Morgunblaðið - 12.01.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 12.01.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Niðurstaða greiningar Samtaka fyrirtækja í sjávar- útvegi á vigtun og endurvigtun á afla er að fyrirliggjandi gögn og úttektir staðfesti að framkvæmd og framfylgni við ákvæði laga séu almennt til fyrirmyndar. Engin rök standi til þess að ráðast í grundvallarbreytingar á nú- gildandi framkvæmd. Staðhæfingar um kerfisbundið svindl í vigtun séu rangar og vísbendingar séu um að fáir aðilar standi að baki meginhluta frávika sem finnast, segir í fréttabréfi SFS. Bent er á að þegar þrjú af þeim fyrirtækjum sem voru ítrekað með verulegt frávik í mælingum séu tekin út úr heildinni sé meðaltalsfrávikið hverfandi. „Núverandi fyrirkomulag endurvigtunar hefur reynst vel og stuðlað að meiri gæðum og auknu verð- mæti sjávararfurða. Eftir að í land er komið er fiskiker vigtað á hafnarvog, ekið er með það inn í vinnslu, ísinn tekinn frá og aflinn vigtaður. Þessi síðari vigtun er kölluð endurvigtun og hún tryggir nákvæma vigtun og flokkun afla. Niðurstaðan úr henni dregst frá aflamarki viðkom- andi skips. Leyfi til endurvigtunar er gefið út af Fiski- stofu. Það eru löggiltir vigtarmenn sem sjá um hana og að færa til bókar rétt magn afla,“ segir í fréttabréfinu. Fullt gagnsæi til staðar Sumarið 2017 voru gerðar lagabreytingar er vörð- uðu framkvæmd, eftirlit og viðurlög vegna brota gegn ákvæðum laga og reglugerða um endurvigtun. Eftirlit var hert og viðurlög þyngd. Fiskistofa hefur nú heimild til að fylgjast með allri vigtun vigtunarleyfishafa í allt að sex vikur ef hann verður uppvís að verulegu fráviki á ís- hlutfalli í afla skips miðað við meðaltal í fyrri löndunum. Vigtunarleyfishafi ber allan kostnað af eftirliti þennan tíma. Með þeim breytingum sem gerðar voru á fram- kvæmd, eftirliti og viðurlögum gagnvart brotum við endurvigtun síðastliðið sumar telur SFS að réttar áherslur hafi verið settar við breytingar á reglum um endurvigtun. Þá sé ekki síður mikilvægt að niðurstöður vigtunar alls landaðs afla eru birtar opinberlega á heimasíðu Fiskistofu, þannig að fullt gagnsæi sé til stað- ar, segir í frétt Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Framkvæmd við endur- vigtun til fyrirmyndar  Ekki ástæða til að breyta kerfinu  Fáir að baki frávikum Vel ísaður fiskur Núverandi fyrirkomulag endur- vigtunar hefur stuðlað að auknu verðmæti, að mati SFS. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að sameining sjúkrahúsa í nýjum Landspítala við Hringbraut kalli á aukna notkun al- menningssamgangna. Flytja á megn- ið af starfsemi sjúkrahússins í Foss- vogi í nýjan Landspítala 2023. Kristinn Jón Eysteinsson, skipulagsfræðing- ur hjá Reykjavík- urborg, skrifaði meistararitgerð um áhrif nýs Landspítala (NLSH) á ferða- myndun og bíla- stæðamál. Rit- gerðin var lögð fram við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík árið 2013 til meistaraprófs í skipulagsfræði og samgöngum. Kristinn Jón skoðaði þar m.a. mögulega eftirspurn starfsfólks, nemenda og kennara eftir bílastæð- um. Þá miðað við áætlaðan heildar- fjölda allra ferðamáta sama hóps. Áætlunin tók mið af gildandi deili- skipulagi svæðisins frá 2013. Lækki um tugi prósenta „Minnka gæti þurft hlutdeild þeirra sem koma á einkabílum niður í 33-41%,“ skrifaði Kristinn Jón í rit- gerð sinni. Hann vísaði svo til skífu- rita (sjá hægri hluta grafs hér til hlið- ar) um nauðsynlega skiptingu á ferðavenjum fyrir nýjan Landspítala m.t.t. framboðs bílastæða. Hlutfall ferða á bíl var 33-37% eftir fyrsta áfanga en 37-41% eftir seinni áfanga. Tölurnar sýndu þau markmið „sem stefna þarf að í ferðavenjum fyrir NLSH eftir fyrri og síðari áfanga, með og án framboðs á bílastæðum utan lóðar Landspítalans. Til saman- burðar er hlutdeild ferða einkabílsins árið 2011 67% hjá Landspítalanum og 56% hjá Háskóla Íslands. Þess má geta að samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010-2030 er al- mennt markmið fyrir hlutdeild ferða á einkabíl 58%. Það má því ljóst vera að miðað við núverandi ferðavenjur er þetta mikil breyting og mikil áskorun fyrir stjórnendur og starfsfólk NLSH í samgöngumálum,“ skrifaði Kristinn Jón. Skv. minnisblaði spítalans haustið 2014 sýndu „ferðavenjukannanir í nóvember 2011 og mars 2014 … að nánast engin breyting varð á ferða- venjum á þessu tímabili“. Fyrirspurn um nýrri tölur var send til spítalans síðdegis í gær. Svar hafði ekki borist um kvöldmatarleytið. Spurður um fyrrgreint hlutfall bíl- ferða segir Kristinn Jón að aðeins um 40% allra þeirra sem starfa á svæðinu muni geta ferðast þangað með einka- bíl á daginn, að undanskildum nætur- vöktum. „Aðrir þurfa að koma til vinnu á þetta svæði með almennings- samgöngum, gangandi eða hjólandi,“ segir Kristinn Jón. Þessi áætlun er með tilliti til þarfar þeirra sem sækja þjónustu Landspít- alans fyrir bílastæði. Sjúklingum mun fjölga Hann bendir á að gert sé ráð fyrir frekari fólksfjölgun næstu áratugi. Jafnframt muni eldra fólki fjölga með hækkandi lífaldri. Því muni sjúkling- um að óbreyttu fjölga. Notkun sjúk- linga og gesta á bílastæðum geti því mögulega fækkað stæðum til umráða fyrir starfsmenn. Hann benti í ritgerðinni á að bíla- stæðastjórnun mundi ráða því hvern- ig þessi þróun yrði til framtíðar. Á því var þó ekki tekið sérstaklega. Þá kom þar fram að árið 2015 voru um 2.500 starfsmenn í 1.900 stöðu- gildum við Hringbraut og Eiríksgötu og 1.280 starfsmenn í 950 stöðugild- um í Fossvogi. Ætlað var að alls 3.900 starfsmenn mundu starfa á nýjum Landspítala eftir 1. áfanga. Samkvæmt talningu Kristins Jóns voru um 655 bílastæði við Landspít- alann í Fossvogi. Til samanburðar sé gert ráð fyrir 1.600 stæðum í 1. áfanga spítalans, 400 stæðum með byggingu síðari áfanga og 150 stæð- um í randbyggð. Hún tilheyri þó ekki starfsemi nýs Landspítala. Færri munu geta ekið á spítalann  Skipulagsfræðingur hjá Reykjavíkurborg segir hlutfall bílferða á Landspítalann þurfa að lækka  Með nýjum Landspítala muni framboð bílastæða og eftirspurn kalla á meiri almenningssamgöngur Morgunblaðið/Hanna Landspítalinn í Fossvogi Talning Kristins Jóns Eysteinssonar benti til að um 655 bílastæði væru við sjúkrahúsið. 1.600 stæði í 1. áfanga » Á vef Nýja Landspítalans segir að í drögum að nýju deili- skipulagi sé gert ráð fyrir að í 1. áfanga verði 1.600 bílastæði á lóðinni en að henni full- byggðri verði þau um 2.000. » Morgunblaðið sendi fyrir- spurn um fjölda stæða í gær- morgun. Svar hafði ekki borist í gærkvöldi en slæmt veður setti strik í reikninginn. Hlutdeild einkabíla í ferðum á Landspítalann Aðalskipulag Reykjavíkur- borgar 2010–2030 Markmið fyrir hlutdeild* ferða á einkabíl, 58% Hlutdeild* ferða í einkabíl árið 2011, 67% Áætluð hlutdeild* ferða í einkabíl, 33-41% Nýi Landspítalinn á Hringbraut eftir fyrri og síðari áfanga 1. áfangi: 33-37% 2. áfangi: 37-41% Núverandi starfsemi Landspítalans Heimild: Greinargerð SPITAL, 2012 Heimild: Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, júní 2014 Heimild: Kristinn Jón Eysteinsson, Nýr Landspítali, áhrif á ferðamynd- un og bílastæðamál, júní 2013*Hver bíll í stæði táknar 11-13,5% hlutdeild Kristinn Jón Eysteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.