Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 32

Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 ✝ Sigurbjörg Ör-lygsdóttir fæddist á Akureyri 5. janúar 1962. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 29. desember 2017. Foreldrar henn- ar eru Margrét Sigfúsdóttir, f. 11.4. 1935, og Ör- lygur Þór Helga- son, f. 19.8. 1933, bændur á Þórustöðum 2 í Eyja- fjarðarsveit, nú búsett á Akur- eyri. Systkini Sigurbjargar eru: 1) Egill, f. 18.4. 1954, d. 17.2. 1959. 2) Helgi, f. 9.6. 1955, kona hans er Vigdís Eiríka Helga- dóttir og börn þeirra Margrét, Örlygur Þór og Jón Helgi. 3) Sigurlína, f. 4.2. 1958, maður hennar er Jón Ólafur Jónsson og börn þeirra Örlygur Þór og Sonja Dögg. 4) Egill, f. 10.9. 1967, kona hans er Efemía Fanney Valgeirsdóttir og börn þeirra Sigur- björg Eva, Guðrún Björg og Valgeir Guðjón. Sigurbjörg bjó í foreldrahúsum til 19 ára aldurs en um fimm ára aldur byrjaði heilsu hennar að hraka; fyrst sjón, svo heyrn og síðan hreyfigetu vegna taugahrörn- unar og flutti hún þá á Kristnes og var þar til 1995. Þá flutti hún í Hafnarstræti 16 á Akureyri og 2. janúar 2007 flutti hún í sér- íbúð í Geislatúni 1. Sigurbjörg var jarðsungin frá Höfðakapellu 9. janúar 2018. Jarðsett var í Kaupangskirkju- garði og fór jarðarförin fram í kyrrþey. Mig langar að minnast elsku- legrar mágkonu minnar Sigur- bjargar með nokkrum orðum. Sigurbjörg fékk það erfiða hlutskipti í lífinu að missa með aldrinum sjón, heyrn og hreyfi- getu og er ég kynntist henni fyrir ca. 30 árum hafði hún enn smá heyrn sem fór dvínandi. En hún hafði þann hæfileika að skilja okkur með því að við skrifuðum á enni hennar og hún svaraði okkur. Engan þekki ég með betra minni en hana. Hún mundi allt sem henni var sagt og var mjög dugleg að segja manni fréttir af sínu fólki og öðru samferða- fólki. Ekki þýddi að segja eitt í dag og annað á morgun, maður fékk það beint í hausinn aftur. T.d. er við svöruðum því hve há börnin væru, kannski ekki al- veg viss, þá sagði hún stundum: „Það getur ekki verið, þú sagð- ir annað síðast.“ Alla afmælis- daga mundi hún. Var óspör á að hnippa í foreldra og systkini út af þeim því hún vildi alltaf vera að gleðja aðra og gladdist alltaf með öðrum þegar vel gekk hjá þeim. Aldrei heyrði ég hana tala illa um fólk. Þegar við komum í heimsókn og hún áttaði sig á að Egill bróðir hennar var kominn hrópaði hún ávallt „Egill! Egill minn“ og svo fylgdi innilegt faðmlag á eftir. Sýndi hún hon- um og fjölskyldunni allri mikla væntumþykju alla tíð og mat það mikils að við skírðum okk- ar fyrsta barn Sigurbjörgu. Í ófá skipti bauðst hún til að lána bróður sínum peninga ef hann þyrfti. Sigurbjörg elskaði lömb og kom oft á vorin í heimsókn til okkar í Skagafjörðinn. Faðmaði lömbin og fann lyktina af þeim. Áður fyrr náði hún að heyra þau jarma en saknaði þess í seinni tíð. Á ferðum sínum hingað spurði hún aðstoðarfólk sitt út í landslagið, bæi, ár og fjöll og spurði svo í næstu ferð hvort þau væru að fara framhjá þessum og þessum stað núna. Hún hafði aldrei séð Skaga- fjörðinn og reyndi að sjá fyrir sér hvernig umhverfið var. Þegar við hittum hana í hinsta sinn rétt fyrir jól var það síð- asta sem hún spurði okkur hvort hún mætti koma í heim- sókn í vor. Vil ég þakka öllu því góða fólki sem gerði henni það kleift að koma til okkar sem og öllum sem aðstoðuðu hana á lífsleið- inni á Kristnesi, Hafnarstræti, Geislatúni, Bjargi og Hæfing- arstöðinni Skógarlundi. Yndis- legt var að hún fékk ósk sína uppfyllta að fá séríbúð í Geisla- túni og gat þá tekið á móti gestum þar. Í starfi sínu í endurhæfing- unni bjó hún til ófáa tágabakka og voru þeir orðnir 1.799 er hún féll frá. Góðar minningar um elsku Sigurbjörgu munu fylgja okkur alla tíð. Hvíli hún í friði. Efemía Fanney Valgeirsdóttir. Það hvarflaði ekki að okkur systkinunum í árlegu jólaheim- sókninni okkar til Sigurbjargar frænku að það yrði síðasta skiptið sem við myndum hitta hana. Hún var svo hress og kát, sagði okkur fréttir, sögur og við ræddum um lífið og til- veruna. Líkt og alltaf þegar við komum bauð hún okkur upp á hraunbita og kók með spjallinu. Heimsóknir okkar í Geislatúnið voru ekki jafn margar og við hefðum viljað en þær voru okk- ur mjög dýrmætar og við eig- um fullt af góðum minningum með henni þaðan. Einnig eigum við fullt af skemmtilegum minningum frá því þegar Sigurbjörg kom til þess að heimsækja litla bróður sinn og okkur fjölskylduna vestur í Skagafjörð. Hún kom ævinlega á vorin til þess að kíkja á lömbin. Þessar heimsóknir voru bæði okkur og henni mjög kærar. Hún talaði reglulega um þær og þar sem Sigurbjörg vildi alltaf hafa allt á hreinu þá spurði hún yfirleitt alltaf snemma vetrar hvort hún mætti koma og skoða lömbin um vorið. Þessi spurning er einmitt eitt það síðasta sem við heyrð- um hana segja. Hún elskaði lyktina af lömbunum, finna fyr- ir mjúku krullunum og það skemmdi ekki fyrir ef þau jörmuðu. Þegar hún var búin að skoða lömbin þá kom hún inn í kaffi og hún spurði alltaf hvort karamellukakan sem hún elskaði væri á boðstólum en það var alltaf passað upp á að svo væri. Þessi kaka er alltaf kölluð „karmellukakan sem Sigurbjörg frænka elskar“ á okkar heimili og við systkinin höfum það líklegast frá henni að dýrka þessa köku. Sigurbjörg frænka kenndi okkur svo margt, m.a. þolin- mæði, og að segja alltaf satt og rétt frá. Þegar við systkini vor- um yngri spurði hún alltaf pabba eða mömmu um hæðina á okkur. Það kom fyrir að þau voru ekki alveg viss og þá giskuðu þau á hvað við værum há. Stundum passaði hæðin ekki vegna þess að hún mundi alltaf hvað hafði verið sagt síðast og það gæti bara ekki staðist að við hefðum minnkað. Þannig að við reyndum alltaf að vera klár á þessu þar sem minnið hennar var ótrúlegt og það var fátt sem hún var ekki með á hreinu. Hún kenndi okkur líka að líf- ið er ekki alltaf dans á rósum en það þýðir ekkert að gefast upp. Hún var okkur mjög kær og minning hennar lifir með okkur um ókomna tíð. Okkar von er sú að hún hafði það gott í draumalandinu sem er vonandi nákvæmlega eins og hún sá fyrir sér. Hvíldu í friði, elsku frænka, þín verður sárt saknað. Sigurbjörg Eva, Guðrún Björg og Valgeir Guðjón Egilsbörn. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti (Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir) Nú hefur einstök kona kvatt þessa jarðvist og haldið á vit nýrra ævintýra á öðru tilveru- stigi. Sigurbjörg fór skyndilega og óvænt og skilur eftir sig stórt skarð og tómleika. Við erum þakklát fyrir að hafa þekkt þessa stórbrotnu konu en þökk- um um leið fyrir að brottför hennar úr þessum heimi var snögg og átakalítil. Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki – (Tómas Guðmundsson) Sigurbjörg var daufblind og með mikla hreyfiskerðingu. Hún missti sjón og síðar heyrn ung að árum en notaði tjáskipti í formi tákna sem gerð voru á efri hluta líkamana hennar. Þessi tjáskipti þróaði hún og var ótrúlega dugleg við að finna upp ný og ný tákn til að dýpka og auðvelda samskipti. Sigurbjörg átti stóra fjöl- skyldu og fjölda vina sem hún fylgdist vel með og sýndi mik- inn áhuga. Hún var gestrisin, einstak- lega gjafmild og mikill húm- oristi. Sigurbjörg hafði af- burðagott minni og hægt var að fletta upp í henni eins og orða- bók hvað varðaði afmælis- og brúðkaupsdaga allra sem hún þekkti, svo ekki sé minnst á fegurðardrottningar eða kónga- fólk sem hún hafði sérstakan áhuga á. Sigurbjörg hafði þann ein- staka eiginleika að geta glaðst yfir velgengni og hamingju þeirra sem henni þótti vænt um. Afbrýðisemi eða öfund var ekki til í hennar fari. Það er eiginleiki sem er til eftir- breytni. Sigurbjörg trúði að þegar þessari jarðvist lyki tæki við annar heimur þar sem hennar hlutskipti yrði annað. Þar væri hún fögur kona með sjón og heyrn, sítt svart hár og allir vegir færir. Hún lagði áherslu á að í þeim heimi væru þroska- þjálfar algjörlega óþarfir. Við kveðjum þessa sterku hugrökku konu og þökkum henni samfylgdina. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Innilegar samúðarkveðjur sendum við fjölskyldu og vinum Sigurbjargar Fyrir hönd starfsfólks Geislatúni 1, Ingibjörg Jónsdóttir, Þóra Elín Arnardóttir. Sibba var einstök kona. Hún bjó við miklar skerðingar. Var daufblind, hvorki heyrði né sá og var bundin hjólastól. Þrátt fyrir þessar erfiðu skerðingar lét hún ekki deigan síga. Hún mætti í Skógarlundinn alla virka daga. Tjáskipti milli Sibbu og annarra voru óhefð- bundin. Þeir sem við hana töluðu skrifuðu á ennið á henni og gerðu fyrir hana tákn. Hún bjó til mörg tákn sjálf og gaf fólki tákn. Með sínu tákni kynnti fólk sig fyrir henni, þegar það kom til hennar og vildi eiga við hana samskipti. Fyrir nokkrum árum áttu Sibba og táknmálsfræðingur sem vann í Skógarlundi ein- staklega skemmtilegt og gef- andi samstarf. Saman unnu þær að táknum sem síðan voru notuð í samskiptum á milli Sibbu og þeirra sem voru með henni hverju sinni. Myndband sem þær gerðu saman fór starfsmaðurinn með á ráðstefnu fólks sem starfaði með fólki með daufblindu og vakti myndbandið verðskuldaða athygli fyrir frábært samspil tveggja kvenna, annarrar með fulla heyrn og sjón og hinnar án þeirrar skynjunar. Sibba var einstaklega áhuga- söm um fólk. Hún var sérfræð- ingur í konungbornu fólki. Vissi margt um dönsku drottningar- fjölskylduna og þá bresku, svo einhverjar séu taldar. Í Skógarlundi snerist dag- urinn meira og minna um sam- skipti, spjall, lestur og vinnu. Sibba fléttaði tágakörfur og var hún búin að flétta 1.799, þegar hún var kölluð burt frá okkur. Allar körfur voru númeraðar og skráðar í ákveðna bók. Í bókina var líka skráð hver ætti hvaða körfu. Átt þú ekki körfu númer 1.001? spurði hún undirritaða sem vissulega er rétt. Hvað gerir þú við hana? Notarðu hana fyrir brauð, kökur, eitt- hvað annað? Hún vildi vera með sem flest á hreinu og þannig var það. Mundi afmælisdaga og gaukaði fallegum gjöfum að fólki á stór- afmælum. Mundi nöfn barna starfs- manna og barnabarna þar sem þau voru til staðar. Það er erfitt að horfa á eftir samferðafólki sínu en þannig er lífið. Við fæðumst og við deyj- um. Við hittumst til að skapa minningar og kveðjumst til að njóta þeirra. Minningar um Sibbu eiga eftir að ylja okkur um langan veg og fyrir það er- um við þakklát. Með tilveru sinni auðgaði Sibba umhverfi sitt svo um munaði. Hún var sterkur kar- akter. Hún gaf okkur mikið og kenndi okkur margt. Þrátt fyr- ir erfið örlög var hún æðrulaus. Sibba var hjartahlý og góður vinur. Elsku Sibba, við erum þakk- lát fyrir að hafa átt þig að. Þú gafst okkur mikið og við sökn- um þín. Kæru foreldrar Sibbu, syst- kini og fjölskyldur, íbúar og starfsfólk í Geislatúni. Ykkur sendum við okkar dýpstu sam- úðarkveðjur og biðjum almætt- ið að umvefja ykkur og styrkja. Elsku Sibba, hlutverki þínu á jarðríki er lokið og nú skiljast leiðir. Nú ertu komin í Draumalandið. Nú ert þú Berg- fríður. Þú gengur um gresjurnar, hlustar á söng fuglanna, skoðar og snertir blómin og andar að þér ilmi Draumalandsins. Við brotthvarf þitt myndast skarð sem ekki verður fyllt. Hafðu hjartans þökk fyrir sam- fylgdina sem var gefandi. Í hjörtum okkar eigum við minn- ingu um þig lífsglaða og káta. Megi góður Guð geyma þig. Fyrir hönd allra í Skógar- lundi, Margrét Ríkarðsdóttir. Sigurbjörg Örlygsdóttir ✝ Kristín P.Andrésdóttir, eða Kiddý eins og hún var oft kölluð, fæddist í Reykjavík 13. nóvember 1938. Hún lést 3. janúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Andrés S. Jónsson vélstjóri, f. 28. júní 1902, d. 1971, og Björg Pálsdóttir húsmóðir, f. 8. ágúst 1906, d. 1985. Systkini Kristínar eru Harald S. Andrésson, f. 27. júní 1934, d. 7. maí 2017, og Björgúlfur Andrésson, f. 3. febrúar 1946, kona hans er Hafdís Jónsdóttir, f. 21. ágúst 1952. Kristín giftist Sigurði Jó- hannessyni, f. 26. janúar 1932, d. 21. október 1996. Saman eign- uðust þau tvær dætur, þær Önnu Björgu, f. 30. mars 1969, og Ragnhildi Hrund, f. 26. nóv- ember 1972. Eiginmaður Önnu Bjargar er Víglundur H. Áka- son, f. 26. júní 1966. Þeirra börn eru 1) Andrea Rós Víglunds- dóttir, maki Antonio Fattoruso. 2) Stefán Ragnar Víglundsson, maki Kristín Ósk Magnúsdóttir. 3) Sigurður Þór Víglundsson. Ragn- hildur á einn son, Aron Kristin Jóns- son. Langömmu- börnin eru þrjú. Börn Sigurðar af fyrri samböndum eru þau Þórdís, Jó- hannes, d. 1999, Egill, Gunnar og Björn. Kristín gekk í Hússtjórnarskólann í Reykjavík og á Laugarvatni. Eftir það kenndi hún í Húsmæðraskól- anum á Hallormsstað og á Laugalandi í Eyjafirði. Einnig vann hún sem klinka hjá tannlækni og á smurbrauðs- stofu um tíma. Síðar tók hún við eldhúsinu á Reykjalundi þar sem hún kynntist eiginmanni sínum Sigurði. Hún kenndi heimilisfræði í Fossvogs-, Breiðagerðis- og Vesturbæjarskóla, var for- stöðukona eldhúss í Sjálfsbjörg og lauk síðan starfsferlinum í mötuneyti á leikskóla. Útför Kristínar fer fram frá Seljakirkju í dag, 12. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku amma mín, ég sakna þín. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Þinn Aron Kristinn. Elsku mútta mín. Mikið er nú skrítið að þú sért farin frá okkur og enn undarlegra að geta ekki faðmað þig og kysst. Þú varst kletturinn minn í gegnum súrt og sætt og tókst mér alltaf opnum örmum. Það má segja að við höf- um búið saman alla mína tíð. Það sem þú varst alltaf góð við mig og dekraðir mig í gegnum árin. Þú tókst okkur Aroni svo vel þegar við fluttum til þín fyrir rúmum tveimur árum. Þá sem endranær var gott að eiga þig að. Þú varst mikið fyrir að lesa og margir þínir uppáhaldshöfundar urðu líka mínir. Nefni ég þá sér- staklega Agöthu Christie sem við höfðum mikið dálæti á. Mikið var gaman hjá okkur þegar við horfð- um á Útsvar á föstudagskvöldum og ef Poirot var þar á eftir var kvöldið alveg fullkomið. Ég mun alltaf hugsa til þín þegar ég les eða horfi á eitthvað eftir Agöthu. Ekki má gleyma einni af uppá- haldsbókunum okkar, Vinur minn prófessorinn. Það var alltaf gott að kíkja á hann til að létta lundina þegar á þurfti að halda. Ég býst við að ég muni lesa þá bók fljótlega. Það sem þú varst alltaf mikil dama, elegant í klæðaburði og barst þig svo vel. Alltaf settir þú á þig varalit áður en þú fórst út, jafnvel þótt þú værir bara að fara á milli húsa. Neglurnar voru að sjálfsögðu rauðlakkaðar og fínar og ilmurinn lá í loftinu þar sem þú fórst um. Það hefði sennilega ver- ið gaman fyrir þig að eiga dóttur sem væri jafn mikil dama og þú, en hana fékkstu ekki í mér. Þú hafðir nú samt alltaf húmor fyrir brussuskapnum í mér sem betur fer. Mér er minnisstætt þegar þú varst búin að klæða mig upp fyrir veislu sem við vorum að fara í. Ég var þvílíkt fín en vildi endilega fara aðeins út að leika og þú leyfðir mér það. Þú hefðir betur sleppt því þar sem ég skellti mér beint í næsta drullupoll. Þú kipptir þér svo sem ekkert upp við það og þetta hefur örugglega ekki komið þér á óvart með mig þar sem þú þekktir mig svo vel. Þegar ég var á menntaskóla- árunum mínum og aðeins að skemmta mér of mikið, að þér fannst, þá settir þú stundum upp svipinn og sagðir: Hildur mín, þú verður nú að fara að hugsa þinn gang. Ekki var ég ánægð með þessa setningu þá en í seinni tíð hef ég mikið skemmt mér yfir þessu. Þó svo að við værum ekki alltaf sammála og oft að misskilja hvor aðra, þá var alltaf mikil ást og kærleikur á milli okkar. Við vor- um fljótar að sættast og knúsast ef farið var yfir strikið. Okkur fannst gaman að fara saman í búðir og þú varst alltaf fljót að ákveða hvað þú vildir kaupa. Það var gott að hafa þig með því þú hvattir mig alltaf til að kaupa mér eitthvað fallegt líka. Þetta eru undarlegir tímar núna og allt er svo óraunverulegt. Ég veit að tíminn læknar öll sár og það hugga ég mig við núna. Ég get glaðst yfir því að hafa búið hjá þér síðustu tvö ár og notið samvista við þig, dúllan mín. Elsku mútta mín, ég kveð þig með þessum orðum sem ég samdi til þín. Vonandi hefur þú það gott núna og ert orðin létt í spori aftur. Elsku mamma mín þú varst mér svo kær, eina sem ég hugsa um er að vera þér nær. Þú umvafðir mig með ást og hlýju og því mun ég aldrei gleyma, í hjartu mínu ég ávallt þig mun geyma. Þín elskandi dóttir, Ragnhildur (Hildur). Kristín P. Andrésdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.