Morgunblaðið - 12.01.2018, Síða 37

Morgunblaðið - 12.01.2018, Síða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 Við bjóðum gott úrval af reimum í flesta snjósleða, fjórhjól og bíla. ...ekki bara jeppar! Reimar í bíla, vélsleða og fjórhjól Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef þú hefur kost á því, reyndu þá að gefa þér svolítinn tíma til einveru. Vertu fyrst/ ur til að viðurkenna mistök þín, þú færð fyrir- gefningu. Ekki draga það úr hömlu að taka til. 20. apríl - 20. maí  Naut Enginn verður óbarinn biskup, það er gott að hafa það í huga þegar á móti blæs. Það kemur á daginn að þú hafðir rétt fyrir þér í vissu máli, ekki ofmetnast þó. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er margt sem þú þarft að af- greiða í skyndi. Kapp er best með forsjá; þér liggur ekkert á því hlutirnir verða hér líka á morgun. Allt bendir til stöðuhækkunar fljót- lega. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér er að takast að koma lagi á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Gefðu af þér, þú færð það margfalt til baka. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú skalt grípa tækifærið til að kanna heiminn. Ef þú gerir það ekki núna er hætt við að langt verði í næsta tækifæri. Þú hefur margt á þinni könnu, það er í lagi að láta aðra hjálpa til. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Næstu mánuðir eru svo sannarlega tími einhvers konar áfanga í lífi þínu. Láttu furðuleg ummæli sem vind um eyru þjóta. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þolinmæði er dyggð og af henni áttu nóg. Hver er sinnar gæfu smiður og það á við jafnt í starfi sem leik. Láttu börnin ganga fyrir vinnunni næstu vikur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú færð furðulegar hugmyndir og sumar þeirra virka ekki. Einhverra hluta vegna finnst þér þú hafa beðið ósigur en hugsaðu málið og þá sérðu hið rétta. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekki persónuleg kynni hafa áhrif á framgöngu þína á vinnustað. Enginn vill hætta á að gera sig að fífli fyrir framan aðra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Farðu í gegnum málin og athugaðu hvaða breytinga er þörf til þess að þú náir árangri. Gagnlegar umræður gera alla hluti fram- kvæmanlegri. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur lagt mikla vinnu í verkefni þitt og sérð nú fyrir endann á því. Makinn rek- ur hornin í allt, láttu það sem vind um eyru þjóta. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vertu óhrædd/ur við að henda göml- um hlutum og því sem skiptir þig ekki lengur máli. Ferðalög eru fram undan til fjarlægra landa. Mér varð á í messunni, þegar égskrifaði Vísnahornið fyrir miðvikudaginn, að doka ekki við – gá hvort fleiri en Björn Ingólfsson brygðust ekki við „annmörkum“ Ár- manns Þorgrímssonar því að lengi er von á einum! Og það gerðist ein- mitt núna! Sigrún Haraldsdóttir átti síðasta orðið og hún skaut því inn strax eftir hádegi á mánudag!: Vont finnst mér á linum, stuttum löppum langt að paufast eftir hörðum klöppum, hrapa niður hræðilega kletta, hrygginn þurfa að sveigja, fetta og bretta óttast tröllin, grimma varga og vinda, vonast til að finna götur kinda. Mætti ég þá fremur finn’ ann Sokka frjálslega um götur með mig brokka. Sigmundur Benediktsson hafði orð á því á þriðjudag að það væri dæmigert þegar veðrið breyttist svo hratt að vísurnar héldu ekki í við það – „í morgun þræsingur og rign- ing, en kl. 15. 30 hafði birt til og sást í sólsetrið“: Reyting þolum reyndar oft regnið skolar völlinn. Þræsings gola, þrútið loft, þokan kolar fjöllin. Virðast hnittin veðratjöld viðmið hitt sem fólu. Upp að stytta er í kvöld og í glittir sólu. Fía á Sandi tók undir og sagði að þessar væru orðnar úreltar því nú væri komin hláka: Hérna spretta hélublóm hríð er úti og rosi. Inni á Leir er auðn og tóm ekki von ég brosi. Hér er úti hríðin dimm herjar vindsins kraftur. Ég kíkti á gluggann kl. 5 og kúrði mig síðan aftur. Innan dyra ósköp fátt enga frétt ég spyr. Nú er úti norðanátt nú er fjúk við dyr. Búin stórhríð, búið vín best að sýna kjark og þor. Senn á himni sólin skín sjálfsagt kemur aftur vor. Hér leikur Magnús Halldórsson sér að „tilbrigðum við ufsilon ý, í og i, ekki alveg skáldsaga samt“: Deigla var í dýinu og djúpgrænn litur á slýinu, minna var þó af mýinu, maður einn sá það í fríinu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Mínir annmarkar og umhleypingar „GLEYMDU VESKINU – VIÐ FJÖLLUM UM ÞAÐ Á NÆSTU ÖNN. VIÐ SKULUM EINBEITA OKKUR AÐ „UPP MEÐ HENDURNAR“ HJÁ ÞÉR.“ „EKKI VERA FÝLUPÚKI. HANN VAR BÚINN AÐ BÍÐA EFTIR ÞVÍ Í ALLAN DAG AÐ ÞÚ KVEIKTIR Í ÞESSUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... gleðin sem fylgir því að byrja hvern nýjan dag, saman. SÆLL ODDI! JÓN VAR AÐ SEGJA MÉR AÐ HANN ÓSKI ÞESS HELST AÐ ÞÚ GELTIR EINS OG BRJÁLÆÐINGUR FRAMAN Í HANN VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ, JÓN! ÉG ER FARINN TIL ÞESS AÐ RÁÐAST Á KASTALA KONUNGSINS ÉG MUN MÆTA ÖRVUM! SVERÐUM! BRENNANDI OLÍU! ÉG MUN HÆTTA LÍFI OG LIMUM! SKEMMTU ÞÉR! HÚN ÞEKKIR MIG! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Í dag hefst EM karla í handbolta íKróatíu. Víkverji ætlar ekki að missa af því. Í dag mun hann byrja á því að fara í gegnum EM-blað sem fylgir Mogganum í dag og fyrsti leikur er á dagskrá seinni partinn. x x x Fornir fjendur bíða okkar manna ífyrsta leik, eða Svíar. Nú eru Svíar með leynivopn. Þeir eru nefnilega komnir með íslenskan þjálfara. Sú taktík hefur reynst mörgum vel. Spyrjið bara Norð- menn, Þjóðverja og Dani. x x x Víkverja finnst eins og Íslend-ingar hafi ansi oft mætt Svíum í fyrsta leik á stómótunum í hand- bolta. En það verður óneitanlega nokkuð sérstakt að sjá Íslending á hliðarlínunni hjá Svíum. x x x Þegar handboltamótin í janúarhafa verið skemmtileg, og Ís- lendingum tekist vel upp, þá stytta þau janúarmánuð svo um munar. Fín leið til að brjóta upp veturinn er að fylgjast með leikjum hand- boltalandsliðsins. Þegar líður á mótið fer að styttast í þorrablótin. x x x Ekki virðast margir Íslendingargera sér ferð frá Íslandi til að styðja handboltalandsliðið á stór- mótum svona yfirleitt. Í sam- anburði við stuðninginn sem fót- bolta- og körfuboltalandsliðin hafa fengið á síðustu árum. Þó er það misjafnt eftir því hvar handbolta- landsliðið spilar. Hefur það fengið ágætan stuðning á stórmótum í Danmörku og Svíþjóð á síðustu ár- um enda margir Íslendingar búsett- ir á svæðinu. x x x Helsta ástæða þess að fáir gerasér ferð frá Íslandi á stórmótin í handboltanum er væntanlega dag- setningarnar frekar en eitthvað annað. Ferðahugurinn er ef til vill ekki mikill í fólki í janúar. Auk þess fá margir háa kreditkortareikninga í hausinn á þeim mánuði. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vorar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort. (Sálmarnir 68:20)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.