Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Side 29
18.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
um Lübeck, en siglingar um Norð-
ursjó og vestur á bóginn gegnum
Hamborg. Frá Novgorod og öðrum
borgum við austanvert Eystrasalt
komu skinn, hunang, vax, raf og timb-
ur, salt frá námunum í Lüneburg,
saltsíld frá Skáni, harðfiskur frá
Bergen, kopar og járn frá Svíþjóð,
vefnaðarvörur og vopn frá Ghent og
Brügge o.s.frv. Viðskiptasambönd
Hansaborganna náðu þegar best lét
til um 200 borga og bæja í Norður-
Evrópu. Meðal annars stunduðu
Hansakaupmenn verslun á nokkrum
stöðum á Íslandi frá um 1470 til árs-
ins 1602 þegar Danir komu á einok-
unarversluninni. Á sextándu öld fór
að halla undan fæti hjá Hansa-
kaupmönnum í kjölfar landa-
fundanna í Vesturheimi og harðari
samkeppni við Hollendinga og Eng-
lendinga. Síðasti fundur Hansa-
sambandsins var haldinn í ráðhúsinu í
Lübeck 1669.
Sjö spíra borgin
Lübeck er þekkt í Þýskalandi sem sjö
spíra borgin. Er þar vitnað til sjö
hárra kirkjuturna á fimm helstu
kirkjunum á miðborgarhólmanum.
Aðfaranótt pálmasunnudags 29. mars
1942 varð borgin fyrir loftárásum
bandamanna. Flestar kirkjurnar
skemmdust mikið. Þegar turn St.
Petri-kirkjunnar var endurbyggður
eftir stríð var opnaður rúmgóður út-
sýnispallur með lyftu í 50 metra hæð.
Þar er nú besti útsýnisstaður borg-
arinnar.
Lübeck nútímans er friðsæl og fal-
leg borg þar sem hægt er að gleyma
sér við að ganga um og skoða glæsi-
byggingar sem eru við hvert fótmál í
gamla borgarhlutanum. Allt er í
göngufæri á innan við hálftíma. Varla
er hægt að hugsa sér þægilegri borg
að skoða. Nokkur söfn eru í borginni,
það nýjasta er „Europäisches Han-
semuseum“ eða Hansasafnið sem
opnað var 2015. Þar er fjallað um
sögu og þróun Hansasambandsins á
helstu tungumálum sem komu við
sögu á áhrifasvæði Hansakaup-
manna, þýsku, ensku, sænsku og
rússnesku. Sögusafn borgarinnar er í
báðum turnum Holstentor, borg-
arhliðsins fræga sem prýddi bakhlið
50 marka seðilsins fyrir tíma evr-
unnar.
Bókmenntaunnendur geta litið inn
í Buddenbrookhaus við Mengstrasse
4. Þar er safn til minningar um rithöf-
undinn Thomas Mann og fjölskyldu
hans. Við Glockengiesserstrasse 21
er safn um nóbelsskáldið Günter
Grass sem lést árið 2015. Grass hafði
haft forgöngu um að koma á fót safni
við Königstrasse 21 um Willy Brandt
fyrrverandi kanslara Vestur-
Þýskalands og borgarstjóra Vestur-
Berlínar á tímum kalda stríðsins.
Brandt fæddist í Lübeck árið 1913 og
hét þá Herbert Ernst Carl Frahm.
Hann flúði til Noregs þegar nasistar
komust til valda og tók þá upp nafnið
Willy Brandt. Hann lést árið 1992.
Merkasta veitingahús borgarinnar
og líklega það besta er „Schifferge-
sellschaft“ eða félagsheimili sjófar-
enda sem starfrækt hefur verið frá
árinu 1535 við Königstrasse 2. Hátt
er til lofts í stórum dimmum salnum
sem er lítið breyttur frá sextándu öld.
Veggir, loft og bekkir eru úr dökkum
viði. Innanstokks minnir allt á skip og
siglingar fyrri tíma. Frá loftinu hanga
haganlega gerð líkön af skipum frá
fyrri öldum. Gott úrval er á matseðl-
inum. Einnig er lögð áhersla á þýsk
gæðavín. Á sólríkum sumardegi er
tilvalið að skreppa í „Paulaner am
Dom“ við Kapitelstrasse 4-6, sem er
steinsnar frá dómkirkjunni. Dæmi-
gerður bjórgarður sem býður upp á
ódýra, en góða bæverska rétti, svo
sem Schweinshaxe (reyktur grísask-
anki) og Schnitzel í ýmsum útgáfum
sem skola má niður með ljúffengum
Paulaner bjór frá München.
Miðstöð marsipansins
Virðulegasta kaffihúsið er Niedereg-
ger á annarri hæð við Breitestrasse
89, andspænis ráðhúsinu. Ef maður
nær sæti við vesturgluggann er þar
fallegt útsýni til ráðhússins og Mar-
íukirkju. Á jarðhæðinni er marsip-
anstórverslun. Þar er mikið úrval af
marsipankonfekti í gjafapakkningum
af öllum stærðum og gerðum. Á
nítjándu öld varð Lübeck ein helsta
miðstöð marsipanframleiðslu í
Þýskalandi. Johann Georg Niedereg-
ger hóf framleiðslu árið 1806. Fyrir-
tækið er það elsta starfandi í grein-
inni og er nú rekið af áttundu kynslóð
eigenda. Ef tertan fyllir ekki nógu vel
út í eftir heimsóknina hjá Niedereg-
ger er hægt að fá sér marsipanís á
leiðinni út. Hann svíkur engan.
Borgarhliðið Holsteintor, St. Petrikirkjan og saltgeymslurnar.
Við höfnina.
’ Á sólríkum sumar-degi er tilvalið aðskreppa í „Paulaner amDom“ við Kapitelstrasse
4-6, sem er steinsnar frá
dómkirkjunni.
Glæsilegur stigagangurinn í ráðhúsinu.
Á kaffihúsinu Niederegger ættu allir tertuaðdáendur að fá eitthvað við sitt hæfi.
Heiligen Geist Hospital. Sjúkrahús heilags anda var reist árið 1286 og þykir með
merkari dæmum um gotneska byggingarlist. Eftir siðaskipti var því breytt í elliheim-
ili og er enn notað sem slíkt. Í forsal kirkjunnar eru jólamarkaðir á aðventunni.
Gömlu saltgeymsluhúsin og borgarhliðið Holstentor sem er helsta tákn borg-
arinnar, byggt á árunum 1464-1478. Ferðamannabátar leggja af stað á klukku-
stundar fresti framan við Hotel Jensen við Obere Trave.
Frábært útsýni er frá St. Petri kirkjunni yfir borgina. Maríukirkjan er í viðgerð.