Morgunblaðið - 19.01.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 19.01.2018, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 ✝ Sigríður Árna-dóttir fæddist í Keflavík 28. júní 1943. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 7. jan- úar 2018. Foreldrar hennar voru Þuríður Hall- dórsdóttir, f. 29. maí 1920, d. 6. febrúar 2011, og Árni Bjarn- mundur Árnason, f. 4. maí 1919, d. 11. janúar 1972. Systkini Sigríðar eru Árni Vig- fús, f. 1942, d. 1991, Magnús, f. 1947, Birgir, f. 1956, og Bjarn- hildur Helga, f. 1958. Sigríður var gift Hjörleifi Ing- ólfssyni, f. 1940, d. 2006. Þau skildu. Börn Sigríðar eru: 1) Arna Björk Hjörleifsdóttir, f. 8. 1997. 3) Árni Jakob Hjörleifsson, f. 11. október 1974, d. 28. febrúar 2009. Kona hans var Geirþrúður Ósk Geirsdóttir, f. 10. febrúar 1977. Sonur þeirra var Kristófer Örn, f. 19. júlí 1996, d. 19. júlí 2014. Sigríður bjó í Keflavík alla sína ævi. Hún gekk í Barnaskóla Keflavíkur og Gagnfræðaskóla Keflavíkur. Hún útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1964 og starfaði við hjúkrun það sem eftir var starfsævinnar. Hún var skólahjúkrunarfræðingur í Kefla- vík um árabil, starfaði við Sjúkra- hús Keflavíkur og sem deildar- stjóri á hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Sigríður var félagi í Soroptim- istaklúbbi Keflavíkur og starfaði þar í stjórn og nefndum. Hún var í stjórn Styrktarfélags Sjúkra- húss Keflavíkur og í Suðurnesja- deild hjúkrunarfræðinga. Útför Sigríðar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 19. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. september 1965, d. 31. desember 2013. Hún giftist Högna Sturlusyni, þau skildu. Synir Örnu eru Magnús Ingi Gunnlaugsson, f. 1988, og Hjörleifur Svavar Högnason, f. 1991. Kona hans er Lilja Ósk Trausta- dóttir, f. 25. mars 1994, og eiga þau eina dóttur, Evu Dögg, f. 21. maí 2015. 2) Ingvi Þór Sigríðarson, f. 9. janúar 1971. Faðir hans er Ey- þór Stefánsson, f. 7. nóvember 1939. Kona Ingva Þórs er Aðal- heiður Ósk Gunnarsdóttir, f. 19. desember 1967. Börn þeirra eru Kristjana Vigdís, f. 29. apríl 1993, og Arnþór Ingi, f. 16. janúar Elskuleg móðir mín kvaddi okkur eins og hún hafði óskað sér á Sjúkrahúsi Keflavíkur eftir stutt veikindi, þar sem allir hugs- uðu einstaklega fallega og fag- lega um hana. Henni þótti líka mjög gott að það var hægt að tölta yfir Mangatún, beint heim í Veghúsin. Mamma var, að ég tel, ein af þessum sterku, stoltu og sjálf- stæðu konum. Hún var hjúkrun- arfræðingur af lífi og sál, að- hlynning hvers konar átti hug hennar allan. Eftir skilnaðinn var oft þröngt í búi, en hún notaði sumarfríin til að vinna, til dæmis á sjúkrahúsinu á Blönduósi og hjúkrunarheimilinu Skjóli, kall- aði það að stoppa í fjárlagagötin. Verandi þessi stolti og sjálfstæði einstaklingur náði hún smám saman sæmilegu jafnvægi á þau mál. Ég spurði hana einhvern tímann að því hvort hún ætlaði ekki að finna sér mann til að deila lífinu með, hún sagðist ekki nenna að standa í því að tína upp óhrein nærföt og sokka eftir ein- hvern kall, eða elda á ákveðnum tímum. Heldur vildi hún njóta frelsisins, ferðast og ráða sér sjálf, ekki láta segja sér fyrir verkum. Hún var dugleg að skreppa í heimsóknir á Horna- fjörð og til Þýskalands, skellti sér á vélsleða eða línuskauta, hún var alltaf til í að prufa og njóta lífsins. Henni fannst gaman að ferðast erlendis í sólina og fóru Siggurn- ar oftast saman, hún og Sigga Ey. Það er misjafnt hvað við sinn- um því að fylgjast með fólkinu okkar en mamma var að skreppa í heimsóknir og reyndi að fylgjast vel með öllu fólkinu sínu. Sam- heldni hollsystra hennar og hjálpsemi er aðdáunarverð. Hún átti margar góðar vinkonur. Í lífi allra skiptast á skin og skúrir, oft var glatt á hjalla hjá öllum hópnum hennar, mikið líf og fjör. Að eðlisfari var mamma lífsglöð og félagslynd, en það reyndi verulega á að halda í gleðina síðustu árin. Hún missti Árna Jakob son sinn og svo seinna Örnu Björk dóttur sína. Á þessum tíma kom styrkur hennar vel í ljós og yfirvegun en eins og allir vita sem misst hafa börnin sín verður breyting innra með þeim. Smám saman púslaði hún sér saman, ákveðin í að halda áfram, en þegar Kristófer Örn, sonur Árna Jakobs, féll einnig fyrir eigin hendi brast eitthvað innra með henni sem hún réði ekki við, tárin bara komu. En þrátt fyrir allt langaði hana að lifa og njóta þess að sjá fólkið sitt vaxa og dafna. Það er stutt síðan ég kom að henni við eldhúsborðið og tárin streymdu niður. Ég spurði hana hvort hún væri að gráta vegna þess að hún væri að deyja. Já, sagði hún, yfir eðlileg- asta hlut í heimi. Hann er bara óvelkominn núna, svaraði ég. Hún játti því. Það er alltaf eitt- hvað að lifa fyrir, þrátt fyrir allt missti hún aldrei löngunina til að fylgjast með fólkinu sínu í leik og starfi. Á sjúkrahúsinu tók hún alltaf á móti mér með bros á vör og heilsaði: Hæ elskan. Ég sagði eitt sinn við hana að hún væri alltaf brosandi, hún svaraði því til að það væri svo miklu léttara. Eitt sinn, þegar við vorum guttar, vorum við á leið norður til Helgu og Helga, ég, Addi og mamma. Á undan okkur var bíll sem keyrði allt of hægt fyrir okk- ur bræðurna. Mamma tók fram úr og þegar við fórum framhjá bílnum sögðum við báðir: Vissum það, það er kelling að keyra (þetta var reyndar ung kona, lík- lega 25 ára), en mamma var töff- ari, aldrei kelling. Brosum, það er svo miklu létt- ara. Ég þakka móður minni allt. Ingvi Þór Sigríðarson, Veghúsum. Ég hefði viljað hafa tengda- móður mína hjá okkur lengur en fæ víst engu ráðið um það. Þegar við keyptum Veghús fyrir rúmum þremur árum buðum við henni að flytja þangað með okkur. Hún var búin að ganga í gegnum mjög erfiða tíma, missa tvö af börnun- um sínum, Örnu Björk og Árna Jakob, og sonarson sinn, Krist- ófer Örn. Okkur fannst hún þurfa á því að halda að vera meira með fjölskyldunni. Hún þurfti ekki langan umhugsunarfrest og ákvað að láta slag standa. Sigga var mjög ánægð með að húsið sem langafi hennar og afi byggðu væri komið aftur í eigu fjölskyldu hennar og fannst gaman að fylgj- ast með þeim endurbótum sem við höfum gert á húsinu. Hún mundi eftir sér sem barn í Veg- húsum þegar afi hennar og amma bjuggu þar. Margir voru hissa á því að hún byggi þarna með okk- ur og ég var stundum spurð að því hvernig það gengi. Ég svaraði því, sannleikanum samkvæmt, að það gengi mjög vel. Sigga var yndisleg kona og okkur kom mjög vel saman. Hún fullvissaði mig um að henni liði vel og væri alsæl með að búa hjá okkur. Okkur Ingva og krökkunum okk- ar fannst líka gott að hafa hana hjá okkur. Sigga var sterk og sjálfstæð kona sem vildi þó alltaf halda í kvenleikann. Hún var jákvæð og glaðlynd að eðlisfari og reyndi alltaf að sjá það jákvæða í lífinu þó hún hafi gengið í gegnum erf- iða tíma. Húmorinn var til staðar fram á það síðasta. Ég þakka fyrir að hafa fengið að vera samferða Siggu. Megi ljós eilífðarinnar lýsa henni. Aðalheiður Ósk Gunn- arsdóttir, Veghúsum. Frænka mín, Sigríður Árna- dóttir hjúkrunarfræðingur, er fallin frá 74 ára að aldri. Fráfall hennar beinir huganum áratugi aftur í tímann að hópi okkar frændsystkina, barna systkin- anna frá Veghúsum við Suður- götu í Keflavík um miðja síðustu öld. Við vorum á áþekkum aldri og hefur tíminn þegar höggvið stór skörð í hópinn. Nálægðin, samheldni og samgangur fjöl- skyldnanna var mikill með Suðurgötuna og Veghús sem segul. Afi Árni Vigfús smíðaði báta í Veghúsum og þar var alltaf eitthvað að gerast og gaman fyrir okkur að sniglast þar um, fylgjast með, hlusta, spjalla og taka nokk- urn þátt. Umhverfið og þessi tími lifir í minningunni. Sigríður lærði hjúkrun og starfaði víða á heilbrigðisstofnun- um og við skólahjúkrun. Hún festi rætur í Keflavík með fjöl- skyldu sinni. En mikil áföll steðj- uðu að og lífið tók sinn toll í sár- um ástvinamissi, tveggja barna og barnabarns, einnig föður og eldri bróður á góðum aldri. Frænka bjó yfir dýrmætum eðliskostum, æðruleysi, yfirveg- un og jákvæðni. Hún fékk grein- ingu alvarlegs sjúkdóms fyrir um tveimur mánuðum og brást við af mikilli yfirvegun og tók sínar ákvarðanir. Hún naut umönnun- ar á Sjúkrahúsinu í Keflavík og heimahjúkrunar í Veghúsum, með stuðningi og umhyggju son- arfjölskyldu sinnar. En Veghús hafði hún eignast ásamt Yngva syni sínum og fjölskyldu hans fyrir nokkrum árum. Veghús voru henni áhuga- og metnaðarmál og hún naut þess að eiga þar heima. Eftirminnilegt og þakklátt var að koma þar og rifja upp gamla tíma, sameiginlega reynslu og kynnast áhuga frænku, vangaveltum, innlifun í umhverfið við Suðurgötuna og næmleika á það sem hefði mátt fara betur í seinni tíð. Við Helga Hrönn sendum Yngva, Aðalheiði, barnabörnum Sigríðar og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Stefán Bergmann. Sigríður Árnadóttir, skóla- systir okkar úr Hjúkrunarskóla Íslands, lést 7. janúar síðastliðinn Sigríður Árnadóttir ✝ Jón Steinarfæddist 31. desember 1947 í Reykjavík. Hann lést á líknardeild Øya Helsehus í Þrándheimi í Nor- egi 9. janúar 2018. Foreldrar hans voru Guðmundur Hansson versl- unarmaður, f. 17.6. 1920, d. 3.3. 1989, og Sigríður Axelsdóttir hús- móðir, f. 21.12. 1922, d. 16.6. 1995. Systkini hans eru Gunnar Sverrir, f. 11.5. 1951, María Helga, f. 14.11. 1953, og Anna Sigríður, f. 12.11. 1959. Hinn 23. júní 1971 kvæntist hann Sigrúnu Guðmundsdóttur, f. 4.11. 1947, d. 28.6. 2003. Hún var prófessor í uppeldisfræði við NTNU í Þrándheimi. For- eldrar hennar voru Guðmundur Pétursson vélstjóri, f. 26.2. 1917, d. 16.5. 1960, og Jóhanna Magnúsína Guðjónsdóttir hús- Birmingham árið 1977. Hann starfaði við rannsóknir hjá Orkustofnun 1977-1981 og var yfirmaður jarðhitadeildar Stan- ford-háskóla í Kaliforníu í Bandaríkjunum 1981-1985. Ár- in 1982-1985 var hann dósent við skólann. Árin 1986-1989 var Jón Steinar skólastjóri Jarð- hitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Árið 1989 flutti Jón Steinar ásamt konu sinni Sig- rúnu og börnum til Þrándheims í Noregi. Þar tók hann við stöðu dósents í olíuverkfræði við NTNU og var þar prófessor 1991 til 2014 er hann fór á eftirlaun. Jón Steinar gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir utan vinnu og fjölskyldu. Hann stofnaði Þrándheimsdeild Sam- taka olíuverkfræðinga (SPE) og varð seinna heiðursfélagi þar. Hann var líka félagi í Norsku tækni- og vísindaakademíunni (NTVA). Þá sat hann í bæjar- stjórn Þrándheims fyrir Hægri flokkinn 2003 til 2010. Árið 2002 varð hann félagi í Saltfisksklúbbnum í Þránd- heimi. Útför Jón Steinars fer fram frá Svanholm Serimonirom í Þrándheimi í dag, 19. janúar 2018, klukkan 11. móðir, f. 6.9. 1923. Synir Sigrúnar og Jóns Steinars eru tveir; Guð- mundur Steinar verkfræðingur, f 23.1. 1975, og Magnús Ari verk- fræðingur, f. 20.1. 1978. Sambýlis- kona Magnúsar er Ina-Terese Lundr- ing læknir, f. 28.2. 1986. Jón Steinar kvæntist aftur 30. maí 2009. Síðari kona hans heitir Rigmor Kvarme, f. 9.10. 1957. Dóttir hennar frá fyrra sambandi er Kine Kvarme Tørring, f. 23.8. 1984. Maður Kine er Ståle Kvarme Tørring, f. 16.6. 1981. Saman eiga þau tvö börn; Vilja, f. 1.10. 2008, og Indie, f. 30.5. 2016. Jón Steinar útskrifaðist frá Heriott-Watt háskólanum í Skotlandi med BSc. í efnaverk- fræði og með doktorsgráðu í sömu grein frá Háskólanum í Elsku pabbi. Þú lifðir í 70 ár og níu daga. Það var of skammur tími. Þú vannst hins vegar vel úr honum og komst miklu í verk. Nú þegar ég lít um öxl kemur fyrst upp í hugann hvernig þú varst sem faðir. Þú varst alltaf nálægur og alltaf til staðar. Þú kenndir mér margt en gafst mér um leið frelsi og stuðning til að finna út úr hinu. Þú kenndir mér að hugsa sjálfstætt og taka engu sem gefnu. Ef ég vildi vita svarið við einhverju væri best að finna það út sjálfur. Að maður skyldi spyrja spurninga en ekki treysta gefnum og viðteknum sannleika. Að maður skyldi ávallt vera forvitinn. Þú reyndir alltaf að styðja þá sem voru hjálparþurfi. Eitt sinn kvartaði ég undan því að aðrir fengu meiri hjálp frá þér en ég, sonur þinn. Þá svaraðir þú að ég þyrfti þess ekki með. Nú eru mörg ár liðin og ég orðinn fullorðinn maður og nú sé ég að þetta er kannski eitt það besta sem þú kenndir mér. Þú sagðir gjarnan að ég ætti ekki að bíða þess að aðrir beindu lífi mínu í tiltekinn farveg. Þess í stað skyldi ég taka örlögin í eigin hendur. Ég skal reyna að fylgja því og mun kenna krökkum mínum þetta þegar sá tími kemur. Magnús Ari Jónsson. Kæri góði pabbi. Þú hefur virki- lega verið mér sem faðir síðan þú komst inn í líf okkar fyrir 13 árum og verið til staðar fyrir mig í gegnum þykkt og þunnt. Verið einn af klettunum í lífi mínu. Þú varst umhyggjusamur og sýndir mér virkilegan áhuga. Ég hef alltaf dáðst að áhuga þínum á fólkinu í kringum þig. Þú hafðir ekki aðeins áhuga á fólki heldur varstu vel upp- lýstur um heimsmálin. Það verður leitun að öðrum eins manni og þér. Við vorum ekki alltaf sammála í pólitík, en þú ýttir undir góðar um- ræður og bæði vorum við upptekin af réttlætinu. Þú varst Ståle góð fyrirmynd og leiðbeinandi og þótti honum óendanlega vænt um þig. Vilija og Indie, börnin okkar, elsk- uðu þig. Þegar Vilija var spurð í skólanum hvar hún hefði lært hið langa og erfiða orð supercalifragil- istiscexpialidoucious svaraði hún stolt: „Hjá afa.“ Þú hefur sett mark þitt á líf okkar og er ég þakklát fyr- ir að þú hittir mömmu í apríl 2005. Við munum lifa áfram í þínum anda. Takk fyrir allt. Elskum þig. Kine Kvarme. Jón Steinar, eða „Indó“ eins og ég man að systir mín kallaði þig oft, hefur nú kvatt okkur. Við kveðjum þig nú svo allt of snemma eins og systur mína á undan þér. Ég er þakklátur fyrir að þú komst inn í fjölskyldu okkar og horfði ég sem ungur maður til þeirrar vináttu, virðingar og ástar sem þið systir áttuð. Ég var stoltur af ykkur og þeim hlutum sem þið áorkuðuð í líf- inu. Ég man líka hvað við glödd- umst þegar þú kynntist Rigmor eftir að systir dó. Ég hugsaði að maður sem elskar eins og þú þyrfti að elska aftur. Börnum mínum þótti mikið til þín koma og munum við fjölskyld- an minnast þín með þakklæti og kærleika. Guðjón Ingi Guðmundsson. Ég kynntist Jóni þegar við vor- um 16 ára. Ég man þegar hann steig út úr rútunni í Independence, Missouri, í 30 gráða hita íklæddur dökkum ullarjakkafötum og með undrunarsvip á andlitinu. Hann var að koma sem skiptinemi og átti ég að vera ameríski bróðir hans í eitt ár. Við vorum saman í skól- anum, fórum á tvöföld stefnumót, vorum saman í hlaupaliði skólans og sátum í nefndum. Við kenndum hvor öðrum myndarleg blótsyrði og ýmislegt annað heimskulegt sem ungir menn gera. Þetta var yndislegt ár bæði fyrir hann og fjölskyldu mína. Jón eignaðist strax marga vini með sínu létta brosi og innilega hlátri. Í gegnum árin höfum við haldið sambandi og heimsótt hvor annan í Kansas, Missouri, Yellow- stone-þjóðgarðinum, á Íslandi og nú síðast í Þrándheimi 2011. Jón fræddi okkur um hinn stóra heim. Hann var hreinn og beinn og með góðan húmor. Hans einlæga vin- átta mun lifa með okkur. Við yngri bróðir minn, Randy, fjölskyldur okkar og margir af bekkjarfélögum Jóns munum halda áfram að hugsa hlýtt til bróð- ur okkar, víkingsins. Mike Kassen, Shawnee, Kansas. Kynni okkar Jóns Steinars hóf- ust á nokkuð óvenjulegan hátt, með því að mér var úthlutað skrif- borðinu hans þegar ég kom til starfa um tíma á Orkustofnun er hann hafði horfið til starfa í Stan- ford í Kaliforníu. Þetta mun hafa verið árið 1982 en líklega hittumst við fyrst síðla árs 1985 eða snemma á árinu 1986, þegar hann fór að grennslast fyrir um WRI 5-ráð- stefnuna um samspil bergs og vatns, sem haldin var hér á landi sumarið 1986. Þá var hann að taka við stjórn Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (JHSÞ), en þar unnum við saman í eitt ár á miklum umbrotatímum á Orku- stofnun þegar starfsmönnum þar var fækkað um hátt í 30 manns á árunum 1986-1987. Þetta var mikill skellur fyrir marga sem unnið höfðu að jarðhitarannsóknum í meira en áratug að þurfa allt í einu að finna sér nýjan starfsvettvang. Þrátt fyrir að leiðir okkar skildi hélst vinátta okkar Jóns Steinars áfram og tæpum áratug eftir að þau hjónin, hann og Sigrún Guð- mundsdóttir, fluttu til starfa við há- skólann í Þrándheimi ásamt sonum sínum tveimur vildi svo til að ég fékk það verkefni að kanna grjót- námur í Sirevåg sunnan við Stav- anger. Í tengslum við ferðir mínar þangað gafst mér tækifæri að endurnýja kynnin og heimsækja þau hjón til Þrándheims en auk þess kom Jón Steinar í heimsókn til Sirevåg. Hann hafði nefnilega óbilandi áhuga á því sem aðrir voru að sýsla og var stöðugt að stinga að manni hugmyndum að verkefnum, enda frjór og hugmyndaríkur með afbrigðum. Í Þrándheimi starfaði Jón Stein- ar við kennslu og rannsóknir hans sneru einkum að flæði og geymslu á gasi. Í því sambandi stofnaði hann fyrirtæki sem vann að undir- búningi fyrir gaspípu frá olíu- og gaslindum Noregs yfir til Helsinki og annað fyrirtæki sem vann að því að geyma gas á hydrat-formi á stærð við snjóbolta. Þessi aðferð gæti í framtíðinni átt eftir að auð- velda flutning og nýtingu á gasi. Sigrúnu missti Jón Steinar árið 2003 og varð það honum mikið áfall, enda þau einstaklega samrýnd alla tíð. Það er rétt að rifja það upp hér að ástæðan fyrir því að þau héldu til Þrándheims árið 1989 var sú að Sigrúnu bauðst staða við háskólann þar í borg. Þetta var tækifæri sem þau gátu ekki sleppt og hann fylgdi sinni konu austur yfir hafið. Jón Steinar kunni að lifa lífinu og var einstaklega drjúgur verk- maður. Árið 2014 fór hann að finna fyrir orkuleysi og tók þá ákvörðun að draga sig í hlé frá kennslu. Síðar kom í ljós að það var lifrin sem var að plaga hann og í apríl 2016 fékk hann nýja lifur og lífið virtist blasa við á ný. Á því eina og hálfa ári sem hann lifði eftir þá aðgerð tókst hon- um að ljúka við bók um flæði olíu og gass í pípum og hefur bókin fengið lofsamlega dóma gagnrýnenda. Það kom því eins og reiðarslag þeg- ar hann greindist með krabbamein í byrjun nóvember og að það skyldi leggja hann að velli svo fljótt sem varð. Það verða mikil viðbrigði að geta ekki lengur spjallað í síma eða á Skype við góðan vin og þegið góð ráð, en meiri er missir þeirra Rig- mor, Gumma, Magga, systra og bróður. Þeim votta ég mína dýpstu samúð. Ómar Bjarki Smárason jarðfræðingur. Okkur barst sú harmafregn að Jón Steinar Guðmundsson væri látinn. Jón Steinar fluttist til Þránd- heims og varð prófessor í olíuverk- fræði við Tækniháskólann í Þránd- heimi (NTNU). Það leið ekki á löngu þar til hann hóf afskipti af stjórnmálum á vegum Hægri- flokksins í Þrándheimi. Jón Steinar gegndi ýmsum Jón Steinar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.