Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 44

Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 44
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 12. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Banaslys á Suðurlandsvegi 2. Flutt á sjúkrahús eftir alvarlegt slys 3. Stormurinn í beinni 4. Sagði nauðgunina kannski hafa gert … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Manndráp á Íslandi er yfirskrift há- degiserindis Helga Gunnlaugssonar afbrotafræðings sem flutt verður í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag kl. 12. Erindið er flutt í tengslum við yfir- standandi sýningu safnsins, Mál 214, eftir Jack Latham sem fjallar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Í erindinu verður þróun manndrápa á Íslandi tekin fyrir og því lýst hvað einkennir þau almennt. Manndráp á Íslandi  Frjáls framlög nefnist tónleika- uppistand Kára Viðarssonar sem fram fer í Tjarnar- bíói í kvöld kl. 20.30. Kári lofar „sprenghlægi- legri, grátbros- legri og afkára- legri gleðistund“ þar sem hann opni „myndlíkingargluggann inn í sund- urslitið sálartetrið upp á gátt, lekur sínum leyndustu leyndarmálum og leikur leifturhress lög í fjölmörgum mismunandi tónlistarstílum“. Tónleikauppistand Kára í Tjarnarbíói  Þrjár íslenskar bækur rata inn á Heiðurslista alþjóðlegu IBBY- samtakanna 2018. Þetta eru Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur, Tvíburar takast á – stríðið er hafið eftir Hilmar Örn Ósk- arsson og Íslandsbók barnanna eftir Mar- gréti Tryggvadóttur og Lindu Ólafs- dóttur. Þrjár íslenskar bækur á Heiðurslista IBBY Á laugardag Suðvestan og sunnan 10-18 og skúrir eða él, en létt- skýjað norðaustantil. Slydda eða rigning syðra og vestra um kvöld- ið. Hiti 0-4 stig. Á sunnudag Allhvöss suðvestanátt og snjókoma í fyrstu, síðan él. Léttir til á Norðaustur- og Austurlandi síðdegis. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvöss sunnanátt og vætusamt, hiti 3 til 8 stig. Mikil úrkoma suðaustantil á landinu. VEÐUR „Auðvitað er þetta sérstakt. Athyglin á mig verður meiri vegna þess að ég er Íslend- ingur en að vinna fyrir sænska handbolta- sambandið. Mér finnst það ekki skrítið og reyni að svara þeim spurningum sem koma. Þegar leikurinn byrjar þá gildir að vinna,“ segir Kristján Andrésson, þjálfari Svía, sem mæta Ís- lendingum í fyrsta leik á EM í handbolta í dag. »1 Kristján er fyrsti mótherji Íslands Karlalandslið Íslands í knattspyrnu vann í gær sinn stærsta sigur á úti- velli frá upphafi þegar það sigraði Indónesíu, 6:0, í vináttulandsleik þjóðanna að við- stöddum 20 þús- und áhorf- endum í Yogyakarta. Sex leik- menn skor- uðu í leiknum og allir gerðu þeir sitt fyrsta mark fyrir A-landsliðið en einn þeirra var í hópi sex nýliða sem spiluðu sinn fyrsta landsleik. »4 Stærsti sigur Íslands á útivelli í sögunni Það var sannkölluð háspenna í báð- um undanúrslitaleikjum Maltbikars kvenna í körfubolta í Laugardalshöll- inni í gærkvöld. Að endingu varð þó ljóst að það verða ríkjandi meistarar Keflavíkur og Njarðvík sem mætast í Suðurnesjaslag í úrslitaleiknum á morgun. Njarðvík hefur ekki unnið leik í Dominos-deildinni í vetur en sló út Skallagrím. »2-3 Háspenna, lífshætta í Laugardalshöllinni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is ,,Ef ekkert verður að gert er hætta á að Íslendingar verði hvorki góðir í íslensku né ensku,“ segir Hafdís Ingvarsdóttir, ein höfunda og rit- stjóra bókarinnar Language Development across the Life Span. Hafdís segir bókina byggða á sjö ára rannsókn íslenskra fræðimanna á áhrifum ensku sem alþjóðlegs tungumáls hér á landi. Hafdís segir að rannsóknirnar nái aftur til ársins 2009 og markmiðið hafi verið að fá heildaryfirsýn yfir stöðu enskunnar á Íslandi, hversu mikið fólk notar hana, hvernig hún sé kennd og hver séu viðhorf barna, unglinga og fullorðinna til ensku. Einnig viðhorf háskólasamfélagsins og atvinnulífsins. „Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að Íslendingar væru svolítið eins og strúturinn. Enska hefur enn stöðu erlends tungumáls í námskrá, sem gengur ekki,“ segir Hafdís og bætir við að enska hafi enga form- lega stöðu í þjóðfélaginu þrátt fyrir mikla notkun og þá sérstaklega í há- skólum og atvinnulífinu. Íslenskar bókmenntir á ensku Hafdís segir að yfir 90% af öllu lesefni háskólans séu á ensku. Það sé meira að segja enskt lesefni í ís- lenskum bókmenntum og í mörgum deildum er kennsluefni 100% á ensku. Nemendur lesa námsefnið á ensku og er svo gert að skila því frá sér á íslensku. Verkefnin eru metin út frá því hvernig nemendur tjá sig á ís- lensku um það sem þeir lærðu á ensku. „Þetta fyrirkomulag einkennir Norðurlönd,“ segir Hafdís og bendir á að það þurfi að taka þetta fyrirkomulag til skoðunar. ,,Það er dulin áskorun til háskól- anna að horfast í augu við þetta og breyta áherslum í kennslu.“ Hafís segir að mýtan um hvað Ís- lendingar séu góðir í ensku standist ekki skoðun. ,,Við höfum 2.000 orða yfirborðs- enskuna en ekki 10.000 orða dýptina sem við þurfum virkilega á að halda.“ Hafdís segir að leggja verði meiri og markvissari áherslu á orðaforða til þess að styðja við íslenskuna. ,,Enskan kemur ekki til með að útrýma íslenskunni,“ segir Hafdís. Hún bendir á að nú sé kominn tími til þess að horfast í augu við vandann og bregðast við ef ekki eigi illa að fara. 90% námsefnis háskóla á ensku  Hvorki góð í íslensku né ensku  Auka orðaforða Ljósmynd/Valgerður Jónasdóttir Málþing Birna Arnbjörnsdóttir og Hafdís Ingvarsdóttir, ritstjórar Language Development across the Life Span. Er enska að taka yfir á Íslandi, nota börn ensku frekar en íslensku og eru Íslendingar góðir í ensku? Leitast verður við að svara þessum spurningum þegar útgáfu bókarinnar Language Development across the Life Span verður fagnað á málþingi í Veröld - húsi Vigdísar í dag kl. 16.00. Bókin er niðurstaða sjö ára rann- sókna íslenskra fræðimanna á áhrifum ensku sem alþjóðlegs tungumáls á Íslandi. Ritstjórar bók- arinnar eru Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor í annarsmálsfræðum, og Hafdís Ingvarsdóttir, prófessor i kennslufræðum erlendra tungu- mála. Aðrir sem tóku þátt í rann- sókn og skrifum bókarinnar eru Ás- rún Jóhannsdóttir, Guðmundur Edgarsson og dr. Anna Jeeves. Eru Íslendingar góðir í ensku? RANNSÓKNIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.