Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Page 8
CYNTHIA ELLEN NIXON fæddist 9. apríl 1966 og er því 52 ára. Hún er
þekkt leikkona, ekki síst fyrir hlutverk sitt í Beðmálum í borginni, en nú síð-
ast hefur hún vakið athygli fyrir pólitískt framlag sitt; 19. mars síðastliðinn
tilkynnti hún að hún ætlaði að bjóða sig fram til ríkisstjóra í New York gegn
sitjandi ríkistjóra, Andrew Cuomo.
Nixon er borin og barnfædd á Manhattan. Hún er einbirni og foreldrar
hennar eru báðir látnir, en hún er af enskum og þýskum ættum. Hún gekk í
Hunter College sem unglingur og fór síðan í Barnard College, sem er hluti af
Columbia University. Nixon var leikkona strax á barnsaldri og þurfti oft að
taka frí frá skóla til að taka þátt í kvikmyndum og leika á sviði. Hún borgaði
líka fyrir háskólanám sitt með leiklistinni.
Fyrsta hlutverk hennar á skjánum var þegar hún var 12 ára gömul en
fyrsta aðalhlutverkið var á móti Kristy McNichol og Tatum O’Neal í Little
Darlings (1980). Fyrsta hlutverkið hennar á Broadway var árið 1980 sem
Dinah Lord í The Philadelphia Story.
Hún hefur alla tíð síðan skipt tíma
sínum á milli sviðsins, hvíta tjaldsins
og sjónvarpsins.
Tvö leikrit á sama tíma
Á fyrsta ári sínu í háskóla árið 1984
lék hún í tveimur leikritum sem slógu
í gegn á Broadway, en báðum þeirra
var leikstýrt af Mike Nichols. Þetta
voru leikritin The Real Thing, þar
sem Nixon lék dóttur Jeremy Irons
og Christine Baranski, og Hurly-
burly, þar sem hún lék unga konu
sem lendir í ósiðsamlegum framleið-
endum í Hollywood. Aðeins tvær göt-
ur skildu leikhúsin að, svo að hún gat
hlaupið á milli þeirra, en hlutverk
hennar voru fremur stutt í báðum
verkunum.
Hún hefur átt farsælan feril sem
leikkona og því kom það mörgum á óvart að hún skyldi hella sér út í stjórn-
málin með þeim krafti sem hún hefur gert; fyrst sem baráttukona fyrir rétt-
tindum LGBTQ-hópsins og síðan fyrir því að allir eigi rétt á góðu námi. Hún
hefur líka beitt sér fyrir málefnum kvenna í heilbrigðiskerfinu, en sjálf
greindist hún með brjóstakrabbamein í október 2006. Hún ákvað að segja
ekki strax frá veikindunum opinberlega en gerði það í viðtali í þættinum
Good Morning America í apríl 2008.
Vill berjast gegn Trump
Nixon segir að ástæða þess að hún sé að láta til sín taka í stjórnmálum sé að
hún vilji berjast gegn þeim gildum sem Donald Trump boðar í embætti sínu
sem forseti Bandaríkjanna. Hún eins og svo margir varð fyrir áfalli þegar
Trump náði kjöri. Hún hafði tekið þátt í mótmælagöngum og þess háttar en
fannst það ekki nóg. „Ég fékk á tilfinninguna að stjórnmál væru orðin per-
sónulegri,“ sagði hún í samtali við New York Magazine. „Mér fannst að ef við
vildum berjast gegn Trump þyrftum við að gera allt sem í okkar valdi stæði
til að taka þátt. Þar á meðal að gefa kost á okkur til embættisstarfa,“ sagði
hún.
Henni fannst Cuomo ríkisstjóri ekki vera mikið betri en Trump þó að hann
væri demókrati. „En í New York ríkir meiri ójöfnuður en í nokkru öðru ríki í
Bandaríkjunum og þetta bil hefur bara aukist í ríkisstjóratíð Andrew
Cuomo,“ sagði Nixon, sem ætlar sér að breyta þessu. Kosið verður 6. nóvem-
ber. ingarun@mbl.is
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.4. 2018
ÁSTIN Nixon var í sambandi með kennaranum
Danny Mozes frá 1988-2003. Þau eiga tvö börn sam-
an, Samönthu (f. 1996) og Charles Ezekiel (f. 2002).
Árið 2004 byrjaði hún síðan í sambandi með bar-
áttukonunni Christine Marinoni. Þær trúlofuðu sig í
apríl 2009 og gengu síðan í hjónaband 27. maí árið
2012. Marinoni fæddi þeim síðan soninn Max Ell-
ington árið 2011.
Hvað kynhneigð sína varðar sagði Nixon í viðtali
árið 2007: „Mér finnst ég ekki hafa breyst. Ég hef ver-
ið með karlmönnum allt mitt líf og ég hafði aldei ver-
ið ástfangin af konu. En þegar það gerðist var það
ekkert skrýtið. Ég er bara kona sem elska aðra
konu,“ sagði hún.
Marinoni hefur sérstaklega barist fyrir mennta-
málum og almenningsskólum en líka fyrir réttindum
LGBTQ-fólks. Hún starfaði fyrir borgarstjóra New
York-borgar, Bill de Blasio, en sagði starfi sínu lausu
skömmu áður en Nixon tilkynnti að hún ætlaði að
bjóða sig fram til ríkisstjóra. AFP
Finnst hún ekkert
hafa breyst
Nixon og
Marinoni.
SJÓNVARP Nixon er þekktust fyrir
hlutverk sitt sem Miranda Hobbes í
hinum vinsælu þáttum HBO Beð-
málum í borginni (Sex and the City)
sem voru framleiddir á árunum 1998-
2004. Hún fékk Emmy-verðlaun sem
besta leikkona í aukahlutverki í
gamanþáttum árið 2004. Þættirnir
segja frá Miröndu og vinkonunum
Carrie Bradshaw (Sarah Jessica Par-
ker), Charlotte York (Kristin Davis)
og Samantha Jones (Kim Cattrall).
Sögusviðið er New York og efniviður-
inn ástarlíf, sambönd og frami vin-
kvennanna. Tvær kvikmyndir sam-
nefndar þáttunum voru framleiddar
síðar.
Miranda í
Beðmálum
Miranda (Nixon) og Carrie (Parker) í Beðmálum í borginni.
BARÁTTUMÁL Eitt af bar-
áttumálum Nixon er að lög-
leiða notkun kannabisefna til
eigin nota. Hún segir þetta vera
nauðsynlegt skref til að berjast
gegn kynþáttamismunum. Hún
segir að 80% þeirra sem eru
handteknir í New York í
tengslum við notkun marijúana
séu svartir eða af suður-
amerískum uppruna þrátt fyrir
að notkun efnisins sé álíka mikil
hjá þessum hópum og hvítu
fólki. Samkvæmt skoð-
anakönnunum eru 62%
skráðra kjósenda í New
York sammála Nixon.
Í sviðsljósi fjölmiðla.
AFP
Baráttukona
í borginni
Nixon tilkynnti 19.
mars að hún ætlaði að
bjóða sig fram til rík-
isstjóra New York.
Mynd frá Tony-viðburði 2017.
Glæsilega klædd á
rauða dreglinum á
Tony-verðlaunahá-
tíðinni 2017.
’Mér fannst að ef við vildumberjast gegn Trump þyrftum viðað gera allt sem í okkar valdi stæðitil að taka þátt. Þar á meðal að gefa
kost á okkur til embættisstarfa.
Vill lögleiða
kanna-
bisefni
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Um 3000
þjónustufyrirtæki
eru á skrá hjá
finna.is
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?