Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Qupperneq 57
31.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Klassískir tónleikar ársins
Klassískir tónlistarrýnar Morgunblaðsins, Ríkarður Örn Pálsson og Ingvar Bates, fjölluðu á árinu um allrahanda tónleika,
sinfóníuhljómsveita, kammersveita, kóra og einleikara. Þetta eru þeir tónleikar sem þeir telja standa uppúr á árinu sem er að líða.
Kórtónleikar í Kristskirkju í Landakoti
bbbbb
Ægisifjarkórinn flutti undir stjórn
Hreiðars Inga Þorsteinssonar Krysostó-
musarmessu Op. 31 eftir Rakhmaninoff.
23. nóvember 2017.
„Ótvíræð síðrómantísk-nýklassísk kirkju-
tónlistarperla í einstæðri túlkun! Og hvað
söngræna meðferð varðar reyndar með hætti
sem mér vitandi hefur aldrei áður barið hér-
lendar hlustir úr íslenzkum börkum. Helzt
minnti fimbulbreið tjáningin, allt frá hvíslandi
angurværð í sigri fagnandi ægivímu, annað veif-
ið á ýmist búlgarska þjóðlagakórmennt, tíb-
ezkan munkasöng eða eldforn sauðaköll svo
eitthvað sé nefnt. En ávallt af seiðandi einlægni
– og nærri óaðfinnanlegri inntónun.
Hér situr maður uppnuminn við lyklaborðið, nánast án viðmiðunar í þessari fákunnu grein frekar en flestir annarra
nærstaddra umrætt fimmtudagskvöld ef að líkum lætur. En þótt þaulkunnugustu þekkjendur rússneskrar kirkjutónlistar
kynnu að vita um betri dæmi er mér annað um megn en að gefa fullt hús stjarna fyrir jafn ógleymanlega upplifun.“ (RÖP)
Ódáinssöngur úr austurvegi
Opnunartónleikar Reykja-
vík Midsummer Music,
Norðurljós í Hörpu
bbbbb
Verk eftir eftir Arvo Pärt
og W.A. Mozart fyrir ein-
leiksfiðlu, tvö píanó og pí-
anókvartett. Flytjendur:
Lars Anders Tomter á
víólu, Istavan Várdai á selló,
Rosanne Philippens og Sa-
yaka Shoji á fiðlu, Julien Quentin og Víkingur Heiðar
Ólafsson á píanó. 22. júní 2017.
„Þau náðu öll með hreint makalaust fáheyrðri yfirburðaspila-
mennsku að beisla lífsháskann en um leið gáskann og léttleikann
sem einkennir oft Mozart, er aftur myndaði skarpt mótvægi og
spennu við dulúð Pärts tónleikana á enda. Það mátti ráða af við-
brögðum tónleikagesta, sem fylltu Norðurljósin, að þessir fjórir
virtuósar mættu þeirra vegna bæði taka sviðið og völdin, spila
fleiri kvartetta, þess vegna Brahms, Shosty eða eitthvað, hvað
sem prógrammskrá liði.
… allt undir fimm stjörnum væri galið eftir allar traktering-
arnar. Maður skilur nú þýðingu vorskipanna fyrr á tímum, að
þessu sinni innlit heimsklassa tónlistarmanna sem léku í senn
fágað og eðlilega líkt og væru heima í eldhúsi, og hleyptu (loks)
sólargeisla inn í okkar séríslenska sumar.“ (IB)
Sumar, loksins
Tónleikar Kammersveitar Vínar og Berl-
ínar í Eldborgarsal Hörpu bbbbb
Tvær sinfóníur og Sellókonsert í C-dúr
eftir Joseph Haydn, og Concertone KV
190 eftir Mozart. Konsertmeistari: Rai-
ner Honeck. 19. maí 2017.
„Strax kvað við sérstæðan tón og fágaðan,
svo stórbrotinn að jaðraði við fullkomnun, að
maður saknaði helst lífsháskans í Eldsinfóníu
Haydns. Hvert hljóðfæri fékk svo skýra eigin
rödd að það var engu líkara en æðisgenginn
kvintett á sterum stæði á sviðinu. Og svona
band þarf heldur engan stjórnanda, aðeins
konsertmeistara sem hljóðfæraleikararnir
skotruðu augum til og önduðu í takt með. Stóri Eldborgarsalurinn hélt guð-
dómlega vel utan um strengina, ekki síst um selló og bassa. Þá hljómuðu hornin
dásamlega – ef ekki erlendis eins og einhver orðaði það …
Fimm stjörnur eru þrátt fyrir allt af afstæðri stærð og ávallt spurning um við-
mið, en sannast sagna koma þessir fiðlarar og blásarar úr öðru sólkerfi en við á
norðurhjara þrífumst í allajafna.“ (IB)
Þegar hefðin mætti í bæinn
Kammertónleikar í Norðurljósum
Hörpu á tónlistarhátíðinni Al-
gleymi bbbbb
István Várdai á selló og fiðuleik-
ararnir Rosanne Philippens og Sa-
yaka Shoji léku sónöta fyrir fiðlu og
selló eftir Ravel, sónötu fyrir ein-
leiksselló eftir Kodály og Exstasis
eftir Hosokawa. 24. júní 2017.
„Magnaður samleikur Philippens og
Várdai með framstigi í bítinu var æðru-
laus án þess að vera flausturslegur eða
beinlínis hrár og þau dvöldu auk þess vel
í tækninni þrátt fyrir röska eftirfylgni … Tónverk Hosokawa í einum
kafla var enn oddhvassara og þéttara. Tilfinningin var líkt og Shoji væri
andsetin undir flutningnum. Hún stóð föst fyrir og gaf jöfnum höndum
í, með stígandi hröðun í vel útfærðum hlaupum, hárnákvæmum svo
undir miðju verki var maður farinn að halda sér í stólbarminn. Mann-
raun (lífsháski) kæmist næst því að lýsa þessum fítonskrafti og anda,
skarpa tón og ástríðum. Það var mikið bravóað, flautað og veinað í
salnum, sem var sárlega gisdreifður af áheyrendum.
Þetta voru hnitmiðaðir tónleikar, snarpir innan knapps tímaramma
með sérvöldum tónverkum sem hvert af öðru mynduðu saman sérlega
áhrifaríka upplifun. Rýnir var næsta uppgefinn við næstu áningu á jarð-
hæð Hörpu, þar sem Buffalo Soldier meistara Bob Marley hljómaði um
barinn og náði að vinda ofan af karltetrinu. (IB)
Hristan, ekki hrærðan
Óperan Tosca eftir Puccini í Eldborg-
arsal Hörpu bbbbb
Íslenska óperan. Hljómsveitarstjóri:
Bjarni Frímann Bjarnason. Leikstjóri:
Greg Eldridge. Meðal söngvara: Claire
Rutter, Kristján Jóhannsson, Ólafur
Kjartan Sigurðarson, Ágúst Ólafsson
og Bergþór Pálsson. Kór og hljómsveit
Íslensku óperunnar og Drengjakór
Reykjavíkur. 21. október 2017.
„Stærsta lán uppfærslunnar nú var jarð-
tenging Claire Rutter og Ólafs Kjartans Sig-
urðarsonar við verkið sem náðu í samein-
ingu að byggja upp yfirgengilega spennu …
Dramatískari og átakanlegri söguþráður
finnst vart milli tveggja einstaklinga líkt og í
tilfelli Toscu og Scarpia; holdleg girnd þrung-
in hégóma, yfirráðum og völdum. …
Tónlist Puccinis er engu lík. Bjarni Frí-
mann Bjarnason hélt firnasterku gripi á
verkinu frá upphafi til enda sem var ekki lítið
afrek þar sem hraðatempó var með hægara
móti en um leið varð sýningin yfirgengilega
áhrifamikil og sönn. … Bjarni Frímann
Bjarnason var stjarna kvöldsins!“(IB)
Með mennskuna að vopni
Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands, Eldborg í
Hörpu bbbbb
Námur eftir Þórð Magn-
ússon, Hornkonsert eftir
Glière og Sinfónískir dansar
eftir Rakhmanínov. Einleik-
ari: Radek Baborák Stjórn-
andi: Yan Pascal Tortelier. 9.
nóvember 2017.
„Radek Baborák sýndi öll blæbrigði hornsins og meira til.
Hann lyfti slöppu tónverki upp í hæstu hæðir svo úr varð hin
mesta gleði. Venjulega stendur hljóðfærið í veginum fyrir þeim
sem reynir að temja dýrið og ná á því valdi. Ekki hjá Radek; hann
fer einhvern veginn fram hjá hljóðfærinu um leið og hann fer inn í
það, út yfir efnisheiminn – hann og alheimurinn eru eitt og hið
sama. … Tónleikunum lauk með … Sinfónískum dönsum Rak-
manínovs. Þetta er stóreflis hljómkviða með smitandi frösum og
stefjum, en nú tók hljómsveitin upp þá iðju að spila svo langt ofar
getu með svo miklum glans að maður hváði öðru sinni; Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á þetta einstaka sinnum til, að brjóta lög-
málin, þyngdaraflið, og þenja sig út yfir efnisheiminn.“ (IB)
Hornséní í
höfuðstaðnum
Kammertón-
leikar Kammer-
músíkklúbbsins,
Norðurljósum í
Hörpu bbbbm
Strengjakvar-
tettar eftir Glass,
Sjostakovitsj og
Beethoven.
Strokkvartettinn
Siggi (Una Svein-
bjarnardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðla,
Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla og Sigurður
Bjarki Gunnarsson selló). 19. nóvember 2017.
„Íbyggið sítrekunarhjakk Glass rann ljúflega niður
…var flutningurinn sannfærandi einlægur, og jafnvel hug-
vekjandi á köflum. Hinn aðeins 13 mín. langi 7. Strengja-
kvartett eftir Dmitri Sjostakovitsj frá 1960 sló mann hins
vegar sem hugsanlega eitt hnitmiðasta ef ekki frumlegasta
dæmi formsins eftir 1950… mótaði snilldartúlkun Sigga
hér hápunkt kvöldsins svo hvergi yrði í fingur fett, og varð
hún reyndar til að hugleiða hvort ekki væri löngu kominn
tími til að þetta vildarfereyki viðarkvoðunnar sendi frá sér
hljómdisk til varanlegrar sönnunar um erindi sitt við stór-
meistara tóngreinarinnar.“ (RÖP)
Snilldartúlkun
Kammertónleikar í Salnum bbbbm
Kvartettar eftir Mozart og Schumann.
Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanó, Laufey
Jensdóttir fiðla, Þórarinn Már Baldursson
víóla og Júlía Mogensen selló. 21.janúar 2017.
„Kom sannast sagna á óvart hvað splunkunýr hóp-
urinn fór létt og sannfærandi með þennan gegnsæja
en samt vandmeðfarna efnivið … Viðkvæmt styrk-
vægið var ávallt í heiðri haft og samtaka snerpan
hreif alla nærstadda upp úr skónum, að ógleymdu
gómþýtt kristalsskýru píanóflúri Guðrúnar…
Ánægjan af innlifaðri túlkun kvartetthópsins var í
einu orði sagt upptendrandi … (RÖP)
Fágaðir fjörkálfar