Morgunblaðið - 19.01.2018, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018
✝ Helga Stein-unn Ólafs-
dóttir fæddist á
Akureyri 14. júlí
1937. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Hlíð 11. janúar
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Ólafur
Guðmundsson, f.
15.5. 1918, d. 5.3.
2005, og Svein-
björg Baldvinsdóttir, f. 6.12.
1916, d. 9.3. 2011. Systkini
Helgu eru Þórey, f. 1942, (lát-
in), Herdís, f. 1944, Lilja Rósa,
f. 1947, Magnús, f. 1950, og
Aðalheiður, f. 1956.
Helga giftist árið 1957 Jens
Ólafssyni verslunarmanni frá
Stærri-Árskógi, f. 11.3. 1936,
d. 15.8. 1998, og saman eign-
uðust þau fjögur börn. 1) Ólaf-
ur, f. 8.2. 1959, maki: Hanna
Maídís Sigurðardóttir, f. 11.5.
Barnabarnabörnin eru 13 tals-
ins.
Helga ólst upp á Naustum
og gekk í skóla á Akureyri
þar sem hún lauk gagnfræða-
prófi. Eftir skólagöngu hóf
Helga störf hjá POB á Akur-
eyri þar sem hún vann í
nokkur ár. Auk þess að sinna
barnauppeldi vann hún ýmis
verslunarstörf, meðal annars
hjá matvöruverslunum víða
um land. Helga starfaði einnig
í nokkur ár hjá gullsmiðunum
Sigtryggi og Pétri á Akureyri.
Síðustu æviár Jens bjuggu þau
á Höfn í Hornafirði. Eftir and-
lát hans flutti Helga aftur á
heimaslóðir þar sem hún vann
í Bónus til starfsloka. Helga
var mikil hannyrðakona, söng
í kór og hafði yndi af dansi.
Síðustu æviárin átti hún mjög
kæran vin, Kristján Þórðar-
son. Síðastliðna sex mánuði
bjó Helga á Grenihlíð á
Dvalarheimilinu Hlíð þar sem
hún lést.
Útför Helgu fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 19.
janúar 2018, og hefst athöfnin
klukkan 10.30. Jarðsett verður
í Stærra-Árskógskirkjugarði.
1960. Börn: Jens,
f. 25.4. 1978, Erna
Hrönn, f. 15.6.
1981, og Brynjar,
f. 17.8. 1985. 2)
Guðný Björg, f.
26.1. 1961, maki:
Gunnar Þór Þór-
arnarson, f. 18.2.
1959. Börn:
Lovísa Þóra, f.
6.5. 1981, og Ey-
þór Jens, f. 10.11.
1988. 3) Sigrún, f. 26.12. 1962,
maki: Stefán Sigurðsson, f.
13.12. 1975. Börn: Salome
Gunnur, f. 19.10. 1980, Helga
Rut, f. 9.7. 1984, Andri Geir,
f. 30.7. 1992, og Eva Lind, f.
29.1. 1995. 4) Halldór, f. 19.1.
1964, maki: Margrét Ármann,
f. 10.10. 1965. Börn: Helgi
Steinar, f. 21.9. 1984, Arndís,
f. 30.1. 1997, og Björn, f. 22.4.
1998. Fyrir átti Jens Ásthildi
Eygló, f. 1.10. 1957.
Elsku mamma mín. Nú hefur
verið blásið á logann á kertinu
þínu, þú ert komin á betri stað
og laus við þennan ömurlega
sjúkdóm sem alzheimer er. Þú
komst nú víða við á þinni lífsleið
þar sem þið pabbi bjugguð í öll-
um landshlutum mestmegnis við
það að vinna hjá kaupfélögum
landsins. Ég veit að þú varst
ekki sátt við mig þegar ég vildi
ekki fara með ykkur frá Akur-
eyri heldur flutti til ömmu og
afa þá 11 ára gamall, en við hitt-
umst nú alltaf samt reglulega
þegar ég kom í heimsóknir til
ykkar eða þið komuð til Akur-
eyrar. Á Höfn bjugguð þið er
pabbi lést árið 1998, aðeins 62
ára gamall. Árið 2000 fluttir þú
aftur til Akureyrar þar sem við
Hanna bjuggum ásamt börnum
okkar þeim Jenna, Ernu Hrönn
og Brynjari. Þá má segja að hafi
byrjað nýr kafli í okkar lífi þar
sem við áttum saman miklar og
góðar ánægjustundir. Við hitt-
umst nánast daglega eða töl-
uðum saman í síma, fórum sam-
an í sumarbústaði, vorum saman
á jólum og áramótum. Mátti
helst aldrei fara neitt án þess að
amma væri með eða „hver hugs-
ar þá um ömmu ef hún er ekki
með,“ sögðu börnin mín sem
nutu þess að hafa þig með eða
fara til þín í heimsókn. Síðan
fæðast Máni Steinn 2001 og
Silja Sól 2003. Varst þú mikil
partur í uppeldi þeirra frá upp-
hafi og þau elskuðu ömmu sína
mikið.
Eftir að við fjölskyldan flutt-
um suður 2005 en þú varst eftir
á Akureyri, varst þú mjög dug-
leg að koma til okkar og dvelja
jafnvel í nokkrar vikur. Þú varst
að vinna í Bónus þar sem þú
naust þín vel og vildir ekkert
fara frá Akureyri. Fyrstu árin
töluðum við saman að lágmarki
annan hvern dag en síðan höfð-
um við aðeins lengra á milli þar
sem þú hafðir oft varla tíma til
að tala eftir að þú varst komin
með kærasta, Kristján Þórðar-
son, sem reyndist þér ákaflega
vel og þið áttuð saman fallegt
samband. Í veikindum þínum
reyndist Kristján þér mjög vel
og gerði þér kleift að vera eins
lengi heima og hægt var. Viljum
við þakka Kristjáni innilega fyr-
ir allan stuðninginn við þig.
Í byrjun júlí fluttist þú á
Grenihlíð á Dvalarheimilinu Hlíð
á Akureyri, þar sem þú bjóst til
æviloka. Um miðjan júlí héldum
við 100 manna veislu í tilefni 80
ára afmælis þíns þar sem þú
naust þín í botn enda hafðir þú
alltaf gaman af þegar slegið var
upp veislu og þú hafðir allt fólk-
ið þitt, fjölskyldu og vini í kring-
um þig og var þetta góður dag-
ur. Fljótlega upp úr því fór þér
að versna og það frekar hratt.
Síðasta samverustund sem við
áttum saman var um jólin þegar
við komum norður og héldum
með þér jólin á Hlíð.
Erum við Hanna, Brynjar,
Erna Hrönn, Máni Steinn, Silja
Sól, Elín og litla skottan hún
Júlía Dís, sem elskaði að fá að
skreppa norður að hitta ömmu
sína, mjög þakklát fyrir þessa
daga sem við áttum saman. Á
Grenihlíð naust þú mikillar um-
hyggju og vináttu hjá starfsfólk-
inu sem reyndist þér mjög vel.
Viljum við þakka Jóhönnu,
Katrínu og starfsfólkinu öllu,
kærlega fyrir þeirra frábæra
starf.
Elsku mamma mín, þakka
þér fyrir allar okkar stundir
sem ég minnist með gleði í
hjarta þó að sorgin sé þar núna.
Minning þín lifir.
Þinn sonur
Ólafur Jensson.
Elsku mamma mín. Ekki átti
ég nú von á að þú værir á förum
strax en við vitum ekki hvaða
tíma við höfum hér.
Þegar ég fer að rifja upp okk-
ar tíma kemur margt í hugann
en sumt geymi ég með mér. Þú
vannst mikið úti og hugsaðir um
heimilið, þú saumaðir á okkur
systkinin föt og prjónaðir peys-
ur, varst mikil hannyrðakona,
alltaf með prjóna eða saumadót
þér við hlið. Þú saumaðir púða
handa öllum langömmubörnun-
um þínum sem þau munu eiga
til minningar um langömmu
sína.
Alltaf þegar þú áttir von á
okkur í heimsókn voru bakaðir
staflar af kleinum og soðbrauði
því þú vissir að okkur þætti það
svo gott og svo bjóstu til heims-
ins bestu kjötbollur úr saltkjöts-
farsi.
Þið pabbi flökkuðuð mikið um
landið, við fluttum á Hornafjörð
1975 og þið voruð þar í nokkur
ár en ég varð eftir og bjó þar í
30 ár. Sá staður átti mikið í ykk-
ur og margar góðar minningar
þaðan.
Aðalvinnan þín í gegnum ár-
um var í verslun, þú hafðir mik-
ið gaman af að vera á kassa og
ég veit að þú varst mjög vel lið-
in við þau störf.
Þú hafðir mjög gaman af
músík og var harmonikkan í
uppáhaldi og varst dugleg að
fara á böll og dansa og þar
kynntist þú Kristjáni sem var
þér mikil stoð og stytta og þið
fóruð í húsbílaútilegur og á böll
og svo nutuð þið bara samvista
hvort annars, vil ég þakka hon-
um alla þá hlýju og umhyggju
sem hann veitti þér, elsku
mamma.
Síðastliðið sumar héldum við
upp á 80 ára afmælið þitt og þú
varst svo glöð að sjá hve margir
mættu til að fagna með þér og
þú varst búin að hlakka til af-
mælisins í marga mánuði.
Þú fórst inn á Hlíð um mitt
sumar 2017 og undir þér vel þar
þótt þú ætlaðir alltaf heim aftur
en dvölin þín þar var ekki löng,
rétt um sex mánuðir.
Þú hélst reisn þinni og vildir
alltaf vera í fínum fötum passa
að hárið væri fínt og flottar
neglur og það var vel passað
upp á það á Grenihlíð. Ég vil
þakka öllu starfsfólki á Greni-
hlíð fyrir ástúð og umönnun í
garð mömmu og einnig öllum í
heimahjúkrun og heimaþjónustu
Akureyrar fyrir frábæra að-
hlynningu og þjónustu sem
mamma fékk þegar heilsu henn-
ar hrakaði.
Gunnar Þór, Lovísa og Eyþór
þakka þér öll árin og góðar
minningar og einnig litlu lang-
ömmubörnin þín.
Elsku yndislega mamma mín,
nú hefur pabbi takið á móti þér
og þið munuð dansa saman í
draumalandinu, ég veit þú verð-
ur fallegasta konan á ballinu.
Hafðu hjartans þakkir fyrir
allt.
Þín dóttir,
Guðný Björg Jensdóttir.
Þá er komið að kveðjustundu,
mín kæra amma Helga. Þannig
týnist tíminn og minningarnar
sitja eftir. Hugurinn hefur verið
á fleygiferð alveg síðan ég
kvaddi þig vitandi að þetta yrði
okkar síðasta kveðjustund. Þú
varst mér svo dýrmæt, svo
dásamleg vinkona alveg frá því
ég var lítil stelpa. Pennavinkon-
ur frá því að ég var sjö ára og
þar til ég varð fimmtán. Í dag
eru bréfin mínar gersemar sem
ég geymi á góðum stað. Á sama
stað geymi ég úrklippurnar sem
þú safnaðir og tárin streymdu
þegar ég sá að þú klipptir út
hverja einustu auglýsingu, viðtal
og mynd sem birtist af mér.
Takk fyrir að vera svona stolt,
elsku amma.
Þú fylgdist með úr fjarska og
varst fljót að láta heyra í þér ef
þú sást mig í blöðunum eða
heyrðir röddina mína í útvarp-
inu. „Ferðu ekki að koma norð-
ur Erna mín?“ hljómaði ósjaldan
og sem betur fer lá leiðin oft til
Akureyrar vegna vinnunnar. Þá
nýtti ég tækifærið og fékk að
kúra eftir gigg og þó stoppin
væru yfirleitt stutt náði ég þó
allavega kvöld- eða morgunsp-
jalli. Hvað þú geislaðir að fá að
hafa Ernuna þína hjá þér, það
gladdi hjartað mitt. Hlýjan,
hláturinn, gráturinn... við rædd-
um gleði og sorgir og jafnvel
það sem yfirleitt aldrei var rætt.
Trúnaðarvinkonur þó að aldurs-
munurinn hlypi á rúmlega fjór-
um tugum. Við treystum hvor
annarri án þess að dæma og
bárum virðingu. Töluðum líka
löngum stundum saman í sím-
ann um allt og ekki neitt. Svo
varð erfiðara fyrir þig að tala í
símann og svo hætti hann alveg
að hringja. Grimmi sjúkdómur-
inn náði tökum á þér. Hljóðlát
stóðum við hjá og gátum lítið
gert nema vera til staðar. Fjar-
lægðin var nístandi og svo erfitt
að vera svona langt í burtu frá
þér. Að við skyldum fara norður
um jólin og vera með þér var
svo dýrmæt ákvörðun, á bakvið
eyrað blundaði sú hugsun að
mögulega yrðu þetta þín síðustu
jól. Börnin eru þakklát fyrir
ömmu sína sem þau voru svo
lánsöm að fá að alast mikið upp
með og við biðjum góðan Guð að
geyma þig á góðum stað. Við
vitum að þú vakir yfir okkur og
ert aldrei langt undan.
Tónlist var þitt líf og yndi og
sama hvaða verkefni ég tók þátt
í vildirðu alltaf koma og sjá,
hvort sem það væri Meat Loaf,
Villi Vill, Hárið eða bara nokkur
lög á Glerártorgi. Í dag eru tón-
leikarnir þér til heiðurs og þú á
fremsta bekk. Hvíldu í friði,
fagri engill. Guð blessi þig og
varðveiti þar til við hittumst á
ný.
Þín
Erna Hrönn Ólafsdóttir.
Elsku hjartans amma mín, nú
ert þú farin frá okkur og í huga
mínum er ég þess fullviss að afi
tekur á móti þér opnum örmum.
Hjartað mitt er kramið þessa
dagana en ég er svo heppin að
eiga fullt af góðum minningum
um þig sem er svo ótrúlega dýr-
mætt.
Þegar ég og Bjössi bróðir
vorum lítil, og mamma og pabbi
voru í stórum verkefnum, vorum
við systkinin svo heppin að
amma Helga flaug suður til
Reykjavíkur, flutti inn til okkar
í nokkrar vikur til að hugsa um
okkur og hlaupa undir bagga
fyrir mömmu og pabba. Minn-
ingarnar mínar um mig og
ömmu Helgu eru margar og
ljúfar. Við áttum ófáar stund-
irnar þar sem við sátum við eld-
húsborðið og spiluðum á spil.
Uppáhaldsspilið okkar var veiði-
maður og ég átta mig á því í dag
að amma „leyfði“ mér næstum
alltaf að vinna – ég sem hélt að
ég væri algjör spilameistari.
Amma var borinn og barnfædd-
ur Akureyringur og þegar við
fjölskyldan renndum norður þá
kaus ég ávallt að gista hjá
ömmu því það var svo gott að
kúra saman. Hún var heldur
aldrei að flýta sér og hafði næg-
an tíma til að spjalla og bralla
Helga Steinunn
Ólafsdóttir
✝ Dóra Friðleifs-dóttir fæddist á
Leifsstöðum við
Kaplaskjólsveg 11.
desember 1930. Hún
lést á Landspítal-
anum 12. janúar
2018.
Foreldrar hennar
voru Friðleifur I.
Friðriksson, f. 25.
ágúst 1900, d. 9.
mars 1970, og Hall-
dóra K. Eyjólfsdóttir, f. 14. októ-
ber 1902, d. 14. ágúst 1997.
Dóra giftist 8. desember 1951
Guðjóni Árna Ottóssyni, f. 8.
desember 1928, d. 16. apríl 2017.
Foreldrar hans voru Ottó Eðvarð
Guðjónsson, f. 10. október 1904, d.
16. mars 1971, og Svanhvít Guð-
mundsdóttir, f. 8. september 1907,
d. 21. desember 1977. Dóra var
næstyngst systkina sinna en þau
voru, Ingileif, f. 1921, látin, Frið-
rik, f. 1922, látinn, Hjörleifur, f.
1923, látinn, drengur fæddur and-
vana 1924, Margrét, f. 1924, látin,
f. 1969. 6) Ottó Eðvarð, f. 9. apríl
1971, maki Valdís Ólafsdóttir.
Synir þeirra eru Stefán Kári, f.
2001, og Tómas Magni, f. 2006. 7)
Hulda, f. 20. maí 1975, maki
Sveinn Albert Sigfússon. Barn
þeirra er Freydís Katla, f. 2008.
Fyrir átti Hulda soninn Daníel
Ottó, f. 1997, með Michael Viney.
Stjúpbörn Huldu eru Anton Ingi,
f. 1994, Andri Freyr, f. 1996, d.
2014, Aldís Elva, f. 2000, og Írena
Þöll, f. 2003. Barnabarnabörnin
eru 13.
Dóra ólst upp á Leifsstöðum
við Kaplaskjólsveg fram til 14 ára
aldurs er fjölskyldan flutti á Lind-
argötu 60 en þar hófu þau Guðjón
sinn búskap. Hún naut hefðbund-
innar skólagöngu, var heimavinn-
andi meðan börnin voru ung en
vann ýmis störf seinna meir. Dóru
var margt til lista lagt og liggja
eftir hana sögur, ljóð, málverk og
glerverk auk þess sem hún spilaði
á gítar, píanó og munnhörpu.
Helsta ástríða hennar var að spila
brids. Þá átti golfið hug hennar á
tímabili.
Útför Dóru fer fram í Foss-
vogskirkju í dag, 19. janúar 2018,
klukkan 11.
Guðjón, f. 1926, og
Franklín, f. 1945,
látinn. Börn Dóru
og Guðjóns eru: 1)
Birna, f. 24. nóvem-
ber 1953, maki Þor-
steinn Garðarsson.
Sonur þeirra er
Garðar, f. 1979. 2)
Heimir Jón, f. 14.
september 1954,
maki Kristrún Sig-
urðardóttir. Börn
þeirra eru Hlynur Már, f. 1993, og
Sunna Rún, f. 1996. Fyrir átti
Heimir Sigrúnu Grétu, f. 1978, og
Halldór, f. 1980, með fyrrverandi
eiginkonu sinni, Erlu Halldórs-
dóttur. 3) Bylgja Björk, f. 16. jan-
úar 1960. Börn hennar með fyrr-
verandi eiginmanni, Steinari Þór
Ólafssyni, eru Árni Þór, f. 1979,
Daníel Örn, f. 1981, og Dóra
Björk, f. 1987. 4) Halldóra Kristín,
f. 1. júlí 1964, maki Sigurður Sig-
urðarson. Börn þeirra eru Guðjón
Ingi, f. 1988, og Sara Diljá, f.
1995. 5) Tvíburastúlkur andvana,
Fyrir rúmum þremur og hálfu
ári var fótum mínum kippt undan
mér og það að hugsa sér að lifa
áfram var óhugsandi. Nú gerist
það aftur, það sem virðist vera
svo einfalt er orðið svo erfitt og
ég efast um að komast í gegnum
það lifandi. Það að anda veldur
mér verkjum, stór hnútur í mag-
anum ýtir undir ógleði og engin
löngun í að næra mig.
Sorgin er eitthvað sem enginn
á að ganga í gegnum en því mið-
ur verður ekki hjá því komist.
Ég hélt ég væri tilbúin að
sleppa mömmu, virða óskir henn-
ar um að fara. Hún þráði hvíld-
ina. Og ég var það við dánarbeð
hennar, beið eftir að hún fengi
hvíldina sína. En svo kom skell-
urinn, nei nei og aftur nei. Ég vil
fá mömmu aftur, tárin brjótast
fram í tíma og ótíma. Ég leyfi
þeim að koma hvar sem ég er
stödd, mér er alveg sama.
Mamma var fyndin og
skemmtileg kona, fannst fátt eins
skemmtilegt og að heyra góða
brandara eða horfa á ófarir ann-
arra á Facebook. Ég minnist
hláturs hennar og mér hlýnar
inn að hjartarótum.
Mamma átti líka alltaf til
„ónýta“ peninga sem hún bara
varð að koma í hendurnar á öðr-
um, þeir voru ekkert ónýtir held-
ur var hún bara svo gjafmild og
mátti aldrei sjá neitt aumt.
Mánudaginn fyrir andlátið var
hún hress, settist upp um leið og
hún sá mig – tilbúin að fara
heim. Aðfaranótt fimmtudagsins
fæ ég hringingu frá spítalanum
um að henni hraki mikið og það
verði að tengja hana við öndun-
arvél, þar sem mettunin fellur
alltaf. Aðfaranótt föstudagsins
12. janúar er hún farin. Ég vissi
að hún væri að fara en ekki að
hún færi svona snöggt, ég var
ekki tilbúin.
Að horfa á hana í þessu
ástandi var sárt, svo hrikalega
sárt.
Mig langar að þakka fyrir að
hafa fengið að vera með mömmu
minni síðustu klukkutímana,
mínúturnar og sekúndurnar fyr-
ir brottför hennar. Mig langar að
þakka fyrir að hafa fengið að
vera með henni síðasta andar-
drátt hennar, að strjúka henni.
Hún er komin til pabba, nú
sitja þau við stóra tréð í garð-
inum og hlusta á tónlistina sem
þar er spiluð og syngja saman.
Geta sig hreyft án nokkurra
verkja, ég samgleðst þeim.
Elsku mamma, hvíldu í friði
og njóttu lífsins fyrir handan
með pabba.
Ég bið að heilsa Andra.
Þín dóttir
Hulda.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
aftur hug þinn og þú munt sjá að þú
grætur vegna þess sem var gleði þín.
(Kahlil Gibran).
Við ævilok ástvinar reikar
hugurinn víða og minningarnar
hrannast upp. Nú þegar þú hefur
kvatt þetta líf er gott að hugsa til
samtals okkar nú í desember þar
sem ég rifjaði upp atburði úr
æsku og hvað við hlógum yfir
barnslegri sýn minni á atburði og
hluti. Ég sagði þér frá því hvað
mér fannst þú falleg í svarta og
bleika síðkjólnum á leið á
Krummaball. Og hvað mér
fannst þú klár og flink, spilandi á
gítar nú eða munnhörpuna, hvað
þú málaðir og teiknaðir flott og
svo gastu skrifað, hvort sem það
voru sögur eða ljóð. Já, ég var
sko stolt af henni mömmu minni
og er enn. Við leiðarlok er mér
þakklæti efst í huga en einnig
söknuður. Söknuður yfir því sem
aldrei verður meir.
Vönduð er sálin, velvildin mest,
vinkona, móðir og amma.
Minningin mæta í hjartanu fest,
ég elska þig, ástkæra mamma.
(Höf. ók.)
Halldóra Kristín.
Dóra Friðleifsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“ val-
inn úr felliglugganum.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minn-
ingargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar