Morgunblaðið - 19.01.2018, Page 19

Morgunblaðið - 19.01.2018, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 Viðra sig Frostið kemur ekki í veg fyrir að fólk fari út með hunda sína, enda kunna ferfætlingarnir afskaplega vel við að fá að spígspora útivið, eins og þessi káti hvutti við Gróttu í gær. Eggert Í liðinni viku hef ég oft verið spurður hvaða brölt sé í mér að fara að eltast við borgarmál. Því er til að svara að ég hef alltaf haft áhuga á borgarmálum, að segja má frá fæðingu. Fyrstu ár ævi minnar bjó ég í einu helsta kennileiti í Reykjavík, í fjölbýlis- húsinu á horni Löngu- hlíðar og Miklubrautar, við Klambratúnið. Þar varð ég vitni að upphafi einnar merkustu fram- kvæmdar borgarinnar þegar Mikla- brautin var grafin upp og lögð undir hana jarðvegsþétting. Ég var senni- lega 4 ára þegar framkvæmdir hóf- ust og þeim lauk þegar ég var rétt innan við tvítugt þegar Elliðaár- brekkan var lögð að nýju. Svo flutti ég ofar í Hlíðarnar, sem næst í „kál- garðana“, og horfði á byggðina þétt- ast og síðasta búskapinn leggjast af. Málefni höfuðborgarinnar hafa verið mér hugleikin hvar sem ég hef búið, hvort heldur ég hef búið í Reykjavík, Vestmannaeyjum, í Garðabæ eða í sveit á Djúpavogi og í námi í Bandaríkjunum, þar sem ég upplifði mjög sérstakan borgar- vanda. Sú reynsla sem ég öðlaðist sem ungur drengur í litlu sjávarþorpi austur á landi hefur reynst mér dýr- mæt við að móta afstöðu til þess lífs sem lifað er í landinu. Það jók á reynsluna þegar ég starfaði í Út- vegsbankanum í Vestmannaeyjum, eftir að hafa unnið í frystihúsi Ís- félagsins í Vestmannaeyjum á ung- lingsárum. Við námið í Bandaríkjunum bjó ég í borg í hnignun og niðurníðslu, rétt fyrir sunnan New York, sem næst við nafla alþjóðafjár- mála. Borgin, sem er hið ákjósanlegasta upp- byggingarsvæði er enn í niðurníðslu vegna skorts á forystu. Ég hef áhuga á að nýta þessa reynslu mína og bjóða Reykvík- ingum upp á starfs- krafta mína við að byggja upp betri borg í anda þeirra hugmynda sem ég er með og að sjálfsögðu stefnumála Sjálfstæðisflokksins. Borgin hefur staðnað og ekki verið það forystuafl sem hún þarf að vera á höfuðborgarsvæðinu. Rekstur borgar á ekki að vera vandamál, heldur áhugavert við- fangsefni. Ef ekki er unnið markvisst að mikilvægustu stefnumálunum og horft fram í tímann, verða til vanda- mál. Á undanförnum 20 árum hafa hrannast upp vandamál. Hver eru viðfangsefnin? Það er enginn skortur á viðfangs- efnum í nærumhverfi borgar. Það eru einnig skyldur sem hvíla á höf- uðborg. Skyldur höfuðborgar eru við stjórnsýslu, heilbrigðismál, mennt- un, menningu, vísindi og listir. En fyrst og fremst eru skyldurnar við þarfir íbúa borgarinnar. Þarfirnar eru af ýmsum toga. Sumt er aldurs- tengt, annað er almennt. Borgin Reykjavík hefur tækifæri og efni til að rækja skyldur sveitarfélags mun betur en lítil sveitarfélög. Hvert aldursskeið hefur sínar þarfir, auk þess sem heildarhags- munir hljóta alltaf að ráða för. Úr- lausn sérhagsmuna er alltaf á kostn- að annarra. Þegar spurt er, hvað ætlar þú að gera fyrir gamla fólkið? þá liggur nærri að svara að allt, sem gert verður, verði gert á kostnað unga fólksins. Hvað er brýnast? Húsnæðismál eru velferðarmál og spurning um lífsgæði fólks. Húsnæð- ismálin hafa verið vanrækt og snúast að stórum hluta um skortstefnu nú- verandi stjórnenda borgarinnar. Borgin hefur misst unga fólkið til ná- grannasveitarfélaganna og einnig mörg stór og öflug atvinnufyrirtæki. Stjórnkerfið og pólitíska kerfið hefur verið of upptekið af „þéttingu byggð- ar“ verkefnum. Það er alveg ljóst að á næstu árum verður veruleg fólks- fjölgun á höfuðborgarsvæðinu. Sú fjölgun er bæði náttúruleg og með aðflutningi, íbúa vantar um 14 þúsund nýjar íbúðir! Lausnin fæst ekki með aukn- um lánum. Auknar lánveitingar hækka aðeins íbúðaverð. Hvernig á að takast á við 30 þúsund nýja íbúa á höfuðborgarsvæðið á næstu 15 ár- um? Það hækkar aðeins verð á íbúð- arhúsnæði ef ekki er byggt til að mæta þörfum fyrir þessa fjölgun íbúa. Burðarás í menningu og listum Reykjavík er höfuðborg landsins og í raun burðarás menningar- og listalífs í landinu. Menningartengd ferðaþjónusta er vannýtt tækifæri enda eigum við listamenn á sviði fjöl- margra listgreina, t.d. bókmennta, tónlistar, málaralistar og kvik- myndagerðar svo dæmi séu nefnd. Fyrir ferðamenn er gaman að geta notið þessa afreksfólks á heimaslóð og kynnst því betur. Tækifæri í menningu og listum eru ekki nýtt nægilega vel borginni til framdráttar. Reykjavíkurborg hefur t.d. ekki lagt næga áherslu á stuðn- ing við Listaháskólann við að leysa húsnæðisvanda skólans. Velferðarmál Félagsleg vandamál hafa sprottið upp af nýjum toga. Fjölgun öryrkja, einkum geðfatlaðra og önnur félags- leg vandamál eru borginni og þjóð- inni dýr. Taka þarf á rót vandans sem m.a. tengist skólakerfinu í brott- falli nemenda. Það þarf að efla forvarnir og að- stoða fólk til sjálfsbjargar. Leggja þarf áherslu á margvíslega endur- hæfingu bæði þeirra sem hafa skerta starfsgetu vegna örorku og einnig eldri borgara til að auka lífsgæði þeirra og þátttöku í daglegu lífi og starfi. Borgin á að sinna málefnum fatlaðra mjög vel, bæði hvað varðar þjónustu t.d. núna á sviði notenda- stýrðrar persónulegrar aðstoðar – NPA, ferðaþjónustu fatlaðra og fleiri þátta. Landspítali og heilsugæsla Landspítali háskólasjúkrahús á að vera þar sem hann er við Hringbraut og byggja skal áfram þar upp í sam- ræmi við stefnu Alþingis, samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar. Alls ekki á að breyta þeim áformum, sem núna eru í gangi, heldur þarf Reykjavíkurborg að leysa umferðarvandamálin. Það þarf að gera það hvort sem Landspít- ali er við Hringbraut eða eitthvað annað á því svæði. Huga þarf að staðarvali og þarfa- greiningu fyrir nýja spítalabyggingu á höfuðborgarsvæðinu sem byggð yrði á næstu áratugum. Það er bæði öryggismál að vera ekki með alla sjúkrahússtarfsemi Íslendinga í einni byggingu og einnig er þörf fyrir annað sjúkrahús á næstu áratugum vegna stækkunar höfuðborgarsvæð- isins. Borgin á að hafa frumkvæði að því hvernig nýta skal Landspítalann í Fossvogi (gamla Borgarspítalann) og lóðina umhverfis. Sjálfstætt starfandi heilsugæsla og önnur heilbrigðisþjónustu hefur reynst Reykvíkingum vel m.a. í nýrri heilsugæslustöð, Höfða, á síðasta ári. Það er sérstaklega mikilvægt til að bæta þjónustu og ekki síður fjölga atvinnutækifærum í greininni að efla sjálfstætt starfandi heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu ef það er neyt- endum til hagsbóta. Stefnumótun til framtíðar Uppbygging og stefnumótun til lengri framtíðar er nokkuð sem ég vil leggja meiri áherslu á. Það vantar al- gjörlega málefnasvið hjá borginni sem horfir til lengri tíma hvað varðar þróun borgarinnar. Allt of oft virðist vera skortur á langtíma hugsun hvað það varðar. Borgin stundar mikinn fjandskap við íbúa sína þegar viðburðir eru í Laugardalnum. Þá er brugðist við bílastæðavanda með sektar- greiðslum! Er það úrlausn á vanda? Vísir að langtímahugsun er í til- teknum verkefnum en ekki hvað varðar borgina í heild og einstaka málflokka hennar. Lóðaskortur, van- ræksla við að þjóna íbúum og at- vinnufyrirtækjum, vanræksla við þróun verslunar, t.d. við Laugaveg, og fjandskapur við flugvöll eru örfá dæmi um ráðaleysið. Það skortir stefnufestu og að fylgja eftir málum á skilvirkan hátt. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Borgin stundar mik- inn fjandskap við íbúa sína þegar við- burðir eru í Laugar- dalnum. Þá er brugðist við bílastæðavanda með sektargreiðslum! Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Brölt í borgarmál

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.