Morgunblaðið - 19.01.2018, Síða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018
Skoðið vefverslun okkar casa.is
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640
KAY BOJESEN
LUNDI
Verð 14.550,- stk.
KAY BOJESEN
SÖNGFUGL ERNEST
Verð 10.750,- stk.
ROSENDAHL
Penta skálar Verð frá 4.750,-
Penta hitakanna Verð 8.750,-
KAY BOJESEN
SEBRAHESTUR
Verð 10.750,- stk.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skipulagsþrá þín á öllum sviðum
smitar út frá sér og aðrir taka þig sér til
fyrirmyndar. Frá og með deginum í dag
muntu krefjast meiri gleði og skemmtunar
í lífi þínu.
20. apríl - 20. maí
Naut Því betur sem þér tekst að halda til-
finningum þínum utan við ágreining, því
sterkari verður staða þín. Farðu varlega í
viðkvæmum fjölskyldumálum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú finnur auðveldlega á þér hver
mun hjálpa þér og hver ekki. Reyndu að
mýkja skoðanir þínar þegar þú ert innan
um viðkvæma.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að forðast aðstæður í
vinnunni sem leiða til þess að samstarfs-
fólki finnst það afskipt eða vanmetið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er meiriháttar áætlun í gangi í
vinnunni, og þú þarft ekki að stjórna öllu
svo hún gangi upp. Notaðu tækifærið til að
vinna að hugarefnum þínum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hlustaðu á eðlisávísun þína, þegar
kemur að máli sem snertir þig og þína
nánustu. Líttu í kring um þig og taktu fullt
tillit til þess sem þú sérð.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst þú vera að drukkna í alls
kyns misvísandi upplýsingum. Finndu lag
til þess að vinsa úr það sem einhver veigur
er í.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt enn langt í land með
það verkefni, sem þú beinir mestri orku
þinni að. Margt er utan þíns sviðs og alls
ekki á þínu færi að fást við.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fjölskyldumálin eru ekki ein-
föld í dag. Farðu varlega í að samþykkja
nokkuð. Við eigum auðvelt með að gleyma
okkur í efnishyggju og amstri hversdags-
ins.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er sá tími að þú þarft að láta
vinnuna ganga fyrir öðru svo þú náir að
ljúka við þau verkefni sem fyrir liggja.
Skipuleggðu tíma þinn vel.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Margar forvitnilegar hugmyndir
rekur á fjörur þínar þessa dagana. Hugs-
aðu málið í næði, og farðu af stað þegar
þú ert tilbúinn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt sennilega hitta áhugaverð-
an einstakling í dag. Vertu opinn fyrir nýj-
um hugmyndum úr óvæntri átt.
Fjórði mánuður vetrar að ís-lensku misseristali hefst föstu-
daginn í 13. viku vetrar sem er í dag
19. janúar. Ég gat ekki stillt mig um
að fletta upp í „Veðurfræði Eyfell-
ings“ hvað Þórður Tómasson hefði
um þorrann að segja. Þar stendur:
„Veðráttufar Þorra, Góu og einmán-
aðar er bundið saman í gamalli vísu:
Ef þurrt og kalt er Þorrafar,
þeysin reyndist Góa
og einmánuður votur var,
vorið gladdi frjóa.
Í „Sögu daganna“ eftir Árna
Björnsson segir að á öndverðri 19.
öld sé farið að kalla Hörpu dóttur
Þorra og Góu, – „þessi hjúskapar-
tengsl kallar Jón Árnason „boð-
orðaslangur“ eða rugling, en það
lifði langt fram á 20. öld í hús-
göngum sem þessum:
Þorri og Góa, grálynd hjú,
gátu son og dóttur eina:
Einmánuður sem bætti ei bú
og blíða Hörpu að sjá og reyna.
Á þriðjudaginn skrifaði Björn
Ingólfsson í Leirinn að hann hefði
rausnast til að reka saman vísu í
morgun:
Út að líta er aftur svalt
ofan hvítu hleður.
Sköflum grýtir út um allt
íslenskt skítaveður.
Björn bætti neðanmáls við þessari
athugasemd: „Þetta byrjaði vel og
sannleikanum samkvæmt en seinni-
parturinn ýkti mjög veðurfarið, ein-
göngu formsins vegna. Má segja að
formið hafi farið að ráða innihald-
inu. Þess vegna er þetta vond vísa en
samt óaðfinnanleg.“
Næsta dag skrifaði Ingólfur Óm-
ar:
Lít ég snævi földuð fjöll,
fellur ofan hríðin.
Þyrlast fönn um freðinn völl,
fimbul köld er tíðin.
En tók sig á og sagði, „kannski í
kaldara lagi að segja „fimbul köld“
leiðréttist og í staðinn „fremur köld
er tíðin“.
Í gær kvað svo við nýjan tón hjá
Skírni Garðarssyni:
Þorra sé ég þramma í hlað,
þæfist færð á tyllingum.
Súrmat þó og saltkjötsspað,
sé ég nú í hillingum.
Og við þetta glaðnaði yfir Ár-
manni Þorgrímssyni:
Eftir þessu einnig bíð
á mig náðin skíni,
draumar boða dýrðar tíð
og dropa af messuvíni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á þorra er ort
um veðrið og matinn
„ÉG KANN AÐ META ÞAÐ MIKILS AÐ ÞÚ
TELJIR SEKT MÍNA ENN EKKI HAFNA
YFIR ALLAN VAFA.“
„SJÁÐU ILMVATNSFLÖSKUNA SEM HANN
GAF MÉR Í AFMÆLISGJÖF!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að „sá eini
rétti“ er þarna einhvers
staðar.
EF ÞÚ HEGÐAR ÞÉR Í DAG
SKAL ÉG GEFA ÞÉR NAMMI
AHÉG VELTI FYRIR MÉR AF HVERJU ÉG FÆ
ALDREI NAMMI
ENGAR
ÁHYGGJUR!
ÉG ER BÚINN AÐ
REDDA ÞESSU!!
VIÐ MUNUM SVELTA EF VIÐ
FÁUM EKKI ÞJÓNUSTU
BRÁÐUM!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Víkverji fékk sér kranavatn íReykjavík í gær. Lét bara vaða.
Ef til vill er þetta áhættusækin hegð-
un en Matvælastofnun eða Mast
sendi frá sér fréttatilkynningu um að
þetta ætti að vera í lagi hjá Víkverja.
x x x
Ágætt er að minna á hver skamm-stöfun Matvælastofnunar er. Þó
ekki nema í þeim tilgangi að þeir sem
finna hjá sér þörf fyrir að grýta bygg-
ingu stofnunarinnar með eggjum viti
þá hvert þeir eiga að fara. Brögð eru
að því að fólk grýti þess í stað húsa-
kynni Matís eins og gerðist í stóra
Brúneggjamálinu.
x x x
Okkar glæsilegi borgarstjóri munvafalaust láta kanna málið og
ekki þarf að efast um að „farið verði
yfir alla verkferla“ eins og ávallt þeg-
ar eitthvað bjátar á. Sem virðist vera
nokkuð reglulega í Reykjavík. Sein-
heppnin þar á bæ er nokkur.
x x x
Þessi frasi um að fara yfir alla verk-ferla virðist vera afskaplega vin-
sæll í seinni tíð að Víkverja finnst.
Hvernig komust íslenskir stjórn-
málamenn af áður en einhverjum datt
þetta afbragðsfína staðlaða svar í
hug?
x x x
Víkverja þykir afskaplega fínt aðþamba vatn. Víkverji dagsins
gerir það til dæmis á hverjum morgni
á meðan reynt er að átta sig á hvaða
dagur er, hvað maður heitir og hvar
maður er staddur í veröldinni.
x x x
Í því felast auðvitað lífsgæði að fáágætis vatn úr krananum eins og
við Íslendingar búum við svona yfir-
leitt. Víkverja þætti afskaplega vænt
um ef hægt væri að komast hjá því að
klúðra þeirri stöðu.
x x x
Saurgerlar eiga auðvitað heima áheppilegri svæðum eins og
sjósundsstöðum og öllum gönguleið-
um á Ströndum en ekki í neysluvatni.
Verkferlarnir allir umtöluðu hljóta að
geta séð til þess.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Finnið og sjáið að Drottinn er góður,
sæll er sá maður sem leitar hælis hjá
honum.
(Sálm: 34:9)