Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Page 10
Gylfi meiddur en
verður með á HM
Gylfi Sigurðsson verður líklega frá keppni í sex til átta
vikur vegna meiðsla á hné sem hann varð fyrir snemma
leiks með Everton, hélt þó áfram og hljóp meira en
nokkur annar! Óttast var að Gylfi missti af HM í
fótbolta í Rússlandi en hann verður með.
Andri las best upp
Andri Steinar Johansen, nem-
andi í Setbergsskóla í Hafnar-
firði, bar sigur úr býtum í
lokakeppni Stóru upplestrar-
keppninnar. Er þetta í 22.
skipti sem keppnin er haldin
og allir grunnskólar landsins
með 7. bekk taka þátt í henni.
Það er gott að búa í Hafnarfirði!
Þrjár verslanir í Hafnarfirði voru með lægst
verð á 22 vörutegundum af 24 sem Alþýðu-
sambandið kannaði í fiskverslunum og fisk-
borðum matvöruverslana víða um land. „Hafn-
firðingar halda margar fastar utan um
budduna en fólk í Reykjavík. Hér hefur fólk
þekkingu á fiski og veit hvað hann á að kosta.
Sums staðar pælir fólk ekki mikið í verðinu, þó
svo að það geri það hér,“ sagði Jón Garðar Sig-
urvinsson í Litlu fiskbúðinni við Helluhraun.
Ný meinvörp í Stefáni Karli
Leikarinn Stefán Karl Stefánsson greind-
ist með krabbamein 2016 og nú hafa fund-
ist ný meinvörp sem ekki er hægt að
lækna. Við taka lífslengjandi tilraunir með
lyfjagjöfum, segir eiginkona hans, Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir, á Facebook.
Ís-hokkí-kalt
steypibað
Ásynjur, eldra lið Skautafélags
Akureyrar, urðu Íslandsmeist-
arar í íshokkíi kvenna eftir sigur
á yngra liði SA, Ynjum. Bart Mor-
an þjálfari fékk ískalt steypibað
en sá er siður þegar meistaratitill
í íshokkíi er í höfn!
Lúxusbílar
renna út
Leita þarf samanburðar
við olíuríki til að finna
jafnmikla sölu á Porsche
miðað við höfðatölu og
á Íslandi, segir Benedikt
í Bílabúð Benna. For-
ráðamenn BL spá því að
lúxusbílar seljist eins og
heitar lummur í ár.
Morgunblaðið/Hari
Daníel
sigursæll
Daníel Bjarnason
tónskáld er maður
ársins í íslensku
tónlistarlífi. Hann
hlaut fern verð-
laun þegar Íslensku
tónlistarverðlaun-
in voru afhent.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Almött veggjamálning
Dýpri litir - dásamleg áferð
ColourFutures2018
Cobalt Night
VETTVANGUR
Íslenska þjóðin er þjóð átaka. Þá er ég ekki að tala umstríð heldur vitundarvakningar, eins og það er kallað.Bara á þessu ári erum við búin með meistaramánuð,
veganúar og mottumars. Þá tek ég ekki með öll hin hefð-
bundnu nýársátök þar sem fólk ætlar að breyta algjör-
lega um lífsstíl á nýju ári. Hætta að drekka, reykja og
jafnvel borða.
Þegar nýjasta átakið byrjaði, #karlmennskan, þar
sem karlmenn segja frá tilfinningum sínum, varð mér
hugsað til brandarans um Finnann sem elskaði konuna
sína svo mikið að hann var næstum búinn að segja henni
það.
Mér finnst hann fyndinn vegna þess að hann er svo
fjarri mér og hvernig ég og mín fjölskylda erum. Við er-
um hluti af kynslóð sem er óhrædd við að segja hvað okk-
ur finnst, láta vita hvenær okkur líður illa og ekki síður
hvenær okkur líður vel. Tala um allt mögulegt og við
skömmumst okkur ekki fyrir að vera eins og við viljum
vera.
Ég var mikið hjá afa og ömmu. Ég veit ekki hvað ég
hefði haldið ef þau hefðu sagt mér að þau elskuðu mig.
Þau voru ekkert mikið að tala um svoleiðis hluti. En ég
vissi alltaf hvað þeim fannst um mig og dró aldrei vænt-
umþykju þeirra í efa. Það var bara enginn að fjasa um
svoleiðis hluti daginn út og inn. Svo mátti auðvitað ekki
nota þessa sögn, að elska, nema í mjög þröngum skiln-
ingi.
Börnin mín vita að ég elska þau. Af því ég segi þeim
það á hverjum degi. Það er ekki eins og ég þurfi að gera
það en mér finnst það betra. Það er eðlilegt fyrir mig og
eðlilegt fyrir þau. Það hefur ekki alltaf verið þannig.
Karlar fyrri kynslóða voru aldir upp við að vera harðir.
Til að skaffa, takast á við áföll og vera höfuð fjölskyld-
unnar. Lífsbaráttan var erfiðari og tilfinningar voru ekki
eitthvað sem menn flögguðu. Og menn voru þess vegna
ekki grenjandi útum allt, eins og það hefði sennilega ver-
ið kallað. En það er ekki þar með sagt að þeir hafi ekki
elskað börnin sín og að þeir hafi ekki grátið. Það fékk
bara enginn að vita af því.
Kannski er málið að við höfum það svo gott núna að við
höfum tíma til að hugsa um svona hluti, eins og tilfinn-
ingar. Við höfum tíma til að hanga yfir börnunum okkar
þar til þau fá alveg nóg og langar stundum bara meira til
að tala við símana sína en okkur.
Það sem skiptir þó máli er að fólk má vera eins og það
vill. Að það átti sig á að það er eðlilegt að viðurkenna
vandamál og að það er ekki veikleikamerki að leita sér
hjálpar. Karlar mega hlæja og gráta og naglalakka sig og
vinna á leikskóla og æfa dans og hlusta á Abba og bara
allt sem þeim dettur í hug. Kannski gerum við okkur ekki
almennilega grein fyrir því, en það hefur aldrei verið jafn
mikið frelsi og nú til að vera bara eins og maður vill.
En gleymum ekki að því fylgir líka frelsi manna til að
vera tilfinningalega lokaðir, gamaldags karlmenn sem
pissa standandi.
Það skemmtilega við frelsi er að það virkar nefnilega í
allar áttir.
Grátandi karlmenn
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Á meðan ég man
’Kannski er málið að við höfum það svo gott núna að við höfum tíma til að hugsaum svona hluti, eins og tilfinningar. Við höfum tíma til að hanga yfir börnunumokkar þar til þau fá alveg nóg og langar stundum bara meira til að tala við símanasína en okkur.
UMMÆLI VIKUNNAR
’Í raun er orðið jafn auðvelt að panta vændiskonu [íReykjavík] og að panta pítsu.
Snorri Birgisson, yfirmaður mansalsteymis
Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
VIKAN SEM LEIÐ
Bílar