Morgunblaðið - 19.01.2018, Page 27

Morgunblaðið - 19.01.2018, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 kennari og var eftir því tekið hvað hún var áfram um að nemendur hennar gætu náð sem hæstum einkunnum. Við sem höfum unnið með Margréti minnumst hennar m.a. sem eldhuga og ósérhlífins dugnaðarforks. Hún vílaði ekki fyrir sér að ganga í hvaða starf sem var á rannsóknastofunni ef á þurfti að halda. Hún hafði jafn- framt mikinn áhuga á grunnrann- sóknum í veirufræði og er þekkt fyrir rannsóknir sínar á árangri bólusetninga gegn rauðum hund- um svo og rannsóknir sínar á hæggengum veirusýkingum. Segja má að allan sinn starfsferil hafi hún stundað rannsóknir á visna-mæðiveirunni, og á bólu- setningum gegn þeirri veiru eftir að alnæmisveiran, önnur hæg- geng veirusýking, kom til sög- unnar. Löngu eftir að hún hætti störfum hjá Háskóla Íslands fyrir aldurs sakir, stundaði hún rann- sóknir sínar á bólusetningum gegn visna-mæðiveirunni, bæði hér á Íslandi og á eynni Kýpur. Segja má að grunnurinn að rannsóknastofu í veirufræði hafi verið lagður sumarið 1974, þegar Margrét flytur starfsemi sína frá Keldum á Landspítalalóðina í hús gamla þvottahúss Landspítalans. Margrét réð nokkra nýja starfs- menn þarna um vorið til viðbótar við þá sem fyrir voru á Keldum. Flestir þeirra voru nýútskrifaðir BS líffræðingar, sem setið höfðu veirufræðinámskeið sem Mar- grét kenndi. Margrét var hrifnæm og átti auðvelt með að hrífa fólk með sér í áhuga á faginu. Okkur fannst við vera þátttakendur í uppbyggingu rannsóknastofunnar. Margrét studdi starfsfólk sitt með ráðum og dáð t.d. til að fara á námskeið og ráðstefnur. Þarna komu líka við margir fyrrverandi sam- starfsmenn og vinir Margrétar og fengu kaffi – allt skemmtilegt og áhugavert fólk. Fyrstu árin í gamla þvottahúsinu hafa alltaf verið sveipuð ljóma í minning- unni. Mikið þurfti auðvitað að hugsa um „fjármálin og kerfið“ og þegar prófessor Margrét fór í slíka leiðangra brá hún sér í sér- stakt köflótt pils, sem hún nefndi stríðspilsið og setti á sig varalit. Rannsóknastofan flutti síðan árið 1988 í Ármúla 1A í rúmgott hús- næði og vel tækjum búið. Mar- grét barðist fyrir því að þetta yrði eins vel úr garði gert og kostur var og við búum enn að því á veirufræðinni. Við minnumst Margrétar með hlýhug og virðingu og vottum að- standendum hennar innilega samúð okkar. Fyrir hönd starfsfólks Sýkla- og veirufræðideildar Landspítal- ans, Karl Gústaf Kristinsson og Þorgerður Árnadóttir. Margrét Guðnadóttir læknir frá Landakoti á Vatnsleysu- strönd féll frá 2. janúar 2018 tæp- lega 89 ára að aldri. Hún hóf störf við Tilraunastöð Háskólans að Keldum nokkru eftir 1948, í fyrstu undir leiðsögn Björns Sig- urðssonar frá Veðramóti, en síð- an í samvinnu við hóp annarra sérfræðinga, sem vann við skil- greiningu á smitandi búfjársjúk- dómum og baráttu við þá. Það voru þeir Páll Agnar Pálsson síð- ar yfirdýralæknir og Halldór Grímsson efnafræðingur auk Björns Sigurðssonar, Guðmund- ur Gíslason læknir frá Húsavík og Halldór Þormar frá Laufási. Hér má einnig nefna Halldór Vigfús- son frá Engey, aðstoðarmann Guðmundar. Hann naut sérstakr- ar virðingar fyrir víðtæka þekk- ingu og nákvæmni í starfi m.a. við krufningar og sýklarækt þótt ekki hefði hann lokapróf í lækn- isfræði og loks nefni ég „Steina gamla“, Þorstein Þorsteinsson frá Háholti, sem var alhliða hjálp- arhella, viðgerðamaður og smiður á tré og járn. Þetta voru frum- herjar, sem eg kynntist á Keld- um, er eg kom þangað fyrst til sumarstarfa árið 1963, harðsnú- inn hópur og samstilltur. Smám saman fjölgaði rannsóknarmönn- um. Erfiðir sjúkdómar, allir skað- legir og sumir bráðdrepandi höfðu verið fluttir til landsins með erlendu búfé og afurðum dýra, sem verslunarmenn blindir af gróðafíkn, kelkja enn við að fá innflutt eins og hrátt ket o.fl. þótt hættan sé augljós (miltisbrandur, salmonella, kamfylobakter, fjár- bóla, fjárkláði o.fl. sníkjudýr, hringskyrfi, karakúlsjúkdómarn- ir: votamæði , þurramæði og visna, seinna: mæði/visna, garna- veiki o.fl.). Þessa dýrasjúkdóma þekkti Margrét vel og vissi, hve sérstaða okkar vegna heilbrigðis og hreinleika er dýrmæt. Mar- grét var föðurlandsvinur og öfl- ugur landvarnarmaður, sem barðist fyrir heilsuvernd fólks og húsdýra. Iðulega var til hennar leitað varðandi dýrasjúkdóma, einnig eftir að hún var hætt að vinna. Skoðanir hennar vógu þungt. Nú er skarð fyrir skildi, þegar Margrét er horfin úr varn- arliðinu. Hún bjó á Keldum og börnin hennar tvö: Guðni og Ey- dís léku sér í túninu við stöðina og urðu vinir okkar. Hún var gam- ansöm, hagorð, hnyttin og hittin. Hún var eftirminnileg og skemmtilegur samstarfsmaður en ekki allra. Hún þagði ekki yfir því sem sem hún taldi óhæft. Kollegar hennar o.fl. fengu að kenna á beittum athugasemdum hennar. Hún varð fyrst kvenna prófessor við Háskóla Íslands 1969, brautryðjandi þar og víðar. Störfum Margrétar lauk þó ekki á Keldum. Flesta daga fram á síðustu ár vann hún fullan vinnudag á rann- sóknarstofunni í Ármúla, löngu eftir að hún var hætt launuðum störfum. Ég sótti þangað ráð og við bárum saman bækur um varn- ir gegn smithættu af innflutningi. Eftir að mæði og visna höfðu verið skilgreind og í ljós kom að um lenti-veiru var að ræða, sama flokk og veldur eyðni hjá fólki, hóf hún þróun bóluefnis með vísinda- mönnum á Kýpur, Þar er mæði- veiki útbreidd og skaðleg. Rann- sóknir hennar og frekari rannsóknir á Keldum eru allrar athygli verðar vegna eyðni. Mar- grét var hófsöm, hlóð ekki undir sig og vildi ekki láta aðra hafa fyr- ir sér. Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Margrét Guðnadóttir hefur verið, með tilveru sinni, sérlega áberandi leiðarvísir fyrir menn- ingarlegar persónur eins og mig: Faðir minn, Baldur Líndal, efnaverkfræðingur, kynnti hana fyrir mér sem unglingi, á rann- sóknarstofunni að Keldum. En líkt og hann hafði hún lært í Bandaríkjunum, og orðið svo frægur vísindamaður hér. Og líkt og móðir mín, þaðan, Amalía Lín- dal, varð hún ein af áberandi menntakonunum hér. Seinna starfaði svo mín kæra frænka, Áslaug E. Bergsdóttir, líffræðingur, heitin, hjá henni, og gerðumst við þá málkunnug. Mér þótti menningarlegt hvað hún átti listrænt metnaðarfull tónlistar- börn. Svo hitti ég hana á fundi hjá MÍR, og loks gaf ég henni nýlega áritaða ljóðabók mína á kaffi- húsahópasamkomu, í tilefni alls þessa! Í þeirri ljóðabók kemur fyrir vísa sem hefur höfðað til áhuga hennar á Rússlandi en það er í bálkinum Pútíns ríma II, og þar segir svo: Vestur Úkraínar vilja líta, viðurkenna ekki Rússlands eign. Landamærahéruð þess lands sýta; láta Rauða herinn dufla feikn. Tryggvi V. Líndal. Margrét Guðnadóttir var sögupersóna á bernskuheimili mínu. Sagan var um ungu stúlk- una sem kom af Vatnsleysu- strönd fyrir miðja síðustu öld og settist á skólabekk í Menntaskól- anum í Reykjavík. Á Vatnsleysu- strönd réri hún til fiskjar með pabba sínum. Duglega stúlkan Margrét lauk stúdentsprófi frá stærðfræðideild, barðist til há- skólanáms í læknisfræði og til framhaldsnáms, og varð mikill vísindamaður. Þessi góða saga var sögð af foreldrum mínum sem voru bekkjarsystkini Margrétar. Svipuð saga var sögð á heimilum annarra bekkjarsystkina sem luku stúdentsprófi 1949 og hafa með sér einstakan félagsskap og vináttu. Okkur í næstu kynslóð var sagan bæði holl og góð. Það var einnig lærdómsríkt að sjá að virðing og gömul vinátta úr skóla á að vera sterk, sterkari en flokkspólitískar skoðanir. Það heyrði ég bæði hjá foreldrum mínum, sem voru sjálfstæðisfólk, og Margréti sjálfri, vinstri kon- unni. Margs kyns skilningur get- ur líka verið sameiginlegur, eins og mikilvægi almennilegs há- skólanáms á Íslandi var í huga þessa fólks. Margrét Guðnadóttir var skip- uð prófessor við Háskóla Íslands fyrst kvenna. Það var árið 1969. Prófessorsstaðan var í sýklafræði við Læknadeild háskólans. Mar- grét kenndi við fleiri deildir Há- skóla Íslands, alls staðar við mjög góðan orðstír. Margrét rannsak- aði sýkingar og bólusetningar á Tilraunastöðinni að Keldum strax meðan á læknanáminu stóð og áfram eftir námið. Hún fékk síðan styrk til tveggja ára framhalds- náms við Yale-háskóla í Banda- ríkjunum. Eftir að heim kom var Margrét ráðin sérfræðingur í veirufræði við Tilraunastöðina á Keldum. Margrét setti upp Rann- sóknastofu háskólans í veirufræði við Landspítalann árið 1974. Al- þjóðlega varð Margrét þekktust fyrir rannsóknir á visnuveirunni og bóluefni gegn sýkingu af völd- um hennar. Þær rannsóknir urðu mjög mikilvægar í baráttunni við aðra veirusjúkdóma. Margrét var sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Læknadeild 2011 fyrir framlag sitt til veirufræðinnar. Margrét Guðnadóttir prófess- or var fyrsta konan sem hlaut verðlaun fyrir vísindastörf úr verðlaunasjóði Ásu Guðmunds- dóttur Wright. Það var árið 1993, en sjóðurinn var stofnaður 1968 og á því fimmtíu ára afmæli í ár. Ása Guðmundsdóttir Wright sá til þess í samvinnu við Vísinda- félag Íslendinga að sjóðurinn yrði stofnaður. Tíu ár liðu áður en kona hlaut öðru sinni Ásuverð- launin. Tilgangur sjóðsins er að veita árlega viðurkenningu Ís- lendingi sem unnið hefur veiga- mikið vísindalegt afrek á Íslandi eða fyrir Ísland. Síðastliðin ár hefur Margrét Guðnadóttir hitt félaga sína þegar Ásuverðlaun eru afhent. Margrét var ákaflega stolt af afkomendum sínum. Ömmubarn hennar leggur nú stund á dokt- orsnám við Hjúkrunarfræðideild. Ekki þótti Margréti slæmt að rannsóknarefni alnöfnu hennar væri heimahjúkrun enda færni ömmubarnsins á því sviði staðfest af bekkjarfélögunum í stúdents- árgangi M.R. 1949. Ég þakka Margréti Guðna- dóttur prófessor einstaklega góða viðkynningu, kennslu og störf í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands. Hugurinn er hjá aðstandendum hennar. Inga Þórsdóttir, prófessor, forseti Heilbrigðisvís- indasviðs HÍ. Ég ætlaði að verða lífeðlis- fræðingur og tók öll námskeið í lífeðlisfræði, sem mér stóðu til boða. Í lokin vantaði mig tvær einingar til að klára B.Sc. gráðu í líffræði. Þá rakst ég á kynningu á tveggja eininga námskeiði í veiru- fræði. Kennari: Margrét Guðna- dóttir, prófessor. Skráði mig í hvelli, trúlega auðveldustu tvær einingar sem ég gæti nælt mér í. Í minningunni var þetta nám- skeið hálfgerð óreiða, en á þess- um stutta tíma kviknaði neisti, sem varð að báli. Margréti tókst sem sagt það, sem margan kenn- arann sjálfsagt dreymir um en upplifir sjaldan, að vekja slíkan áhuga á námsefninu að maður tók nánast u-beygju, áður ákveðnum framtíðaráformum kastað fyrir róða og ný markmið sett. Kannski eins gott við vorum ekki nemendur hennar í stjórnmála- fræði. Þá værum við öll stalínist- ar. Skömmu síðar var ég byrjaður í s.k. fjórða árs verkefni undir handleiðslu Margrétar. Hún kenndi mér upphafsstefin í vís- indalegri nálgun á viðfangsefnið, var ólöt við að leiðbeina og ræða niðurstöður og túlkun þeirra og síðast en ekki síst að gæta þess að ungur ofurhugi oftúlkaði ekki nið- urstöður rannsókna sinna. Hún hvatti mig til dáða og þegar ég ákvað að fara í framhaldsnám í veirufræði, kvaddi Margrét mig með þeim orðum að ef ég kæmi til baka, ætti ég vísa vinnu hjá henni. Og hún stóð við það. Margrét gat verið hvassyrt og þver, en þess á milli ræðin og glaðsinna og hreinlega bráðfynd- in, þegar hún var í stuði. Hún var einstaklega vinnufús, samvisku- söm og orðheldin, stóð með sínu fólki. Hvernig hún fór að því að ráða okkur öll í vinnu, sem snér- um aftur úr langskólanámi, er mér hulin ráðgáta. Hún hefur sennilega klæðst skotapilsinu, stríðspilsinu eins og það var kall- að á rannsóknastofunni og tuskað til einhverja kerfiskarla? Mar- grét var alltaf að berjast. En hún var líka glöggur vísindamaður með víðtæka þekkingu og skiln- ing á sínu fagi. Mér er minnis- stætt þegar alnæmi skall á heims- byggðinni eins og hvirfilbylur. Við vorum að ræða þessa nýju vá, en flestir þá þegar sammála um að þetta væri smitsjúkdómur og margar vel þekktar veirur nefnd- ar sem mögulegir orsakavaldar. „Þetta er retróveira“, sagði Mar- grét íbyggin og það kom á daginn. Þegar Margrét lét af störfum fyrir aldurs sakir, hóf hún að nýju rannsóknir sínar á visnu. Hana langaði til að þróa bóluefni gegn visnuveirunni og taldi að ef vel tækist til gæti það orðið módel fyrir bóluefni gegn HIV. Ég hafði þá skipt um starfsvettvang fyrir allmörgum árum og var í aðstöðu til að útvega henni ýmislegt smá- legt fyrir rannsóknir hennar. Við sátum stundum og ræddum til- raunir hennar og niðurstöður, hún fyrir löngu búin að fyrirgefa mér að hafa gengið kapítalisman- um á hönd. Þegar hún varð átt- ræð færði ég henni konfektkassa og blóm. Margréti fannst þetta óþarfa bruðl en ég held hún hafi samt verið ánægð og spurði hana hvort hún ætlaði ekki að fara að hætta þessu brölti, setjast í helg- an stein. „Og gera hvað?“, svaraði hún hvasst. „Drepast úr leiðind- um“. Merk kona er fallin frá, en minning þín lifir, Margrét Guðna- dóttir. Ari Kr. Sæmundsen. Ég kveð með söknuði Margréti Guðnadóttur, veirufræðing og prófessor. Margrét var afkasta- mikill vísindamaður, frumkvöðull á sviði veirurannsókna og bólu- setninga, baráttumaður fyrir jafnrétti og betra samfélagi og mikill umhverfissinni. Ég kynntist Margréti á Keld- um þegar ég vann á rannsókna- stofu Guðmundar Eggertssonar erfðafræðings. Þetta var skemmtilegur tími. Ég var þá í grunnnámi í Háskóla Íslands og fór eftir skólatíma með strætó upp að Keldum. Þar fékk ég að taka þátt í að setja upp nýja rann- sóknastofu Guðmundar í sam- eindaerfðafræði og kynntist því góða fólki sem þar starfaði að rannsóknum. Margrét var ein- stök. Hún hafði sterkar skoðanir á flestum hlutum og var ekkert að liggja á þeim. Það var oft mjög líf- legt á kaffistofunni þó að kaffið væri nær ódrekkandi. Þegar ég kom heim eftir dokt- orsnám réð Margrét mig tíma- bundið til starfa. Henni fannst ótækt að ég hefði ekki rannsókna- aðstöðu. Ég fékk frjálsar hendur um hvað ég vildi rannsaka. Þetta voru spennandi tímar bæði í veirufræði og erfðafræði krabba- meina. Æxlisgen voru þá upp- götvuð og skilgreind, fyrst í veirum en síðar í dýrum og mönn- um. Margrét fékk mig til að kenna læknanemum það nýjasta í sameindaveirufræði. Hún sýndi þessu mikinn áhuga og sat í öllum tímum. Rannsóknir á æxlisgen- um og síðar æxlisbæligenum áttu eftir að gegna lykilhlutverki í mínu ævistarfi. Margrét var vísindamaður af lífi og sál. Hún hóf rannsókna- störf á Keldum meðan hún var enn í læknanámi. Hún starfaði þar með Birni Sigurðssyni, for- stöðumanni Keldna, sem „kenndi henni vel“ eins og hún orðaði það. Hér gekk alvarlegur mænusótt- arfaraldur 1955 og fyrstu verk- efni Margrétar tengdust honum. Björn sendi þennan frábæra nemanda út til að læra hvernig mænusóttarbóluefni væri búið til. Margrét fór til Englands og svo til Bandaríkjanna í þessum til- gangi og fékk svo styrk úr Vís- indasjóði til framhaldsnáms við Yale-háskóla. Rannsóknir á hæg- gengum veirusýkingum sem hóf- ust undir stjórn Björns Sigurðs- sonar eru án efa merkasta framlag Íslendinga í lífvísindum. Björn lést langt um aldur fram árið 1959, en rannsóknum á visnuveiru var haldið áfram af Margréti og öðru samstarfsfólki. Síðustu áratugi vann Margrét að því að búa til bóluefni gegn visnu. Þegar hún varð að „hætta störf- um“ vegna aldurs, fékk hún að- stöðu á Kýpur. Margrét er höf- undur fjölda merkra vísindagreina, en varð hvað ánægðust að birta, ásamt grísk- um samstarfsmönnum, niður- stöður bólusetninga kinda á Kýp- ur 2013. Síðasta greinin kom svo út 2017 með vísindafólki frá Keld- um, Landspítala og Háskóla Ís- lands um sameinda- og ónæmis- fræðirannsóknir á þessari merku veiru. Við ræddum margt þegar ég heimsótti Margréti á Landspítal- ann, stuttu fyrir jól. Þar á meðal hennar hjartans mál, bólusetn- ingar. Hún hresstist mjög við það, þó að við vissum báðar að nú yrðu aðrir að taka við keflinu. Margrét var stór í sniðum, en líka lítillát, hrein og bein og skemmti- leg. Það eru forréttindi að hafa notið vináttu hennar. Ég sendi Guðna, Eydísi, barnabörnum og fjölskyldu inni- legar samúðarkveðjur. Jórunn Erla Eyfjörð. Kveðja frá læknadeild Margrét Guðnadóttir flutti hátíðarerindi um rannsóknir sín- ar á hægfara veirusýkingum á 140 ára afmælishátíð læknanáms á Íslandi í lok árs 2016, þá 87 ára að aldri. Erindið var leiftrandi vel flutt og ljóst að lífsneistinn og áhugi hennar á veirum og bólu- setningum var jafn brennandi og 30 árum áður þegar ég naut kennslu hennar í læknadeild. Margrét var eftirminnilegur kennari, hreinskiptin, jarðbundin og fylgdi óhrædd sannfæringu sinni. Áhugi hennar á veirum vaknaði í líffræðitímum í mennta- skóla og réði nokkru um að hún valdi að nema læknisfræði í Há- skóla Íslands. Að loknu lækna- námi vorið 1956 réði hún sig til starfa hjá dr. Birni Sigurðssyni á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Þar fékk hún að eigin sögn ómetanlegan grunn í aðferðafræði vísinda og öguðum vinnubrögðum, grunn sem átti eftir að nýtast henni vel í sérnámi og síðar á langri starfs- ævi. Margrét hélt 1957 til náms í Bretlandi um hríð og nam síðan í tvö ár við Yale-háskóla í Banda- ríkjunum. Árið 1960 sneri hún heim og var ráðin sérfræðingur við Tilraunastöðina á Keldum. Margrét varð fyrsta konan til að gegna embætti prófessors við Háskóla Íslands þegar hún var skipuð prófessor í sýklafræði við læknadeild árið 1969. Um nýja stöðu var að ræða og það kom í hennar hlut að byggja upp og þróa kennslu í sýklafræði við deildina. Hún var vel metinn kennari enda vart annað hægt en hrífast af eldmóði hennar og áhuga á viðfangsefninu. Árið 1974 var hún fengin til að setja á lagg- irnar rannsóknarstofu Landspít- alans í veirufræði og veitti hún henni forstöðu til ársins 1994. Hún gegndi embætti prófessors í sýklafræði og síðar veirufræði við læknadeild til 1999 en hélt áfram störfum við rannsóknir á veirum og bóluefnum fram á síðasta ár á rannsóknarstofu í veirufræði. Margrét var sæmd heiðursdokt- orsnafnbót frá læknadeild árið 2011 og árið 2014 var hún gerð að heiðursfélaga í Læknafélagi Ís- lands. Margrét sóttist þó ekki eft- ir vegtyllum. Veirurnar voru hennar ær og kýr og yfir rann- sóknum á þeim var hún vakin og sofin á sínum langa starfsferli. Hún var einnig ötul baráttukona fyrir náttúrvernd. Hennar dag- lega líf virtist mér einkennast af vissum minimalisma í þeim skiln- ingi að hún hleypti ekki tækni nú- tímans nema að hluta til inn í líf sitt á seinni árum. Þannig eru undirrituðum minnisstæð sam- skipti við hana fyrir nokkrum ár- um þegar hún skrifaði umbeðin afmælisgrein í Læknablaðið. Sem ritstjóri blaðsins á þeim tíma reyndi ég fyrst að ná í hana í far- síma og síðan með tölvupósti en hún reyndist þá nota hvorugt. Mér tókst loks að ná í Margréti í heimasíma að kvöldlagi. Hún tók bón minni vel. Nokkrum dögum síðar færði hún mér handritið uppi á Landspítala, vélritað á pappír með ritvél upp á gamla mátann. Þar var allt upp á punkt og prik eins og hennar var von og vísa. Margir læknar og aðrir sam- starfsmenn hafa minnst Mar- grétar með hlýhug á samskipta- vefjum nútímans eftir að hún féll frá. Minning hennar lifir og hvet- ur þá sem henni kynntust til góðra verka. Engilbert Sigurðsson, forseti læknadeildar Háskóla Íslands.  Fleiri minningargreinar um Margréti Guðnadótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Útfararþjónusta Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.