Morgunblaðið - 12.01.2018, Page 38

Morgunblaðið - 12.01.2018, Page 38
Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta hefur verið eins og opið hjóna- band, stundum erum við saman en stundum sundur,“ segja myndlist- arkonurnar Þórdís Jóhannesdóttir og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir þar sem þær eru að setja verk sín inn í gall- eríið Berg Contemorary að Klapp- arstíg 16. Og þær bæta við: „Þetta samstarf hefur verið lífrænt og fljót- andi og við höfum viljað halda því þannig … Við blöndum verkum okk- ar hér saman því við getum ekki slitið okkur hvor frá annarri.“ Og þær hlæja. Ingunn Fjóla og Þórdís eru að vísa til þess að síðasta áratug hafa þær sett upp margar sýningar með verk- um og innsetningum sem þær hafa unnið saman undir hatti Hugsteyp- unnar. Samhliða hafa þær þó unnið að sínum eigin verkum og þannig er það á sýningunni Bending sem þær opna í Berg á morgun, laugardag, klukkan 17. Þar gefur ekki að líta verk Hugsteypunnar heldur verk Þórdísar, sem byggjast á ljós- myndum sem hún útfærir á þrívíðan og skúlptúrískan hátt, og Ingunnar Fjólu sem vinnur með málverk og vís- ar til hefðarinnar á margbreytilegan en jafnframt skúlptúrískan hátt. Nánast alið hvor aðra upp Þær Ingunn Fjóla og Þórdís segj- ast báðar hafa nýlokið mastersnámi í myndlist og þar hafi þær þurft að kafa ofan í sjálfar sig og verkin. Þótt þessi verk séu ekki eins og þau sem þær sýndu á útskriftarsýningum sín- um megi finna fyrir þeim hug- myndum sem þær hafa haldið áfram að vinna með. „Þessi verk hér unnum við hvor í sínu lagi, þótt við höfum sýnt hvor annarri hvað við erum að gera. Þegar við komum hingað inn með öll verkin sáum við að tvö verk, eitt frá hvorri okkar, voru nánast eins. Efniviðurinn var ekki sá sami en myndbyggingin og litirnir nánast eins. Það fannst okkur áhugavert,“ segir Þórdís. „Við áttuðum okkur þá á því að við höfum nánast alið hvor aðra upp í myndlist- inni, enda búnar að vera samferða í þessu í tíu ár, síðan við sýndum fyrst saman í START Art við Laugaveg.“ Ljósmyndirnar bara hráefni Grunnefni í verkum Þórdísar eru ljósmyndir sem eru yfirleitt prent- aðar á álplötur sem hún mótaðar á þrívíðan hátt; stundum þannig að ál- inu er eins og flett upp og klætt í ab- strakt myndirnar. „Aðalstefið í þeim myndabanka sem ég vinn með núna eru myndir sem ég hef tekið af öðrum myndlist- arverkum og á sýningum, allskonar form sem mér finnst passa þessum myndum. Ég læt myndefnið kalla fram ákveðin form,“ segir hún. Þórdís bætir við að hún hafi reynt að gera tvívíð ljósmyndaverk en það hafi bara alltaf kallað á hana að brjóta flötinn frekar upp. Ingunn Fjóla skýtur inn í að Þórdís hafi alltaf verið að taka ljósmyndir en þær hafi í sjálfu sér ekki verið nóg fyrir hana; hún hafi því unnið úr þeim á ýmsan hátt, gert úr þeim vídeó og innsetningar og smám saman fikrað sig í átt að þeim aðferðum sem hún beitir nú. „Já, það er satt. Og ég er ánægð með það hvar ég er stödd með verkin núna,“ segir Þórdís. „Hvað varðar ljósmyndina sem þetta byrjar alltaf á, þá finnst mér bara mikilvægt að hún hitti einhverja lokaniðurstöðu og saman verði það að eind. Ég vel ljósmyndir sem ég hef áhuga á að vinna með en það skiptir ekki máli hvað þær endilega sýna. Ljósmyndirnar eru bara hráefni.“ Þrívíð málverk Ingunn Fjóla hefur iðulega skapað innsetningar sem hafa vakið verð- skuldaða athygli, meðal annars úr þéttriðnum strengjum og línum sem breyta rýmum, en hér sýnir hún stök verk. Þau byggjast öll á grunni henn- ar í málverki, hún málar á við, á þræði og á veggi, hleður upp málningu og staflar upp, notar ljós á sum verkin og efnisþætti sem hreyfast við um- gang og breyta verkunum. „Áhorfandinn er mikilvægur í þessum verkum,“ segir hún. „Ég hugsa mikið um áhorfandann, um mismunandi sjónarhorn, og að reyna að draga áhorfandann að verkinu. Þau hafa í sjálfu sér öll eiginleika skúlptúra, því þau breytast eftir því hvaðan er horft – engu að síður set ég þau fram sem málverk. Mér finnst næstum því að verkin séu ekki til fyrr en einhver upplifir þau.“ Þegar haft er á orði að efniviðurinn og samstilling hans skipti Ingunni Fjólu augsýnilega miklu, segir hún að í því megi sjá málarann í henni. „Ég vinn mikið með efni og geri til- raunir með mismunandi áferðir.“ Hún bendir sem dæmi á verk þar sem málningu er í orðsins fyllstu merk- ingu staflað upp og málaðan striga sem í öðru er brotinn saman. „Þessi verk eru mun malerískari en margar innsetningar mínar,“ segir Ingunn Fjóla svo. „Það er alltaf í mér tog- streita milli þess sem er ótrúlega strangt og niðurnjörvað og svo þess sem er frjálsara og kaótískara.“ Hún þagnar og hugar sig um, bæt- ir svo við: „Mörg verka minna hafa verið þrívíð málverk í innsetning- arformi og hér er ég í tilraunum í minni og að mörgu leyti afmarkaðri skala; þetta eru líka þrívíð málverk og á stundum með svolitlum sjón- blekkingum.“ Morgunblaðið/Einar Falur Sjálfstæðar Ingunn Fjóla og Þórdís á sýningu sinni í Berg Contemporary. Ingunn Fjóla á verkin til hægri og vinstri, „þrívíð málverk“ eins og hún kallar þau, en Þórdís skapaði þrívíða ál-ljósmyndaverkið í miðjunni. Stundum saman en stundum sundur  Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannesdóttir sýna í Berg Þegar ásakanir um kynferðislega áreitni komu fram á hendur leik- aranum Kevin Spacey ákvað leik- stjórinn Ridley Scott að kvikmynda aftur senurnar sem hann hafði leikið í í kvikmyndinni All the Money in the World, og fékk Christopher Plummer í hlutverkið. Ákvörðunin hefur verið lofuð, meðal annars af hinum leikurunum sem þurftu einnig að mæta í tökur að nýju. En nú hafa komið fram upp- lýsingar um laun þeirra sem þykja styðja ásakanir um kynjabundið misrétti í skemmtanaiðnaðinum vestanhafs. Meðan aðalleikkonan Michelle Williams fékk lágmarks- laun, 80 dali á dag, fyrir 10 aukadag- ana fékk hinn aðalleikarinn, Mark Wahlberg, sömu greiðslur – en 1,5 milljóna dala eingreiðslu að auki; um 160 milljónir króna. Ójafnvægi Wahlberg fékk 800 dali, og 1,5 milljónir dala að auki, en Michelle Williams aðeins 800 dalina. Gríðarlegur launamunur Með því að velja hráefnið af kostgæfni, nota engin aukaefni og hafa verkhefðir fyrri tíma í hávegum, framleiðum við heilnæmar og bragðgóðar sjávarafurðir. Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup, Sunnubúðin, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.