Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Utanríkisráðherrar Breta, Frakka
og Þjóðverja stigu fram í gær ásamt
Federicu Mogherini, utanríkismála-
stjóra Evrópusambandsins, og lýstu
því yfir að samkomulagið sem gert
var við Írana árið 2015 um kjarn-
orkuáætlun landsins væri enn í fullu
gildi. Kom yfirlýsingin í kjölfar við-
ræðna þeirra við Javad Zarif, utan-
ríkisráðherra Írans.
Afstaða Evrópusambandsríkj-
anna er í ósamræmi við afstöðu
Bandaríkjastjórnar, en Donald
Trump Bandaríkjaforseti neitaði í
október síðastliðnum að staðfesta
það að Íranar stæðu við sinn hluta
samkomulagsins. Gert er ráð fyrir að
Trump muni ákveða í dag hvort
Bandaríkjastjórn hefji aftur refsiað-
gerðir á hendur Írönum, er felldar
voru úr gildi þegar samkomulagið
var undirritað.
Írönum haldið í skefjum
Mogherini sagði að samkomulagið
hefði náð fram helstu markmiðum
sínum, sem væri að halda kjarnorku-
vopnaáætlun Írana í skefjum. Sagði
hún brýnt að halda í samkomulagið,
þar sem það gerði heiminn að örugg-
ari stað en ella og kæmi um leið í veg
fyrir kjarnorkuvopnakapphlaup í
Mið-Austurlöndum.
Boris Johnson, utanríkisráðherra
Breta, tók í sama streng og sagði að
það væri undir andstæðingum sam-
komulagsins komið að sýna fram á
betri leiðir til þess að aftra Írönum
frá því að koma sér upp kjarnorku-
vopnum. Sagði hann jafnframt ljóst
að Íranar hefðu staðið algjörlega við
samkomulagið.
Óvíst hvað Trump hyggst gera
Heimildarmenn AFP-fréttastof-
unnar innan bandaríska stjórnkerf-
isins sögðust ekki gera ráð fyrir því
að Trump myndi hefja á ný þær
refsiaðgerðir sem komið var á fót í
aðdraganda samkomulagsins. Það
væri hins vegar ekki loku fyrir það
skotið að Trump myndi skipa fyrir
um aðrar aðgerðir gegn Íran vegna
mannréttindabrota þeirra og stuðn-
ings ríkisins við erlend öfgasamtök.
Javad Zarif, utanríkisráðherra Ír-
ans, sagði í gær að ef Bandaríkin
teldu sig ekki bundin af samkomu-
laginu væru allar forsendur fyrir því
að Íranir héldu sig við ákvæði þess
brostnar. Þá myndu Íranar svara öll-
um refsiaðgerðum Bandaríkjanna af
fullri hörku.
ESB styður Írana
Bretar, Frakkar og Þjóðverjar segja kjarnorkusamning-
inn við Írana enn í fullu gildi Ákvörðunar Trumps beðið
AFP
Kjarnorkumál Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakka, Sigmar Gabr-
iel, utanríkisráðherra Þjóðverja, Boris Johnson, utanríkisráðherra Breta, og
Federica Mogherini, utanríkismálastjóri ESB, lesa yfirlýsingu sína í gær.
Undirbúningur fyrir vetrarólympíuleikana í Pyeong-
chang í Suður-Kóreu er nú í hámarki, en leikarnir eiga
að hefjast í næsta mánuði. Suðurkóreski flugherinn
sendi í fyrradag listflugsveit sína, Svörtu ernina, til
þess að teikna ólympíumerkið á himininn fyrir ofan
aðalleikvang leikanna.
AFP
Ólympíuleikarnir í fullum undirbúningi
Bresk stjórnvöld
tilkynntu í gær
að þau hefðu
hafnað beiðni
Ekvador um að
Julian Assange,
stofnandi Wiki-
leaks, fengi stöðu
sendiráðsstarfs-
manns. Assange
hefur dvalist í
sendiráði Ekvador í London frá
árinu 2012, en hann vildi forðast
framsal til Svíþjóðar. Sænsk stjórn-
völd felldu niður rannsókn á máli
Assange í fyrra, en bresk stjórnvöld
vilja enn hafa hendur í hári hans
fyrir að hafa óhlýðnast fyrirmælum
breskra dómstóla.
Assange fær ekki
diplómatapassa
Julian Assange
STÓRA-BRETLAND
Lögregluyfirvöld í Santa Barbara-
sýslu í Kaliforníu staðfestu í fyrri-
nótt að 17 manns hefðu látist í mikl-
um aurskriðum sem urðu í bænum
Montecito, rétt norðvestan við Los
Angeles. Um 28 slösuðust í hamför-
unum og 30.000 manns hefur verið
gert að yfirgefa heimili sín. Úrhell-
isrigning hefur verið síðustu daga á
þessum slóðum og ýtti vatnsflóðið
ógrynni af aur á undan sér.
Margir þekktir einstaklingar úr
skemmtanaiðnaðinum búa í Monte-
cito, þar á meðal spjallþáttastjórn-
andinn Oprah Winfrey.
17 látnir í aurskrið-
um í Kaliforníu
BANDARÍKIN
Park Sang-ki,
dómsmálaráð-
herra Suður-
Kóreu, olli
nokkru fjaðra-
foki á mörkuðum
þegar hann
greindi frá því að
suðurkóresk
yfirvöld væru að
undirbúa laga-
setningu sem myndi banna viðskipti
með bitcoin og aðrar rafmyntir.
Sagði hann viðskiptin minna helst á
veðmálastarfsemi.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar
drógu síðar í land og sögðu þetta
eingöngu tillögur sem þyrfti að
ræða nánar, en í millitíðinni féll
verðgildi bitcoin um 18% á kór-
eskum mörkuðum. Náði myntin þó
sér aftur á strik síðar um daginn,
og hafði hún einungis tapað um 6%
af markaðsvirði sínu þegar upp var
staðið. Um 20% af öllum viðskiptum
með bitcoin fara um Suður-Kóreu.
Íhuga að banna við-
skipti með bitcoin
SUÐUR-KÓREA
Park Sang-ki
Franska lögreglan tilkynnti í gær að
hún hefði náð að endurheimta suma
af þeim skartgripum sem bíræfnir
þjófar höfðu á brott með sér úr Ritz-
hótelinu í París í fyrrakvöld. Tveggja
manna er enn leitað í tengslum við
ránið, en þrír voru handteknir strax í
kjölfar þess um nóttina.
Hið fimm manna ræningjagengi
braut sér leið inn í gegnum starfs-
mannainngang, en mennirnir voru
vopnaðir öxum. Þar náðu þeir að
ryðja sér leið í skartgripaverslun á
jarðhæð hótelsins og létu mennirnir
þar greipar sópa. Það vildi þó ekki
betur til en svo, að öryggiskerfi hót-
elsins lokaði þrjá af mönnunum inni,
ásamt skartgripum sem metnir eru á
um fjórar milljónir evra.
Hinir handteknu munu allir vera
„góðkunningjar lögreglunnar“.
Tveggja
þjófa enn
leitað
AFP
Þjófnaður Parísarlögreglan var
fljót á vettvang og handtók þrjá.