Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Side 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Side 17
ig upp hættur frá Srí Lanka. „Þar heyrði ég mikið í sprengjum. Það sprakk líka einu sinni sprengja inni í Colombo tveimur húsalengjum frá okkur. Svo sá ég þar mjög mikið ummerki stríðs; sprengdar rútur í vegköntum og sund- urskotin hús.“ Ekki hægt að væla Solveig segir starfið oft og tíðum hafa verið mjög krefjandi. „Það reyndi mest á mann í Súdan af því að ég bjó við þessar aðstæður, að lifa nánast eins og flóttamaður í tjaldi. Og það var oft svo mikil rigning að maður spólaði bara í drullu. Maður komst ekkert áleiðis stundum,“ segir hún. Hvernig var það, gátuð þið komist í sturtu? „Það var settur upp tankur og hægt að fara í kalda sturtu. Á tímabili vorum við bara með fötur með vatni til að hella yfir okkur. En í sturtunni var maður ekki lengi því það var löng röð og takmarkað vatn. Ef ég var sein á fætur þurfti ég að bíða lengi í röð. Yfir daginn svitnaði maður svo mikið að það var súr lykt af öllum en við vorum öll í sömu fýlunni svo það var bara normið. Það var alltaf yfir 40°C hiti og maður var alltaf sveittur. Og stundum var ekki til drykkjarvatn í nokkra daga og þá var bara drukkið kók,“ segir hún og hlær. Blaðamanni verður á orði að þetta hljómi eins og að búa í helvíti. „Þegar þú ert í þessum aðstæðum þar sem þú ert að hjálpa fólki, og þú getur í raun alltaf farið, en ekki fólkið sem býr þarna, þá er mað- ur ekki að væla. Það er einnig svo margt fal- legt og alveg einstakt sem er svo dýrmætt að hafa upplifað sem á eftir að næra mig ævi- langt.“ Starf hennar í Súdan fólst í að vinna með heimamönnum af ólíkum starfsstéttum; kenn- urum, prestum og öðrum, til þess að fara í þorpin og kortleggja aðstæður flóttafólksins og meðal annars setja upp ferla til að hjálpa til við sameiningu fjölskyldna en Unicef leggur áherslu á að nýta þekkingu heimamanna, efla og styðja þeirra starf. „Því þegar átökin brutust út þá tvístruðust oft fjölskyldur. Það flúðu allir. Og við fengum upplýsingar um að einhver væri búin að „tína upp“ börnin og fara með þau eitthvað og þetta er það sem gerist. Þess vegna er barnavernd svona mikilvæg, því um leið og barnið er orðið viðskila við foreldra sína eða ættingja, þá er það bara spurning um hver finnur það. Hver verða örlög barnsins? Þau treysta næsta manni sem réttir þeim höndina og sem betur fer er margt gott fólk til staðar en ekki allir. Þess vegna er svo mikilvægt að bregðast hratt við og forða þeim frá hættum alveg um leið, því þetta er ekki síður mikilvægt en matvæla- aðstoðin. Því miður er ekki hugað að verndinni nægilega fljótt í neyðaraðstoð. Margt gerist sem við sjáum ekki og börnin segja ekki þegar á þeim er brotið. Verndin er ómælanleg og ekki áþreifanleg eins og matarpakkinn,“ segir Solveig. Mun búa í ferðatösku Nú styttist í Eþíópíu á ný. Hvernig leggst það í þig? „Maður heldur sig vera orðinn sjóaðan en það er nauðsynlegt samt að undirbúa sig and- lega. Ég hef hitt sálfræðing reglulega fyrir brottför til að aðstoða mig við undirbúninginn. Vinnan reynir á og það verður mikið um ferða- lög. Ég verð í Addis Ababa en mun ferðast þó- nokkuð. Ég kem til með að búa í ferðatösku eins og ég hef oftast gert,“ segir Solveig. „Að hossast í jeppum í sandi, drullu og steikjandi hita?“ dettur út úr blaðamanni. „Já!“ Hún skellihlær. „Það kom sjálfri mér á óvart hvað maður hefur mikla orku til að starfa í þessu.“ Langaði þig aldrei að grenja? „Það kom alveg fyrir. Oft á tíðum. Þegar ég horfði upp á eymdina, vannærð börn og upp- lifði vanmátt gagnvart aðstæðum.“ Hvernig er þá tilfinningin að vita að maður getur ekki hjálpað öllum? „Hún er mjög erfið. Það er þessi vanmáttur sem maður fyllist oft. Því þetta er svo stórt, og ógjörningur að bjarga öllum. Stundum er betra að vera lengur á stöðum því þá nær mað- ur að sjá fyrir endann á verkefnum. Ég kem svo oft og byrja á þeim en það er það sem neyðaraðstoðin býður upp á, að koma verk- efnum af stað. Svo fara hjálparstarfsmennirnir og heimamenn taka við og við tekur þróunar- aðstoð eftir neyðina,“ segir hún. Að bjarga mannslífum Hvað fær þig til þess að vinna þetta starf? „Að lina þjáningar. Það er það mikil þjáning í heiminum að ég vil leggja mitt af mörkum til þess að lina þær. Ég veit að þessi hjálp er að bjarga lífum. Ef maður getur komið í veg fyrir að ein manneskja deyi, á maður ekki að reyna að gera það? Líf er svo dýrmætt, maður getur ekki setið aðgerðarlaus. Ég er bara eitt lítið peð í þessu hjálparstarfi, ég er bara að reyna að búa til betri heim, eins væmið og það hljóm- ar,“ segir Solveig og skammast sín ekkert fyr- ir væmnina, sem brýst fram í fleiri aðstæðum að hennar sögn. „Ég sendi endalaus SMS til stuðnings Ara í söngvakeppninni og grét bara með honum,“ segir Solveig og hlær. Það er liðið langt fram á eftirmiðdag og við sláum botninn í samtalið. Enda nóg að gera hjá Solveigu. „Nú þarf ég að fara að pakka. Finna allan mögulegan búnað gegn móskítóflugunum, eins og moskítónet, sprey og spaða sem ég beiti grimmt og hef náð að þjálfa upp svakalega snerpu! Ef það er eitthvað sem gæti fengið mig til að hætta við þá eru það helvítis mosk- ítóflugurnar. Þær virðast elska mig í tætlur í orðsins fyllstu merkingu!“ Morgunblaðið/Ásdís ’ Ég fékk eitthvert sníkjudýr ímagann frá menguðu vatnisem varð til þess að ég fékk enganæringu og missti mátt og mörg kíló. Ég var einnig óheppin að fá annars konar sníkjudýr eða pöddu í kálfann sem byrjaði að grafa sig inn hægt og rólega þannig að í lokin varð til stærð- ar hola inn að beini. „Ef maður getur komið í veg fyrir að ein manneskja deyi, á maður ekki að reyna að gera það? Líf er svo dýrmætt, maður getur ekki setið aðgerðalaus. Ég er bara eitt lítið peð í þessu hjálparstarfi, ég er bara að reyna að búa til betri heim, eins væmið og það hljómar,“ segir Solveig. og því betra að hlýða. Það var talið öruggast að fara fyrstur úr aðstæðunum, en svo var það í raun ekki vegna glundroðans og hávaðans sem skapaðist þegar þyrlan hóf sig á loft. Við það magnaðist spenna sem varð til þess að skotið var á þyrluna en sem betur fer var botninn skotheldur. Þetta var súrrealískt ástand. Skot- hvellir bárust úr öllum áttum og fólk byrjaði að hlaupa og sumir skriðu í skjól á bak við bíla og vinnuvélar. Áður en ég fór í þyrluna, skreið ég á bak við stórt dekk á vinnuvél en svo var hrópað og mér bent á að ég væri við hliðina á olíutanki þannig að ég skreið eitthvað annað,“ segir Solveig. Varstu ekki hrædd? „Jú, jú. Það er alveg sérstakt hvernig ég brást við alveg ósjálfrátt og fór í einhverskon- ar sjálfsbjargargír. Við fórum inn í þyrluna og þegar skotin byrjuðu að dynja hentu sér allir á gólfið og reyndu halda sig eins neðarlega og hægt var. Ég lenti á „toppnum“ og fannst ég vera auðvelt skotmark enda gat ég séð ástand- ið út um kýraugað á þyrlunni áður en við tók- um á loft og það tók nokkurn tíma. Mér fannst ég alls ekki örugg!“ segir hún. „Meðan á þessu stóð náði ég að halda ró minni og einbeitingu þar sem ég var í sjálfs- bjargargírnum en þegar ég var komin í skjól í Kadugli, næstu borg frá átökunum, braust hræðslan og skjálftinn fram. Það tók smátíma að vinna úr þessari reynslu en besti stuðning- urinn var að ræða atvikið og fara gegnum þetta saman,“ segir hún. „En það var ekkert hægt að staldra lengi við því við tók hjálparstarfið; að sinna neyð heima- manna sem þurftu að flýja á tveimur jafn- fljótum í nærliggjandi bæi 60 km frá upp- tökum átaka, í leit að skjóli frá kúlnahríðinni,“ segir hún. „Svo var önnur skotárás í Súdan þegar við vorum inni í tjaldi hjá Rauða krossinum. Það var skotið fyrir utan og maður sá ekki hvað var að gerast, heldur heyrði bara skothvellina. Ég henti mér bara í gólfið en það er það fyrsta sem maður lærir. Þetta var að kvöldi til en þetta reyndust vera drukknir hermenn að skjóta af byssum,“ segir Solveig og rifjar einn- 18.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.