Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Side 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Side 49
Í óviðjafnanlegum vellystingum Hægt er að ferðast um Indland á býsna ódýran hátt og kosta litlu til í fæði og gistingu, eins og ég hef reynt í tveimur af fyrri ferðum mín- um um landið. En það er líka hægt að ferðast um Indland í óviðjafn- anlegum lúxus og vellystingum. Það fékk ég að reyna á dögunum á flakki um norðurhluta landsins ásamt hópi vina víða að. Við komum við í sex borgum og einum sveitarkastala og gistum alls staðar á kunnum hótelum, sem nær öll teljast svokölluð „heritage hot- els“. Þau eru afar ólík og hvert með sínu sniði en byggja á ríkulegum hefðum, hvað þjónustu og aðbúnað varðar, auk þess sem sum vísa með markvissum hætti í sögu og menn- ingu hvers svæðis. Meðal annars var dvalið í tveim- ur þekktustu hótelum Asíu, hinu virðulega Imperial í Nýju-Delí, þar sem konungbornir og opinberir gestir búa iðulega (þar var mér eitt sinn er ég var fararstjóri á Indlandi komið fyrir í svítu er var svo stór að ég átti í vandræðum með að finna baðherbergið) og í Mumbai á hinu einstaka Taj Mahal Palace, sem hefur verið kallað frægasta hótel jarðar. Ekki bara vegna mikilvægis hótelsins í sjálfstæðissögu Indlands (það er næstmest ljósmyndaða minnismerki landsins á eftir Taj Mahal), heldur líka vegna þess að árið 2008 var mannskæð hryðju- verkaárás gerð á hótelið. Í hinni helgu borg Varanasi bjuggum við á Ganges View Hotel, einföldu hóteli við fljótið helga, þar sem hvert herbergi var skreytt með ólíkum hætti; í Jaipur í Narain Ni- was Palace-hótelinu, sem byggði svo ríkulega á gömlum hefðum Raj- hasthan að þar var ekki nettenging; og í Ahmedabad í House of MG, virðulegum fyrrum heimkynnum mikillar efnafjölskyldu í borginni miðri þar sem sérstök áhersla er lögð á að kynna handverk Gujarat- ríkis fyrir gestum. Hvergi var glæsileikinn og dekr- ið þó ríkulegra en í Devigarh, 250 ára gamalli höll úti í sveit í Rajast- han sem var breytt í lúxushótel fyr- ir átta árum og ekkert til sparað. Andstæðurnar eru miklar, milli bænda- kvennanna sem vinna baki brotnu á skik- um sínum í Rajasthan og lúxushótelsins Devigarh í 250 ára gamalli höll á hæðinni. Morgunblaðið/Einar Falur Hótelgestir láta fara vel um sig í heitum potti Devigarh-hótelsins í Rajasthan. Ferðamenn taka mynd fyrir framan eldri hluta glæsihótelsins Taj Mahal Palace í Mumbai, þess þekktasta í landinu. 31.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Látlaust sjónarspil Sjálfur hafði ég ferðast víða um þennan hluta landsins, og verið þar fararstjóri, en í öllum borgunum nutum við leiðsagnar fyrsta flokks fararstjóra sem fræddu okkur ótæpilega, þar sem við skoðuðum ólíkustu staði; jafnt hof hindúa, jain- ista og múslima, sem hallir mógúla og maharaja, og einstök söfn um ólíka textílgerð og smámálverk eða heimili Mahatmas Gandhi. Við ferðuðumst með lest að skoða fegurstu byggingu jarðar, hið óvið- jafnanlega grafhýsi Taj Mahal í Agra, flugum nokkrar leiðir og fór- um aðrar í dagslöngum rútuferðum, og allsstaðar var eitthvað áhugavert að sjá og upplifa. Að aka um borgir sem þjóðvegi landsins er látlaust og litríkt sjónarspili sem slær flesta æfða sjónleiki og kvikmyndir út. Í Rajasthan-ríki voru ævintýra- legir markaðir kannaðir, skoðaðar skrautlegar hallir og dvalið í einni út í sveit, og í Ahmedabad í Gujarat kynntumst við listilegu handverki og nutum þess að hverfa inn í heilandi öngstræti gömlu borgarinnar. Ferðinni lauk rétt undir jól í fjöl- mennustu borg landsins, Mumbai, en hvergi eru andstæðurnar í land- inu meiri en einmitt þar; gríðarlegt ríkidæmi, glysheimur Bollywood, og svo stærsta fátækrahverfi Asíu. En landið kvöddum við þar með fjölskyldufólki af ólíkum trúarbak- grunni í þúsundatali sem hélt undir sólarlag á föstudegi eftir göngustíg að helgu musteri á skeri úti í Ind- landshafi. Bæklaðir betluðu, ung- menni hlógu og samkenndin ríkti þar sem heimamenn vildu gjarnan fá af sér myndir með erlendu gest- unum í þessari heillandi mannlífskös í þessu einstaka ævintýralandi. Morgunstund á umfangsmiklum grænmetismarkaðinum í Ahmedabad. Í öllum borgum Indlands má finna litríka og áhugaverða markaði. Í götu einni í hjarta Ahmedabad í Gujarat-ríki keppast menn við að undirbúa hina árlegu flugdrekahátíð í janúar með því að lita nælonþræði bleika. Litríkur þrepabrunnur skammt fyrir ofan Jaipur í Rajasthan. Á liðnum öldum voru slíkir brunnar reistir víða um norðanvert Indland til að safna í vatni. Algengur lukkugripur, oftast nær að- eins úr chilipipar og límónu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.