Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 1

Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. J A N Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  10. tölublað  106. árgangur  GILITRUTT SNÝR AFTUR Í BARNAÓPERU DRAUMAR ERU ÞEMA ÁRSINS NÆSTA SKREF UPPBYGGINGAR LANDSLIÐSINS FERSKIR VINDAR Í GARÐI 41 EM 2018 16 SÍÐURMYRKIR MÚSÍKDAGAR 12 Heilsutjútt Tilboðsdagar 9.–21. janúar í öllum verslunum Lyfju Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stefnt er að því að flytja bráðadeild og rannsóknir úr Landspítalanum í Fossvogi yfir í meðferðarkjarna nýs Landspítala árið 2023. Áformað er að hefja framkvæmdir í sumar. Benedikt Olgeirsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Land- spítalans, segir megnið af starfsemi í Fossvogi flytjast burt árið 2023. „Við hefjum byggingu meðferðar- kjarnans í ár og erum að hanna rann- sóknarhúsið. Vonandi byrjum við á því á næsta ári. Stefnt er að því að klára þessar tvær stóru byggingar árið 2023. Annars vegar á að sam- eina bráðastarfsemi spítalans í með- ferðarkjarnanum. Hins vegar á að sameina rannsóknarstarfsemi í rannsóknarhúsinu. Hún er nú mjög dreifð,“ segir Benedikt. Hann segir að samhliða verði sam- bærileg starfsemi við Hringbraut, til dæmis skurðstofur og bráðastarf- semi, flutt í meðferðarkjarnann. Þá taki við endurnýjun á gamla hús- næðinu til að taka við starfsemi sem eftir verður í Fossvogi. „Þessi flétta tekur eitt til tvö ár,“ segir hann. Núverandi húsnæði verði t.d. nýtt undir stoðstarfsemi og starfsemi göngudeilda. Engar ákvarðanir hafi verið teknar um framtíðarnotkun gamla Borgarspítalans. Mat á því sé verkefni næstu tveggja ára. Spítalinn úr Fossvogi  Bráðadeild og rannsóknir flytjast í nýjar byggingar við Hringbraut árið 2023  Önnur starfsemi í Fossvogi flutt 2024-25  Óvíst hvað tekur við í Fossvogi MFærri munu … »6 Bílastæðin áskorun » Kristinn Jón Eysteinsson, skipulagsfræðingur hjá Reykja- víkurborg, segir samgöngur og framboð bílastæða vera mikla áskorun í nýjum Landspítala. » Flest bendi til að draga þurfi mikið úr bílferðum á svæðið. Magdalena Sigurðardóttir var búin að sofa í þrjár nætur í ruslageymslu með rottu og ungum hennar þegar hún áttaði sig á því að botninum var náð. Hún hafði verið í virkri vímu- efna- og áfengisneyslu í fjórtán ár og búin að missa allt frá sér. Hún komst í meðferð í Hlaðgerðarkoti þar sem hún dvaldi í rúmt hálft ár og hefur verið edrú upp frá því, síðan eru liðin fimm ár. Í dag starfar hún sem fíkni- ráðgjafi og hjálpar konum sem eru í sömu stöðu og hún var í. Magdalena segir ekki alltaf auð- velt að bjarga fólki úr þessum að- stæðum og ekki allir tilbúnir í það. „Þeir sem ég hef náð mestum árangri með eru þeir sem eru nógu mikið búnir á því og eiga ekkert eft- ir, eins og ég var sjálf.“ »11 Svaf í rusla- geymslu Morgunblaðið/Hanna Ráðgjafi Magdalena Sigurðardóttir segir trúna hafa hjálpað sér.  Lífið á götunni orð- ið harðara og hraðara Björgunarsveitir þurftu að sinna á þriðja tug út- kalla á höfuðborgarsvæðinu og suður með sjó fyrri hluta kvölds í gær, þegar kröftug lægð með miklu hvassviðri gekk yfir. Það var samkvæmt veðurspám og því hafði ráðrúm gefist til ýmissa fyrirbyggjandi ráðstafana. Staðin var vakt í að- gerðastjórn lögreglu, slökkviliðs og björgunar- sveita en aðgerðahópar fóru í ýmis verkefni og til aðstoðar svo sem þegar lausir munir fuku, þakplötur losnuðu og svo framvegis. Þessi mynd var tekin þegar festa þurfti vinnulyftu sem hafði losnað við Hamraborg í Kópavogi. Hvassviðrinu fylgdi ausandi rigning sem vara mun fram á daginn í dag, svo að snjó á láglendi tekur væntanlega upp að mestu leyti. Búast má við skaplegu veðri á Faxaflóasvæðinu í dag en hvasst verður af suðri á Snæfellsnesi eftir há- degi. Á Suðausturlandi rignir í dag svo ástæða þótti til þess að vara við vatnavöxtum þar, sem eru raunar algengir á Vatnajökulssvæðinu. Fyr- ir norðan verður í dag skaplegt veður með suð- lægum áttum – enda þótt enginn gangi að því gruflandi að á þessum tíma árs er allra veðra von á landinu bláa. Kröftug lægð og hvassviðri en allt fór vel Morgunblaðið/Kristinn Magnússon  Alls hafa yfir fimm þúsund konur á Íslandi ritað undir yfirlýsingar í tengslum við #metoo-byltinguna þar sem krafist er aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi, áreitni og mis- munun. 462 konur í íþróttum sendu í gær frá sér samskonar yfirlýsingu og tólf aðrir hópar kvenna hafa gert. Meðfylgjandi voru 62 frásagn- ir af kynferðislegri áreitni, kyn- ferðislegu ofbeldi og mismunun. Þessar frásagnir eru alls orðnar um 600 talsins. Fyrsta yfirlýsingin birt- ist frá konum í stjórnmálum í lok nóvember. »2 Yfir 5.000 konur hafa krafist aðgerða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.