Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Qupperneq 8
Á fimmtudag og föstudag fórufram í París „réttarhöld“ yf-ir ofsóknum tyrkneskra
stjórnvalda á hendur Kúrdum. Rétt-
arhöldin set ég í gæsalappir til að
leggja áherslu á sérstöðu dómstóls-
ins sem ekki er hluti af viðurkenndu
alþjóðlegu réttarkerfi heldur er
hann í anda stríðsglæpastóls sem
breski heimspekingurinn og
mannréttindabaráttumaðurinn
Bertrand Russell og franski heim-
spekingurinn Jean- Paul Sartre
stóðu fyrir á sjöunda áratug aldar-
innar sem leið til að draga fram í
dagsljósið ofsóknir og ofbeldisverk
framin í skjóli ríkisvalds. Dómstóll-
inn ber nú heitið, í frjálslegri þýð-
ingu, Dómstóll til varnar alþýðu,
Permanent Peoples’ Tribunal, og
hefur verið kallaður reglulega sam-
an til að fjalla um aðskiljanleg mál
frá því hann var settur á fót í Bol-
ogna árið 1979 en áður hafði Russell-
dómstóllinn fjallað um stríðsglæpi í
Víetnam og Rómönsku Ameríku.
Bertrand Russell-stofnunin er efst á
blaði sem stuðningsaðili réttarhald-
anna yfir tyrkneskum yfirvöldum
þegar rétturinn var kallaður saman í
vikunni.
Réttarhöld fyrir dómstólnum fara
fram með því að fram er sett form-
leg ákæra, síðan eru kallaðir fyrir
dóminn færustu sérfræðingar í al-
þjóðalögum, lögum og sáttmálum á
sviði mannréttindamála og ýmsum
sviðum sem tengjast málefninu. Síð-
an koma fyrir dóminn einstaklingar
sem bera vitni um ofbeldi sem þeir
hafa orðið fyrir sjálfir eða þekkja ná-
ið til. Gerandinn lætur ekki sjá sig.
Í dómnum sátu að þessu sinni sjö
dómarar, allir með langa reynslu úr
alþjóðlegu starfi, fræðimenn, dóm-
arar úr fremstu röð. Allir hafa þeir
getið sér orð fyrir að standa af ein-
urð vörð um mannréttindi og ekki
bognað þótt á móti hafi blásið. Þar
má nefna Denis J. Halliday, sem
sagði af sér sem æðsti eftirlitsmaður
SÞ í Írak í mannréttindamálum und-
ir aldamótin þegar Sameinuðu þjóð-
irnar neituðu að verða við ákalli
hans og annarra eftirlitsmanna í
Írak um að beita sér fyrir afnámi
viðskiptabanns á landið sem sannan-
lega hafði valdið dauða hálfrar millj-
ónar barna.
Eftir stendur reiðin yfir lyginni,
ekki síst hjá þeim sem létu blekkjast
af lygaáróðri þeirra fóstbræðra
Bush og Blairs.
Ofsóknir á hendur Kúrdum hafa
staðið linnulaust í áratugi en í
réttarhöldunum tók ákæran hins
vegar aðeins til tveggja ára, 2015 og
þó einkum 2016, en á því tímabili
voru framin hryllileg hrannvíg,
morð, mannrán, aftökur án dóms og
laga, fangelsanir og pyntingar í bæj-
um og borgum í Kúrdahéruðum
Suðaustur-Tyrklands. Í tvo daga
hlýddum við, sem boðið hafði verið
til að fylgjast með réttarhöldunum, á
frásagnir vitna, horfðum á ljós-
myndir og myndbönd svo ægileg að
erfitt er að lýsa. Færðar voru sönn-
ur á að allt þetta var gert að yfirveg-
uðu ráði hryðjuverkamannanna sem
stýra Tyrklandi, bandamanna Ís-
lendinga í NATÓ.
Öllu þessu hafði ég fengið að
kynnast á ferðum mínum til þessara
svæða og í frásögnum og skýrslum
en þegar maður fékk þessa inngjöf í
sálarlífið, skipulega fram setta og
hlustað var á þau sem áttu alla þessa
þjáningu í vitund sinni, þá held ég að
það hafi verið sameiginleg viðbrögð
allra sem á hlýddu, að nú væri komið
að okkur; að gera allt sem í okkar
valdi stæði til að stöðva hryllinginn.
Þrjú hundruð áhorfendur grétu.
Reyndar vissi heimurinn þetta
allt. Hafði séð og skilið. En samt
gerðist ekkert. Sameinuðu þjóðirnar
töluðu um „alvarlega atburði“ en svo
var það ekkert meira.
Menn hrökkva stundum við þegar
Sameinuðu þjóðirnar eru gagn-
rýndar eða svokölluð mannréttinda-
samtök sem gefa sig út fyrir að vera
eftirlitsaðilar en eru stundum lítið
annað en varðhundar stórvelda. Of-
an af öllu þessu verður að fletta. Það
á enginn að vera laus undan óvæg-
inni gagnrýni og fjölmiðlar verða að
nenna að kafa í málin, allir fjöl-
miðlar, líka værukærir íslenskir.
Í París var horft til liðinnar tíðar
en sjónum manna var þó stöðugt
beint að líðandi stund. Árásir
Tyrkjahers á Afrin í Norður-
Sýrlandi þessa dagana voru á allra
vörum. Sá veruleiki hefur verið
færður inn á okkar borð með morð-
inu á ungum íslenskum hugsjóna-
manni, Hauki Hilmarssyni, sem ný-
lega féll í loftárásum á því svæði.
Hann hafði svarað innra kalli um að
berjast við hlið þeirra sem sótt var
að.
Hann má ekki hafa barist til
einskis. Ábyrgðin á ofbeldi gegn
varnarlausu fólki er okkar allra.
Brot á Kúrdum skoðuð í
anda Bertrands Russells
’Öllu þessu hafði égfengið að kynnast áferðum mínum til þessarasvæða og í frásögnum og
skýrslum en þegar maður
fékk þessa inngjöf í sálar-
lífið, skipulega fram setta
og hlustað var á þau sem
áttu alla þessa þjáningu í
vitund sinni, þá held ég að
það hafi verið sameiginleg
viðbrögð allra sem á
hlýddu, að nú væri komið
að okkur; að gera allt sem í
okkar valdi stæði til að
stöðva hryllinginn. Þrjú
hundruð áhorfendur grétu.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Bertrand Russell
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Náttblinda • Augnþurrkur • Viðkvæm augu • Versnandi sjón
Stuðlar að góðri
h il
Blue Berry töflurnar innihalda,
auki valinna vítamína,
náttúrulegt lútein í samsvarandi
magni og er í 1. kg af íslenskum
bláberjum en þetta fæðubótaefni
hefur reynst mörgum vel við að
stuðla að betri virkni augnanna.
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 17:00 í Hörpu
Kvikmyndagerðar-
maðurinn Dagur
Kári Pétursson
tjáði sig um nýjan
búning íslenska
landsliðsins í
knattspyrnu. „Mér líst vel á að
mæta til leiks á HM í þessum
sláturhúsagalla; blóðslettur á erm-
unum og alles!“
Linda Björk Árnadóttir,
lektor í fatahönnun við LHÍ, tjáði
sig um treyjumálið en hún hefði
kosið að íslenskur
hönnuður hefði
fengið að spreyta
sig á verkinu.
„Nú hefur kom-
ið í ljós að ítalsk-
ur hönnuður hef-
ur hannað hina nýju treyju og
hinni íslensku samkeppni stungið
undir stól. Það eru augljóslega til
peningar í þetta verkefni en samt
má ALLS EKKI greiða íslenskum
hönnuðum fyrir vinnu sína. Ég er
mjög svekkt út í íslensk fótbolta-
yfirvöld vegna þessa máls.“
Rithöfundurinn Andri Snær
Magnason deildi myndbandi frá
Leikfélagi Menntaskólans á Akur-
eyri um uppsetninguna á Lovestar.
„Akureyringar og nær-
sveitamenn ættu
endilega að mæta
og fagna
hæfileikafólkinu í
Leikfélagi Mennta-
skólans á Akur-
eyri. Það er alltaf
smá spenningur að mæta á frum-
sýningu sem byggist á manns eigin
verki en þarna fóru þau alveg
fram úr björtustu vonum. Leikur-
inn, söngurinn, lifandi tónlist,
sviðsmyndin, leikstjórnin allt tókst
eins og best verður á kosið.
Söngleikjaformið hentaði stemn-
ingunni sérlega vel.
Takk fyrir mig MA og til ham-
ingju Akureyri með þennan magn-
aða hóp.“
AF NETINU