Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Qupperneq 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Qupperneq 27
heiminn og hannaði meðal annars jakka fyrir New York-ballettinn og fatnað fyrir Ólympíuleikana. Aðspurður hvað hafi orðið til þess að Don Cano hafi orðið svona vinsælt á sínum tíma svarar Jan: „Við vorum rosalega nýtt fyrirbæri. Ég hafði hjálpað fyrirtækjum að byggja upp merki og koma þeim á skrið þegar ég starfaði sem ráðgjafi svo ég vissi nokkurn veginn hvað virkaði. Þetta er ákveðinn hæfileiki og orka að ná að skapa þennan heim.“ Breytingar á markaði Framleiðslan varð dýrari og erfiðara að fá fjármagn. Jan sagði í kjölfarið skilið við Don Cano og hélt til Banda- ríkjanna og hóf að starfa sem ráðgjafi fyrir stór fyrirtæki á borð við Marks & Spencer og fleiri. Hann snéri aftur til Íslands árið 1990, þar sem fjöl- skyldan beið hans, og hóf að vinna fyrir 66 norður, sem áður hafði að mestu leyti unnið fatnað fyrir útgerð- ina. Jan byggði upp útvistarlínu fyrir merkið. Þaðan fór hann til þess að stofna fyrirtækið Cintamani ásamt Hermanni Sigursteinssyni og starf- aði þar í nokkur ár áður en hann fór aftur að starfa við uppbyggingu 66 norður ásamt Sigurjóni Sighvatssyni þar sem hann vann að því að skapa þá ímynd sem fyrirtækið hefur í dag. Getur ekki hætt Það var síðan fyrir fjórum árum að Jan ákvað að endurvekja Don Cano. „Mér fannst ég hálfpartinn hafa stungið af á sínum tíma og mér fannst Don Cano svolítið eiga það inni hjá mér að halda áfram,“ út- skýrir Jan. Don Cano var vinsælla en nokkuð sem hafði sést hér á landi fyrr eða síð- ar. „Þetta var risastórt. Nú er ég 73 ára gamall og get ekki hætt. Klæð- skeri er alltaf klæðskeri og það er það sem ég er. Þó að ég hafi orðið verkfræðingur og ráðgjafi þá er grunnur minn alltaf klæðskurður. Ég vona líka að Karl Magnússon, fyrr- verandi viðskiptafélagi minn frá dög- um Don Cano, brosi frá himnum þeg- ar hann sér hvað ég er að gera. Aldrei að vita hvort hann sé kannski með puttana í þessu líka.“ Aðspurður segist Jan vissulega finna fyrir breytingum í iðnaðinum. „Áður fyrr snérist þetta um gæði vör- unnar og hönnunina sjálfa – ferlið að búa til hágæðavöru. Í dag er ekkert mál að selja drasl með réttri mark- aðssetningu og réttum samfélags- miðlum. Við hjá Don Cano leggjum alltaf áherslu á að gera hágæðavöru á verði sem allir geta keypt hana á.“ Markmiðið er að kynna Don Cano fyrir nýjum kúnnum. „Mín gleði kemur frá því að sjá fallega vöru sem uppfyllir mína drauma um fallega hluti. Ég lifi fyrir að skapa fallega hluti, ég elska að búa til föt og það held ég að sé ástæða þess að merki gengur vel.“ Áherslurnar eiga ekki að breytast Ferlið að hverri flík hefst með saumavélinni úti á Granda. „Hérna geri ég grunninn að öllum okkar flík- um. Til þess að ná sniðinu réttu og ná ákveðinni fullkomnun í sniðagerð verð ég að geta búið til flíkina sjálf- ur,“ útskýrir Jan sem lætur síðan framleiða fatnaðinn í Kína og Lithá- en. „Þess vegna er ég meira í Litháen en á Íslandi, það er svo mikilvægt að vinna með framleiðendum og ég væri helst til í að hafa eigin verksmiðju, en það gerist kannski áður en ég verð 100 ára,“ segir Jan og hlær. Aðspurður hvort áherslurnar hjá Don Cono hafi breyst með árunum segir Jan að þær eigi í raun ekki að breyt- ast. Það sem Don Cano hafði upp á að bjóða voru snið og gæði. „Ég var að- eins kjarklaus núna í byrjun og vann mikið með svart en nú er ég farinn að vinna meira með liti og jafnvel þá liti sem við unnum með á árum áður.“ Jan hefur fulla trú á merkinu og er fullviss um að merkið eigi eftir að ná flugi á íslenskum markaði. „Þetta var auðveldara í gamla daga. Nú er þetta aðeins flóknara með tilkomu sam- félagsmiðla og netsins.“ Þá segir Jan að í dag geti hver sem er titlað sig fatahönnuð og ógrynni af allskonar óvönduðum varningi sé í boði sem hvorki sé einstakur né alvöruhönnun til uppdráttar. „Hönnunarheimurinn í dag snýst svolítið mikið um endur- gerðir. Það er öðruvísi að nálgast hönnun sem er einstök.“ Barnalína væntanleg Að þessu sinni leggur Jan allt undir þar sem hann hefur sjálfur lagt fjár- muni í fyrirtækið og fjárfest í vinnu- stofu á Fiskislóð 45. Hann stundar skíði og syndir á hverjum degi sem hann álítur kost þegar kemur að því að hanna útivist- arfatnað, að þekkja bæði vöruna og þægindi þegar kemur að útivist. Jan notar engar dýraafurðir í hönnun sinni og eru allar flíkur Don Cano bæði þá og nú ætluð fyrir bæði kyn. Í haust kynnir Don Cano-barnalínu. Spurður að lokum hvers vegna hann ákvað að endurvekja Don Cano frekar en stofna nýtt merki svarar Jan: „Þetta er mjög erfið spurning. Ég get svarað þessu eftir tvö ár. Hjá Don Cano geri ég út á að úrvalið ein- kennist af fáum og vönduðum flíkum. Þetta er svolítið eins og með McDon- alds. Þú veist að hverju þú gengur. Þú manst matseðilinn að eilífu. Og þannig á það að vera með Don Cano.“ Ljósmyndir/John Smith Jan Davidsson vinnur öll snið frá grunni og saumar frumgerðir í verslun og vinnustofu Don Cano við Fiskislóð 45. Jan leggur mikinn metnað í gæði í vörum sínum og notast jafnframt ekki við neinar dýraafurðir. Úr nýrri línu Don Cano. 18.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 Geysir heima 5.980 kr. Sápa frá Tamanohada. Nola 6.290 kr. Rose Hibiscus- rakasprey. Mango.com 10.000 kr. Hvítur síður kjóll í þægilegu og töff sniði. Bianco 11.995 kr. Töff sumarskór. Í þessari viku … Sigurborg Selma sigurborg@mbl.is Sumarlína Phoebe Philo fyrir Céline var glæsileg að vanda: Hvíti liturinn, sniðin og mínímalískt yfirbragð línunnar. Ég rakst á síðan hvítan kjól á Mango.com í þessum anda sem ég held að verði fallegur í sumar. Húrra Reykjavík 17.990 kr. Gylltur eyrnalokkur frá Mariu Black. Úr sumarlínu Céline 2018.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.