiptum í innsta valdakjarna
flokksins og þar með að losa sig enn-
frekar frá nánustu ráðgjöfum föður
síns heitins, Kim Jong-il.
Treystir fáum betur
Hermt er að Kim Jong-un treysti
fáum betur en systur sinni og síð-
ustu vendingar ættu að vera olía á
eld kenninga þess efnis að leiðtoginn
sé haldinn ofsóknaræði.
Spjót (eða kjarnaoddar) hafa
sjaldan staðið jafn duglega á Norð-
ur-Kóreu og undanfarna mánuði og
mögulega vill Kim Jong-un hafa
systur sína sér við hlið í þeirri
rimmu. Hún hefur haft með áróð-
ursmál að gera í valdatíð hans og
þykir eiga heilmikið í ímynd bróður
síns. Er það henni til framdráttar?
kann einhver að spyrja en við skul-
um hafa það í huga að ímynd leiðtog-
ans er talsvert önnur heimafyrir en
út á við. Þar ku hann almennt vera
álitinn grandalaus maður og góðvilj-
aður, líkt og afi hans og forveri, Kim
Il-sung. Álitið er að systirin beri
ábyrgð á heimsóknum leiðtogans í
skemmtigarða, skóla og á heimili al-
þýðufólks. Að ekki sé talað um vin-
skap hans við bandarísku körfu-
boltakempuna Dennis Rodman.
Kim Yo-jong er sögð fjórum árum
yngri en bróðir hennar, fædd 1987.
Heimildum ber þó ekki alveg saman
um þetta, eins og með svo margt
annað í þessu óvenjulega ríki. Systk-
inin munu hafa setið saman á skóla-
bekk í Sviss frá 1996 til 2000 og
knýst þar órofa böndum.
Kim Yo-jong kom lengi vel ekki
fram opinberlega en mynd náðist af
henni á þingi Verkamannaflokksins
árið 2010. Ári síðar syrgði hún við
hlið bróður síns við fráfall föður
þeirra, án þess þó að vera nefnd á
nafn í fjölmiðlum. Hennar var raun-
ar ekki getið fyrr en árið 2014, þegar
mynd af systkinunum birtist í fjöl-
miðlum. Það haust hvarf Kim Jong-
un um tíma úr sviðsljósnu, að
sögn vegna veikinda, og sum-
ir halda því fram að á meðan
hafi Kim Yo-jong í raun
stýrt þjóðarskútunni. Það
hefur ekki fengist staðfest.
Þrátt fyrir þessa kærleika er
frændsemi engin trygging fyrir náð í
augum Kim Jong-un en hann mun
hafa látið taka frænda sinn og ráð-
gjafa, Jang Song-thaek, af lífi árið
2013, og er grunaður um aðild að
morðinu á hálfbróður sínum, Kim
Jong-nam, fyrr á þessu ári.
Það orð fer raunar af Kim Jong-
un að hann kinoki sér ekki við að
ryðja mönnum úr vegi standi þeir
ekki undir væntingum hans.
Þannig þykir hvarf Hwang
Pyong-so, hershöfðingja og næst-
æðsta yfirmanns hersins á eftir Kim
Jong-un sjálfum, í október sl. afar
dularfullt. Óstaðfestar fregnir
herma að hann hafi verið tekinn af
lífi vegna gruns um spillingu og að-
stoðarmaður hans, Kim Won-hong,
vistaður í þrælabúðum. Þá er orð-
rómur á kreiki þess efnis að Park In-
young, yfirmaður stofnunar sem
hefur með höndum eftirlit með
kjarnorkubúnaði ríkisins, hafi líka
verið líflátinn eftir að síðustu til-
raunir með kjarnorkuvopn töfðust
lítillega í september.
Og samt klappar systirin!
Ber er hver að
baki nema sér
systur eigi
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, er hverju
mannsbarni kunnur. Færri þekkja hins vegar syst-
ur hans, Kim Yo-jong, en huldukonan sú mjakar
sér nú hægt og rólega upp valdastigann eystra.
Faðirinn,
Kim Jong-il.
Gift móðir,
eða ekki?
Kim-systkinin slá á létta strengi með hermönnum í Norður-Kóreu. Jong-un þykir gott að hafa Yo-jong nálægt sér.
’
Ris Kim Yo-jong hefur ekki farið framhjá
stjórnvöldum í Washington en fyrr á þessu ári
settu Bandaríkin hana á svartan lista fyrir að hafa
troðið mannréttindi fótum.
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
ARGENTÍNA
BUENOS AIRES Lögreglumaðurinn fyrrverandi
Miguel Etchecolatz, sem dæmdur var fyrir glæpi gegn
mannkyninu fyrir fjörutíu árum, var látinn laus úr
fangelsi í vikunni af
heilsufarsástæðum
en hann er orðinn
88 ára gamall. Ekki
verður Etchecolatz
þó frjáls ferða sinna
en hann verður
framvegis í stofu-
fangelsi og gert að
bera rafökklaband.
BRETLAND
LUNDÚNIR Spretthlauparinn Sophie Kamlish, sem
keppir á gervifæti í fl okki fatlaðra, vill alls ekki vera þekkt
sem Blaðljúfan (e. Blade Babe), eins og sumir eru farnir að
kalla hana. Kamlish vill ekki vera vanþakklát en í fyrsta lagi
þykir henni viðurnefnið ekki fallegt og í annan stað bendir
hún á, að karlkyns hlauparar, sem notast við gervifót eða
-fætur, hafi aldrei þurft að sætta sig við að vera kallaðir
Blaðljúfur. Þetta hafi sumsé með kyn að gera.
FRAKKLAND
LILLE Loïc Chiroussot de Bigault de
Cazanove greifi hefur höfðað mál á hendur
fyrirtækinu sem framleiðir Charles de Caza-
nove-kampavínið sem forfeður hans settu á
markað. Ástæðan er ekki bragðið af víninu
heldur sú staðreynd að fyrirtækið notar
fyrrverandi erótískt módel, Clara Morgane, til
að auglýsa nýjasta árganginn. „Forfeður mínir
myndu snúa sér við í gröfi nni!“
SVÍÞJÓÐ
GAVLE Það er íþrótt víðar en á Íslandi
að brenna jólageitur. Þannig hefur jólageitin
í Gavle verið brennd til kaldra kola nær
árlega frá því henni var fyrst komið upp
árið 1966. Í fyrra dugði hún ekki einu sinni í
sólarhring. Nú hafa þau undur og stórmerki
hins vegar átt sér stað að geitin er á lífi og
við góða heilsu enda þótt það séu að koma
áramót. Að vonum ríkir almenn kátína í bænum með þessi óvæntu tíðindi.