Morgunblaðið - 19.01.2018, Page 11

Morgunblaðið - 19.01.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 Hágæða umhverfisvænar hreinsivörur fyrir bílinn þinn Glansandi flottur Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Birgir Finnsson, aðstoðarslökkviliðs- stjóri Slökkviliðsins á höfuðborgar- svæðinu, segir stóraukna áherslu á al- menningssamgöngur við nýjan Landspítala geta reynst áskorun fyrir sjúkraflutninga í framtíðinni. Hann segir aðspurður að ef áform um stóraukna notkun almennings- samgangna ganga ekki upp geti það reynst áskorun fyrir slökkviliðið. Fækkun bílastæða sé liður í þessari stefnumótun borgaryfirvalda. „Við höfum lýst áhyggjum af því að ef þessi markmið ganga ekki eftir geti það haft áhrif á starfsemi okkar. Það geta orðið vand- ræði á svæðum eins og við Land- spítalann. Fólk finnur auðvitað leið til að leggja bílunum. Ein- hvers staðar þarf fólk að leggja,“ segir Birgir. Hann segir að- spurður að sjúkraflutningar á höfuðborgarsvæðinu séu að aukast. Með sameiningu stóru sjúkrahúsanna á Hringbraut muni sjúkraflutningum milli stofnana eitthvað fækka. Á móti komi til dæmis að hjúkrunarheimilum og öldruðum sé að fjölga og að eldra fólk búi lengur í heimahúsum. Fyrst og fremst 60 ára og eldri „Hópurinn sem nýtir þessa þjón- ustu er fyrst og fremst 60 ára og eldri. Fólki í þessum hópi fjölgar hraðar en í öðrum hópum. Sú fjölgun er m.a. lögð til grundvallar varðandi bygg- ingu nýs Landspítala.“ Spurður hvernig sjúkraflutningar til og frá Landspítalanum ganga núna, með hliðsjón af umferðinni, segir Birgir aksturinn taka sinn tíma, einkum á háannatíma. „Við erum ekki að fara þessa flutn- inga á forgangi. Þetta gengur rólega. Það þarf að gefa því þann tíma sem þarf. Við höfum fjölgað sjúkrabílum til að takast á við fjölgun ferða og að þær taka orðið lengri tíma.“ Erfiðara á annatíma Hann segir það sama gilda um bráðaflutninga á spítalana í Fossvogi og við Hringbraut. „Á annatíma eru sjúkraflutningar að sjálfsögðu erfiðari. Það gefur augaleið. Þegar bílarnir eru margir gengur umferðin hægar. Við höfum reynt að bregðast við því með ýmsum aðgerðum. Það er í undirbúningi að við fáum forgang á umferðarljós, græna bylgju, líkt og almenningssam- göngur, þegar við ökum á bláum ljós- um. Það mun hafa jákvæð áhrif. Sér- stakar akreinar fyrir strætisvagna hjálpa okkur líka mjög mikið og það er hluti af borgarlínunni að fjölga þeim og bæta tengingar milli hverfa,“ segir Birgir. Spurður hvort grípa þurfi til ein- hverra ráðstafana til að greiða fyrir umferð sjúkraflutningabíla, þegar bráðamóttaka fer úr Fossvogi á Hringbraut, segir Birgir slökkviliðið hafa tekið þátt í þeirri vinnu með nýja Landspítalanum. Forgangsakreinar fyrir sjúkrabíla innan spítalasvæðis- ins muni þar gegna lykilhlutverki. Fái græna bylgju við aksturinn „Aðkoman að spítalanum verður þannig að við nýtum forgangsakrein- ar strætisvagna og fáum græna bylgju með stýringu umferðarljósa þegar við nálgumst spítalann og svo sérakgrein fyrir bráðaflutninga á spítalasvæðinu,“ segir Birgir. Fjallað var um fjölda bílastæða við nýjan Landspítala í Morgunblaðinu í gær. Sagði meðal annars á forsíðu að samkvæmt rannsókn Kristins Jóns Eysteinssonar, skipulagsfræðings hjá Reykjavíkurborg, myndu verða bílastæði fyrir 40% starfsmanna nýja spítalans yfir daginn. Áður hafði verið fjallað um rann- sókn Kristins Jóns í Morgunblaðinu 12. janúar sl. Vitnað var til meistara- ritgerðar hans um málið. Sagði þar að „minnka gæti þurft hlutdeild þeirra sem koma á einkabílum niður í 33- 41%“. Hlutfall ferða á bíl var áætlað 33-37% eftir fyrsta áfanga nýs Land- spítala en 37-41% eftir seinni áfanga. Kristinn Jón skoðaði þar m.a. mögulega eftirspurn starfsfólks, nemenda og kennara eftir bílastæð- um, en ekki aðeins starfsfólks. Að því leyti gætti ónákvæmni í forsíðufrétt blaðsins í gær og í umfjöllun um sama atriði í fréttaskýringu á bls. 6. Jafnframt var vitnað til minnis- blaðs Landspítalans frá 2014 um að 75% starfsmanna kæmu oftast á bíl. Nákvæmara hefði verið að segja að 68% hefðu oftast ferðast á bíl og 7% oftast á bíl með öðrum bílstjóra. Yfirlýsing frá Landspítalanum Vegna umfjöllunar Morgunblaðs- ins um þessi mál barst yfirlýsing frá Landspítalanum um málið. Kom þar fram að við Hringbraut starfi nú um 2.700 manns og 1.900 í Fossvogi. Milli 8-16 starfi hins vegar 1.500 manns við Hringbraut og 700 í Fossvogi, alls um 2.200 manns. „Í augnablikinu er gert ráð fyrir 1.600 bílastæðum í framtíðinni hjá Landspítala við Hringbraut. Ef 2.200 manns myndu koma til vinnu á einka- bílum, þá fengju 73% þeirra bílastæði. Tölfræði frá árinu 2014 sýnir hins vegar að 75% starfsfólks Landspítala ferðuðust þá oftast með bíl til vinnu. Sú tala var komin niður í 63% árið 2016 samkvæmt ferðavenjukönnun Landspítala þá. Næsta mæling verð- ur gerð í mars 2018. Af þessu leiðir að ef 63 prósent af áætluðum 2.200 starfsmönnum Landspítala við Hringbraut í framtíðinni mæta til vinnu á bíl, þá eru það 1.400 manns og hafa til ráðstöfunar um 1.600 stæði,“ sagði meðal annars í yfirlýsingunni. Í kjölfar hennar sendi Morgunblað- ið fyrirspurn til spítalans um bíla- stæðaþörf sjúklinga og gesta við nýj- an Landspítala. Svarið er í vinnslu. Fram kom í ritgerð Kristins Jóns 2013 að 1.130 stæði voru þá í boði inn- an lóðar Landspítala við Hringbraut, þar af 155 gjaldskyld. Auk bílastæða starfsmanna við Eiríksgötu 5 og um- liggjandi stæða væru stæðin alls 1.310. Þá væru stæði í íbúðagötum. Gæti tafið sjúkrabíla við spítalann  Aðstoðarslökkviliðsstjóri bendir á áhættuna af því ef áform um stóraukna notkun strætós rætast ekki  Það geti skapað vandamál við Landspítalann  Starfsmenn nýs spítala verða hvattir til að taka strætó Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Breytingar Gríðarleg uppbygging er fyrirhuguð við Landspítalann á næstu árum. Höfuðstöðvar slökkviliðsins eru skammt frá spítalasvæðinu. Birgir Finnsson Gestur Ólafs- son, arkitekt og skipulags- fræðingur, tel- ur óraunhæft að draga úr hlutdeild bíl- ferða í sam- göngum á höfuðborgar- svæðinu úr 75% nú í 58% árið 2030. Haft var Þorsteini R. Her- mannssyni, samgöngustjóra Reykjavíkur, í Morgunblaðinu í gær að horft væri til þessa markmiðs við hönnun umferð- armannvirkja við nýjan Land- spítala. Ætlunin væri að auka notkun almenningssamgangna. Fram hefur komið í skýrslum ráðgjafarfyrirtækisins COWI vegna borgarlínu að hamlandi aðgerðir séu nauðsynlegar til að tryggja árangur hágæða- kerfis almenningssamgangna. Gestur, sem hefur tekið þátt í störfum samtakanna Betri spítala, gagnrýnir þessa stefnu. „Reynslan sýnir að það er mjög varhugavert að þvinga fólk til þess að breyta ferða- venjum sínum og oft heldur ekki æskilegt. Ef starfsmenn LSH og sjúklingar geta ekki lagt bílum sínum á lóð spít- alans má búast við miklum mótmælum ef þeir fara að leggja bílum sínum á aðliggj- andi svæðum,“ segir Gestur, sem telur rétt að endurskoða áform um nýjan Landspítala meðal annars m.t.t. umferðar- mála. Varhugavert að þvinga GAGNRÝNI ARKITEKTS Gestur Ólafsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.