Morgunblaðið - 12.01.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 12.01.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 „Þau munu fá fræðslu um vinsam- lega snertingu, hvar mörkin liggja, hvernig þekkja skuli eigin tilfinning- ar og muninn á því að knúsa einhvern sem manni þykir vænt um eða knúsa þann sem maður er mögulega skot- inn í. Þá verður einnig fjallað um hvað það er að vera skotinn í ein- hverjum og hvort það sé í lagi að vera skotinn í stelpu ef maður er sjálfur stelpa eða hvort maður verði að vera skotin í strák,“ segir hún. Á meðan á tilraunaverkefninu stendur verða hreinlætisvörur, s.s. dömubindi og túrtappar á salernum skólanna og félagsmiðstöðva, auk þess sem smokkar verða einnig að- gengilegir hjá félagsmiðstöðvunum, en tilgangur þessa er m.a. sá að auð- velda ungmennum aðgengi að vörn- um og draga úr kynsjúkdómum. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Með þessu verður kynfræðsla mun markvissari í skólakerfinu en áður og gefst nemendum, allt frá 1. bekk og upp í 10. bekk, tækifæri til að byggja ofan á fyrri þekkingu sína,“ segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri jafnréttismála hjá skóla- og frístundasviði Reykjavík- urborgar, í samtali við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til þess að skóla- og frístundaráð hefur nú samþykkt að setja af stað tilraunaverkefni um kynfræðslu í tveimur grunnskólum á næsta skólaári. Verkefnið byggist á tillögu starfs- hóps sem skilaði skýrslu sinni í árs- byrjun 2017. Hafa Seljaskóli, fé- lagsmiðstöðin Hólmasel og Heilsugæslan í Mjódd þegar sam- þykkt að taka þátt í verkefninu, svo og Foldaskóli, félagsmiðstöðin Fjör- gyn og Heilsugæsla Grafarvogs. En fræðslustarfið verður á sameigin- legri ábyrgð kennara, frístundaráð- gjafa og skólahjúkrunarfræðinga. Allir hópar með eftir þrjú ár Aðspurð segir Kolbrún Hrund fræðslu eingöngu fara fram í ung- lingadeild á fyrsta ári verkefnisins, en á öðru ári mun miðstigið bætast við og á þriðja ári eiga allir nemend- ur skólanna tveggja að fá kyn- fræðslu. „Eins og staðan er núna þá fá nem- endur kynþroskafræðslu í 6. bekk og fræðslu um kynlíf, kynsjúkdóma og getnaðarvarnir í 9. bekk, en tíminn sem settur er í kynfræðsluna er oft skammur þó að sumir kennarar sinni þessu vissulega vel,“ segir Kolbrún Hrund og bendir á að tilraunaverk- efnið eigi að veita nemendum mun betri fræðslu en nú er gert. „Það sem við viljum gera með þessu er að víkka út hugtakið „kyn- fræðsla“. Þannig munum við t.a.m. taka meira tillit til tilfinninga ein- staklinga, hópþrýstings hvers konar, marka fólks, samskipta og virðingar. Það verður því áhersla lögð á mun fleiri atriði en einungis kynþroska eða kynlífi,“ segir hún. Aðspurð segir Kolbrún Hrund yngstu krakka grunnskólanna ekki fá fræðslu um kynlíf heldur fremur um snertingu og eðlileg samskipti. Tilraun með kynfræðslu frá 1. upp í 10. bekk  Tveir grunnskólar og tvær félagsmiðstöðvar taka þátt Morgunblaðið/Hari Grunnskóli Tveir skólar í Reykjavík munu á næsta skólaári taka þátt í til- raunaverkefni til þriggja ára þar sem lögð verður áhersla á bætta fræðslu. 5.290.000 kr.2.390.000 kr. Kia Sorento LuxuryKia Rio LX 2.590.000 kr.3.990.000 kr. Kia Ceed LX SWKia Sportage EX 1.290.000 kr.3.190.000 kr. 1.750.000 kr.2.050.000 kr. Kia Picanto LXKia Carens EX Kia Rio EXKia Rio LX Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir bílar Allt að 6 ára ábyrgð fylgir NOTAÐIR BÍLAR www.notadir.is Kletthálsi 2 110 Reykjavík 590 2160 Opnunartímar: Virka daga 10–18 Laugardaga 12–16 * ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir Raðnúmer: 291336 Raðnúmer: 992880 Raðnúmer: 992798 Raðnúmer: 992711 Raðnúmer: 992706 Raðnúmer: 992876 Raðnúmer: 291319 Raðnúmer: 321209 Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Árgerð 2017, ekinn 30 þús. km, bensín, 1.368 cc, 100 hö, sjálfskiptur, framhjóladrifinn. Árgerð 2017, ekinn 15 þús. km, dísil, 1.685 cc, 142 hö, sjálfskiptur, framhjóladrifinn. Árgerð 2015, ekinn 50 þús. km, dísil, 2.199 cc, 200 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Árgerð 2016, ekinn 17 þús. km, bensín, 998 cc, 100 hö, beinskiptur, framhjóladrifinn. Árgerð 2015, ekinn 31 þús. km, dísil, 1.396 cc, 90 hö, beinskiptur, framhjóladrifinn. Árgerð 2016, ekinn 37 þús. km, dísil, 1.685 cc, 142 hö, sjálfskiptur, framhjóladrifinn, 7 manna. Árgerð 2015, ekinn 89 þús. km, bensín, 1.396 cc, 109 hö, sjálfskiptur, framhjóladrifinn Árgerð 2014, ekinn 31 þús. km, bensín, 998 cc, 69 hö, beinskiptur, framhjóladrifinn Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit sem kaupandi ber kostnað af. Lestu meira um ábyrgðina á kia.com/abyrgd Birt með fyrirvara á verðbreytingum, innslátarvillum og myndavíxli. * Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Flug á vegum Icelandair til San Francisco í Bandaríkjunum hefst í vor. Borgin er 23. áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu, en til þessarar Kyrrahafsborgar verður flogið fjórum sinnum í viku frá 1. júní næstkomandi fram í október á Boeing 767 breiðþotu. Alls flýgur Icelandair til sex nýrra áfangastaða á árinu; Cleveland, Dallas, Kansas City, Baltimore, San Francisco í Bandaríkjunum og Dublin á Írlandi. „San Francisco opnar nýja leið inn á Kaliforníumarkað og flug á Balti- moreflugvöll styrkir stöðu okkar á austurströndinni. Kansas City, stór borg í miðjum Bandaríkjunum, opn- ar svo áður lokaða markaði fyrir ís- lenska ferðaþjónustu og tengiflug okkar til og frá Evrópu,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair. – San Francisco, sem var í leiðakerfi Icelandair í tvö sumur fyrir rúmum áratug, er ein þekkt- asta og vinsælasta ferðamannaborg í heimi og hin 9. fjölmennasta í Bandaríkjunum. Flugáætlun Icelandair verður í ár um 10% umfangsmeiri en á sl. ári og er áætlað að farþegar verði um 4,5 milljónir. Nú í vor mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til far- þegaflugsins í sumar, 26 Boeing 757 og fjórar Boeing 767-300 auk nýju vélanna. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Kyrrahafsborg San Francisco þykir vera bæði menningar- og nútímaborg. San Francisco er nýr áfangastaður  Icelandair á sex nýja staði vestra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.