Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 39

Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bandaríska söngvaskáldið Sam Ervin Beam gaf út sína fyrstu breiðskífu, The Creek Drank the Cradle, árið 2002 undir lista- mannsnafninu Iron & Wine, eða Járn og vín. Platan sú hafði að geyma hugljúfar ballöður í þjóð- laga- og kántrístíl og einföldum útsetningum og hlaut Beam fljót- lega athygli og vinsældir fyrir. Næstu plötur urðu meiri um sig og flóknari hvað útsetningar varð- ar, fleiri tónlistarmenn komu að þeim og þróaðist Iron & Wine frá því að vera ýmist sólólistamaður eða heil hljómsveit, þ.e. á tón- leikum. Síðasta og sjötta hljóðversskífa Iron & Wine, Beast Epic, kom út í fyrra en Beam hefur einnig gefið út plötur í samstarfi við aðra og stuttskífur auk þess að gefa út á netinu. Þá hefur hann líka gefið út plötur með fágætu efni í takmörk- uðu upplagi og lög hans hafa verið flutt í ýmsum bandarískum kvik- myndum og sjónvarpsþáttum. Iron & Wine heldur tónleika í Eldborg í Hörpu á sunnudaginn, 14. janúar, kl. 20 en um upphitun sér sænska tvíeykið Pale Honey. Hart og mjúkt Listamannsnafnið Iron & Wine er skemmtilega skrítið en hug- myndina að því fékk Beam í kjör- búð þegar hann kom auga á fæðu- bótarefni með heitinu Beef, Iron & Wine, þ.e. Nautakjöt, járn og vín. Þegar hann er spurður að því af hverju hann hafi ákveðið að sleppa nautakjötinu segir Beam að hon- um hafi þótt ógeðslegt að hafa það með. „Þetta er áhugaverð orðapör- un,“ segir hann svo sposkur um járn og vín og að orðin eigi ágæt- lega við listsköpun hans. „Þessar þversagnir í lífinu, hið harða og hið mjúka sem ég reyni að fanga í lögum mínum og textum,“ útskýrir hann. – Og þetta listamannsnafn fest- ist líklega betur í minni en Sam Beam? „Hárrétt,“ svarar Beam kíminn. Myndlist, kvikmyndir og svo tónlist Beam er með BA-gráðu í mynd- list og MFA-gráðu í kvikmynda- gerð og að háskólanámi loknu vann hann m.a. við gerð kvik- mynda og sjónvarpsauglýsinga og kenndi einnig kvikmyndagerð í tveimur háskólum í Miami. Tón- listin var framan af áhugamál hjá Beam, hann samdi lög og texta heima hjá sér og áheyrendur hans voru eiginkona og börn. Hann er spurður að því hvort myndlist og kvikmyndir hafi haft mikil áhrif á hann sem tónlistar- mann og segir hann að vissulega smitist listræn sköpun milli þess- ara listgreina, þótt ólíkar séu. „Ég held að textarnir mínir séu umfram allt myndrænir, ég er ekki mikið að útskýra hlutina í þaula þótt sumir séu auðvtiað beinskeyttari en aðrir,“ segir hann og líkir sumum textunum við mál- verk. Í grunninn snúist þessar ólíku greinar um að miðla ein- hverju til áhorfenda og áheyrenda. „Gæti orðið skemmtilegt“ Beam segist sem ungur maður aldrei hafa átt von á því að starfa við tónlist. „Þegar tækifærið gafst sagði ég bara já, þetta gæti orðið skemmtilegt!“ segir hann og hlær að upprifjuninni. Upphafið að tónlistarferlinum má rekja til æskuvinar Beam, Bens Bridwells, söngvara hljóm- sveitarinnar Band of Horses. Beam lét bróður Bridwells, Mich- ael, hafa prufuupptöku af einu laga sinna sem komst í hendur rit- stjóra tímaritsins Yeti sem setti lagið á safndisk sem fylgdi tíma- ritinu. Þannig vakti lagið athygli eins af eigendum plötútgáfunnar Sub Pop Records sem bauð Beam samning. Þá hafði Beam verið að semja og spila heima hjá sér í ein sjö ár. Ögrar sjálfum sér – Þú gafst út sjöttu hljóðvers- plötuna þína í fyrra. Hvernig tel- urðu að þú hafir þróast sem tón- listarmaður, ef þú lítur yfir þessar plötur? „Ég hef án efa ögrað mér sem listamaður og farið ólíkar leiðir. En ég skal ekki segja, ég er ekki mjög góður í sjálfsskoðun,“ segir Beam og hlær. Hann njóti þess að kanna nýjar slóðir og þyki spenn- andi að vita ekki hvað er handan hornsins. – Á nýjustu plötunni ertu snúinn aftur til einfaldleikans sem ein- kenndi fyrstu plötuna þína. Var það meðvituð ákvörðun? „Ég lít á hana þannig að ég sé að fylgja ákveðnum hring frekar en að fara afturábak. Á síðustu ár- um hef ég prófað margar ólíkar nálganir, umfangsmeiri útsetn- ingar og það var skemmtilegt en lögin á þessari plötu kröfðust ann- ars konar nálgunar, meiri áherslu á textana frekar en flóknar útsetn- ingar,“ svarar Beam. Tilfinning sem verður sterkari með aldrinum – Þú hefur sagt frá því að fram- rás tímans hafi verið þér hugleikin í textagerðinni. Veldur hún þér áhyggjum, finnst þér tíminn líða of hratt og árin þjóta hjá? Börnin vaxa auðvitað alltof hratt! „Já, algjörlega,“ svarar Beam, sem er 43 ára og fimm barna fað- ir. „Mér hefur alltaf fundist það og með aldrinum magnast þessi til- finning. En allar sögur fjalla með einum eða öðrum hætti um tíma, eitthvað gerist í upphafi og þaðan er haldið í ákveðna átt,“ bendir hann á réttilega. Beam kemur fram ásamt hljómsveit í Eldborg á sunnudaginn og segist hann bæði njóta þess að halda tónleika einn og með öðrum. „Ég tel mig hepp- inn að geta gert hvort tveggja,“ segir hann og bætir við að hann hlakki mikið til tónleikanna á Ís- landi. Hingað hafi hann aldrei komið. „Það verða mörg ný lög en líka mörg gömul,“ segir hann um efnisskrána enda úr mörgum lög- um að velja af 16 ára ferli. Hratt flýr stund  Iron & Wine heldur tónleika í Eldborg á sunnudag  Reynir að fanga hið harða og mjúka í tónum og textum Skapandi Sam Beam gengur undir listamannsnafninu Iron & Wine. Hann er fimm barna faðir og líklega sést hér í fætur þriggja þeirra. Kvikmyndahátíðin Stockfish verður haldin í fjórða sinn 1.-11. mars næstkomandi í Bíó Paradís og líkt og fyrri ár verða kvik- myndir frá fjölmörgum löndum sýndar og erlendir og íslenskir kvikmyndagerðarmenn verða gestir hátíðarinnar. Meðal þeirra kvikmynda sem sýndar verða er rússneska kvik- myndin Loveless, eða Nelyubov eins og hún heitir á frummálinu, eftir leikstjórann Andrey Zvyag- instev, þann sama og gerði hina marglofuðu Leviathan. Loveless hlaut dómaraverðlaun kvik- myndahátíðarinnar í Cannes í fyrra og er framlag Rússa til Óskarsverðlaunanna í ár. Heimildarmyndin Komunia eftir pólska leikstjórann Önnu Zamecka verður einnig sýnd en hún hlaut Evrópsku kvikmynda- verðlaunin fyrir rúmum mánuði sem besta heimildarmyndin. Þá hefur einnig verið tilkynnt að norska heimildarmyndin Golden Dawn Girls, eftir Håvard Bust- nes, verði á dagskrá hátíðar- innar. Norski leikstjórinn Iram Haq sækir hátíðina í annað sinn og sýnir nýjustu kvikmynd sína, What will people say? eða Hva vil folk si á frummálinu en hún var nýlega frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto. Um 30 kvikmyndir í fullri lengd verða sýndar á hátíðinni auk valinna verka kvikmynda- gerðarmanna sem boðið verður til landsins á hina endurvöktu hátíð, að því er fram kemur í til- kynningu. Á meðal gesta verða þekktir verðlaunaleikstjórar og aðrir alþjóðlegir kvikmynda- gerðarmenn. Loveless og Komunia á Stockfish Verðlaunahafi Pólska kvikmynda- gerðarkonan Anna Zamecka á Evr- ópsku kvikmyndaverðlaununum í fyrra. Hún hlaut verðlaun fyrir bestu heimildarmyndina, Komunia. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fös 12/1 kl. 20:00 56. s Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas. Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas. Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas. Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Síðustu sýningar leikársins! Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Lau 13/1 kl. 20:00 2. s Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Mið 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 14/1 kl. 20:00 3. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s Fim 1/2 kl. 20:00 11. s Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Fös 2/2 kl. 20:00 12. s Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar. Medea (Nýja sviðið) Lau 13/1 kl. 20:00 Frum Mið 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 28/1 kl. 20:00 7. s Sun 14/1 kl. 20:00 2. s Fim 18/1 kl. 20:00 5. s Mið 31/1 kl. 20:00 8. s Þri 16/1 kl. 20:00 3. s Mið 24/1 kl. 20:00 6. s Ástir, svik og hefndarþorsti. Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 12/1 kl. 20:00 43. s Fim 18/1 kl. 20:00 45. s Lau 20/1 kl. 20:00 47. s Lau 13/1 kl. 20:00 44. s Fös 19/1 kl. 20:00 46. s Sun 28/1 kl. 20:00 48. s Draumur um eilífa ást Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 14/1 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 aukas. Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor. Skúmaskot (Litla sviðið) Lau 13/1 kl. 13:00 3. s Lau 20/1 kl. 13:00 5. s Lau 27/1 kl. 13:00 7. s Sun 14/1 kl. 13:00 4. s Sun 21/1 kl. 13:00 6. s Sun 28/1 kl. 13:00 8. s Búðu þig undir dularfullt ferðalag! Fjarskaland (Stóra sviðið) Lau 13/1 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00 Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Faðirinn (Kassinn) Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Hafið (Stóra sviðið) Lau 13/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 18/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Fös 12/1 kl. 19:30 16.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 12/1 kl. 20:00 Sun 21/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00 Fös 12/1 kl. 22:30 Fim 25/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 22:30 Lau 13/1 kl. 20:00 Fös 26/1 kl. 20:00 Fim 8/2 kl. 20:00 Lau 13/1 kl. 22:30 Fös 26/1 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 20:00 Sun 14/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 22:30 Fös 19/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 20:00 Fös 19/1 kl. 22:30 Fim 1/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 22:30 Lau 20/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 20:00 Lau 20/1 kl. 22:30 Fös 2/2 kl. 22:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Efi (Kassinn) Lau 13/1 kl. 19:30 Frum Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Sun 14/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 13.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 14/1 kl. 15:00 2.sýn Lau 20/1 kl. 15:00 4.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 6.sýn Lau 20/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 27/1 kl. 13:00 5.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Matur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.