Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Síða 20
Þær Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir og Þórunn Hannesdóttir
eru hönnuðirnir á bak við North limited. North limited er
þverfaglegt hönnunarteymi þar sem hönnunin er innblásin
af íslenskri náttúru og umhverfi og hefur hönnunarteymið
unnið markvisst að því að kynna íslenska hönnun á erlendri
grundu.
Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir hannar undir
vörumerkinu bybibi fyrir North Limited.
Sigríður sýnir vörulínuna Kjarna, umbreytingu hluta, sem
er vörulína gerð úr steypukjörnum og náttúrusteinum sem
falla til við iðnaðarvinnu. Markmiðið er að taka afgangsefni,
vinna það sem minnst en þó til fulls og á einfaldan máta,
þannig að það nýtist á sem margvíslegastan hátt.
Kjarna vörulínan er í stanslausri þróun. Leitast er við að
nota sama formið en vinna með ólík efni og raða þeim sam-
an í einn heildstæðan hlut til að fá ólík litarblæbrigði. Kerta-
stjakar eru gerðir úr marmara, hrauni, tré, messing, gler og
leir.
Salka, sem einnig er til sýnis, er hluti af Family-vörulínu
sem hefur verið framleidd úr postulíni um nokkurt skeið og
nú er nýr litur kominn í safnið, kóbalt blár. Einfalt og nota-
legt formið hentar bæði fyrir heita og kalda drykki, eftir-
rétti eða eitthvað allt annað.
„Steypukjarninn er einfalt og fallegt form sem býður upp
á ótal möguleika og út frá honum hafa þessar hugmyndir
kviknað sem ég nota á þessari sýningu en markmiðið hefur
ávallt verið að hanna einfalda hluti sem hafa margþætt
notagildi,“ útskýrir Sigríður spurð hvernig hugmyndin hafi
kviknað.
„Verkefnið, umbreyting hluta er í stöðugri þróun en núna
er ég að skoða mismunandi nálganir og vinnsluaðferðir,
sem eru enn á byrjunarstigi. Ég er mjög ánægð með sam-
starfið okkar í MUN og hlakka til að vinna áfram úr þeim
hugmyndum sem hafa komið upp varðandi rýmið sem við
erum með.“
Aðspurð hvað sé mikilvægast við að taka þátt í Hönn-
unarMars segir Sigríður ótalmargt mikilvægt við viðburð-
inn en trúlega séu það tækifærin sem skapast hjá þátttak-
endum sem eru mörg og margvísleg.
„HönnunarMars er ekki síður mikilvægur fyrir neytand-
ann þar sem hann getur á einni helgi fengið góða innsýn í
hvað er að gerast bæði í hönnun og framleiðslu á Íslandi í
dag. Ég tel að HönnunarMars verði sífellt betri með hverju
árinu sem líður. Hann er alltaf kærkominn, fullur af góðri
orku sem er vel þegin eftir langan vetur.“
Þórunn Hannesdóttir hönnuður sýnir vörumerkið
FÆRIÐ fyrir North Limited.
„Ég er að sýna nýjustu línuna af Basalt speglunum mínum.
Þetta er önnur línan sem ég hanna fyrir Basalt speglana og í
þetta sinn eru speglarnir innblásnir af íslenskum sögum og
gerðir úr blágrýti og gleri,“ útskýrir Þórunn en verkin virka
sem margbreytilegur nytjaskúlptúr.
Hönnunin á bak við speglana er unnin út frá línu sem
kemur út á árinu frá FÆRIÐ.
„Línan er unnin út frá sögum og hugarheiminum sem
umkringir íslenskar þjóðsögur af huldufólki og mig langaði
að skoða margbreytileg náttúruleg efni fyrir sömu línuna til
þess að skapa einskonar upplifun fyrir heimilið. Þannig vinn
ég með blágrýti í speglunum og litaða spegla til þess að
túlka bergið og dulúðina í sögunum.“
Aðspurð segir Þórunn vörurnar skapaðar til þess að fara
á markað og verða þar á meðal til sölu í MUN. „Á næstu
mánuðum verða spennandi breytingar í gangi hjá okkur í
FÆRID og við munum kynna enn fleiri nýjar vörur á mark-
aðinn svo það verður spennandi að sjá hvernig við þeim
verður tekið.“
Þórunn segir jafnframt HönnunarMars einstakan að því
leyti að hann er alls ekki eins og aðrar hönnunarvikur úti í
heimi. „HönnunarMars er mun aðgengilegri að mínu mati,
og þjóðin tekur virkan þátt í hátíðinni. Því er mikilvægt fyr-
ir hönnuði að taka þátt í þessari hátíð og bjóða alla vel-
komna í umræðuna um íslenska hönnun og nýta tækifærið
og gleðjast saman.“ Kertastjakar gerðir úr marmara, hrauni, tré, messing, gleri og leir.
Innblástur úr íslenskri náttúru og umhverfi
Önnur lína Þórunnar af Basalt speglunum sem að þessu sinni eru
innblásnir af íslenskum sögum og gerðir úr blágrýti og gleri.
Sigríður segir steypukjarnann einfalt og fallegt form sem býður
upp á ótal möguleika.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018
HÖNNUN Um helgina má búast við miklu lífi víðsvegar um borgina þar semHönnunarMars stendur nú yfir. Það ættu allir að finna eitthvaðskemmtilegt að skoða enda mikill fjöldi viðburða opinn. Dagskrá
HönnunarMars má skoða á vefsíðunni honnunarmars.is.
HönnunarMars um helgina
FOREST er mjúk
værðarvoð frá
IHönnu í stærð-
inni 100x140 cm.
Hannar það sem
vantar á heimilið
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hjá
IHönnu sýnir TILES-handklæði og
FOREST-værðarvoð úr bómull á sýn-
ingunni í MUN.
FOREST-værðarvoð er aðeins
minni en ullarværðarvoðin frá
IHönnu og enn mýkri. Handklæðin
eru komin á markað en værðarvoð-
irnar eru í vefstólnum og koma í búð-
ir á næstu vikum.
„FOREST-mynstrið vísar í greni-
skóg sem útfærður er á grafískan
máta þar sem línur mætast og úr
verður skógur. Teppið er svart og
natur á lit en önnur hliðin er dagur,
þar sem allt er bjart og létt en hin
hliðin er nótt, þar sem er myrkur og
meiri dulúð yfir. Innblástur TILES-
handklæðanna kemur út frá leiðinni
sem við göngum í gegnum lífið.
Stundum er vegurinn grýttur en með
tímanum styrkist maður og nær að
fylla upp í eyðurnar á veginum.“
Handklæðin eru framleidd úr þéttri
hágæða bómull í Portúgal í þremur
litum og fjórum stærðum. Aðspurð
hvað kveikti hugmyndina segir Ingi-
björg sér finnast voðalega gaman að
hanna það sem hana vantar á heim-
ilið og vinnur hún oft út frá því.
Ingibjörg Hanna tekur einnig þátt í
samsýningunni #Endurvinnumálið
sem er í Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi á HönnunarMars. Á þeirri sýn-
ingu var efnt til söfnunarátaks á áli í
sprittkertum yfir hátíðarnar til þess
að efla vitund almennings um mik-
ilvægi flokkunar og endurvinnslu á
áli. „Ákveðið var að halda söfnun áls-
ins áfram og er það nú orðið varan-
legur kostur í endurvinnsluflóru
landsmanna. Til þess að efnivið-
urinn eignaðist framhaldslíf
þótti kjörið að fá nokkra reynda
hönnuði til þess að bregða á leik.“
Verk Ingibjargar á sýningunni er
þurrkgrind á ofn fyrir vettlinga og
húfur. „Það er eitthvað sem okkur
fjölskylduna hefur vantað lengi,“ seg-
ir hún að lokum.
TILES-handklæðin eru framleidd í Portúgal
og koma í þremur litum og fjórum stærðum.