Morgunblaðið - 19.01.2018, Page 44
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 19. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Lögreglan lokaði verslunum …
2. Varð úti á Sólheimasandi
3. Þetta var mjög lúmsk gildra …
4. Bjóða ferðamönnum nýsteikt …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sellóleikarinn, tónskáldið og
spunatónlistarkonan Gyða Valtýs-
dóttir heldur tónleika í menningar-
húsinu Mengi í kvöld kl. 21. Hún hóf
feril sinn með hljómsveitinni múm á
táningsaldri og hefur samið tónlist
fyrir kvikmyndir, innsetningar og
dansverk og starfað með fjölda lista-
manna úr ólíkum listgreinum.
Morgunblaðið/RAX
Gyða leikur í Mengi
Myndlistar-
konan Auður Óm-
arsdóttir opnar á
morgun kl. 16 sýn-
inguna ZOOM í
Gallerí Úthverfu á
Ísafirði. Sýning-
una vinnur Auður
út frá ljósmynd-
um sem hún fann
á filmum sem ókunnugt fólk hafði
tekið en ekki framkallað, gleymt því
að filmurnar voru í vélunum sem síð-
an enduðu á mörkuðum, hér á landi
sem erlendis.
Gleymdar ljósmyndir
í Gallerí Úthverfu
Söngkonan Janis Joplin hefði orðið
75 ára í dag og af því tilefni verða
haldnir afmælistónleikar henni til
heiðurs í Gamla bíói í kvöld kl. 21.
Andrea Jónsdóttir útvarpskona mun
fræða gesti um Joplin og átta manna
hljómsveit leikur lög hennar
við söng fimm söngkvenna
en þær eru Andrea Gylfa,
Salka Sól, Bryndís Ás-
mundsdóttir,
Stefanía
Svavars-
dóttir og Lay
Low.
Tónleikar til heiðurs
Joplin í Gamla bíói
Á laugardag Breytileg átt 3-8 m/s, en norðan 8-13 NV-lands fram
yfir hádegi. Él fyrir norðan en að mestu bjart S- og A-til.
Á sunnudag Stíf austanátt með slyddu eða snjókomu um landið
SA-vert en úrkomulítið annars staðar.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt 8-15 NV-lands, annars hægari.
Snjókoma eða él á N-verðu landinu en bjartviðri syðra.
VEÐUR
„Maður hugsaði ekkert um
þetta þegar leikurinn var í
gangi. Við ætluðum okkur
alltaf að vinna leikinn við
Króata og vorum með það í
huga að þannig fengjum við
tvö stig með okkur í millirið-
ilinn,“ sagði Kristján Andrés-
son, landsliðsþjálfari Svía,
við Morgunblaðið en hans
menn sáu til þess að Ísland
féll úr keppni á Evrópu-
mótinu í handknattleik í
Split á þriðjudagskvöldið. »1
Hugsaði ekki um
þetta í leiknum
Tveir af landsliðsmönnum Íslands í
knattspyrnu skiptu um félag í gær og
báðir færðu sig um set innanlands.
Rúrik Gíslason fór frá
Nürnberg til Sand-
hausen í Þýskalandi og
Ragnar Sigurðsson fór
frá Rubin Kazan til Rost-
ov í Rússlandi en báðir
eru þeir lausir allra
mála hjá sínum fyrri
félögum, Nürn-
berg og Fulham.
»4
Ragnar og Rúrik skiptu
báðir um félag
ÍR-ingar eru einir á toppi Dominos-deildar
karla í körfuknattleik eftir góðan sigur á
Íslandsmeisturum KR, 87:78, í Seljaskól-
anum í gærkvöld. Þeir eru nú tveimur stig-
um á undan KR, Haukum og Tindastóli.
Haukar töpuðu nokkuð óvænt fyrir Þór í
Þorlákshöfn og nýkrýndir bikarmeistarar
Tindastóls lentu í basli með Þór á Akur-
eyri en unnu nauman sigur. Stjarnan vann
Njarðvík í spennuleik. »2-3
ÍR-ingar skelltu KR og
eru einir á toppnum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Vinkona mín, Bára Einarsdóttir,
dró mig nú bara í þetta,“ segir
Guðrún Hafberg, 62 ára skytta.
Hún fékk skotfimiáhugann 59 ára
gömul eftir að vinkona hennar
hvatti hana.
„Við erum báðar í stjórn Skot-
íþróttafélags Kópavogs. Ég kemst
nú ekki með tærnar þar sem hún
hefur hælana,“ segir Guðrún og
hlær við.
Guðrún hefur náð glettilega
góðum árangri á skömmum tíma,
þrátt fyrir að hafa byrjað seinna á
lífsleiðinni en margur, en hún hef-
ur unnið silfur- og bronsverðlaun
hérlendis.
„Við Bára erum góðar vinkonur
og erum mikið saman. Þegar hún
byrjaði í þessu varð hún alveg for-
fallin og var alltaf að reyna að fá
mig með. Ég byrjaði á að baka
vöfflur á mótum. En ég fór að
prófa og byrjaði með loftskamm-
byssu.
Svo fór ég að skjóta með loft-
riffli, 22 kalibera skammbyssu en
síðan enskum riffli, þar sem mað-
ur skýtur pínulítinn hring á 50
metra færi liggjandi, þetta er
nokkuð krefjandi grein.
Enskur riffill uppáhaldsgrein
Guðrún segist vera í nokkrum
greinum og misjafnt hvað fólk taki
þátt í mörgum. Karlar og konur
keppi saman í sumum greinum,
t.d. skammbyssu, en ekki í öðrum.
„Mínar uppáhaldsgreinar eru
enski riffillinn og loftriffill.“ Guð-
rún á fimm skotvopn og hefur far-
ið þrisvar á InterShoot, alþjóðlegt
árlegt og opið loftbyssumót í Hol-
landi, og orðið í þriðja sæti í liða-
keppni þar.
„Áhuginn hefur vaxið í ýmsar
áttir, eins og t.d. veiðar. Við för-
um stelpuhópur saman til Eist-
lands á haustin, ég hef farið tvisv-
ar. Ég skaut 400 kg elg í síðustu
ferð.“
Þær fengu ekki að taka kjötið
með en Guðrún kveður það vera
ljúffengt og það sé sent í kjöt-
vinnslu og selt, engu sé hent. Hún
bíður nú eftir að fá hornin send en
þau eru verkuð úti. Á Íslandi hef-
ur Guðrún farið á gæs og skotið
fimm en hefur enn ekki farið á
hreindýraveiðar. Aðspurð segir
hún sportið ekki þurfa að vera
eins dýrt og maður gæti haldið,
a.m.k. ekki loftbyssur.
Guðrún kveður skotfimina vera
skemmtilegan félagsskap, en
nokkur skotfimifélög eru víða um
land. „Skotfimin veitir mér svo
mikla ánægju, ég mun halda þessu
áfram á meðan ég get.“
Úr vöfflubakstri í skotfimi
Vinkonurnar
Guðrún og Bára
féllu fyrir skytteríi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vígalegar Þær Guðrún Hafberg og Bára Einarsdóttir báðar í vesti með enskan riffil við skotskífurnar.
„Vinur minn, Jónas í lögreglunni,
kynnti skotfimi fyrir mér. Ég byrj-
aði árið 2013 og þá varð ekki aftur
snúið,“ segir Bára Einarsdóttir,
skytta og varaformaður Skot-
íþróttafélags Kópavogs, hress í
bragði. Hún segir misskilning að
skotíþróttir séu tóm læti, frekar
eins og hugleiðsla og hvetur konur
til þátttöku.
„Ég hef veitt rjúpur, endur og
gæsir á Íslandi og rádýr í Eist-
landi,“ segir Bára sem hefur stund-
að veiðar síðan 2003.
Bára var valin
„skotíþróttakona
ársins“ 2015,
2016 og 2017 hjá
félaginu sínu og
er nú í vali fyrir
„íþróttakonu
Mosfellsbæjar“.
Hún hefur sett
nokkur Íslands-
met og verið Íslandsmeistari í loft-
skammbyssu og enskum riffli
ásamt því að hafa æft með norska
landsliðinu í skotfimi.
Skotfimi eins og hugleiðsla
BÁRA EINARSDÓTTIR Á NOKKUR ÍSLANDSMET
Bára Einarsdóttir