Morgunblaðið - 19.01.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.01.2018, Qupperneq 16
● Björgvin Ingi Ólafsson, yfir- maður stefnu- mótunar og mark- aðsmála hjá Íslandsbanka, lét af störfum hjá bankanum í gær að eigin ósk. Þetta staðfestir Edda Her- mannsdóttir, sam- skiptastjóri Íslandsbanka. Hún segir að ekki verði ráðið í hans stað. Þær einingar sem heyrðu undir hann, greining, markaðsmál og stefnumót- un, muni heyra áfram undir skrif- stofu bankastjóra. Björgvin Ingi hættur Björgvin Ingi Ólafsson 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Með free@home hefur aldrei verið auðveldara og hagstæðara að stjórna heimilinu, sumarbústaðnum eða fyrirtækinu. Ertu að byggja, breyta eða bæta? Endilega kynntu þér málið. Snjalllausnir – nútíma raflögn 19. janúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 102.7 103.2 102.95 Sterlingspund 141.7 142.38 142.04 Kanadadalur 82.55 83.03 82.79 Dönsk króna 16.863 16.961 16.912 Norsk króna 13.035 13.111 13.073 Sænsk króna 12.75 12.824 12.787 Svissn. franki 106.62 107.22 106.92 Japanskt jen 0.9274 0.9328 0.9301 SDR 147.79 148.67 148.23 Evra 125.6 126.3 125.95 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.9051 Hrávöruverð Gull 1329.75 ($/únsa) Ál 2186.5 ($/tonn) LME Hráolía 69.35 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á STUTT BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Ísland hefur árum saman glímt við þann vanda að framleiðni vinnuafls er almennt lág í alþjóðlegum saman- burði. Sjávarútvegur er eini atvinnu- vegurinn sem skarar framúr á þenn- an mælikvarða. „Þetta lýsir vandamáli en er í leiðinni gullið tækifæri til að auka efnahags- lega velmegun hér á landi,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðar- ins. „Ekki síst í ljósi þess að við erum með fullt at- vinnustig og erum að leita leiða til að knýja áfram hagvöxt án þess að skapa meiri þenslu. Hið eiginlega markmið með því að auka framleiðni er að skapa grundvöll fyrir aukna vel- megun í landinu.“ Fram kom í ViðskiptaMogga í gær að framleiðni vinnuafls væri mun lak- ari hér á landi í helstu atvinnugrein- um en annars staðar á Norðurlönd- um, nema í sjávarútvegi auk raforku- og vatnsframleiðslu, sem er á pari. Að meðaltali er framleiðnin 22% lak- ari en annars staðar á Norðurlönd- um. Margt sem við getum gert Ingólfur segir að hluta þess að framleiðni vinnuafls sé minni hér- lendis megi rekja til þess að mark- aðurinn sé smár og byggðin dreifð sem leiði til óhagkvæmni í rekstri. „En það er margt sem við getum bætt til að auka framleiðni vinnuafls: Stöðugra starfsumhverfi fyrir fyrir- tæki leiðir til aukinna fjárfestinga í hagkvæmni, bæta má menntakerfið svo það styðji betur við þarfir at- vinnulífsins, efla þarf nýsköpun til að tryggja framleiðnivöxt og að gæta þess að innviðir séu traustir, hag- kvæmir og skilvirkir. Rannsóknir sýna að þessir þættir leiða til bættrar framleiðni og þannig ekki að ástæðu- lausu að Samtök iðnaðarins leggja sérstaka áherslu á þá,“ segir hann. Stöðugleiki lykilatriði Almennur og víðtækur stöðugleiki er einn af lykilþáttum þess að stuðla að aukinni framleiðni, að sögn Ing- ólfs. „Það nægir ekki að verðbólga sé lág og í kringum markmið Seðla- bankans heldur þarf að ríkja stöðug- leiki í þróun gengis krónu, launakjör- um og regluverki svo dæmi sé tekið. Ef þessi skilyrði eru ekki fyrir hendi treysta stjórnendur fyrirtækja sér síður til þess að fjárfesta í atvinnu- tækjum og öðrum þáttum sem aukið geta framleiðni til framtíðar vegna óvissu og halda að sér höndum.“ Ingólfur vekur athygli á að Ísland sé eftirbátur annarra ríkja í fjárfest- ingum til rannsókna og þróunar sé litið til hlutfalls af landsframleiðslu. „Hvatar til rannsókna og þróunar eru í mörgum löndum meiri en hér. Gæta þarf að samkeppnisstöðu landsins hvað það varðar. Slíkt hefur beina skírskotun í framleiðnivöxt og aukin lífsgæði. Samtök iðnaðarins hafa tal- að fyrir því að þak á endurgreiðslur vegna þróunarstarfs verði afnumið.“ Gullið tækifæri til að auka velmegun Morgunblaðið/Golli Stöðugleiki Víðtækur stöðugleiki er einn af lykilþáttum þess að stuðla að aukinni framleiðni, að sögn Ingólfs Bender, aðalhagfræðings SI.  Framleiðni vinnuafls hefur lengi verið lakari hérlendis Ingólfur Bender um Mastercard Maestro-kortum yfir í Debet Mastercard. Þau eru líkari kreditkortum að því leyti að framan á Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Á meðan kortanotkun Íslendinga vex nokkuð stöðugt og nam tæpum 4,6% í fyrra hefur hrein sprenging orðið í notkun íslenskra debetkorta erlendis. Nam aukningin í þeirri tegund korta tæpum 55% í fyrra. Mest varð aukn- ingin í apríl þegar hún jókst um 86% frá sama mánuði árið 2016. Minnst varð aukningin hins vegar í mars þeg- ar hún nam 22% milli ára. Í heildina straujuðu handhafar íslenskra debet- korta þau fyrir tæpa 4,5 milljarða er- lendis í fyrra. árið áður nam fjárhæð- in tæpum 2,9 milljörðum króna. Sérfræðingur segir að aukningin komi bæði fram í verslunum erlendis og í vefverslun. „Við sáum þessa aukningu koma fram þegar við skiptum úr svokölluð- þeim er fullt kortanúmer ásamt CVC- öryggisnúmeri. Á sama tíma og unga fólkið nýtir sér þessa tækni sjáum við sífellt fleiri nýta sér þessi kort erlendis. Það eru miklu fleiri verslanir um heiminn sem taka við þessum debetkortum en Ma- estro-kortunum. Fólk er jafnt og þétt að átta sig á því að það er hægt að nota debetkortin erlendis,“ segir Bjarki Már Flosason, þróunarstjóri greiðslulausna hjá Íslandsbanka. Þegar rýnt er í tölur yfir greiðslu- miðlun sem Seðlabanki Íslands held- ur utan um sést að á meðan spreng- ingin varð í notkun debetkortanna erlendis jókst heildarnotkun þeirra innanlands um 5,5% frá fyrra ári. Enn minni er aukningin í heildarveltu kreditkorta innanlands. Nam hún samkvæmt sömu tölum 2,1% á ný- liðnu ári. Debetkortin straujuð  Notkun íslenskra debetkorta erlendis jókst um 86% í apríl  Notkun kreditkorta erlendis jókst um tæp 11% í fyrra Velta íslenskra debetkorta erlendis Milljarðar króna Heimild: Seðlabanki Íslands 2015 2016 2017 21,8 28,1 43 ● Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast vegna kaupa Sjávargrundar ehf. á öllu hlutafé í hreinlætisfyrirtækinu Tandri hf. Eins og segir í ákvörðun eftirlitsins á heimasíðu þess þá felst starfsemi Tandurs í innflutningi, framleiðslu, sölu og dreifingu á hreinlætisvörum til fyrirtækja og stofnana um land allt. Sjávargrund er að 80% hluta í eigu Sjávarsýnar, fjárfestingarfélags Bjarna Ármannssonar fjárfestis, og að 20% hluta í eigu Svansgrundar, að því er fram kemur á heimasíð- unni. Velta Tandurs nam um 1,5 millj- örðum króna árið 2016. Aðhafast ekki vegna kaupa á Tandri hf. Allt um sjávarútveg Halldór Benja- mín Þorbergs- son, fram- kvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir í samtali við Morgun- blaðið að erfitt sé að ná mjög miklum fram- leiðnistökkum. „Framleiðni eykst hægum og jöfnum skrefum yfir lengra tíma- bil þegar þúsundir og tugþús- undir starfsmanna öðlast reynslu og aukna færni í þeim störfum sem þeir sinna. Ekki t.d. með styttri vinnuviku. Fram- undan eru miklar tæknibreyt- ingar sem munu halda áfram að valda miklum framleiðnibreyt- ingum innan einstakra atvinnu- greina með aukinni sjálf- virknivæðingu. Við eigum að taka þessum breytingum fagn- andi og leggja okkur í líma við að flýta þeim.“ Eykst hægum skrefum ERFITT AÐ NÁ STÓRUM STÖKKUM Í FRAMLEIÐNI Halldór Benjamín Þorbergsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.