Morgunblaðið - 19.01.2018, Side 34

Morgunblaðið - 19.01.2018, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu u KASSAR u ÖSKJUR u ARKIR u POKAR u FILMUR u VETLINGAR u HANSKAR u SKÓR u STÍGVÉL u HNÍFAR u BRÝNI u BAKKAR u EINNOTA VÖRUR u HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað Ég fæ nærfjölskylduna í mat í dag en svo verður uppvaskið og allurfrágangur skilinn eftir og við hjónin förum upp í flugvél áleiðis tilLondon og þar verður legið í lúxus alla helgina,“ segir Jón Hreið- ar Sigurðsson, löggiltur endurskoðandi, en hann á 50 ára afmæli í dag. „Við ætlum í leikhús að sjá Músagildruna eftir Agöthu Christie og fara á slóðir Harrys Potters.“ Jón er einn af eigendum PricewaterhouseCoopers á Íslandi, en um 100 manns starfa hjá fyrirtækinu og meðeigendur eru 16. Jón sinnir innri endurskoðun félaga og heldur utan um þá starfsemi hjá PwC og vinnur jafnframt við ytri endurskoðun. Jón hefur gaman af útiveru og ferðast mikið. „Við eigum sumarbústað í Grímsnesi í landi sem heitir Syðri-Brú sem er niðri við Sogið. Þar er mjög skjólsælt svæði og hægt að komast þangað árið um kring. Það eru mikil forréttindi að eiga slíkt aðsetur og við reynum að nýta það sem mest. Við hjónin förum oft tvö saman til útlanda og eigum gæðaferðir þar sem við njótum okkar, síðast vorum við í Amsterdam í byrjun desember. Svo stefnum við fjölskyldan að því að vera fjórar til fimm vikur í fríi næsta sumar, og er stefnan sett á Ítalíu.“ Eiginkona Jóns er Freyja Sigmundsdóttir, kennari í Foldaskóla, og eiga þau fjögur börn. Þau eru Sindri Snær, f. 1991, master í hafefnafræði, Sigurður Ívar, f. 1998, nemandi í MR, Jenný, f. 2000, skiptinemi í Tékk- landi, og sparigrísinn Hreiðar Freyr, f. 2010. „Svo vil ég taka fram í tilefni dagsins að ég verð uppfærður af elsta barninu og á von á fyrsta afa- barninu í byrjun ágúst.“ Feðgar Jón ásamt tveim yngstu sonunum í Frakklandi sumarið 2017. Stingur af til Lund- úna með konunni Jón H. Sigurðsson er fimmtugur í dag E lías Hergeirsson fæddist í Reykjavík 19.1. 1938 og ólst upp við Kaplaskjólsveg- inn í Vesturbænum. Hann var í Landakotsskóla, Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar við Hringbraut, stundaði nám við Verslunarskóla Íslands og lauk þaðan verslunarprófum árið 1957. Elías var þrjú sumur í sveit hjá frændfólki sínu að Varmadal á Kjalarnesi. Hann starfaði í Slippn- um í tvö sumur á verslunarskóla- árunum. Elías hóf störf við Útvegsbank- ann 1957 og starfaði þar við Elías Hergeirsson, fyrrverandi yfirbókari í Héðni – 80 ára Myndarleg systkini Börn Elíasar og Valgerðar, þau Hergeir, Margrét, Ragnheiður og Jónas. Hefur alltaf gaman af góðum knattspyrnuleik Hjónin Afmælisbarnið, ásamt eiginkonu sinni, Valgerði Önnu Jónasdóttur. Reykjanesbær Theodór Óli Kjartansson fæddist 19. jan- úar 2017 kl. 17.03 og á því eins árs afmæli í dag. Hann vó 3.950 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Viktoría Rún Eckard og Kjartan Óli Ármannsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.